Tíminn - 25.08.1966, Page 8
8
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 196?
Laugardaginn 20. ágúst lagði
flokkur ríðandi manna upp frá
Skógum undir Eyjafjöllum og var
farið skemmstu leið milli jökla
um Fimmvörðuháls og Heljar-
kamb yfir í Þórsmörk. Mun þessi
leið aldrei fyrr hafa verið farin
FerSamennirnir í Langadal. F. v. Ólafur, Eyjólfur, Sigurbergur, Albert, Þórhallur, Runólfur, Gestur og Árni. Jón R. Hjálmasson tók þessa mynd
sem og aðrar myndir meS greininni, og vantar hann því í hóp ferðalanganna á myndinni.
Á HESTUM YFIR HEUARKAMB
á hestum, svo að sögur hermi, enda
verið talin ófær nema gangandi
mönnum. Það, sem réði úrslitum,
að þessi óvenjulega leið í Þórs-
mörk var nú farin á hestum í fyrsta
sinn, var það að síðastliðið haust
lögðu nokkrir áhugasamir Eyfell-
ingar það á sig að höggva hest-
fært einstigi niður móbergsgil
vestan Heljarkambs, er var versti
farartálmi allrar leiðarinnar.
Helzti hvatamaður leiðangurs
þessa og fararstjóri var Sigur
bergur Magnússon í Steinum og
lagði hánn upp við níunda mann
og með tuttugu hesta. Ferðin frá
Skógum hófst nokkru fyrir há-
degi og var riðið sem leið liggur
inn Skógaheiði. Er þar víðast hvar
greiðfært og að nokkru ruddur
vegur langleiðina inn að Fimm-
vörðuhálsi. Numið var staðar við
skála Fjallamanna þar á Hálsin-
um og þar hittum við fyrir sex
unga og vörpulega menn úr hjálp
arsveit skáta, og höfðu þeir dvalizt
þar efra á jöklum og háfjöllum
í vikutíma við æfingar. Skálinn,
sem Fjallamenn reistu þarna árið
1940, er nú orðinn harla hrörleg
ur, enda mun ærið veðrasamt
þarna á fjallinu. Af Fimm
vörðuhálsi héldum við norður
slakkann milli Eyjafjallajökuls,
og Mýrdalsjökuls um Þrívörðu-
sker og þaðan á hæð eina á norð
urbrún fjallsins, er nefnist Bröttu
fannarsker. Leiðin þarna milli
jöklanna liggur í 1100 — 1200
metra hæð yfir sjó og er grýtt og
gróðurlaus, en snjór er þar ekki
Horft norður af Heljarkambi. Merkurjökull í fjarska.
nema einstakir skaflar á þessum
tíma árs og er augljóst, að jöklar
á þessum slóðum hafa hopað veru
lega síðustu áratugina.
Frá Bröttufannarskeri lá leið-
in niður snarbratt fjallið norður
af. Varð þar allvíða að fara með
töluverðri gát, þvi að hætta kann
að vera á að hestar hrasi, ef ekki
er þrædd rétt leið fram hjá verstu
móbergsfláunum. Brátt náðum við
fram á Heljarkamb, og gekk greið
lega með hestana niður einstigið
góða, sem þarna var höggvið í
fyrrahsust. Því næst lá leiðin um
brattar skriður upp á Morinsheiði
sem er gróðurlaus, en rennislétt
og því kjörinn skeiðvöllur. Eftir
góðan sprett lögðum við á ný nið
ur brattann við Heiðarhorn og fór
um þaðan fram Foldir og drjúg-
an spöl vestur Strákagilsranann.
Senn fundum við bratta en
slarkfæra niðurgöngu í gilið,
og héldum svo eftir botni þess
fram úr því og vestur í Bása
á Goðalandi. En þar er dásam-
lega fagurt land og næsta furðu-
leg umskipti að koma úr grjóti,
gróðurleysi og svala háfjallanna í
grængresið og ilmandi birkiskóg
ana í Básum.
Segir nú fátt meira af þessari
óvenjulegu hestaferð. Gæðingarnir
skeiðuðu fagurlega síðasta spöl-
inn og runnu hiklaust í Krossá,
þar sem við komum að henni
gegnt Skagfjörðsskála í Langa-
dal. Dvalargestir í Þórsmörk
ráku upp stór augu, en fögnuðu
vel hestamönnunum, er geystust
þarna að þeim úr næsta óvæntri
átt. Gistum við í Skálanum um
nóttina í góðu yfirlæti,vog riðum
heim næsta morgun um byggðir.
í allri ferðinni fengum við hið
fegursta verður og fullyrða má,
að hin óvenjulega leið milli jökla
sé allt í senn, stórbrotin, hrika-
leg og ægifögur. Engum skal þó
ráðið að fara bessa leið á hest-
um nema að hafa kunnugan mann
í förinni og beita ýtrustu gætni
í hvívetna. En fyrir okkur, sem
riðum fyrstir norður milli jökla
og niður Heljarkamb verður ferð
in sem fagurt og ógleymanlegt æv
intýri.
Þátttakendurnir í þessari frægð
arför voru s'ém hér segir: Sigur-
bergur Magnússon, Steinum, Eyj-
ólfur Sigurjónsson, Pétursey, Ólaf
ur Ögmundsson, Vík, Albert Jó-
hannsson, Skógum, Þórhallur Frið
riksson, Skógum, Árni Þórðar-
son, Reykjavík, Runólfur Þórar-
insson, Reykjavík, Gestur Magn
ússon, Reykjavík, og Jón R. Hjálm
arsson, Skógum.
ViS kofa Fjallamanna á Fimmvörðuhálsi. Eyjafiallajökull í baksýn.