Vísir - 14.07.1975, Blaðsíða 12
12
Vísir. Mánudagur 14. júlí 1975.
Eitt mark — og
allir í vörnina!
Þetta er hin nýja leikaðferð Skagamanna, og hún nœgði á móti
KR í gœrkvöldi eins og síðustu leikjum liðsins í 1. deildinni
Kveðju-
leikur
Guð-
geirs?
Eftir öllum sóiarinerkjum að
dæma lék Guðgeir Leifsson sinn
siðasta leik með Viking um sinn
a.m.k. gegn Vestmannaeying-
um á laugardaginn.
Hann lieldur utan með lands-
liðinu á þriðjudaginn til Bergen,
en á siðan að verða mættur hjá
belgiska liðinu Charleroi á
laugardaginn og halda með þvi I
æfingabúðir til Frakklands.
Eins og áður hefur komið
fram í fréttum, hafa forráða-
menn Charleroi boðið honum að
koma utan og gera samning við
félagið, og eru allar likur á að
Guðgeir taki þvi boði.
Vlkingur óskaði eftir að hann
léki með liðinu gegn Akranesi
um næstu helgi, en það fékkst
ekki I gegn — Guðgeir varð að
vera mættur I Belgiu á laugar-
dag. —klp—
Hann var ekki til mikillar
skemmtunar hinum nimlega 2000
áhorfendum, sem mættu á
Laugardalsvöllinn i gærkvöldi,
leikurinn á milli gömlu keppi-
nautanna KR og Akraness. Hann
var i einu orði sagt „LEIÐIN-
LEGUR” og þurfti glögg augu til
að sjá þá staðreynd, að þarna ætt-
ust við núverandi islands — og
Reykjavikurmeistarar!
Akurnesingar sigruðu i leiknum
með einu marki gegn engu, og var
það eftir atvikum sanngjarn sig-
ur. Ekki fyrir það, að þeir væru
neitt betri, heldur vegna þess, að
þeir áttu hættulegri tækifæri.
Stigin skipta þá — eða hinn
enska þjálfara þeirra — öllu. Það
er pakkað i vörn þegar búið er að
skora eitt mark, og allt gert til að
halda þessu marki, annað en að
leika knattspyrnu, eins og fólk vill
sjá liðið leika.
Þetta hefur Skagaliðið gert i
slðustu leikjum, og er nú svo
komið, að jafnveí þeirra dyggustu
stuðningsmenn í höfuðborginni
eru farnir að tala um, að nú sé
ekki lengur orðið neitt varið i að
sjá Skagamennina spila.
Áður en þetta eina mark kom —
á 40. minútu leiksins — komu
smákaflar af og til. En I siðari
hálfleiknum — þegar allir voru
komnir i vörn nema Matthias
Hallgrimsson og einstaka sinnum
einn, tveir aðrir — fór allur glans-
inn af liðinu.
KR-ingarnir sóttu þá svo til
stanzlaust, en gerðu ekkert meira
en það. Þeir áttu EITT SKOT,
sem hitti markið, i' öllum leikn-
um. — Það grútmáttlaust og úr
löngu færi, en samt varð það nóg
til að Davið markvörður missti
boltann frá sér. — Honum hefur
sjálfsagt verið orðið kalt á að
hanga þarna aðgerðalaus!!
Vörn Skagamanna með Jón
Gunnlaugsson i fararbroddi hafði
aftur á móti nóg að gera, en átti
auðvelt með að hernja „tveggja
manna” framlinu KR. Hver hár
boltinn á fætur öðrum var sendur
inn i teiginn — en þar sá Jón um
að koma honum út aftur, og þá
var sjaldan KR-ingur nálægt hon-
um.
örsjaldan komu lágir boltar
fyrir markið, en þeir voru þeir
einu sem einhverja hættu sköp-
uðu, eins og þegar Halldór
Björnsson sendi á Jóhann Torfa-
son, sem þá auðvitað hitti ekki
boltann, eins og hann ætlaði að
gera.
Atli Þór Héðinsson átti ágæt
skot— (fram hjá marki) — i fyrri
hálfleik, og Teitur Þórðarson
annað enn betra á mark KR
snemma i leiknum. Þar með eru
tækifærin upptalin, að frátöldu
sigurmarki Skagamanna, sem þó
kom úr engu marktækifæri.
