Tíminn - 25.08.1966, Qupperneq 2

Tíminn - 25.08.1966, Qupperneq 2
I t 1 "Mnin vv’*" ’ i' i ttv,iivv'' Mvrnr."''’)) i i r>T r' IV'IT 1 H 1 TÍMINN FIMMTUDAGUR 25. ágúst 1966 IÐNSÝNINGIN 1966: 3 sýningastúkur fá viðurkenningu EJ-Reykjavík, miðvikudag. f fréttatilkynningu frá Iðnsýn- ingunni 1966 segir, að ákveðið sé að veita viðurkenningu fyrir þrjár smekklegustu sýningarstúkurnar. f því sambandi mun fara fram skoðanakönnun meðal sýningar- gesta fyrstu vikuna, og verða úr- slit tilkynnt að skoðanakönnun lokinni. í fréttatilkynningunni segir, að sýnendur á Iðnsýnungunni vinni nú að þvi að koma sýningarmun- um fyrir í stúkum sínum, og hafi hinir fyrstu þegar lokið því verki. Fyrirhugað er að hafa barna- gæzlu fyrir sýningargesti ákveð- inn tíma dags, svo þeir sem vilja geti skoðað sýninguna í næði. Verða fóstrur fengnar til að gæta barnanna. Sýningarnefnd vinnur nú að „Gorch Fock“ tii Reykjavíkur í dag HZ-Reykjavík, miðvikudag. Þýzka skólaskipið „Gorch Fock“ mun koma til Reykjavíkur á ’morgun, fimmtudag. Mun það verða hér í þrjá daga og síðan haida til fsafjarðar, þar sem það mun hafa nokkra viðkomu í til- efni 100 ára afmælis bæjarins. Þetta er í fjórða skipti, sem þýzka seglskólaskipið „Gorch Fock“ kemur til íslands, fyrst kom það 1961 til Reykjavíkur, í annað skipti 1963 og fór þá til Akureyrar og síðast 1964, en þá lá það í Hafnarfjarðarhöfn í nokkra daga. 170 liðsforingjaefni eru á skip- inu en skipstjóri þess er Peter Lohmeyer. Klukkan 4 á fimmtu- dag verður blaðamannafundur um borð í skipinu. ÁREKSTUR Á VATNSNESI MZ-Reykjavík, miðvikudag. Aðfaranótt sunnudagsins varð ’iað slys hjá Skarði á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu, að bifreið rakst t klöpp, sem skagaði út í veginn >g endastakkst. Mjaðmagrindar- írotnaði bílstjórinn og var fluttur i sjúkrahús en þrír farþegar, sem ; bifreiðinni voru, sluppu ómeidd- T. Bifreiðin stórskemmdist. ráðningu starfsfólks, sem mun verða 15 alls á hennar vegum, en auk þess hafa sýnendur sjálfir starfsfólk á sýningunni. Um 200 manns munu starfa þar sýningar- dagana. Ákveðið hefur verið að veita við urkenningu fyrir þrjár smekkleg- ustu sýningarstúkurnar. í því sambandi mun fara fram skoðana- könnun meðal sýningargesta fyrstu vikuna. Úrslit munu tilkynnt að skoðanakönnun lokinni. Hinum ýmsu iðngreinum verð- Framhald á bls. 14. Þeir sýna á sunnudag Næstkomandi sunnudag, 29. ágúst, mun varnarlið Atlants- hafsbandalagsins á íslandi halda sýningu á Keflavíkurflugvelli fyrir almenning. Sýningin hefst kl. 1 e.h., og eru allir fslend- ingar velkomnir á þessa sýn- ingu. Sýndar verða ýmsar gerðir flugvéla og margs konar ann- ar búnaður og tæki. Auk þess verður sýningargestum heimilt að skoða ný skólahús, íþrótta- og leiksvæði og annan aðbúnað, svo og ýmsa aðra staði stöðvar- innar, þar á meðal slökkvistöð vallarins, en slökkviliðið er skip