Tíminn - 27.08.1966, Side 9
LAUGARDAGUR 27. ágúst 1966
TIMINN
SÉRA ÁRELÍUS NÍELSSON SKRIFAR UM
Séra Árelíus Níelsson.
Armenísku kirkjuna -
kirkju píslarvottsins
Alar slíkar deilur eru flest-
um nútímamönnum framandi
og nær ómögulegt að fá vest-
rænt fólk til að hugsa um slíkt,
hvað þá meira. Og er því harla
óskiljanlegt, hvernig fyrri tíma
kynslóðir gátu barizt um það
upp á líf og dauða, hamazt og
hatazt.
Armenisika kirkjan hefur
f jóra patriarka eða erkibisikupa
Þeir mega samt aldrei fara
lengi með völd í senn sami
maður. Aðeins höfuðbiskupinn
vígir biskupa fyrir alla kirkjuna.
Klerkar, sem ætla að kvongast
verða að gera það áður en þeir
eru vígðir, annars verða þeir
að lifa einlífi ævilangt. Biskup-
ar eru jafnan valdir meðal
óvígðra klerka eingöngu. Klaust
ur eru eingöngu höfð sem upp
eldisstöðvar fyrir presta. Leik-
imenn útnéfna klerka í ráð eða
nefndir sem síðan velja bisk-
upa og patriarka og leikmenn
taka fullan þátt í kappræðum
um trúarleg efni og kennisetn-
ingar.
Formlega viðunkennir arm-
eníska kirkjan sjö sakramenti,
en raunverulega eru þau ekki
fyllilega um hönd höfð. Bæði
brauði og víni er útdeilt. Hjóna
skilnaður er leyfður samkvæmt
vissum kirkjulegum formúlum.
Helgiklæðnaður er svipaður
og í rómversk katólsku kirkj-
unni, en liturgia það er söngv-
ar og siðir guðsþjónustur líkj-
ast meira þeirri grískkatólsku.
Mál kirkjunnar er armeniska
Armenskar kidkjur eru rétt
hyrningar að flatarmáli og alt-
arið reist á palli fimm til sex
fetum ofar aðalgólffleti kirkj-
unnar. Aðeins ein liturgia er
leyfð á einum og sama degi.
Yfirleitt er stefnt að einfald-
leik og látleysi í umhverfi og
siðum. Engar myndastyttur eru
leyfðar í kirkjunum og miklu
færri helgimyndir en í öðrum
austrænum kirkjum.
Fastákveðnar hátíðir eru 13
dögum síðar en í vestrænum
kirkjum, þar eð armeníska
kirkjan heldur sig enn við Júlí-
anska timatalið. Flestar hátíðir
eru hreyfanlegar miðaðar við
páska, sem eru haldnir sama
mánaðardag og í grísku kirkj-
unni.
Jólin eru ekki sérstök hátið
hjá Armenum heldur inni
falin þrettándanum, eða Epi-
faníuhátíðinni, sem er nofekurs
konar nýársfagnaður. En þetta
er líka svipað í fornum austur-
kirkjum öðrum, og hátíðahöld-
in fara fram með næturvöku
og aftansöngvum. Föstudagar
nema allt að þriðjungi allra
daga ársins og setja því mikinn
blæ á allt þjóðlífið og móta það
alvöru og nokkrum þunga.
Messudagar, helgaðir stór-
mennum, postulum og píslar-
vættum eru og mjög margir og
talið sjálfsagt að fylgjast vel
með öllum þeim minningum,
sem þá eru til umræðu og boð-
unar. Biblían sjálf hefur hins
vegar ekki eins fastan sess í
boðskap kirkjunnar og hér á
Vesturlöndum En sérkenni og
kraftur armenisku kirkjunnar
birtist ekki fyrst og fremst í
messuhaldi og helgisiðum, þótt
kirkjuleg list og fegurð, sé að
ýmsu leyti frá áhrifum hennar
sprottin á fyrstu öldum kristn-
innar, meðan hún var arftaki
frumsafnaðarins í Jerúsalem og
likt og Ijósið í Ijósastikunni,
sem lýsti inn í dimmu Vestur-
landa og kveikti þar ljós við
ljós.
Kraftur hennar lifir fyrst og
fremst í fórnarvilja, kærleiks-
þjónustu og samfélagi fólksins
sjálfs við hin hversdagslegu
störf, samhjálp og skipulag til
að styðja hina smæstu og
hugga og styrkja hina hryggu
og smáðu. Það er einmitt þann
ig og þess vegna sem hún hefur
þolað hörmungar og píslan’ætti
og fremur eflzt við það en
eyðzt.
