Vísir - 14.05.1975, Side 2
2
Visir. Miövikudagur 14. maí 1975.
rimsm:
Hvaö finnst þér um ferða-
skrifstofustríöið svokall-
aöa?
Helgi Jóhannsson hárskeri: Mér
finnst það ekki nógu gott. Það
verður að vera meiri samvinna á
milli þessara aðila. Þeir gætu
áreiðanlega gert meira i þá átt-
ina. En það virðist rikja mikil
sundrung.
Magnús Jónsson, skrifstofumaö-
ur: Ja, það er frjáls samkeppni,
og hún er ágæt!
Asta Margrét Sigurjónsdóttir, af-
greiðslustúlka: Ég hef ekkert
fylgzt með þessu og hef engan
áhuga á málinu. Ég hef aldrei
notað mér þjónustu ferðaskrif-
stofanna og finnst þetta ekki
skipta mig nokkru máli.
Sigurbergur Sigurbergsson: Ég
er ekkert inni i þessu. Þetta
skiptir mig lika litlu máli — hvort
þeir eru aö rifast eða ekki. Ég hef
ekkert ferðazt með þeim, enda
hef ég miklu meiri áhuga á að
ferðast um landið en að fara út
fyrir það.
Guðrún Hallgrimsdóttir, húsmóö-
ir: — Ég hef ekkert fylgzt með
þvi.
Ingibjörg Björgvinsdóttir, starfs-
stúlka I frystihúsi: Ég veit nú
bará ekkert um þetta mál og hef
engan áhuga á þvi. Nei, ég hef
aldrei fariö neitt á vegum ferða-
skrifstofanna, en ég hef farið til
Ameriku svona á eigin vegum.
mrnrn
GMÐ
HRINGIÐ í
SÍMA 86611
KL13-15
Nýja kynslóðin komin
til kindsins
HVERS VEGNA ÞAKKAR MATT-
HÍAS EKKI FYRIR SIG?
Bíll órsins Citroen CX
Kristján Þóröarson viö fyrsta bilinn af CX gerö, sem kemur á Islenzka vegi. Ljósm. BG.
S.H. skrifar:
„Einn skemmtilegasti kjaft-
hákur Islendinga um þessar
mundir er Vilmundur Gylfason,
sem er innilega og djúpt
hneykslaður yfir mörgu þvi,
sem honum þykir aflaga fara I
Islenzku þjóðllfi. Hann kemur
fram f sjónvarpi á föstudögum
og skemmtir þá þjóðinni með
þvl að vera eins og hann á að sér
I fasi og flutningi máls síns,
meöan hann reynir aö þjarma
að þeim, sem hann hefur valið
til aö láta standa fyrir máli slnu
hverju sinni.
Eitt af þvi, sem særði réttlæt-
iskennd Vilmundar lengi vetrar,
var sú kjaftasaga, að hæstvirtur
fjármálaráðherra, Matthías A.
Mathiesen, hafði otað sinum
tota með þvi að næla sér I ágætis
Volvo á gamla genginu, eftir að
búiö var aö loka gjaldeyrisaf-
greiöslum til pupulsins, áður en
gengisfellingin siöasta var gerð.
Út af þessu meinta misferli
Matthíasar risu úfar hátt með
læröum og leikum, en veslings
ráðherrann fékk ekkert sóma-
samlegt tækifæri til að bera
hönd fyrir höfuð sér.
Loks komst svo Vilmundur I
hljóövarpið, þar sem hann er
ekki nema svipur hjá sjón. En
þar fór hann samt á kostum
og dró meðal annars þessa frá-
leitu kjaftasögu fram I dagsljós-
ið og viðraði þar opinberlega
þaö sem menn höfðu verið að
plskra með I skúmaskotum und-
anfarnar vikur.
Það fór eins og við mátti bú-
ast, að út frá þessu urðu alls
konar harmanir til. Það fór að
llkum, þvi ef einhver hristir
lognmolluna af hversdagslífinu,
er það þegar harmað einhvers
staöar. Það kom ekki á óvart.
