Tíminn - 25.08.1966, Page 14
14
TÍMLNN
FIMMTUDAGUR 25. ágúst 19S6
IÐNSÝNINGIN
FVamhald ai bls 2
ur helgaður sérstakur dagur og
verður ýmislegt gert til að minna
á og fræða um viðkomandi iðn-
grein hverju sinni.
Kjartan Guðjónsson, listmálari,
hefur gert stálgrind, sem á að
vera táknræn fyrir iðnaðinn. Verð
ur henni komið fyrir í grennd
við sýningarhúsið i Laugardal, en
grindin verður 16—18 metra há.
Iðnsýningin 1966 verður jafn-
framt kaupstefna. Sýningarnefnd
hefur nú ákveðið að lengja tím-
ann, sem kaupstefnunni er ætlað-
ur sérstaklega, til hagræðis fyrir
kaupsýslumenn. Verður kaupstefn
an opin frá kl. 9—14 og geta
kaupsýslumenn dvalizt á sýningar-
svæðinu um hádegið, en veitinga-
salurinn verður þá opinn. Kaup-
stefnan verður að sjálfsögðu einn-
ig opin eftir kl. 14, en sá tími
er einnig ætlaður almenningi.
Flest fyrirtæki munu hafa sölu-
menn í sýningarstúkum sínum til
að auðvelda öll viðskipti. Búizt er
við, að kaupsýslumenn noti sér
þetta einstæða tækifæri til að gera
innkaup sín hjá um 140 framleið-
endum.
GIRÐINGARNAR
Framhaltí ai dis 16
fleiri hér áður fyrr. Allir búa þess-
ir menn í varðskúrum, en engir
í tjöldum núorðið. Auk þessara
manna fara margir menn á okkar
vegum í fastar eftirlitsferðir, og
fara þá úr byggð einu sinni eða
tvisvar í viku. Yfirlcitt eru eftir-
litsmennirnir á hestum og fara
allt upp í 50 km á dag ríðandi,
þó ekki á hverjum degi. Reka I
þeir fé frá girðingunum, og hafa ]
eftirlit með því að þær séu í lagi j
— gera þá við ef með þarf.
— Starfsemin hefur minnkaö
mikið frá því sem var, en mæði-1
veikin hefur alltaf verið að skjóta j
upp kollinum öðru hvoru, og sums i
staðar eru girðingar vegna garna-
veikinnar.
— Alltaf þarf að yfirfara girð-
ingarnar á vorin og fram á sumar,
þótt sums staðar þurfi alls engar
girðingar þar sem náttúran sér
sjálf fyrir hindrunum. Til viðhalds
vegna girðinganna kaupum við
rekastaura á Vestfjörðum aðallega
á Ströndunum og fáum við það
an fimm þúsund staura í sumar,
sem verið er nú að flytja hingað
suður til notkunar næsta vor.
— í haust munum við eins og
undknfarið hafa menn í réttum
á hættulegum svæðum til þes£ að
skoða féð, auk þess sem mienn
verða í sláturhúsunum til eftirlits
með innyflum, sem Guðmundur
Gíslason læknir á Keldum og starfs
lið hans rannsakar síðan, finnist
eitthvað grunsamlegt, sagði Sæ-
mundur Friðriksson, að lokum.
SJÓNVARPSMÁLIÐ
Framhald at bls. 16.
greindu samkomulagi, að taka
málið fyrir miðvikudaginn 31.
ágúst. Með svipuðu áfram-
haldi er þess að vænta, að ís-
lenzka sjónvarpið verði komið
af stað, áður en málið verði
endanlega útkljáð.
Auglýsið í TlfVSANUM
SENDISVEINN
Viljum ráða sendisvein nú þegar. aÞrf að hafa
skellinöðru.
Kassagerð Reykjavíkur
Kleppsvegi 33.
ÞAKKARÁVÖRP
-i----■■ ■'■__:_11._- -■ --■ ____
Innilegar þakkir sendi é‘g öllum, sem glöddu mig á
80 ára afmælisdaginn með gjöfum, blómum og heilla-
skeytum.
