Vísir - 14.07.1975, Side 1
VISIR
65. árg. — Mánudagur 14. júll 1975 —156. tbl.
1849 MILLJÓNA HALLI
Halli upp á 1849 milljónir
króna stendur eftir, þegar fjár-
veitingarnefnd Alþingis hefur
nú skilaö tillögum sinum um
niöurskurö á útgjöldum fjárlaga
ársins 1975. Nefndin gerði tillög-
ur um niðurskurð um nákvæm-
lega tvo milljaröa króna.
Visir hafði af þessu tilefni
samband við Höskuid Jónsson,
ráðuneytisstjóra fjármálaráðu-
neytisins.
— Þessi halli er auðvitað á-
hyggjuefni og tilefni vanga-
veltna um, hvernig hægt sé að
minnka hann. En hvaða leiðir
farnar verða, er ekki timabært
að ræða. —Ó.T.
Air Viking:
NÝ LEIGÐ-
GAMALLI
LAGT
Hin nýja Boeing þota Air
Viking mun vera leiguvél, en
ekki eign félagsins. Þá hefur
Visir fregnað, að annarri af
þeim tveim Boeing þotum,
sem félagið á, verði lagt.
Nýja þotan er öðruvisi inn-
réttuð en hinar og tekur 176
farþega.Þær eldrirúma 149.
ót.
Vélabúnaðurmn
frá Skodaexport
stórlega óvand-
aður _ bls. 3
Búðir
brúarvinnumanna
settar upp í
Kópavogi
— baksíða
HUNGUR-
VERKFALL
ÁFRAM
í EYJUM
isfélagið i Vestmannaeyjum
hefur minnkað hækkunina i
mötuneyti sinu úr 5800 krónum á
mánuði niður i 3100. Starfsmenn
hyggjast engu að siður halda
áfram hungurverkfalli sinu og i
morgun mættu aðeins 4 af
starfsmönnum fyrirtækisins til
að næra sig.
Starfsmenn ræddu við stjórn
fyrirtækisins i morgun og var
þeiro þá sagt, að i april siðast-
liðnum hefði vantað 72 krónur
upp á að fyrirtækið slyppi slétt
frá rekstri mötuneytisins, þ.e.
72krónur á hverja máltið. Eftir
hækkunina núna vantaði enn 30
krónur á hverja máltið.
Taldi stjórn fyrirtækisins, að
með þvi að kaup hefði nú hækk-
að, væri eðlilegt að hækka mat-
arkostnaðinn i mötuneytinu. Til
þess að jafna kostnaðinn hefur
einnig verið tekið upp á að selja
mat til annarra en starfsmanna
og er það áhelmingi hærra verði
en þeir greiða.
Mánaðarkaup fólksins miðað
við 40 stunda vinnuviku er nú
46.880 krónur. Af þvi á það nú að
greiða 20.720 krónur á mánuði i
fæði. Fyrir þetta fé eru tvær
máltiðir og tveir kaffitimar á
dag, en ekki morgunverður. 1
flestum tilfellum eru tekjur
manna þó meiri en ab framan
greinir vegna yfirvinnu. — ó.T.
Muna ekki aðra eins umferðarhelgi
„Aldrei flutt svona
prúða farþega fyrr"
segja þeir hjó afgreiðslu Akraborgarinnar
,,Það hefur aldrei verið svona
mikið að gera I allri okkar sögu,
eða siðan 1891, þvi þá byrjuðum
við! Það hefur lika aldrei verið
þetta mikið um að vera á Akra-
nesi áður. Það var stanzlaus um-
ferð hjá okkur frá þvi á föstudag,
og siðustu ferðirnar i gær voru
troðfullar.”
Þetta sagði forsvarsmaður af-
greiðslu Akraborgarinnar, sem
við ræddum við i morgun, og hann
bætti strax við:
,,Ég hef aldrei nokkurn tima.
séð svona prúða farþega. Þeir
voru alveg til fyrirmyndar. Það
var eins og fólkið væri að koma úr
• . v
Kristin Björnsdóttir, UMSK, setti landsmótsmet I hástökki á Akranesi um helgina, stökk 1.57. Gamla
metið átti hún sjálf, 1.50. Við segjum nánar frá landsmótinu i iþróttaopnu blaðsins I dag. Ljósm. Björn
kirkju. Mest voru þetta ungling-
ar, en ég man ekki eftir svona
farþegum, nema þá bara i gamla
daga.”
Aukaferðir voru farnar alla
dagana, föstudag, laugardag og
sunnudag. Allsvoru farnar fjórar
ferðir á föstudag og laugardag og
i gær voru farnar fimm ferðir. í
þremur síðustu ferðunum ofan af
Akranesi var troðfullt.
Allan timann voru menn lika að
tinast þangað upp eftir, og nokkr-
ir fóru uppeftir i gærkvöldi, ein-
göngu til þess að geta verið á sið-
astadansleiknum. Veðrið var lika
sérlega gott, svo segja má að
þetta hafi verið skemmtisigling i
leiðinni.
Lögreglan á Akranesi og lög-
reglan i Borgarnesi hafa aðeins
göðar sögur frá mótinu að segja.
Umferð var mjög mikil og muna
menn ekki aðra eins, en hún gekk
slysalaust fyrir sig. Mjög mikil
umferð var á laugardaginn, enda
var gizkað á að hvorki meira né
minna en 12000 til 15000 manns
hefðu sótt mótið.
Lögreglan á Akranesi sagði, að
mótið hefði farið mjög vel fram.
Nokkur ölvun var á dansleikjum,
en allt gekk óhappalaust. Enn eru
nokkur tjöld eftir á Akranesi, en
mest var tekið niður i gær.
Rykbundið var i kringum Akra-
nes, en öllu meira var rykið viða
annars staðar. Þegar við spjöll-
uðum við lögregluna i Borgarnesi
var okkur tjáð að allir hefðu l'eng-
ið sinn skammt af rykinu. Eitt-
hvað var reynt að bleyta á veg-
um, en það dugði skammt. Menn
voru margir með ljós á bilum sin-
um.
En þó að þetta hafi verið mesta
umferðarhelgin sem menn muna,
þá er umferð orðin mikil i' Borg-
arfirði yfirleitt. Fólk sækir i sum-
arhús þar, enda eru margir með
slik á staðnum. —EA
Þeir berjast
ósjaldan við
dauðann- bls. 2-3
Málarinn mikli aftur á ferð:
Málaði stein á for-
hlið Alþingishússins
Fullorðinn maður hafði nýlok-
ið við að mála einn stein á for-
hlið alþingishússins i morgun,
er lögreglan kom þar að og tók
hann fastan. Var maðurinn sett-
ur i steininn fyrir að mála stcin-
inn.
Maðurinn, er verknaðinn
framdi, Helgi Hóseasson, hefur
áður komið við sögu hjá lögregl-
unni sökum áhuga sins á að
mála bæði hús og menn.
Það var upp úr kiukkan sjö i
morgun, að maðurinn birtist við
Alþingishúsið og dró upp litla
málningardós með hvitri máln-
ingu. Málaði hann einn stein við
aðalinnganginn, áður en lög-
reglan stöðvaði verkið. Maður-
inn sýndi engan mótþróa, er
hann var handtekinn.
Helgi Hóseasson mun hafa
verið að leggja áherzlu á fyrri
mótmæli gegn staðsetningu
sinni i þjóðskránni og öðrum
skyldum málum. _jb
Vegfarandi virðir fyrir sér nýmálaðan steininn I Alþingishúsinu.
Ljósm. Bj.Bj.