Vísir - 11.06.1975, Page 9
Nu taler ingen længere
om, at Island er heldig
Eslands anfdrer Johs. Ewaldsson, en af hovedpersonerne i storkampen
i Holbæk i dag, om baggrunden for Islands EM-succes
m
r,Nú getum við verið^ stoltir
of því að hafa unnið ísland"
Sparihöggin ein nœgðu
föstudaginn — kl. 17,00 — hefst
keppni f 3. flokki karla og á
laugardag verður leikið i 1. og 2.
flokki karla. Á sunnudaginn verð-
ur svo leikið í meistaraflokki
karla — 36 holur á einum degi —
en I öðrum flokkum verða leiknar
18 holur.
tslenzk — Ameriska verziunar-
félagið gefur verðlaun i alla
flokka, og eru þau allnýstárleg.
Er það ýmiss konar golffatnaður,
skór, gallar, hanzkar, töskur og
auk þess boltar og kylfur ásamt
ýmsu öðru.
— klp —
Þetta er glæsilegur flokkur og sýningar hans hér verða áreiðanlega viðburður, sagði Guðni Sigfússon hjá Fimleikadeild Ármanns við blaðið I morgun. I gær
kom hingað til lands fimleikaflokkur frá Karlstad I Sviþjóð og dvelur hér til 20. þessa mánaðar. Flokkurinn erá vegum Fimleikadeildar Ármanns og mun halda
nokkrar sýningar i Reykjavik og nágrenni — meðál annars verður sýning i LaugardalshöIIinni annað kvöld kl. 20.15. Sænski flokkurinn sýnir bæði áhalda-
leikfimi og nútimafimleika — og þátttakendur eru á aldrinum frá 12 til 22ja ára. Myndin að ofan er af nokkrum stúlkum I flokknum.
Hver á heiðurinn af þessu spyr Prip.
„Fyrst og fremst Englendingurinn
Tony Knapp. Hann er stórkostlegur og
hefur kennt okkur ótrúlega mikið um
sóknar- og varnarkerfi. Sú tið er liðin
að við förum alveg niður ,,á botninn”
og töpum stórt.”. (Þvi má skjóta hér
inn, að eftir sigur tslands hafa ýmsir
menn i Danmörku verið að þakka sér
árangur islenzka liðsins).
Viðtali Prip við Jóhannes lýkur á
hugleiðingu um leik Holbæk og Köge
sl. sunnudag, þar sem Jóhannes skor
aði sigurmark Holbæk og kom þar
með liði sinu i efsta sæti 1. deildarinn-
ar dönsku ásamt Köge. Jóhannes seg-
ir. „Ég er mjög ánægður að fá að leika
mina beztu stöðu — miðvörð — gegn
Köge, en þó lofa ég ekki, að það þýði að
ég fari ekki oft upp i vitateig Köge.
„Jeg har faaet blod paa tanden’; eru
lokaorð Jóhannesar i viðtalinu.
— hsim.
Austur og vestur slást
um EM-titilinn í körfu
r '
Italía, Spánn, Rússland og Júgóslavía komin í úrslit
Það verða lið frá austur og vestur-
blokkinni, sem berjast um Evrópu-
meistaratitilinn i körfuknattleik I ár.
Evrópumótið — a riðill — er háð þessa
dagana I Júgóslaviu og keppa þar 12
þjóðir i þrem riðlum. Þar á meðal eru
4 lið, sem urðu efst I keppninni I b-riðli
á dögunum, en þar var ísland meðal
keppenda.
Liðin þaöan eru Grikkland, Holland, ;
Pólland og Rúmenia, en liðin sem
þegar hafa tryggt sér rétt til þátttöku I
úrslitunum nú eru ttalla, Spánn, Rúss-
land og Júgóslavia.
