Tíminn - 01.09.1966, Blaðsíða 8

Tíminn - 01.09.1966, Blaðsíða 8
8 TÍ8VINN FIMMTUDAGUR 1. september 1966 I. G. Þorsteinsson ræðir við Ásgeir Magnússon, fram- kvæmdastjóra Sam- vinnutrygginga, sem er öflugasta trygg- ingafélag landsins, og einn af hornstein- um samvinnuhreyf- ingarinnar. Vilhjálmur Þór Erlendur Elnarsson Jón Ólafsson Ásgeir Magnússon Stórfelldar nýfungar hafa eín- kennt 20 ára tryggíngaferil Voldugasta tryggingarfé- lag landsins, Samvinnu- tryggingar, er tuttugu ára í dag. Þótt það byrjaði i smáum mæli jukust umsvif Samvinnutrygginga fljótt. Áhrifa þeirra hefur gætt mjög í tryggingamálum. Þær hafa komið með hvert nýmælið á fætur öðru, eins og bónuskerfið í bifreiða- tryggingum og heimilis- tryggingar. Á bak við Sam- vinnutryggingar standa um fjörutíu þúsund tryggjend- ur, eða álíka margir og skráðir útvarpseigendur. Margar hendur hafa lagzt á eitt um að gera Samvinnu- tryggingar að því, sem þær eru í dag. Um leið og þær eru öflug brjóstvörn al- mennings gegn skaða og á- föllum eru þæreinn af horn steinum samvinnuhreyfmg- arinnar, mikils metið og virt fyrirtæki af öllum, sem við það skipta. Vegna afmælisins sneri Tím- inn sér til Ásgeirs Magnússon ar, framkvæmdastjóra Sam- vinnutrygginga og lagði fyrir hann nokkrar spurningar varð andi tryggingarstarfsemina. Við spurðum hann fyrst hver hefði verið ástæðan fyrir því að Samvinnutryggingar voru stofn aðar. — Ástæðan er sjálfsagt sú, sagði Ásgeir, að þegar Vilrtjálrn úr Þór tók við forstjórn Sam bands íslenzkra samvinnufé’.aga á fyrstu árunum eftir siðustu heimsstyrjöld, hafði hann haft tryggingamál mjög á sinni stefnuskrá sem kaupfélagsstjóri KEA á Akureyri, og setti þar m. a. upp sjálfstæða trygginga deild. Mun hún sennilega vera sú fyrsta sem stofnuð heíur verið í kaupfélagi. Hann hafði kynnzt sænskum trygginga- mönnum vegna skipta sinna við sænsk samvinnufélög. Og hann taldi að tryggingamálin hér á íslandi hefðu þá tekið litlum breytingum undanfarna áratugi og vildi endilega reyna eitthvað nýtt. En það voru ein mitt Svíar, sem stóðu mjög framarlega í þessum efnum, og þá sérstaklega sænsku sam vinnutryggingafélögin, er sameinuðust síðar í eina heild, Folksam. — Og þráðurinn hefur svo verið tekinn upp hér? — Já, kynnin af þessu urðu til þess, að samþykkt var á aðalfundi SÍS 1946 að beita sér fyrir stofnun samvinnu- tryggingafélags. Og Erlendur Einarsson, sem þá var starfs maður í Landsbankanum, var fenginn til að veita þessu fyrir tæki forstöðu. Síðan, fyrir til- mæli Vilhjálms Þórs, fór hann utan og kynnti sér þær nýju stefnur, sem þá voru uppi í tryggingamálum almennt hjá samvinnufélögum, sérstaklega í Svíþjóð og í Bretlandi. — Samvinnutryggingar hafa byrjað í smáum mæli, fyrst þegar þær fóru af stað? — Þetta byrjaði náttúrulega smátt, eins og öll fyrirtæki. En markmiðið var jú alltaf þetta, eins og hjá öllum samvinnu- tryggingarfélögum, að selja tryggingarnar fyrir sannvirði. Það hefur verið okkar stefna alla tíð. Tryggingarnar byrjuðu 1. september 1946, og þá var starfsliðið aðeins þrennt, Er- lendur Einarsson, Benedikt Kristjánsson, sem er enn starfs maður trygginganna og vinnur nú í Tjónadeild, og ein stúlka. Og ef ég man rétt, þá voru iðgjöldin tæpar fjórar milljón ir fyrsta árið, en komust upp í 186 milljónir árið 1965. — Og Samvinnutryggingar hafa komið með nýjungar?> — Já. þær komu strax með nýjungar, sem féllu í mjög góð an jarðveg hér á landi. Sérstak- lega má þar nefna nýjungar í bifreiðatryggingum. Eigendur bifreiðanna áttu að fá að njóta þess ef þeir urðu ekki valdir að tjóni. Hér er átt við hið svokallaða bónusfyrirkomulag, sem Samvinnutryggingar inn- leiddu um leið og þær byrjuðu með bifreiðatryggingar árið 1947. Þetta fyrirkomulag hefur gefið mjög góða raun, og nú síðast urðu Samvinnutrygging ar aftur í fararbroddi með að breyta bónuskerfinu. Nú er svo komið, að eftir fimm ára tjón lausan akstur, eru 60% endur greidd af iðgjaldinu. — Er ekki um stórfelldar endurgreiðslur að ræða fyrir utan háan afslátt í fyrrgreind um tilfellum? — Jú, það er alveg rétt. Markmiðið er jú að selja trygg- ingarnar fyrir sannvirði. Okk ur hefur oft verið álasað fyrir það að við séum ekki með lægri iðgjöld en hin félögin. En við bygjum okkar rekstur á því að nota sömu iðgjöldin og hin félögin, en komi hins