Tíminn - 27.08.1966, Side 6
TÍMINN
LAUGARDAGUR 2777. ágúst 196G
Kennarar
Kennara vantar að barnaskólanum Ljósafossi.
Upplýsingar hjá skólastjóra, sími um Ásgarð.
Skólanefndin.
Blaðburöarfólk óskast
til að bera blaðiS til kaupenda við Kleppsveg, Suð-
urlandsveg, Hverfisgötu og Skjólin.
BANKASTRÆTI 7 — SlMI 12323.
Njarðvíkurhreppur -
skipulagsbreyting
Tillaga að nýju skipulagi yfir svæði í Ytri-Njarð-
vík verður til sýnis á skrifstofu Njarðvíkurhrepps,
Þórustíg 3, Ytri-Njarðvík, dagana 29. ágúst—7.
október n.k.
Tillangan nær yfir svæði, sem takmarkast af Borg-
arvegi að norðan, ónefndri götu að vestan og
sunnan og Hæðargötu ásamt Hólagötu að austan.
Skriflegar athugasemdir skulu' sendar undirrit-
uðum fyrir 24. október n.k. Þeir, sem eigi gera at-
hugasemdir fyrir þann tíma teljast samþykkja til-
löguna.
Byggingafulltrúinn Njarðvíkurhreppi,
Hilmar Sigurðsson.
Starfsstúlkur
Starfsstúlkur óskast að Vistheimilinu Arnarholti
á Kjalarnesi. Upplýsingar gefur forstöðumaður í
síma um Brúarland 22060.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Chrysler Windsor
til sölu, smíðaár 1956, búinn sjálfskiptingu og
vökvastýri. Bifreiðin er innflutt frá Bandaríkjun-
um 1962, ástand gott, skoðuð 1966.
Upplýsingar í síma 24663.
SKRIFSTOFUSTÖRF
Stúlka vön vélritun óskast til starfa í skrifstofu
Sjúkrahúsa Reykjavíkurborgar.
Umsóknir um starfið sendist skrifstofu Sjúkrahús-
nefndar Reykjavíkur, Heilsuverndarstöðinni við
Barónsstíg, fyrir 5. sept. 1966.
Sjúkrahúsnefnd Reykjavíkur.
FRÍMERKI
Fyrir hvert tslenzkt frl-
merki. sem þér sendið
mér. fáið þér 3 erlend
Sendið minnst 30 stk.
JÓN AGNARS,
P.O. Box 965,
Reykjavík.
Látið okkur stilla og herða
upp nýju bifreiðina Fylg-
izt vel með bifreiðinni.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32, simi 13100.
K Ý R
TIL SÖLU
Nokkrar góðar kýr eru tjl
sölu. •
Upplýsingar gefur: Haraldur
um Brúarland.
Verkstjórastarf
hjá Njarðvíkurhreppi
Staða verkstjóra hjá Njarðvíkurhreppi er laus til
umsó'knar.
Upplýsingar veittar, ef óskað er, í skrifstoíu
hreppsins, Þórustíg 3, Ytri-Njarðvík, sími 1202,
teða hjá sveitarstjóra, sími 1473.
Umsóknir um starfið sendist sveitarstjóra fyrir
15. sept. 1966.
Sveitarstjórinn Njarðvíkurhreppi,
Jón Ásgeirsson.
Aðstoðarlæknisstöður
/
3 aðstoðarlæknisstöður við Barnaspítala Hringsins
eru lausar til umsóknar frá 1. október n.k. Stöð-
urnar veitast til 6 mánaða. Laun samkvæmt samn-
ingi læknafélags Reykjavíkur og stjórnarnefndar
ríkisspítalanna. Umsóknir með upplýsingum um
aldur, námsferil og fyrri störf sendist stjórnar-
nefnd ríkisspítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 29.
september 1966.
Reykjavík 26. ágúst 1966
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Aðstoðarfæknisstaða
Staða aðsto^rlæknis við Barnaspítala Hringsins
er laus til umsóknar frá 1. október n.k. Ráðningar-
tími er 1 ár með möguleika á framlengingu um
eitt ár. Laun samkvæmt samningi Læknafélags
Reykjavíkur og stjórnarnefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítaianna,
Klapparstíg 29, fyrir 29. september 1966.
Reykjavík, 26. ágúst 1966,
SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA.
Hvar eru hinir framliðnu?
Ef sannleikurinn hefði eins mikið fé til umráða
og lýgin, myndi hvert mannsbarn í dag vita, að
maðurinn hfir eftir líkamsdauðann. Vísindin eru
fyrir löngu búin að sanna þetta. Já, ekki aðeins
sanna, heldur margsanna. En þetta hefur enga
hernaðarþýðingu — svo vitað sé — og þess vegna
meðal annars hafa ríkisstjórnir stórveldanna lít-
inn áhuga á málinu — enn sem komið er. Frægir
vísindamenn og einstaklingar (jafnveJ ráðherrar
og önnur „stórmenni"!)' eru þó löngu sannfærðir
um, að fleira er til en puttinn kemst í. Okkar efn-
isheimur er gisinn og grisjóttur samanborið við
hinn varanlega „efnisheim“ hinna framliðnu. —
„Efni” þess heims er miklu þéttara og stöðugra
en nokkuð það efni sem venjulegt fólk sér í kring-
um sig. Sveifluhraðinn (önnur bylgjulengd)) gerir
hann ósýnilegan í okkar augura enda þótt hann
sé rétt við nefið á okkur og bæði sýnilegur og á-
þreifanlegur þeim, sem þar lifa og starfa.
MORGUNN, tímarit Sálarrannsóknafélags íslands,
fræðir okkur bezt um þessi mál. Forði'.'t forheimsk
unaröflin! Gerizt áskrifendur að „MORGNI". Tvö
hefti, vönduð og fjölbreytt, koma út á ári, kr.
50,00 eintakið fyrir áskrifendur og greiðist eftir
á. Sendið nafn og heimilisfang: MORGUNN, póst
hólf 433, Reykjavík.