Vísir - 15.07.1975, Blaðsíða 10
10
Vísir. Þriðjudagur 15. júli 1975.
Unglingalandsliðið
í golfi yngt upp!
Unglingalandsliðið i golfi —21 árs og
yngri — sem tekur þátt I Evrópu-
meistaramótinu í Sviss i næstu viku,
hefur veriö valið. í hópnum, sem skip-
aður er sex piltum, eru þrir, sem
aldrei hafa verið i unglingalandsliði
áður, en tveir úr hópnum voru með i
fyrsta sinn i fyrra og einn er nú i þriðja
sinn i unglingalandsliði islands i golfi.
Piltarnir sem skipa liöið i ár eru:
Loftur Ólafsson GN
Sigurður Thorarensen GK
Kagnar ólafsson GK
Geir Svansson GK
Jóhann R. Kjærbo GS
Hálfdán Þ. Karlsson GK.
Þeir Geir, Jóhann og Háifdán cru
nýliðar, en elztur i hópnum er fyrir-
liðinn, Loftur ólafsson, en hann var I
liðinu I fyrra ásamt Sigurði og Ragn-
ari.
Björgvin Þorsteinsson, íslands-
meistarinn frá Akureyri, var þá einnig
með, en hann er nu kominn yfir
aldurstakmark keppenda. Þá voru
þeir einnig I liðinu Jóhann Óli Guð-
mundsson og Atli Arason, en þeir voru
nú ekki valdir — þrátt fyrir að þeir
hefðu aldur — og kemur það mörgum
spánskt fyrir sjónir, sem fylgjast með
okkar betri golfmönnum.
Er þarna sýnilega aðeins verið að
yngja upp unglingalandsliðið!! — en
hvort það er til þess betra eða verra á
að koma i Ijós þegar á hólminn er
komiö I næstu viku. —klp—
ÍR sigraði í stigakeppninni
— enda aðeins
Ileldur var dauft yfir slðari degi
meistaramóts Reykjavikur I frjáls-
Iþróttum, sem fram fór á Laugardals-
vellinum á föstudaginn og segja má,
að mótið hafi algjörlega fallið I skugg-
ann af Landsmóti UMFl, sem þá var
hal'ið á Akranesi.
Eini ljósi punkturinn i mótinu var
100 m hlaup Armenningsins unga,
Sigurðar Sigurðssonar, sem hljóp á
10,7 sek, og setti nýtt drengjamet i
hlaupinu. Sigurður, sem er aðeins 17
ára hefur tekið miklum framförum i
sumar og má mikiís vænta af þessum
unga manni I framtfðinni, haldi hann
áfram á þessari braut.
t 1500 m hlaupinu háðu þeir Ágúst
Asgeirsson ÍR og Gunnar Páll Jóa-
kimsson 1R harða keppni, en daginn
áður hafði Gunnar nærri verið búinn
að sigra Agúst I 800 m hlaupinu. Agúst
mátti hafa sig allan við — fékk timann
4:04.6, en timi Gunnars var 4:04.8 min.
Úrslit i öðrum greinum á mótinu
urðu þessi: 400 m hlaup Bjarni
Stefánsson KR 50.0, 110 m gr. Stefán
en Skautafélagið rak lestina
með einn keppanda
Hallgrimsson KR, 14,9 sek, þristökk
Friðrik Þór Óskarsson IR 14.37 m,
stöng Valbjörn Þorláksson KR 4.0 m
kringluk. Erlendur Valdimarsson SR
54.14 m, boðhlaup sveit ÍR á 3:51.0
min.
tR hlaut flest stigin i karlagreinum,
28392 og i öðru sæti kom KR með 11185
stig.
Sama lægðin var yfir kvenfólkinu og
litið um góð afrek, en úrslitin i kvenna-
greinunum urðu þessi: 4x400 m boðhl.
sveit Armanns 4:49.4 min, kringluk.
Sigriður Eiriksd. 1R 26.02, lOOm hlaup
Erna Guðmundsdóttir KR 12.6 sek,
langstökk Lára Sveinsdóttir A 5.04 m
og I 400 m hlaupi sigraði Ingunn
Einarsdóttir tR á 61.2 sek.
Armann hlaut flest stigin i kvenna-
greinunum 14843 og I öðru sæti kom ÍR
með 12218 stig.
t stigakeppninni sigraði IR, hlaut
40610stig, Armann hlaut 23713stig, KR
hlaut 16868 stig og Skautafélag
Reykjavikur rak lestina með 1814
stig, enda átti félagið aöeins einn
keppanda á mótinu!....