veg ar í ljós, að hagnaður hafi orð ið innan tryggingargreinar, þá endurgreiðum við tryggingar- tökunum þann hagnað á næsta ári, venjulega í formi afslátt ar frá endurnýjunariðgjaldi. Byrjað var að endurgreiða þennan tekjuafgang árið 1949, og hann hefur numið til árs- loka 1965 rúmlega sextíu og einni milljón króna. — Hvað eru þeir margir sem tryggja hjá ykkur í dag? — Eg hef nú ekki tölur um það við hendina, en í október í fyrra voru endurnýjuð 36 þús- und brunatryggingarskírteini. Það þýðir að tryggingartakarn ir eru a.m.k. þrjátíu og sex þúsund. Nú, náttúrulega eru svo tryggingartakar í öðrum greinum, sem ekki eru með í brunatrygginguiín. Ég geri því ráð fyrir að tryggingartakar okk ar séu eitthvað á milli þrjátíu og sex og fjörutíu þúsund. — Nú er starfsemi Samvinnu trygginga tvíþætt er það ekki? — Það má segja það. í rekstri hvers tryggingafélags má segja að um tvennskonar starfsemi sé að ræða. Annars vegar er að selja tryggingarnar og gera upp tjónin. Hins veg ar er að ávaxta sjóði, sem mynd ast alltaf í tryggingafélögum. Hér á íslandi hefur það verið þannig, að tryggingafélögin hafa ávaxtað sína sjóði í út- lánum. Minna hefur verið um beinar fjárfestingar í fasteign um. Og kannski sérstaklega vegna þess, að eftirspurnin eftir lánsfé hefur verið svo geysilega mikil síðustu tvo ára tugi, að svo til hver króna, sem tryggingafélögin hafa haft af- gangs hefur verið lánuð til tryggingartakanna. Og hjá okk ur í Samvinnutryggingum, hafa þeir, sem tryggt hafa hjá okk ur verið látnir njóta þess að fá lán, þegar peningar hafa ver ið fyrir hendi. Síðastliðið ár námu heildarútlánin hjá okk ur frá byrjun um 75,8 millj. króna. Af þessari upphæð hafa samvinnufélögin fengið um þriðjung, sem eru bein lán til þeirra. Auk þess hefur sam- vinnufélögum verið lánað þann ig, að keypt hafa verið af þeim ríkistryggð skuldabréf, þar sem þau hafa verið að byggja fisk vinnslustöðvar, frystihús eða fiskimjölsverksmiðjur. Við flokkum þau lán öðruvisi. En þegar ég tala um að þau hafi fengið þriðjung lána, þá er ég að tala um fé, sem veitt hefur verið beint inn í sam- vinnuhreyfinguna gegn veðum. Þá má .segja að bæjar- og sveit- arfélög hafi notlð mjög góðs af þessu, þau bæjar- og sveitar félög, sem hafa samning við okkur um skyldutryggingu á brunatryggingingum húsa. Við höfum lánað þeim um tólf, fjórtán milljónir vegna þeirra framkvæmda, sem þau hafa staðið í Þessi lán hafa fyrst og fremst farið i vatnsveiturí í skólabyggingar' og þá aðallega heimavistarskóla og i félags heimili Auk fvrrgreinds hafa útlán okkar gengið mikið til einstaklinga í sambandi við húsbyggingar, þó aðallega í formi þess að keypt eru ríkis tryggð skuldabréf. En fyrst við erum að tala um útlánin, þá vil ég aðeins minn ast á það, að árið 1964 voru sett lög um útlán vátryggingar- félaganna. Nú er svo komið að við megum ekki lána nema eft ir ákveðnum reglum, og svo annað, að ef skaðatryggingar félögin, þ.e.a.s. önnur trygginga félög en endurtryggingafélög- in, lána fé, þá kostar hver króna sem við lánum þrjátlu og þrjá aura, sem renna í húsnæðis- málakerfið. Og þar er þetta fé bundið til tuttugu og fimm ára með 4% vöxtum, — að vísu með vísitölu. Þetta þýðir, að ef við lánum einhverjum manni í dag sjötíu og fimm þúsund krónur, kannski ekki nema til tveggja ára, þá verð um við að láta húsnæðismála kerfið fá tuttugu og fimm þús und krónur til tuttugu og fimm ára. — Nú skilst mér að bifreiða tryggingafélögin hafi fengið að kenna mjög á þeirri tjóna aukningu, sem samfara hefur orðið aukinni bifreiðaeign I.aods manna.^Er þessi vandi að liða hjá? — Ábyrgðartryggingar bif- reiða 1963 og 1964, sem voru erfiðustu árin, kostuðu hjá Samvinnutryggingum, hvort þetta ár, fimm milljónir króna í tap. Árið 1965 varð hins veg ar mikið betra, þannig að end arnir náðu saman. Og miðað við fyrstu sex mánuði þessa árs, þá virðist mér að tjónun um hafi fækkað að tölu til þrátt fyrir aukinn bílafjölda og auk þess hafa tjónin verið minni. Og þegar ég tala um minni tjón. þá á »g fyrst og fremst við það, að mikið minna hafi orðið um slysatjón, eða tjón á fólki. Árekstrar hafa jú ver ið margir, en þar er fyrst og fremst um að ræða skaðn. sem verða á bifreiðunum sjálfum, en ekki á fólkinu, sem í þeim

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.