Mikil barátta hefur veriö i flestum
leikjunum. ttalir komust t.d. I mikil
vandræöi I leiknum við Holland — voru
20 stigum undir seint i siðari hálfleik
en sigruðu að lokum 69:64. Þá var
Búlgaria 10 stigum undir i hálfleik á
móti Grikklandi en sigraði siðan með
10 stiga mun 81:71 -klp
Allt útlit er fyrir, að Pierre Ro-
berts goifkeppnin á Nesvellinum,
sem hefst á morgun, veröi fjöl-
mennasta opna golfmótið, sem
hér hefur verið haldið.
t gær voru yfir 200 keppendur
búnir að skrá sig i mótið. Loka-
skráning verður til kl. 19,00 i
kvöld i golfskálanum á Nesvellin-
um —slmi 17930 — og er búizt við,
að enn fleiri verði búnir aö skrá
sig fyrir þann tima.
1 Pierre Roberts-keppninni er
leikið i sjö flokkum. Á morgun
verður leikið i tveim kvenna-
flokkum og unglingaflokki. Á
Þar er langt viðtal við Jóhannes
Eðvaldsson, sem vakið hefur gifurlega
athygli i Danmörku — og viðtalið bein-
ist auðvitað inn á leiki Islands i
Evrópukeppninni. Fyrirsögn greinar-
innar er neðst á siðunni.
„Þegar við lékum 1-1 gegn Austur-
Þýzkalandi I fyrra sögðu allir, að það
hefði verið heppni. Þegar við gerðum
jafntefli við Frakkland nýlega sögðu
margir, að enn væri heppnin fylgifisk-
ur okkar. En eftir sigurinn gegn A-
Þýzkalandi sl. fimmtudag er allt tal
um islenzka heppni úr sögunni. Nú
erum við 100% viðurkenndir.”
Þetta sagði islenzka knattspyrnu-
kempan, Jóhannes Eðvaldsson, eftir
æfingu hjá Holbæk i gær. Hann var
fyrirliði isl. liðsins, sem á fimmtudag
„skapte sensation” (segir Prip) með
þvi að sigra DDR i Evrópukeppninni.
„Ég var miðvörður, en fór fram i
öllum hornspyrnum og innköstum
nálægt hornfánanum. Og úr einu sllku
„hornkasti” skoraði ég fyrsta mark
Islands” og siðan heldur Jóhannes
áfram að lýsa leiknum.
„Ég flaug „heim” til Danmerkur
með Austur-Þjóðverjunum og allir
viðurkenndu þeir, að sigur okkar hefði
verið verðskuldaður. Tapið var áfail
fyrir þá — þeir álitu að jafntefli okkar i
fyrrahaust hefði verið hrein heppni —
og bjuggust við léttum sigri i Reykja-
vik”.
til að
Landsliðið i golfi mátti leggja
sig allt fram til að sigra „pressu-
liðið” á golfvellinum á Suðurnesi
á Seltjarnarnesi i gær og hafði að
lokum tveggja stiga sigur.
Sú breyting var gerð á liöunum
i gær, að Loftur Ólafsson fór inn i
pressuliðið, þar sem hann hefur
tilkynnt, að hann treysti sér ekki
til að fara utan með landsliðinu.
Voru þvi 5 menn i pressunni og 5 i
landsliðinu, en 6 verða i liðinu,
sem fer til Irlands á Evrópu-
meistaramótið.
Leikin var holukeppni — einn á
móti einum — og eftir þrjá fyrstu
leikina var staðan jöfn 1 1/2 á
Þegar Danmörk sigraði tsland 2-1 I
Álaborg i fyrrahaust var almenn
óánægja, að við gátum ekki sigrað
„litlu” tslendingana með meiri mun.
Þegar tsland gerði jafntefli við A-
Þýzkaland nokkrum dögum siðar sá-
um við, að árangurinn var ekki svo
slæmur. Og I dag getum viö verið mjög
stoltir af því að hafa sigraö tsland,
sem siðan hefur náð I fjögur stig I
þremur leikjum við Frakkland og
DDR (tvívegis), segir danski blaða-
maðurinn kunni, Poul Prip, i blaði
sinu, Berlinske Tidende sl. sunnudag.
*' *
— segir danski blaðamaðurinn Poul Prip í viðtali við Jóhannes Eðvaldsson, en
Jóhannes hefur vakið gífurlega athygli í danskri knattspyrnu
Farandgripurinn, sem keppt er
um I Pierre Roberts-golfkeppn-
inni, sem hefst á morgun.
