Vísir - 25.06.1975, Blaðsíða 8

Vísir - 25.06.1975, Blaðsíða 8
Vísir. Miðvikudagur 25. juni 1975. visir. íviioviKuuagur juni j. Umsión: Hallur Símonarson Tom Lund ekki rmeð á móti íslendingum! Nú er útséö um að tslendingar fá ekki að sjá bezta knattspyrnumann Noregs — Tom Lund — i landsleikjunum i undankeppni ólympíuieikanna. Hann meiddist illa á ökla I leik fyrir nokkru, og nú hafa læknar úrskurðaö, að hann geti ekki leikið knattspyrnu aftur fyrr en f fyrsta lagi i byrjun spetember. Þetta er mikið áfall fyrir norska landsliðið, þar sem hann hefur verið aðaldriffjöðrin, og óttast Norðmenn nú, að þeir lcndi I vandræð- uin i leikjunum við tsland sem verða I næsta mánuði. Tom Lund hefur fengið fjölda tilboða frá þekktum atvinnumannaliðum vfða um Evrópu.en hafnaðþeim öllum, þar sem hann segistekkihafa áhuga á að gera þetta áhuga- mál sitt að atvinnugrein sinni. — klp — • Komast þeir í b-riðil? Evrópunieistarainót karla i golfi hefst i dag á hinum heimsfræga velli Killarny — á trlandi. Hefst mótið með forkeppni, þar sem allir keppcndur leika 18 holur, og verður síðan raöað i riöla eftir árangri fimm beztu manna af sex frá hverju landi. íslendingar eru með I þcssari keppni i ár, og koma þeir trúlega til með að heyja harða baráttu um að komast i b-riðil, en alls verða riðlarnir þrir (a-b-c) eins og i siðasta móti I Portúgal. Það verður áreiðanlega erfitt að komast þangaö cnda mörg lið með injög góöa kylfi'nga, scm þarna keppa. En við getum vonandi sagt frá, hvernig islcnzka liðinu vegnaði, i blaðinu á morgun. • KR vann einnig fyrsta flokkinn KH, sem varð Reykjavikurmcistari I meistaraflokki i knattspyrnu i ár, varö einnig Rcykjavikurmeistari I 1. flokki. Síðasti leikur inótsins fór fram fyrir skömmu og var hann á milli Vals og KR og fór fram á Valsvellinuin. KR-ingarnir sigr- uðu I þeim leik 1:0, og það nægði þeim til sigurs I mótinu. Björn Pétursson — handknattleiksmaður úr Gróttu — skoraöi þetta eina mark KR I leiknum. ^lp • Replogle Cup: Þeir komust í 1. umferð! 1 siðustu viku fór fram á tveim völlum samtimis — Nesvellinum og Ilvaleyrar- vcllinum — undankeppni um svonefndan Roploglc-bikar. Komust lOmenn frá hvorum velli áfram i keppninni og leika þeir holu- keppni — einn á móti einum — á Nesvellin- um. Fyrsta umferöin er þegar hafin, en henni skal vcra lokið fyrir miðnætti 2. júli n.k. Þeir sem mætast I fyrstu umferðinni eru þessir: Sigurður Thorarensen GK/Sigurður Alberts- son GS. Sigurjón Gislason GK/Pétur Björns- son NK. Magnús Halldórsson HK/Carlton J Keyscr NK. Hálfdán Þ. Karlsson GK/Jón Þór Ólafsson GR. Sveinhjörn Björnsson GK/Kjartan L. Pálsson NK. Magnús Birgis- son GK/Gunnlaugur Ragnarsson GR. Júlíus R. Júlíusson GK/Óli B. Jónsson NK. Elias Helgason GK/Hilmar Steingrimsson NK. Loftur ólafsson NK/Eiríkur Smith GK. Pétur Antonsson GS/Guðmundur Itingsteð GK. Ei- rikur Jónsson GR/Magnús Hjörleifsson GK. Jóhann Reynisson NK/Gunnar Finnbjörns- son GK. Ilannes Þorsteinsson NK/örn Isebarn GK. Jóhann Bencdiktsson GS/Karl Hólm GK. Tómas llolton NK/Ægir Armanns- son GK. Gunnar Kvaran NK/Knútur Bjömsson GK. ÞJALFA ALDREI SLANDI