Þetta kemur einmitt skýrt
fram í ávarpi sem katolifeos eða
yfirmaður armenisku kirkjunn
ar flutti í fyrra á hinu mikla
minningarári, sem helgað var
minningu píslarvætta og ot-
sókna árið 1915. En þetta ávarp
var sent og lesið upp í öllum
armenskum kirkjum síðastliðið
ár. Og hefði gjarnan mátt helga
þvi messu hér úti á íslandi.
En þessi orð mín verða þá líkt
og ofurlítil uppbót þess, sem
þá féll í skuggann.
Ávarp þessa kirkjuföður nú-
timans sem heitir Vaggen I.
er alveg í sama stíl og bréf
postulanna t.d. Páls í Nýja-
Testamentinu og er sjálft hríf-
andi vitnisburður um þann
anda og kraft, þá trú og kær-
leika, sem tengir þessa þjóð og
kirkjur hennar og söfnuði í
órjúfanlegt bræðralag í nafni
Jesú Krists.
Eftir virðulegt ávarp til
biskupa og safnaða kirkjunnar
um víða veröld segir Vaggen
meðal annars:
„Megi sálir allra píslarvotta
hvílast í heilagri og ævarandi
dýrð og friði. Jafnvel þótt látn-
ir virðist, var dauði þeirra sann
arlega líf“.
Saga þjóðar vorrar er lifandi
minnismerki reist innan sjón-
deildarhrings mannkyns, mótað
og holdi klætt með blóði písl-
arvættanna, stutt skapandi
snilli til kærleiksþjónustu alls,
sem er gott og fagurt og vermt
helgum ákafa til að skapa sína
eigin þjóð og föðurland, sér-
staklega frá þeim degi, sem ljós
hins heilaga boðskapar Krists
rann upp yfir Armeníu.
Við ljós þessa boðskapar og
kenninga Krists lærði hin arm-
enska þjóð að trúa á lífið og
Síðari grein
lifa í ljósi og skapandi starfi,
trúa á mátt þess kærleika, sem
fellur aldrei úr gildi. Og þann-
ig opnaðist þessari þjóð hlið
hins andlega máttar, hins eilífa
lífs. Tímabil hinnar armensku
þjóðarsögu hefst á fimmtu öld
með upphafi, armenskrar rit-
aldar og hinnar hetjulegu bar
áttu Avarairs.
Avarair var hátindur andlegs
þroska armensku þjóðarinnar
og skýrrar túlkunar hinnar arm
ensku þjóðarvitundar og stolts
í lífi og list.
Þar var einnig upphaf hinn-
ar raunverulegu sögu og þjóð-
menningar, sem sett hefur
merki sín á allar aldir og kyn-
slóðir, sem á eftir komu. Písl-
arvætti Vardanians og Ghevon
dians voru tákn hinna þjóðlegu
örlaga.
Og alla tíð frá þessu tímabili
í eitt þúsund og fimm hundruð
ár hafa feður vorir háð hina
sömu baráttu, drýgt sömu hetju
dáðir fyrir Krists og föðurland,
og í hinum sama anda, að sann
leikurinn skuli birtast með þvi
að sigra dauðann með dauða
sínum.
Á þessum blóði stokkna en
göfuga vegi dýrðar, fetaði arm-
enska þjóðin þyrnibraut sið-
asta píslarvættis síns fyrir
fimmtíu árum síðan.
Og erkibiskupinn heldur
áfram að lýsa þessu óttalega
tímabili, sem er alveg hliðstæða
Gyðingaofsóknanna og fjölda-
morðanna í Þýzkalandi hjá
Nazistum í síðari heimsstyrjöld.
Hann segir:
„Enn í dag eru hjörtu vor
hafsjór af trega og sorg, er
vér minnumst hins hryllilega
harmleiks, sem hófst 24. apríl
1915 og hélt áfram í 5 hræði-
leg ár og náði yfir alla arm-
ensku þjóðina í Vestur-Armen-
íu með ægilegri hörmungum en
orð fá lýst, með skipulögðum
aftökum, pyntingum og eyð-
ingu af ógnarstjórn tyrknesku
soldánanna. Nær tvær milljón-
ir Armena vori’ myrtir. Hundr-
að blómlegra þorpa, borga
kirkna, klaustra, og þúsundir
sögulegra menja og listaverka
ekki sízt í höggmynda- og bygg-
ingalist var brennt og eyðilagt.
Píslavottar féllu í orrustum,
prestar voru leiddir til dauða
eins og sláturfé og unga fólkið
sömuleiðis, tugþúsundir ungra
kvenna voru seldar í ánauð og
til vændis, hundruð þúsund fag
urra kvenna urðu ekkjur á
blómaskeiði ævinnar og ótalin
verða að eilífu tár munaðar-
leysingjanna.
„Helmili vor urðu grafreitir
vorir og húsin, sem vér höfð-
um byggt eigin höndum hrundu
yfir höfuð vor. Sá tími virtist
upprunninn, að enginn Arm-
ena mætti lífí halda í þessari
veröld. Öll von var horfin og
sögu Armena virtist difið niður
í haf blóðsins og lokað um ald-
ir.