Það var markaregn I vigslu-
leiknum i Kópavogi á
laugardaginn — Breiðablik
skoraði 11 mörk gegn Ung-
mennafélaginu Vikingi i 1
Ólafsvik I 2. deildinni. Hér er
eitt markanna — Þór
Ilreiöarsson, lengst til
vinstri, sendir knöttinn fall-
ega neðst i markhorniö.
Tilburðir markvarðar Vik-
ings eru góðir — en nægðu
ekki aö þessu sinni.
Ljósmynd Bjarnleifur.
Sigurveig lagði allar nema eina
Sigurveig Pétursdóttir úr Ar-
manni — tslandsmeistari kvenna
I júdó — náði m jög góðum árangri
á alþjóðakvennamóti I júdó, sem
háð var I Essen I Vestur-Þýzka-
landi fyrir nokkru.
Hlaut Sigurveig silfurverðlaun-
in I slnum þyngdarflokki — lagði
fimm andstæðinga sina I röð á 10
stigum — eða fullnaðarsigri, en
tapaði i úrslitagllmunni fyrir
stúlku frá Vestur-Þýzkalandi,
sem hefur sigrað I mörgum stór-
mótum að undanförnu. Var það
naumt tap, eða 3:5, og voru þetta
einu stigin, sem þessar tvær
stúlkur töpuðu i mótinu — hinir
sigrarnir voru allir upp á 10:0.
Önnur Islenzk stúlka, Þóra
Þórisdóttir, sem lika er úr Ár-
manni, tók einnig þátt I mótinu —
en I þvl voru alls 230 keppendur
frá mörgum löndum. Þóra stóð
sig vel, en náði samt ekki eins
langt og Sigurveig, sem hefur
verið I sérflokki islenzkra júdó-
kvenna nú slöari ár. — klp —
Sigurveig Pétursdóttir ásamt
hinum japanska þjálfara sinum
Naoki Murala eftir verðlaunaaf-
hendinguna á mótinu I Þýzka-
landi.
viíihce pressuna
móti 1 1/2. En i tveim siðustu
leikjunum hafði landsliðið sigur
og sigraði þvi með 3 1/2 á móti 1
1/2.
Úrslit i einstaka leikjum urðu
þessi; (Landsliðsmennirnir tald-
ir upp á undan):
Þorbjörn Kjærbo/
Jóhann Ó. Guðmundsson 1:2
Einar Guðnason/
Loftur Ólafsson 2:0
Ragnar Ólafsson/
Þórhallur Hólmgeirsson 0:0
Óskar Sæmundsson/
Hálfdán Þ. Karlsson 5:4
Sigurður Thorarensen/
Óttar Yngvason 2:1
Björgvin Þorsteinsson keppti
ekki með landsliðinu, og að öllum
likindum fer Sigurður Thoraren-
sen inn i landsliðið á EM I staðinn
fyrir Loft Ólafsson. — klp —
Pierre Roberts-mótið:
Verður það stœrsta
golfmótið ó landinu?
Þar skyggjo stúlk-
urnar ó strókana!
— Ótrúlegur órangur A-Þjóðverja í sundinu
Ulrike Tauber bætti heimsmet
sitt I 200 metra fjórsundi á aust-
ur-þýzka æfingamótinu I Pieste-
ritz I gær — synti á 2:18.3 mln.,
sem er 0.14 sek. betra en eldra
met hennar. Það var annaö
heimsmet hennar á mótinu —
fjórða heimsmetiö, sem þar er
sett.
En margar stúlkur komu i kjöl-
far þeirra Tauber, Korneliu End-
er og hinnar 15 ára Birgit Treiber,
já, austur-þýzku stúlkurnar yfir-
skyggja alveg austur-þýzku karl-
mennina á kvennaári, og náðu
þeir þó góöum árangri á mótinu.
Nú stúlkurnar fyrst. Karla
Linke og Anne-Katrin Schott
syntuinnan við 2:40.Omin. I 200 m
bringusundi — en uröu þó að sjá á
eftir Hannelore Anke I mark.
Anke synti á 2:38.02 min. og 100 m
bringusund á 1:12.93 min. — og I
400 m fjórsundi voru fjórar fyrstu
stúlkurnar allar innan við fimm
minútur. Tauber setti heimsmet
4:52.20 min — árangur, sem að-
eins Guðrun Wegner, A-Þýzka-
landi og Cheryl Gibson, Kanada,
Frúbœr úrangur!