Lifið heil.
Pétur Benediktsson, Álfhólsvegi 58.
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaSir,
Ásgeir Kristjánsson
Grafarnesi,
se mandaðist 17. þ m. verSur jarSsunginn í Grafarnesi föstudaginn
26. ágúst, kl. 2 e. h.
Þórdís Þorleifsdóttir,
börn og tengdabörn
Sonur okkar og bróðir,
Hinrik Eldberg Hinriksson
sem andaðist 18. þ. m. verður jarSsunginn í Grafarnesi föstudaginn
26. ágúst kl. 2 e. h.
Ragnheiður Ásgeirsdóttir,
Hinrik Eldbergsson og systkinl.
Eiginmaður minn
Bjarni Jónsson
frá Galtafelli
verSur jarðsunginn frá Dómkirkjunní föstudaginn 26. ágúst, — kl.
13.30.
Sesselja Guðmundsdóttir
og fjölskylda.
Innbrot á 7 stööum
HZ-Reykjavík, miðvikudag.
í nótt var brotizt inn á 7 stöð-
um í Reykjavík. Litlum verðmæt-
um var stolið en hins vegar voru
töluverð spjöll unnin á innbrots-
stöðunum.
Brotizt var inn í vélsmiðjuna
Bjarg í Höfðalúni. Hafði þjófur-
inn farið inn um glugga, farið í
skrifborðsskúffu, þar sem hann
fann lykil að peningaskáp. Úr pen
ingaskápnum, þar sem skjöl eru
geymd, hurfu tvær sparimerkja-
bækur.
Brotizt var inn í bifreiðaverk-
stæði Kr. Kristjánssonar og. tek-
inn peningakassi með 10 króna
seðli í. Sá þjófur verður sannar-
lega fyrir vonbrigðum!
Brotizt var inn í byggingarfyr-
irtæki, þar sem allir lásar voru
brotnir upp, nema á peningaskáp.
Voru miklar skemmdir unnar. Það
eina, sem þjófurinn hafði upp úr
krafsinu, voru 3 brauðsneiðar.
Ungir piltar hafa brotizt inn í
sælgætisverzlun, því að þaðan
hurfu þrír stórir pokar ' af kara-
mellum, en verðmæti þeirra er
talið 1800 kr.
Einnig var rafgeymi stolið úr
bíl úr porti skipafyrirtækis.
Hjá öðru skipafyrirtæki var
brotin rúða á nýrri bifreið og aðr
ar skemmdir unnar a henni, en
ekkert fémætt gat þjófurinn fund
ið.
Maður var tekinn í Söberks-
verzlun á Háaleiti á fimmta tím-
U THANT
Framhald af bls. 1.
kynnt ákvörðun sína, og að fulltrú
arnir í Öryggisráðinu séu mjög
fullvissir um, að þeim muni tak
ast að telja U Thant á að halda
áfram í embættinu. Kjörtímabil
framikvæimdastjóra Samieinuðu
þjóðanna nær yfir fimm ár, en
ekkert kemur í veg fyrir að hægt
verði að ná samkomulagi um
styttra kjörtímabil, ef U Thant
muni frefcar fallast á það. Fyrsti
framkvæmdastjóri samtakanna,
Tryggve Lie, var enflurkjörinn iil
þrlggja ára, svo dæmi sé tekið.
Áreiðanlegar heimildir herrna,
að U Thant rriuni efcki gefa kflfct
á sér aftur- vegna þess, að hann
telji, að aðildarríkin hafi efcki not
að hann, og embætti hans, sem
skyldi í sambandi við baráttuna
fyrir friði í heiminum.
LOFTLEIÐIR
Framhald af bls. 1.
þeir fækki ferðum í samræmi
við það.
Auk þess munu Skandinavar
fara fram á að mismunur á verði
hjá SAS og Loftleíðum verði mink
aður að miklum mun — niður
í þrjá af hundraði — og mun það
trúlega valda mestum ágreiningi.