En leyndardómar lífs og
dauða eru órannsakanlegir, og
saga armensku þjóðarinnar ei-
líft kraftaverk.
Raunverulega var betta þjóð
armorð, en Armenar dóu ekki,
því að þeir höfðu um aldir vígt
sig hinni heilögu trú, sem birt-
ist í orðum postulans mikla:
Lífið er mér Kristur og dauð-
inn ávinningur. Andinn lifir æ
hinn sami, þótt afl og krafta
nauðir lami. Og því er svo kom
ið, að á fjörutíu árum, hinum
síðustu hefur meginhluti arm-
ensku þjóðarinnar aftur safn-
azt saman í móðurlandi feðr-
anna, undir sinni eigin stjórn
á meðal bróðurlegra þjóða, og
vígt /síg uppbyggingu og frið-
sælli framtíð við yfirburðaör-
yggi, frið og framfarir. En Arm
enar dreifðir um alla heims-
byggð líta í nýrri von og með
miklu stolti og fögnuði til
feðralandsins, sem þeir sjá hefj
ast í hillingum. Þá dreymir nú
um að sameinast heimþjóðinni
við hið heilaga Araratfjall,
dreymir um þann dag, sem
þessi hrjáða þjóð megi fagna
systrum og bræðrum. heim-
komnum úr útlegðinni miklu,
til að fórna móður Armeniu
starfi sínu og kröftum.
Píslarvætti Armena hefur
verið sigri krýnt að síðustu og
í dögun nýs lífs er vort forna
land endurborið sem þjóðríki.
í dag, fimmtíu árum eftir hið
mikla blóðbað, beygir hin arm-
eniska þjóð bæði heima og um
víða. veröld höfuð sitt í lotn-
ingu að legstöðum hinna nafn-
lausu píslarvætta í bæn um frið
og blessun Guðs með sálum
þeirra. Þetta fólk heima og
heiman heitir því að halda
minningu þeirra í heiðri og
vera jafnan traust þeirra björtu
von og ljómandi trú á sigur
hins göfga og góða, dýrka hetju
þrótt þeirra og anda, varðveita
til uppfyllingar þeirra bjarta
draum um sameiningu allra
Armena í þeirra fagra og
fræga föðurlandi.
„Lauga þig í dýrð ættjarð-
arástarinnar. Þannig gjörir þú
minningu feðranna að lífi af
þínu lífi, segir hinn mikli
spekingur Alishan. Þvi má
enginn Armeni gleyma.
Og í dag er dagur bænar fyr-
ir friðsamlegum framförum og
farsæld þjóðar vorrar, bænar
fyrir varðveizlu Drottins á ný
enduheimtu sjálfstæði þjóðar-
innar, bæna fyrir Móður Arm-
eníu, sem lifir, andar og hrær-
ist í ljóma Guðs dýrðar.
Og til þess liðu píslarvott-
arnir hryllilegan dauða að svo
mætti verða, þeir dóu fyrir end
urfæðingu föðurlands síns.
En gleymum því ekki heldur,
að þessi dagur er helgaður
heimsfriði og bræðralagi allra
þjóða og allra manna, svo að
aldrei framar beiti maður vopni
gegn manni eða þjóð gegn
þjóð. Megi friður ríkja í öllum
samtökum manna, milli allra
þjóðfiokka, allra kynþátta, frið
ur ríkja í hverju hjarta. Megi
rætast orðin heilögu:
„Elska og sannleikur mætast.
Friður og réttlæti kyssast,"
Sálm. 85.11.
Megi armenska kirkjan og
þjóðin lifa þannig um aldir,
að hún verði ljós á vegum þjóð
anna um víða veröld. Þessi
brot úr ávarpi katoliks, erki
biskupsins í Etchmiadzin, hinni
helgu borg eru nægileg til að
sýna eðli stefnu og tilgang arm-
ensku kirkjunnar. hversu hún
er samofin sögu sinni og raun-
um, sigrum og ósigrum, hve
hún metur mest boðskap Drott-
ins Jesú um kærleika. frið,
starfandi elsku, fórnandi kraft,
ljós, sannleika og líf. án enda-
lausra tiivitnana um kennisetn
ingar og játningar, skoðanir og
kreddur. Og síðast en ekki sízt.
hvernig trú og tilgangur henn
ar er óaðskiljanlegt frá ættjarb
arást og heimþrá, tignun og
lotningu gagnvart ættlandi os
örlögum þess. Allt annað þjón-
ar þessum sama tilgangi, þjóð-
skipulag, bókmenntir, tunga.
menningarviðleitni, vísindi, upp
eldi, tækniþróun, listir. Utan
Framhald á bis. 12.