Norðmenn hafa
valið sitt lið
Norðmenn hafa nú tilkynnt þá 11
leikmenn, sem hefja leikinn gegn ts-
landi i Bergen á fimmtudagskvöldiö,
þegar seinni landsleikur i undan-
keppni Ólympiuleikanna I knattspyrnu
verður leikinn.
Aðeins ein breyting verður á liöinu
frá siðasta leik, en það er, að Sigbjörn
Slining Viking, var bætt i liðið. Slining
er orðlagður fyrir að gefa aldrei eftir
og er greinilegt, að Norðmenn búast
við hinu versta og vilja vera við öllu
búnir.
Landsiið Noregs verður þannig skip-
aö: Erik Johannessen, Sigbjörn Slin-
ing, Svein Gröndalen, Thor Egil
Johanesen, Helge Karlsen, Svein
Kvia, Frode Larsen, Svein Mathisen,
Trond Petersen, Helge Skuseth og
Stein Thunberg.
Drengjamet Sigurðar var
eini Ijósi punkturinn
Þessi skemmtilega mynd sem tekin var á landsmóti UMFt á Akranesi um helgina er af Elinborgu
Gunnarsdóttur HSK, sem varð stigahæst I sundi.
Elinborg keppti I þrem sundgreinum 100 m og 200 m bringusundi og 200 m fjórsundi. Elinborg vann
einnig bezta afrck konu I sundinu 1200 m bringusundi, syngi á 3:02.9 min.
Hún átti þvi stærsta þáttinn i að HSK hlaut flest stigin 1 stigakeppninni i sundi.
Karl náði ekki
prófi hjá Knapp
Sigurður Dagsson er einnig meiddur og Elmar Geirsson fékk
ekki frí úr vinnu, og því verða þessir þrír ekki með
í landsleiknum við Noreg á fimmtudagskvöldið
Þrir menn sem voru i landsliðs-
hópnum á móti Noregi á dögunum
verða ekki með I siðari leiknum
við Noreg á fimmtudagskvöldið i
Bergen. Það eru þeir Sigurður
Dagsson, Karl Hermannsson og
Elmar Geirsson.
Elmar fékk sig ekki lausan úr
vinnu i Þýzkalandi, og einnig mun
hann hafa haft takmarkaðan á-
huga á að leika eftir aö hafa þurft
að hita varamannabekkinn nær
allan leikinn á móti Norðmönnum
á dögunum.
Sigurður Dagssori er enn
meiddur á fingri eftir að hafa
bjargað siðasta skoti Norðmanna
á markið i leiknum á Laugardals-
vellinum með honum, og Karl
Hermannsson var settur út eftir
að Tony Knapp hafði kannaö
meiðsli hans I gærkvöldi.
Þá kallaði hann fyrir Karl og
Gisla Torfason og lét þá gera
ýmsar æfingar til að sjá hvernig
meiðsli þeirra hæfust við. Gísli
stóðst prófið, en Karl ekki, og
missti hann þar með af ferðinni,
sem hófst i morgun, en þá lagði
liðið af stað til Noregs.
Einhverjir fleiri munu hafa átt
við smávægileg meiðsli að striða
— þar á meðal þeir Árni Sveins-
son, Arni Stefánsson og Teitur
Þórðarson, en þeir sluppu allir i
gegn.
Þeir sem koma inn I hópinn
fyrir Elmar, Karl og Sigurð eru:
örn óskarsson IBV, Grétar
Magnússon IBK og Þorsteinn
Ólafsson IBK. En 16 manna hóp-
urinn sem fór utan I morgun er
annars skipaður þessum mönn-
um:
Arni Stefánsson Fram
Þorsteinn ólafsson tBK
Gisli Torfason IBK
Marteinn Geirsson Fram
Jón Pétursson Fram
Jóhannes Eðvaldsson Holbæk
Björn Lárusson ÍA
Guðgeir Leifsson Viking
Olafur Júliusson IBK
Hörður Hilmarsson Val
Grétar Magnússon tBK
Jón Alfreðsson tA
Árni Sveinsson tA
örn Óskarsson IBV
Teitur Þórðarson tA
Matthias Hallgrímsson tA.
Tony Knapp þjálfari liðsins
sagði, er við töluðum við hann I
gærkvöldi, að hann gæfi liðiö, sem
ætti að leika, ekki upp fyrr en rétt
fyrir leikinn á fimmtudaginn.
,,Ég hef það hérna uppi” sagði
hann um leið og hann benti á höf-
uð sitt — en það fær enginn að vita
það fyrr en rétt áður en við förum
inn á. Það er slæmt að missa
þessa þrjá menn úr hópnum —
allt eru þetta góðir leikmenn og
félagar, en ég vildi ekki taka þá
áhættu að hafa þá meidda með i
förinni og Elmar fengum við þvi
miður ekki lausan úr vinnu”.