En það kom meira á óvart, aö
fjármálaráðherra hefur hvergi
þakkað Vilmundi opinberlega
fyrir að gefa honum kærkomið
tækifæri til að hvltþvo mannorð
sitt opinberlega. Þvi nú gafst
Matthfasi tækifæri til að sýna
fram á og sanna, að hann hefði
fengið bllinn fyrir opinbera
gjaldeyrislokun bankanna.
Liggur þó i augum uppi, að hann
stendur miklu keikari eftir en
áöur, og það á hann Vilmundi að
þakka.
Vilmundur
Hann er loks kominn hingað billinn, sem
vakti mesta athygli i Evrópu á siðasta ári.
Þetta er billinn, sem nær einróma var kjörinn
bill ársins 1974, Citroén CX.
Sjö bllar af þessari tegund
komu til landsins fyrir örstuttu
slðan og er einn þeirra þegar
kominn á götuna, en eigandi
hans er Kristján Þórðarson
sölumaðúr hjá Globus.
Þessi blll er af gerðinni CX
2000 eins og hinir, sem hingað
eru komnir og kostar hann 2.150
þúsundir, sem kemur þó ekki I
veg fyrir að flestir bllanna, sem
komnir eru til landsins, eru þeg-
ar seldir.
Tilkoma CX boðar nýja tlma
hjá Citroén verksmiðjunum og
er sennilegt, aö þessi nýi blll
þýði að framleiöslu á þeim
gamla góða DS fari senn að
ljúka. Eftir standa þá af stærri
bílunum CX og GS, sem I fljótu
bragði eru nokkuð áþekkir I út-
liti.
Citroén CX er fullur af
nýjungum og hafa hönnuðirnir
ekki hikað viö að breyta gamal-
grónum siðum I fólksbílafram-
leiðslunni eins og til dæmis þeim
að hafa tvær vinnukonur á
framrúðunni, CX blllinn hefur
þvl aðeins eina stóra, er nær yfir
alla rúðuna.
I reynsluakstri, sem blaða-
mönnum var boðið I, kom I ljós,
að þessi eina vinnukona virkar
nokkuð truflandi I fyrstu, þegar
hún veltir sér yfir rúðuna, en
eftir um hálf tlma akstur finnst
manni hún jafn eðlileg og tvær
vinnukonur hafa nokkru sinni
verið.
önnur nýjung er I stjórntækj-
um. Þeim er öllum raðaö I
stjórnborðiö, sem myndar hálf-
hring I kringum stýrið og á þann
hátt er hægt að setja á ljósin,
vinnukonurnar, stefnuljósin og
annað án þess að hreyfa hönd-
ina af stýrinu. Aðvörunarljós
kvikna ef bremsuborðar eða
önnur öryggistæki eru I ólagi.
Benzlngjöf, hemlum og
kúplingu er vel komiö fyrir i
Stjórntækjum er öllum raðað I kringum stýrið og ein stór vinnu-
kona sér um aðhalda framrúðunni þurri. Ljósm. BG
gólfi og ástigið fislétt. Blllinn er
búinn þeim fullkomna
fjöörunarútbúnaði, sem ein-
kennt hefur Citroénbílana til
þessa og hægt er að hækka
lægsta punkt úr 14 sentimetrum
I um 25 sentimetra með lyfti-
búnaði. Blllinn heldur alltaf
sinni innstilltu hæð og hækkar
sig og lækkar sjálfkrafa ef
hleðsla eykst eða minnkar.
Bllarnir, sem hingaö koma
eru búnir 2000 kúbika vél, sem
liggur þvert I vélarrúminu og
knýr framhjólin. Hestöflin eru
102 og eyðslan gefin upp á bilinu
9-11 lltrar á hundraðið, enda
hafa útlínur bllsins verið teikn-
aðar með það fyrir augum, að
sem minnstur kraftur færi I að
virina upp loftmótstöðu.
önnur gerð af CX, CX 2200, er
nú einnig framleidd I Frakk-
landi, en hefur lltið verið flutt út
enn. Sú gerð er búin stærri mót-.
or og er Iburðarmeiri I frágangi,
enda dýrari.
— JB
LESENDUR HAFA ORÐIÐ