að bæði íslendingum og Banda- ríkjamönnum. Slökkviliðið mun sýna slökkvistarf, og verður not- uð skemmd þota við það atriði. Framhald á bls. 15 sag® -s Bob Pope Buddy EaneS AKRABORG EKKI SELD GÞE-Reykjavík, miðvikudag. Eigendur Akraborgar hafa nú liorfið frá því ráði að selja skip- ið, en það var auglýst til sölu snemma í sumar. Friðrik Þorvalds son, framkvæmdastjóri tjáði Tím- anum í dag, að þar sem engar áætlanir hefðu verið gerðar um farkost, sem leyst gæti Akraborg- ina af hólmi, væri ógerlegt að selja hana að svo stöddu, því að flutningar á leiðinni Reykjavík- Akranes gætu ekki fallið niður. Að sögn Friðriks hefur talsverð- ur halli verið á rekstri skipsins og hafa ýmsir eigendur því haft hug á að selja það. Einnig kom það til, að aðaleigendur skipsins eru aðilar í Borgarnesi, en eftir að skipið hætti ferðum sínum þang að hafa þeir að skiljanlegum ástæð um misst áhugann á rekstri þess. Af þessum sökum var skipið aug- Framhald á bls. 15. ÞÝÐIR ÍSLENZKAR FORN- BÚKMENNTIR Á TÉKKNESKU GÞE-Reykjavík, miðvikudag. Um þessar mundir er staddur hér á landi í boði menntamála- ráðuneytisins, tékkneskur mennta- ,maður, dr. Ladislav Hegel. Hann er lærður í slavneskum og germ- önskum málvísindum og undan- farin ár hefur hann þýtt mikið úr ísl. fornbókmenntum yfir á tékknesku, til að mynda Njálu, Grettlu, Laxdælu og Sæmundar- Eddu. Dr. Hegel var á sínum tíma nemandi dr. Finns Jónssonar [ Kaupmannahöfn, og var kunnugur dr. Valtý Guðmundssyni, en þetta er í fyrsta skipti, sem hann kem- ur til íslands. Altika - ný sárverzlun fyrir mottur og ákiæði í bifreiðar XT-Reykjavík, miðvikudag. Á morgun, fimmtudag, verður unuð að Hverfisgötu 64 í Reykja- ík sérverzlun, sem hefur á boð- ^ólum áklæði á bifreiðasæti, svo ig mottur, teppi og púða í bif- :iðar. Nefnist verzlun þessi Al- íka, en vörurnar, sem þar verða -'jldar, eru framleiddar hjá dönsku .yrirtæki með sama nafni. Blaðamönnum var í dag boðið ð skoða hina nýju verzlun og ;eða við eigendur hennar, þá Ósk r Friðþjófsson og Poul Erik Han jen. Sögðu beir m.a.. að beir hefðu að undanfömu haft Altika-áklæðin og hefðu menn tekið þekn svo vel að þeir hefðu ákveðið að setja upp sérverzlun fyrir þennan varn- ing. í hinni nýju verzlun verða seld áklæði á sæti bifreiða, mott- ur á gólf, sætispúðar og stillan- legir púðar, sem settir eru ofan á sætisbök, til þess að leggja höf- uðið á. Þessar vörur eru framleidd ar úr gallon-, perlon- og striga- efnum og er frágangur þeirra hinn vandaðasti. Verðið er mjög samkeppnishæft, því áklæði á öll Framihald á bls. 15 Dr. Hegel kenndi þýzku og tékknesku í menntaskólum um liðlega 20 ára skeið, og á árunum 1948—‘62 var hann bókavörður við háskólabókasafnið í Praag. Hann hefur haldið marga fyrirlestra um germönsk málvísindi við háskóla í Tékkóslóvakíu, en síðustu árin hefur hann aðallega unnið við þýð ingar úr forn-íslenzku