FRAMAR" segir Hooley í viðtali við Vísir áður en hann hélt aftur til Englands, þar sem hann œtlar að taka að sér hálf-atvinnumannalið Jóseph Hooley, kom og „kvaddi” grasvöllinn I Keflavik I gærkveldi. Gekk góða stund um blautt grasið, hugsandi á svip og leyföi okkur góðfúslega að smella af sér einni mynd — enda nýklipptur. ,,Ég hef ekki rofið neina samn- inga. ÍBK stóð hins vegar ekki við gefin loforð gagnvart mér. Þess vegna sagði ég þjálfarastarfinu lausu, með umsömdum fyrirvara — en ósk um að losna strax, og við þeirri ósk varð IBK”, sagði Joseph Hooley, þegar við hittum hann að máli, þar sem hann stikaði um grasvöllinn i Keflavik seint í gærkveldi og skimaði yfir svæðið, óráðnum svip. „Viðskilnaðurinn er ekki góður, við ÍBK. Ég hef ekki fengið þær greiðslur, sem mér ber. Það sætti ég mig ekki við, en ég skal ná mlnum launum, hvort sem það tekur eitt eða tiu ár. Lögfræðing- ur hefur fengið málið til með- ferðar og ég ætla að fá enska knattspyrnusambandið i lið með mér,” sagði Hooley og strauk grásprengt, nýklippt hárið. Þrátt fyrir umbrotin seinustu daga, var Hooley skrafdrjúgur og við notuðum tækifærið til að leggja fyrir hann nokkrar spurn- ingar. ,,Jú, íslendingar eiga mögu- leika á móti Norðmönnum, lands- liðið er mjög sterkt, það sýnir frammistaðan i undanförnum leikjum, en IBK liðið vinnur ekki l.-deildina héðan af. Til þess hafa þeir tapað of mörgum stigum, — liðið er ekki það sterkt núna, að það geti unnið það upp.” „Hvort islenzk knattspyrna er betri I dag en hún var á milli 1950- 60, get ég ekki dæmt um með raunhæfum samanburði, — en knattspyrnunni i heiminum hefur farið fram siðan 1960, og þvi skyldi Island ekki hafa fylgt þar með? Keflavikurliðið 1973 er áreiðanlega eitt — ef ekki það sterkasta, sem Island hefur eign- azt, — dæmi ég það eftir frammi- stöðu þeirra við erlend lið.” En hvað veldur þá minnkandi áhuga fyrir knattspyrnuiþrótt- inni, bæði hér og erlendis, spurð- um við Hooley. „Knattspyrnuiþróttin hefur þróazt, eins og flest annað. Þjálfunin er fullkomnari og vis- indalegri. Leikkerfin eru flest miðuð við varnarleik og kapp- Eintracht Frankfurt aftur bikarmeistari í Þýzkalandi Eintracht Frankfurt sigraði Duisburg i úr- slitaleiknum i vestur- þýzku bikarkeppninni á laugardaginn með einu marki gegn engu. Staðan i hálfleik var 0-0. Þetta er annað árið i röð, sem Eintracht Frankfurt sigrar i bikarkeppninni i Vestur-Þýzka- landi. Markið kom á 57. minútu leiksins og var það Koerbel, sem skoraði það. Með þessum sigri kemst Eintracht i Evrópukeppni bikar- meistara, sem hefst i september, n.k. en liðið hafði áður tryggt sér sæti I UEFA keppninni. Duisburg GROTTA OG IR UT ÚR BIKARKEPPNINNI — Töpuðu fyrir Fylki og Selfossi í gœrkvöldi — Níu bikarleikir verða í kvöld í landsfjórðungunum öllum Bikarkeppni KSÍ hófst I gær- kvöldi með tveim leikjum I und- ankeppninni, en þar keppa liðin úr 2. og 3. deild. Komast átta þeirra I aðalkeppnina ásamt 1. deildarliðunum, en hún hefst I lok næsta mánaðar. Leikirnir I gærkvöldi voru á milli Selfoss og ÍR á Selfossi og Fylkis og Gróttu á Arbæjarvelli. Selfyssingarnir sigruðu 1R 3:0 og voru öll þeirra mörk skoruð i fyrri hálfleik — Tryggvi Gunnarsson tvö og Stefán Larsen eitt. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik i leik Fylkis og Gróttu, en i þeim siðari voru skoruð 5 mörk, þar af gerðu Árbæingarnir 4. Ómar Egiisson skoraði fyrsta markið, en Jón Albert jafnaði fyr- ir Gróttu. Baldur Rafnsson kom Fylki aftur yfir en Hörður Antonsson innsiglaði sigurinn með tveim siðustu mörkunum. í kvöld verða niu leikir I bikar- keppninni viðs vegar um landið — þar af einn stór I Kópavogi — þar með 2. deildarliðin Breiðablik og Armann mætast. Hinir leikirnir eru: Afturelding—Þróttur á Varmárvelli, Völsungur—Leiftur, á Húsavik, UMSS—Reynir Arskógsströnd á Sauðárkróki, Þór—KS, á Akureyri, Val- ur—KSH, á Reyðarfirði. Austri—Huginn, á Eskifirði, Þróttur N—Höttur á Neskaupstað og IBÍ—Vikingur Ólafsvik, á Isafirði. Auk þess verða sjö leikir I bikarkeppni 1. og 2. flokks leikn- ir I kvöld. —klp— Hvaðeigum við að gera? lí fær nú það sæti fyrir að vera i öðru sæti i' bikarkeppninni. SW Innsbruck sigraði með yfir- burðum i 1. deildarkeppninni i Austurriki, sem lauk um helgina. Þá fór fram 36. og siðasta umferð keppninnar þar i landi, en i 1. deildinni i Austurriki eru 10 lið sem leika fjórfalda umferð. Innsbruck sigraði Linzer ASK I siðasta leiknum 3:2 og hlaut 51 stig — eða 9 stigum meira en næsta félag, sem var Voest Linz. Hajduk Split varð Júgóslaviu- meistari 1975 i knattspyrnu, er liðiö sigraði Olimpija 5:1 i siðustu umferðinni. Hlaut liðið 46 stig. i 1. deildarkeppninni — 3 stigum meir en næsta lið, sem var Vojvodina Novi Sad, sem gerði jafntefli við OFK Belgrad 2:2 i siðastá leiknum. Grikklandsmeistari i knatt- spyrnu 1975 varð Olympiakos Piraeus. Um helgina tryggði liðið sér einnig sigur i bikarkeppninni með þvi að sigra Panathinaikos 1:0 i úrslitaleik grisku bikar- keppninnar. t Búlgariu lauk deildar- keppninni i siðustu viku. Þar sigraði lið hersins —CSKA — eftir að hafa gert jafntefli við Slavia i siðustu umferðinni 1:1. Meistararnir frá i fyrra — Levski Spartak — sigraði háskólaliðið Akademik Sofia i síðasta leiknum 2:0, en það nægði ekki — CSKA hlaut 39 stig i keppninni en Levski 38 stig. -klp- Hvernig væri að ^ hringja I vin okkar Dumont I Paris. leikirnir eru orðnir stöðubarátta, likt og á skákborðinu. Vel hugsað leikbragð — leikflétta — getur ráðið úrslitum um, hver fer með sigur af hólmi I knattspyrnunni, eins og skákinni. Knattspyrna er þvi að verða meira fyrir þá, sem Igrunda leikinn frá þvi sjónar- horni heldur en hina, sem sækjast eftir þvi, að eitthvað sé ávallt að gerast uppi við mörkin og vekur spenning.” „Ég fer beint inn i ensku knatt- spyrnuna, þegar heim kemur,” sagði Hooley. „Enskt hálfat- vinnumannalið hefur boðið mér starf, en fleiri geta komið til greina, þannig að ég fer ekki i byggingariðnaðinn aftur, sem ég starfaði i áður en ég kom hingað öðru sinni.” Fullt hús hjá Rússum! Sovétrikin sigruðu i alþjóða keppninni i sundknattleik, sem lauk i Budva i Júgóslaviu á sunnudaginn, en þar kepptu sex af beztu sundknattleiksþjóðum heims. Sovétmenn töpuðu ekki einum einasta leik I mótinu — sigruðu Ungverja I siðasta leiknum 5:4. Júgóslavar tóku silfrið með þvi að sigra Kúbu 7:6 og Bandarlkin tóku bronsið með jafntefli við ítaliu 4:4 i siðustu umferðinni. Lokastaðan i mótinu, sem er siðasta stórmótið fyrir HM- keppnina, sem fer fram i næsta mánuði, varð þessi: Sovétrikin 5 5 Júgóslavia 5 3 Bandafikin 5 2 Kúba 5 2 ítalia 5 1 Ungverjal. 