Skandinavar vilja leyfa Loftleið
um a ðfara þrjár ferðir á viku yfir
sumarið, en tvær yfir veturínn
með RR—400, en íslendingarnir
óska hins vegar eftir fjórum og
þremur freðum.
Fram að þessu hafa menn verið
sammála um, að ef Loftleiðir
kæmu með hraðfleygari vélar en
C-6 ætti verðmismunurínn einnig
að minnka. En hins vegar hafa
Loftleiðir varla gert ráð fyrír að
draga saman starfsemina, eins og
hinir skandinavisku viðsemjendur
þeirra ætlast til.
Fundurinn með íslendingunum
hefst eftir hádegið á morgun í
utanríkisráðuneytinu, en fulltrúar
skandinavisku landanna þriggja
munu halda með sér fund fyrir
hádegið. Búizt er við, að samninga
viðræðurnar haldi áfram f næstu
viku.
anum í morgun. Fannst ekkert fé-
mætt á honum, sem hann hafði
tekið og hann gaf þá sl^ringu á
húsferð sinni, að hann hefði ætlað
að kasta af sér vatni, þar sem það
varðaði seklum á almannafæri!
Fyrir skömmu var stolið útvarpi
úr Ford bifreið. Var útvarpið í
tekkkassa og er hið eina sinnar
tegundar hér á iandi. Útvarpið er
af Radionette gerð, order 1369
Kurer Auto Fm de Luxe tekk nr.
1271911.
Allir þeir, sem varpað gætu ein-
hverju ljósi á þessi innbrot og
þjófnað, eru beðnir að setja sig
í samband við rannsóknarlögregl-
una.
GÓÐ SÍLD VEIDI
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Góð veiði var enn s. I. sólarhring
en þá fengu 51 skip samtals 10.
265 lestir. Víða var saltað í dag
á Austfjörðum og Norðurlandi úr
þeim mikla afla, sem fékkst næst
siðasta sólarhring.
eÞssi skip tilkynntu um nfla
síðasta sólarhringinn:
Þórður Jónasson EA 240 lestfr
Gísli Árni RE 430 Ásbjörn RE 210
Stígandi 220 Guðbjartur Kristján
ÍS 210 Sígurey EA 300 Loftur
Baldvinss. EA 240 Helgi Flóventss.
ÞH 220 Helga Guðm. BA 225 Héð
inn ÞH 320 lestir Gjafar 300 Guð
rún Guðleifsd. ÍS 280 Elliði GK
190 Helga RE 260 Lómur KE (2 1.)
385 Anna SI 160 Keflvífcinigur KE
270 Björgúlfur EA 180 Örn RE
260 Dagfari ÞH 240 Sigurbjörg OF
100 Höfrungur III AK 170 Bjart
ur NK 280 lestir Æsikan SI 120
Þonbjörn II GK 140 Arnkell SU
140 Sæfaxi II NK 55 Hafrún ÍS
170 Sveinbj. Pakobss. SH 135
Grótta RE 180 Krístbjörg VE 120
Árni Magnússon GK 235 Hafþór
RE 130 í-sleifur VE 190 Viðey RE
170 Gullver NS 140 Jón Garðar GK
350 Jón Finnsson GK 260 Sólt'ari
AK 110.01. Friðberts. ÍS 200 Gló
faxi NK 95 Ársæll Sigurðss. GK
Hættulegur
maður
HZ—Reykjavík, miðvikudag.
f gærkvöldi stöðvaði ungur pilt
ur bifreið inni í Blesugróf og gaf
sig á tal við tvær 6 ára stúlkur.
Bað hann þær að hjálpa sér að
leita í húsi, þar sem hann þyrfti
að sækja pakka. Fóru stúlkuniar
upp í bifreiðina og ók hann þeim
upp að Elliðaárstíflu, þar sem
i hann hleypti annarri stúlkunni úr
j bifreiðinni. Síðan ók hann eitt-
hvað með hina stúlkuna, og segir
stúlkan, að hann hafi meitt sig
og þreifað á sér. Engir áverkar
sjást á stúlkunni. Ók hann síðan
stúlkunni inn í Blesugróf nokkru
síðar og hleypti stúlkunni úr bif-
reiðinni.