—klp—
Visir. Þriðjudagur 15. júli 1975.
11
flestir dœmdu
með í slagnum
Liðið sem
niður enn
Fram sigraði FH í 1. deildinni í gœrkvöldi og er í efsta sœti
ásamt Akranesi með 12 stig — 4 stigum á undan nœstu liðum
Þegar fyrstu umferð 1. deiidar-
keppninnar í knattspyrnu lauk og
FH hafði sigraðFram, voru flest-
ir knattspyrnuunnendur á þvi, að
Fram yrði i fallbaráttunni i ár.
Árið áður hafði liðið verið i fall-
hættu fram á siöustu stund — og
þá með toppliö — en nú voru flest-
ar stjörnurnar horfnar til ann-
arra félaga og Fram orðið að
„dubba upp” gamla knattspyrnu-
menn til að fylla i skarðið.
En Fram hefur komið á óvart.
Mótlætið og hrakspár hafa orðið
til þess að þjappa liðinu saman og
nú er svo komið, að enginn talar
lengur um Fram sem fallkandi-
dat heldur sem liðið, sem berst
um meistaratitilinn.
Liðið er komið með 12 stig úr 8
leikjum — jafnmörg og Akranes
—- og tvö þau siðustu bættust i
safnið I gærkvöldi. Þá sigraði
Fram FH með tveim mörkum
SJAÐAN
Ursliti áttundu umferð 11. deild
urðu þessi:
gegn engu á Laugardalsvellinum
og trjónar nú i öðru sæti á töflunni
með aðeins óhagstæðari marka-
tölu en Skagamenn.
Mörgum hefur þótt mikil
„heppnisþefur” af sumum sigr-
um Fram i sumar — eins og þeim
þótti liðið oft óheppið i deildinni i
fyrra. En þannig er það oft með
lið, sem vegnar vel og sigrar i
mörgum leikjum með litlum
mun.
Hver man ekki eftir „KR-
heppninni”, sem allir töluðu um
hér á árunum, þegar KR var og
héteitthvað iknattspyrnunni. Um
hana er ekki lengur talað, og það
vafasama sæmdarheiti flutt yfir á
önnur félög.
Sigur Fram i leiknum i gær-
kvöldi var enginn heppnissigur —
og heldur hefði ekkert verið hægt
að segja, þótt leiknum hefði lokið
með jafntefli eða sigri FH. Fram
hafði einfaldlega enga afgerandi
yfirburði i leiknum fyrr en staöan
var orðin 2:0, en þá tók liðið öll
völd og gat hæglega bætt við fleiri
mörkum.
FH-ingarnir áttu ekki minna i
leiknum i fyrri hálfleik og náðu
oft upp sæmilegum leikköflum.
En þegar kom að markinu varð
litiö úr leiknum — þar tóku þeir
Marteinn Geirss., Jón Pétursson
og Arni Stefánsson við og sendu
boltann, og alla FH-ingana, til
baka. Þar er múrinn, sem liðun-
um hinum gengur illa að brjóta,
og á honum stendur eða fellur
Framliðið.
Annars var kraftur i báðum lið-
um og mikill hraði i leiknum — en
tækifærin fá. Það var ekki fyrr en
á 10. minútu siðari hálfleiks, sem
eitthvað stórt gerðist við mörkin
— og þá var það við mark FH.
Eggert Steingrimsson tók
aukaspyrnu á miðjum vallar-
helming FH og sendi inn I teiginn.
En þar stóð ölií'H vörnin eins og
trédrumbar, þegar Marteinn og
Jón P. hlupu fram, og Marteinn
gat einn og óhindraður skallað i
netið.
Hann var aftur á ferðinni þrem
minútum siðar — en þá við hitt
markið — og bjargaði á linu, eftir
að Arni Stefánsson hafði farið i
„ævintýraferö” úr markinu og
misst af boltanum.
Við þetta mótlæti dofnaði yfir
Hafnfirðingunum, og úr þeim fór
allur vindur, þegar Fram skoraði
annað markiö á 25. minútu. Þá
skautRúnar Gislason þrumuskoti
á mark FH úr opnu færi, en ómar
Karlsson markvörður FH hafði
hendur á boltanum og sýndi við
það mikil tilþrif. En skot Rúnars
var fast og hann missti boltann
frá sér rétt yfir marklinuna.
Um það hvort boltinn hefði far-
ið yfir llnuna var nokkuð deilt á
eftir —en bæði leikmenn Fram og
FH, semnæstir stóöu, svo og linu-
vörðurinn þeim megin á vellin-
um, sögðu okkur, að hann hefði
allur farið yfir, er viö spurðum þá
eftir leikinn.