yfir á tékk- nesku. Á fundi með fréttamönn- um sagði dr. Hegel, að skandina- vískar fornbókmenntir hefðu löng- um átt miUum vinsældum að fagna í Tékkóslóvakíu og væru lesnar af fólki af öllum stéttum. Aðspurður sagðist hann nota stuðlasetningu við flestar ljóðaþýð ingar sínar, og reyna eftir megni að hafa setningaskipan sem lík- asta og í frumtexta. Hann sagði og, að talnvert af íslenzkum nú- tímabókmenntum hefði verið þýtt á tékknesku, verk eftir Gest Páls- son, Kamban, Laxness og fleiri og eins og fornbókmenntirnar, nytu þær mikilla vinsælda meðal almennings. Um þessar mundir er kennd nútímaíslenzka í germ- önskudeild háskólans í Prag Hana annast Helena Kadeekova, en hún stundaði á sínum tíma íslenzku nám við Háskóla íslands, einnig hefur hún talsvert starfað að þýð- ingum. Við spurðum Hegel af ]iví, hvern ig honum fyndist að vera kominn til íslands í fyrsta sinn, eftir að hafa verið í svo mikilli snertingu við landið og bókmenntir þess. Hann kvaðst vera mjög hrifinn og flest hér væri eins og hann hefði búizt v.ið Héraðsmót Framsóknarmanna 27. ágúst og 3. og 4. sept. Mótin verða sem hér segir: Eysteinn, Ól-afur Sævangi Strand. laugardag- inn 27. ágúst. Ræður flytja Eysteinn Jónsson, form. Framsóknarflokksins og Ólafur Grímsson. Skemmtiatriði annast Ómar Ragnarsson og Fær- eyjafarar Glímudeildar Ármanns sýna glímu og forna leiki undir stjórn Harðar Gunnarssonar. Hljómsveitin Kátir félagar leikur fyrir dansi. Skúli Gísli Félagsheimiliö Ásbyrgi á Laugarbakka V. Hún. laugar- daginn 27. ágúst. Ávörp flytja Gísli Magnússon, bóndi, Eyhildarholti og Skúli Guð mundsson, alþm. Hljómsveitin Engir frá Akureyri leikur fyrir dansi. Þórshöfn laugardaginn 27. águst. Ræðu flytur Gísli Guðmundsson, alþm. Skemmtiat- riði annast .1 ón Gunnlaugss. gam anleikari. Góð hljómsveit lelkur fyrir dansi. Blönduós A.-Hún. laugardag- inn 30. sept. Ræður flvtta Tómas Karlsson, Tómas Stefán blaðamaður og Stefán Guðmunds- son, bæjarfulltrúi, Sauðárkróki. Meðal skemmtiatriða verður að söngvararnir Jóhann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson, syngja. Hljómsveit leikur fyrir dansi. Karl Helgi Laugum S.-Þing. laugardag- inn 3. sept. Ræður flytja alþingismennirnir Karl Kristjánsson og Helgi Bergs, ritari Framsóknarflokks- ins. Meðal skemmtiatriða verður að Jón Gunnlaugsson fer með skemmtiþætti og Jóhann Konráðs son og Kristinn Þorsteinsson syngja. Hljómsveit leikur fyrir dansi. Halldór Davfð Bifröst Borgarfirði, sunnudag inn 4. sept. Ræður flytja Halldór E. Sigurðs son, alþm. og Davíð Aðalsteins son, Arnbjarnarlæk. Skemmti- atriði annast Ómai Ragnarsson og söngvararnir Jóhann Konráðsson og Kristinn Þorsteinsson. Straum ar ieika fyrir dansi. Hvolsvöllur Rang. laugardag- inn 3. sept. Dagskráin verður augiýst síðar Öll héraðsmótin hefjast kl. 9 s. d. /

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.