Ekik virðist óliklegt, að hér sé
um að ræða sama pilt og tók fyr
ir tæpri viku tvær stúlkur upp l
þifreið til sín og leitaði á þær.
Foreldrar lítilla barna eru beðn
ir um að brýna það fyrir börnum
sínum að fara ekki upp i bíla til
ókunnugra manna, sérstaklega
ekki í litla ljósa bíla, en þannig
lýsa stúlkurnar fjórar bifreiðinni
sem pilturinn ók.
250 Jón Kjartanss. SU 180 Guðrún
Jónasdóttir ÍS 150 Engey RE 170
Þráinn NK 125 Helga Björg HU
160 Kópur VE 120 Guijnar SU 180
Hólmanes SU 170 Sigurfari AK 140
lestir.
Bræla var fcomin á miðin í dag,
og lítil veiði. Nokkur veiði varð þó
á suuðrsvæðinu, en þar var veðr
ið nokkuð skárra en á norðursvæð
inu.
Tvö slys
IIZ-Reykjavík, miðvikudag.
Tvö meiri háttar umferðarslys
urðu í Reykjavík í dag. í öðru
þeirra slasaðist karlmaður alvar-
lega, þegar hann skall fram á stýr
ið í bifreið sinni, sem kengbogn-
aði. Var hann fluttur á Slysavarð-
stofuna og þaðan á Landspítalann
en ókunnugt er um meiðsli hans.
Slysið vildi þannig til, að mað-
urinn var að aka sendiferðabif-
reið eftir Borgartúni, þegar vöru-
lyftari fór úr Sindraportinu út á
Borgartúnið, og lenti sendiferða-
bifreiðin á lyftaranum með fyrr-
nefndum afleiðingum.
Hitt slysið vildi þannig til, að
tvær bifreiðir skullu saman á mót
um Hringbrautar og Hofsvalla-
götu. Við áreksturinn þeyttist
önnur bifreiðin upp á gangstétt
og féllu bæði ekilinn og farþeg-
inn úr bifreiðinni. Hvorugur
þeirra meiddist alvarlega, annar
skarst á enni en hinn skrámaðist
og marðist lítils háttar. Fólkið í
hinni bifreiðinni sakaði ekki en
báðar bifreiðarnar skemmdust
talsvert mikið.
Rok og rigning
Framhald af bls 1
Vestfjaröaleiðin teppist
Á Kleifarheiði vestur á Barða
strönd rann úr veginum við brú,
og varð hann algjörlega ófær bíl
um við það. Vöruflutningabílar
voru á leíð héðan að sunnan
í kvöld og var sendur bíll úr
Trostansfirði til að ná í farþega
sem í bílnum voru.
Skriða við Skíðaskálann.
í kvöld hringdi Óli veitingamað
ur í Skíðaskálanum til Reykjavík
ur og tilkynnti að skriða hefði fall
ið á þjóðveginn fyrir sunnan skál
ann skammt frá þeim stað sem
vatnið er tekið í hann. Var hægt
að klöngrast þar yfir á stórum bíl
um, en ófært var fyrir litla bíla.
Bátar sukku og járnplötur
fuku í Hafnarfirði
Tveir bátar sukku í Hafnarfjarð
arhöfn, Búkki 17 tonn úr Kópa
vogi og Guðmundur 3—4 tonna
trilla úr Hafnarfirði. Lágu þeir
báðir við hafnargarðinn, en mikla
ylgju lagði þar inn í höfnina. Þá
fuku bárujárnsplötur af tveim hús
um í Hafnarfirði. Af Vélsmiðju
Hafnarfarðar við Strandgötu og
íbúðarhúsi við Hringbraut. Engin
slys urðu á mönnum við þetta.