Jóhannes Guðjónsson skaut á
markið úr löngu færi og átti
Magnús Guðmundsson mark-
vörður að geta leikið sér að þvi að
verja. En hann reiknaðiekki með
Matthíasi Hallgrimssyni, sem
var i skotlinunni og kom við bolt-
ann þannig að hann þaut i hornið.
Fátt var til skemmtunar i
þessum leik — eitt af þvi fáa var
að fylgjast með þjálfurunum
Kirby og Knapp, sem öskruðu
hvor i kapp við annan, og mátti
vart greina, hvor væri með sterk-
ari raddbönd.
Einstaka sinnum sáust þó kafl-
svo
ar til leikmanna, sem glöddu þá
sem hafa gaman af að sjá
skemmtilegan samleik og laglega
leikiðá menn. En li'tið var um það
— og það litla sem kom, var i
kringum þá Karl Þórðarson og
Arna Sveinsson, sem Skagamenn
kalla nú „Bomma” — sjálfsagt i
höfuðið á knattspyrnuhetjunni i
myndasögunni okkar hér á Visi.
Fyrir utan þá bar nokkuð á Jóni
Alfreðssyni i fyrri hálfleik, og
svo að sjálfsögðu á Jóni Gunn-
laugssyni i þeim siðari, enda
hafði hann þá nóg að gera.
Hjá KR var fátt um fina drætti
og allt er við sama heygarðshorn-
ið þar. Þeir sem eitthvað skáru
sig úr voru Ottó Guðmundsson og
Halldór Björnsson svo og báðir
markverðirnir.
Maðurinn sem mest bar á i
leiknum var sjálfur millirikja-
dómarinn frá Akureyri — Rafn
Hjaltalin — sem ekki allir skildu
hvað var að gera oft á tiðum...
,,en hann var betri en
enginn”..... eins og einn gamall
vallargestur sagði er hann yfirgaf
„dalinn” sáróánægður með leik-
inn,og varsá þó ekki KR-ingur....
—klp—
Allt í baklás hjá
Vestmannaeyingum
— Hef enga skýringu á þessu segir þjálfari þeirra
eftir 6:1 tapið fyrir Víking
„Ég hef hann — ég hef hann var viðkvæðið I leik KR og Akraness I gær-
kvöldi, en enginn hafði neitt nema Skagamenn, sem skoruðu eina mark
leiksins, og fengu bæði stigin fyrir það.
Ljósmynd Bj. Bj.
„Ég hef ekki nokkra skýringu á
þessu hjá okkur,” sagði Gisli
Magnússon, þjálfari Vestmanna-
eyjaliðsins I knattspyrnu eftir hið
stóra tap — 6:1 — Eyjaskeggja
pumnx
Gaddaskór
Stœrðir 35-43 Verð
frá kr. 2.873.-
Póstsendum
fyrir Vlking á Laugardalsvellin-
um á laugardaginn. „Það hefur
verið 100% mæting á æfingar og
mórallinn I liðinu er mjög góður.
Það er allt i lagi þar til komið er I
leik, þá er eins og allt fari úr sam-
bandi og ekkert gengur. En ég er
samt ekkert hræddur við að við
föllum. Stigin koma siðar i sumar
— það er ég viss um. Við gætum
vcrið komnir með fleiri stig en
þetta — óheppnin hefur elt okkur i
leikjunum, eins og á móti KR og
ÍBK, og sumum leikjum höfum
við hreinlega tapað á dómurun-
um.”
Það er ekkert undarlegt, þótt
GIsli væri bæði sár og svekktur
2ftir þennan skell á móti Viking.
Hann hefur unnið vel fyrir liðiö —
ieikmennirnir eru ánægðir með
hann, og það er allt i stakasta lagi
þar til komið er inn á leikvöllinn.
Þáð, sem er að hjá Vestmanna-
syjaliðinu, er fyrir sálfræðing til
að glíma við — hann gæti i það
minnsta fengið þar næg verkefni
næstu vikurnar, ef svona heldur
áfram.
Það var ekki til glæta I þvi, sem
þeir gerðu — eða ætluðu
að gera — i leiknum á laugar-
daginn. Vörnin var bókstaflega
aldrei með á nótunum og var oft
5vo grátt leikin af Vikingunum,
að ekki var annað hægt en að vor-
kenna þeim, sem léku I vörninni.