Evrópumeistarinn I 3000 m
hindrunarhlaupi, Malinowski,
PóIIandi, var sigraður á marklin-
unni af Svianum Anders Gaarde-
rud I Stokkhólmi i gær — báðir
fengu hinn frábæra tima 8:15.5
min. 1.4 sek. iakara en heimsmet
Ben Jipchok Kenýa. Karst, V-Þ.
varð 3ji á 8:25.2 mln. en þessir
þrir menn voru i þremur fyrstu
sætunum á EM I fyrra. —hsim.
höfðu náð áður. Fyrstu fjórar I 100
m skriðsundi voru innan viö 59
sek. og allar, sem komust I úrslit i
100 m flugsundi, átta, syntu innan
við 1:05 min.
Strákarnir féllu i skuggann —
þó setti Rainer Strohbach nýtt
landsmet I 400m skriðsundi
4:04.69 min. og Roland Matthes,
Olympiumeistari frá Mexikó og
Munchen, sem I sjö ár var ósigr-
andi i baksundi þar til i fyrra, að
hann tapaði i Concord I Kali-
forniu, synti og sigraði i lOOm á
57.80 sek og 200 m á 2:05.8 — þrátt
, fyrir slæma tannpinu, að sögn
austur-þýzku blaöanna I morgun.
— hsim.
Ármenningar
sigruðu Ægi
Armcnningar komu á óvart I
Laugardalslauginni I gærkvöldi
— sigruðu Ægi I tslandsmótinu i
sundknattleik og er það fyrsti sig-
ur Ármanns gegn Ægi I tvö ár,
eða frá Sigurgeirsmótinu 1973.
Lokatölur I gær urðu 5-4, — I
hörkuskemmtilegum leik.
Stefán Ingólfsson og Pétur
Pétursson skoruðu tvö mörk fyrir
Armann með 10 sek. millibili I
fyrstu lotu. í 2. minnkaði Guðjón
Guðnason muninn I 2-1, en Stefán
svaraði strax með marki, 3-1.
Guðjón skoraði aftur, 3-2.
I 3ju lotu jafnaði Þorsteinn
Geirharösson I 3-3, en Sigurður
Þorkelsson kom Armanni I 4-3. I
lokalotunni skoraði Sigurður aft-
ur 5-3, en Þorsteinn skoraði sið-
asta mark leiksins, 5-4.
Eftir fyrri hluta mótsins hefur
Armann 3 stig, Ægir 2 og KR eitt.
Næsti leikur verður I Laugardals-
laug á föstudagskvöld kl. 9.15. Þá
leika KR—Ármann.
Sl. föstudag vann Ægir KR 6-3.
Ægir komst i 3-0 með mörkum
Guðjóns, Þorsteins og Hreggviös
Þorsteinssonar áður en Þórður
Ingason skoraði fyrsta mark KR.
Þorsteinn jók i 4-1 og ólafur
Stefánsson i 5-1. í lokalotunni
skoraði Ólafur Gunnlaugsson tvö
mörk fyrir KR og Guðjón fyrir
Ægi. Lokatölur 6-4.
— hslm.
Loks fáum við að sjá hið fræga \
suður-ameriska lið, Spörtu, sjáum fljótt
hvort það er eins sterkt og af er látið.
0 Ö1 0,
□ □ □ □
VIÐ
BYGGJUM
Við byggjum, — byggjum við . . . og nú höfum við
opnað nýbyggingu Samvinnubankans i Bankastræti.
Við bætt skilyrði verður okkur nú unnt að veita viðskiptavinum
okkar meiri og betri þjónustu. Öll afgreiðsla bankans fer
fram á fyrstu hæð. Geymsluhólf, sem bankinn hefur ekki
haft aðstöðu til að hafa áður, verða nú til reiðu.
Okkur er það mikil ánægja að geta tekið þetur á móti
viðskiptavinum okkar, verið velkomin í Bankastræti 7.
Samvinnubankinn
BYGGJUM
YIÐ
HBS