Sem fyrr var „trióið” Mar-
teinn, Jón P. og Árni beztir af
Frömurunum. Einnig áttu þeir á-
gætan leik Erlendur Magnússon,
Gunnar Guömundsson og Eggert
Steingrimsson. Að visu var Jón P.
stundum heldur of grófur og
sömuleiðis Agúst Guðmundsson.
Hjá FH báru þeir af Pálmi
Sveinbjörnss., Janus Guðlaugss.,
Ólafur Danivalsson, en annars
var FH-liðið nokkuð jafnt og leik-
ur oft skemmtilega saman. Dóm-
ari var Guðmundur Pétursson og
hafði hann nóg að gera, bæði við
að gefa áminningar — fyrir að
yfirgefa völlinn án hans leyfis —
og að dæma á gróf brot, en samt
sleppti hann mörgum.
—klp—
Eitt mark
hjá KR...
Matthias Hallgrimsson, fremst
á myndinni, skorar eina mark
Skagamanna I 1:0 sigri þeirra á
móti KR i 1. deildinni á sunnu-
dagskvöldið. Skotið var á mark-
ið úr löngu færi og ætlaði Magn-
ús markvörður KRrliggjandi og
horfir á eftir boltanum — aö
taka það, en Matthias kom á
milli og sendi boltann I netið.
Yfir 2000 áhorfendur sáu þennan
leik, en fæstir höfðu skemmtun
af honum. Ljósmynd: Bjarnleif-
ur.
Valur — ÍBK 1-2
Vikingur —ÍBV 6-1
KR — í A 0-1
Fram — FH 2-0
Staðan í 1. deild er IIÚ þessi
Akranes 8 5 2 1 16:7 12
Fram 8 6 0 2 10:3 12
Vikingur 8 3 2 3 9:6 8
Keflavik 8 3 2 3 7:7 8
Valur 8 2 3 3 9:9 7
KR 8 2 2 4 4:6 6
FH 8 2 2 4 6:16 6
ÍBV 8 1 3 3 8:15 5
Markahæstu menn eru:
Matthias Hallgrimsson ÍA 6
Guðmundur Þorbjörnsson Val 6
Örn Óskarsson tBV 5
Sigurður Dagsson — siðasta skot
Norðmanna I fyrri leiknum gerði
það að verkum, að hann missir af
þeim síðari.
1 i . v \>v X\: X f $ \\ & xqSk j
Stefán Guðjohnsen skrifar frá Brighton:
emmurnar
gerðu muninn
Leikur okkar gegn titilhöfunum
var harður bardagi, en tvær
slemmur reyndust gera allan
muninn, þcgar upp var staðið.
Fyrri hálfleikur var tiltölulega
rólegur. Þegar hann var hálfnað-
ur, var staðan jöfn, 5-5. En þá
fóru Hallur Simonarson og Þórir
Sigurðssou i game á hættu, sem
vannst, meðan Frakkar spiluðu
tvo. Tveim spilum siðar vann ég
fjóra spaða doblaða, þegar
Stoppa varð á i messunni. Sá
vinningur fór þó aftur út i næsta
spili, þegar ég tók ranga ákvörð-
un á háu sagnþrepi. — Eftir hálf-
leikinn var staðan 32-18 fyrir okk-
ur.
t siðari hálfleik voru spilin hin
erfiðustu viðureignar, en þessar
tvær slemmur rak á fjörurnar.
G10 AK943
KG8 A107
AK542 G87
864 AD
Þórir og Hallur sögðu þannig:
Vestur Austur
1 T 2 L
2 T 2 S
2 G 4 G
5 T 6 T
Eftir hjartaútspil var Þórir
fljótur að hesthúsa tólf slagi með
þvi að taka tvo hæstu i tigli, en þá
kom drottningin rúllandi. Tók
hann siöan siöasta tromp og gaf
einn á spaða.
Lebel og Mari höfðu stanzað i 3
gröndum á móti okkur Símoni,
svo að spilið gaf okkur tiu stig.
En þá kom stóra slemman
nokkrum spilum siðar:
Stefán Simon
A10954 KG
A K1074
— AG98
KDG8764 A103
Stoppa liafði stanzað i sex lauf-
um, en hjá okkur Simoni spann
maskina „Bláa laufsins” lopann
alla leið upp i 7 lauf, sem unnust
auðveldlega.
Lokatölurnar urðu svo þær, að
við unnum siðari hálfleik lika, 50-
41, sem þýddi 15-5 vinningsstig.
Þannig erum við alls komnir með
55 vinningssiig.
Stefán.