5 1 0 0 35:26 10 0 2 38:33 6 1 2 28:27 5 0 3 29:27 4 1 3 27:27 3 0 4 24:31 2 -klp- Hola í Höggi á Selfossi Það vita kannski ekki margir um það, að á Selfossi er litill og skemmtilegur golfvöllur, sem er mjög vel sóttur, enda áhugi fyrir golfi alltaf að aukast þar eins og á öðrum stöðum, þar sem golf er iðkað. Nýlega var I fyrsta sinn farin „hola i höggi” á Selfossvellinum. Það gerði Sveinn J. Sveinsson frá Selfossi, og var það á 3. braut.sem er 167 metra löng og er með lengri par þrjú holum hér á landi. —klp— Rétt i þvi að hann sleppti orðinu bar að einn af frammámönnum IBK. Hooley kallaði til hans og spurði, hvort leikmennirnir væru allir ennþá I vallarhúsinu. „Þeir eru að ljúka fundi,” svaraði frammámaðurinn, og áður en Hooley hélt af stað til að kveðja þá, spurðum við hann, hvort eitt- hvert Islenzkt félag hefði falað hann eftir uppsögnina hjá IBK. „Ég þjálfa aldrei islenzk lið framar,” svaraði hann stuttur i spuna og gekk hröðum skrefum á brott. _ ;'“i q : 1 fl § T' 'jjíSwH l Hér sjáum við hluta af hinu harðsnúna sundliði UMFN, sem áreiðanlega á eftir að gera garðinn frægan. Talið frá vinstri: Guðrún ólafsdóttir, systir Friðriks og honum oft til aðstoðar við þjálfunina, Sonja Hreiðarsdóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Eirikur Sigurðsson, Sveinbjörn Gizurarson, Guðfinna Jónsdóttir, Björk Olsen, Ingibjörg Jónsdóttir og Friðrik Ólafsson, þjálfari. „Ánœgjan að sjó starfið bera órangur eru mér nœgileg laun" — Rœtt við Friðrik Ólafsson, sundþjálfara í Njarðvíkum, sem hefur náð mjög athyglisverðum árangri með ungt sundfólk í Njarðvíkum „Ánægjan yfir þvi að sjá starf mitt bera árangur, i bættum af- rekum, eru mér nægileg laun fyrir starf mitt i þágu sunddeildar UMFN,” sagði Friörik Ólafsson, þjálfari unglinganna I Njarð- vikunum, sem vakið hafa þjóðar- athygli fyrir afrek sin I sund- íþróttinni að undanförnu, — sér- staklega þó Sonja Hreiöarsdóttir, fyrir nærri 20 ný unglingamet. Fjárhagur margra Iþrótta- félaga stæði áreiðanlega betur I dag, ef allir störfuðu með sama hugarfari og Friðrik. TIu klukku- stundir á viku hverri, ýmist stendur hann eða gengur með- fram barminum á litlu sundlaug- inni i íþróttahúsinu I Njarðvik, að ' loknum vinnudegi I erfiðu starfi, múrverki, og leiðbeinir sund- iðkendum UMFN. Auk þess fer iðulega mikill timi I sundmótin, Sonja Hreiðarsdóttir, UMFN, — efnilega sundstúlkan, sem sett hefur 20 unglingamet og er nú komin ilandsliðshópinn, aðeins 13 ára gömul. sem UMFN-unglingarnir taka þátt i á hinum ýmsu stöðum. Sundiþróttin á Islandi væri mörgum ungum og efnilegum unglingum fátækari, ef forráða- menn UMFN, sérstaklega þáver- andi formaður, Guðmundur Snorrason, hefðu ekki knúið byggingayfirvöld Iþróttahússins til að leyfa