Arsæll Sveinsson gerði heiðar-
lega tilraun til að forða fleiri
mörkum — og tókst það með á-
gætri markvörzlu við og við. Ekki
er hægt að saka hann um nema
eitt af þessum mörkum — hin átti
hann aldrei möguleika á að verja.
Þeir, sem voru fyrir framan
hann, voru oftast of seinir eða
stóðu og horfðu á, þegar Viking-
arnir komust I færi, og létu Ársæl
einan um að glima við þá og bolt-
ann.
Sex sinnum varð Arsæll að ná i
boltann I netið hjá sér, en mörkin
i leiknum féllu þannig:
2. minúta.... 1:0.
Guðgeir Leifsson leikur upp að
endamörkum, þar sem hann gef-
ur fyrir, og Hafliði Pétursson
kemur á fullri ferð og afgreiðir
boltann i netið.
5. mlnúta.... 2:0.
Vikingarnir senda boltann I átt
að marki IBV, og Stefán Hall-
dórsson hleypur vörnina af sér og
skorar örugglega.
31. minúta... 3:0.
Stefán Halldórsson leikur með
boltann inn I vitateig — gefur þar
á Hafliða Pétursson, sem skorar
sitt annað mark i leiknum.
72. mlnúta... 3:1.
Vestmannaeyingar leika
skemmtilega saman I átt að
marki Vikings. Þar gefur Tómas
Pálsson loks boltann á örn ósk-
arsson, sem tekur hann viðstöðu-
laust og skorar. Var þetta eitt
fallegasta mark leiksins.
76. minúta.... 4:1.
Guðgeir Leifsson tekur eitt af
sinum löngu innköstum og kastar
alla leið inn i vitateiginn — beint á
kollinn á Róbert Agnarssyni, sem
sneiðir boltann I markhornið. Ár-
sæll hijóp þarna einum of fljótt út
úr markinu, annars hefði hann
trúlega haft hann.
77. minúta.... 5:1.
Vikingarnir á áhorfendapöllun-
um voru rétt hættir aö fagna, þeg-
ar þeirra menn skora aftur.
Öskar Tómasson er i þetta sinn
hetjan — skallar boltann, sem er i
meters hæð, I markið með þvi að
kasta sér fram — glæsilegt mark.
84. minúta... 6:1.
Guðgeir Leifsson gefur fyrir
markið — á nýliðann Lárus Jóns-
son, sem kom inn á i siðari hálf-
leik fyrir Stefán Halldórsson.
Lárus er ekkert banginn — leikur
á einn varnarmann IBV og sendir
boltann siðan i netið.
Þetta voru mörkin i leiknum —
en þau gátu eins orðið fleiri, og þá
öll gerð af Vikingum, þvi Eyja-
menn áttu varla skot á mark fyrir
utan þetta eina, sem þeir skoruðu
úr. Aðeins einn maður skar sig
eitthvað úr I liði Eyjamanna —
Tómas Pálsson — en hann var sá
eini i liðinu, sem eitthvað
reyndi.... og gat.
Ólafur Sigurvinsson lék nú aft-
ur með ÍBV-liðinu, en vörnin var
engu betri með tilkomu hans.
Vikingarnir léku engan stjörnu-
leik. Eini munurinn var sá, að nú
gekk allt hjá þeim, enda mótstað-
anlitil —en sliku „láni” hafa þeir
ekki alltaf átt að fagna i fyrri
leikjum sinum i sumar. Þeir voru
friskir og baráttuglaðir og gáfu
Eyjaskeggjum aldrei tækifæri til
að byrja á neinu, sem heitið gat
samleikur.
Guðgeir Leifsson bar af þeim —
og öllum á vellinum —-eins og gull
af eir. Hann átti þátt i flestum
mörkunum á einn eða annan hátt
og félagar hans voru allir með á
nótunum I þetta sinn.
Hafliði Pétursson var friskur
og Stefán Halldórsson átti góðar
leik, á meðan hann var inn á. Þá
ekki siður stóri pilturinn i vörn
inni — Róbert Agnarsson — er
þar er að koma fram frábær
knattspyrnumaður.
Dómari leiksins var Guðjór
Finnbogason og gegndi þvi hlut
verki að mestu óaðfinnanlega.