gerð sundlaugar i grúnni hússins, sem fylla átti upp með möl og grjóti. „Tilviljunin ein réð þvi, að ég varð sundþjálfari I Njarðvikun- um. Ég er uppalinn I höfuðborg- inni, en kvongaðist stúlku héðan og fluttist þvi hingað árið 1969. íþróttahúsið var þá I byggingu og ég vann þar við mina grein, múr- verkið, en starfaði siðan I eitt ár sem sundlaugarvörður, eftir opn- un þess árið 1970. Áhugi minn fyrir sundiþróttinni kviknaði þá að nýju, en ég hafði æft og keppt I þeirri grein hjá Armanni I fimm ár, undir leiðsögn góðra þjálfara og með þá reynslu að veganesti ákvað ég að taka þátt I stofnun sunddeildar hjá UMFN I júni það ár.” „Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vonum,” sagði Frið- rik, þegar við spurðum, hvort hann væri ánægður með þann árangur, sem náðst hefði á þess- um fáu árum frá þvi að deildin var stofnuð. „Krakkarnir, sem við byrjuðum með, höföu aðeins lært skólasund, en áhuginn varð strax mjög mikill, svo að við hóf- um skipulega þjálfun strax um haustið 1970. Áhuginn var mikill fyrstu tvö árin hjá þeim ungling- um, sem byrjuðu, og við náðum fljótlega I verðlaunasæti á ung- lingamótum.” „Sundið krefst, eins og aðrar iþróttir, mikils sjálfsaga. Við æf- um fimm sinnum i viku frá hálf- sjö á kvöldin til átta og krakkarn- ir verða þvi að neita sér um margt, sem aðrir veita sér, en til að gera æfingar eftirsóttari, held ég nákvæma skrá fyrir mætingar og veittur er bikar fyrir mestu ástundun, — á tveggja mánaða fresti. Sá, sem sigrar fimm sinn- um alls, vinnur bikarinn til eign- ar.” „Auðvitað eigum við I harðri samkeppni við aðrar iþróttir, sér- staklega knattleikina, og við höf- um misst marga af þeim, sem byrjuðu að æfa fyrst hjá okkur, I þær greinar, en sá kjarni, sem er efnilegastur hjá okkur i dag, hóf æfingar fyrir þremur árum og hefur fyllt skarð þeirra sem hættu og vel það, eins og t.d. Sonja Hreiðarsdóttir, (Bjarnasonar, bróður Ásmundar hlaupara frá Húsavik) og Karvel bróðir henn- ar, Eiríkur Sigurðsson og fleiri, sem stunda sundiþróttina af mik- illi kostgæfni og eru I stöðugri framför.” „Sundlaugin er ekki stór, að- eins 12 1/2x8 metrar,” sagði Frið- ri, þegar við inntum eftir þvi, hvernig honum þætti aðstaðan, „ekkert rúm fyrir áhorfendur. Tekjumöguleikar af mótum hér eru þvi ekki fyrir hendi, en það kostar talsvert fé, að senda sund- fólkið á yfir 20 mót árlega. UMFN er ekki fjársterkt, en við öflum okkur peninga með hlutaveltum, styrktarfélögum, bæði i Ytri- og Innri-Njarðvikum, sem ávallt taka okkur vel. Fyrsta árið þáði ég laun fyrir starf mitt, en þau skiptu ekki máli fyrir mig, þegar sýnt var, aö deildin hafði ekki efni á að greiða þjálfara.” „Það kom aldrei til greina, að ég hætti,” sagði Friðrik, „þótt peningar væru ekki fyrir hendi — og á meðan starfið er á uppleið, — hef ég nægileg laun fyrir mitt þjálfarastarf.” emm Sundþjálfari Njarðvikinga, Friðrik Ólafsson, telur þaö ekki eftir sér aö standa við laugarbarminn 10 tlma á viku, án endurgjalds. Hann hef- ur á fáum árum náð frábærum árangri með ungt sundfólk I Njarð- víkunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.