Vísir - 17.07.1975, Blaðsíða 8
8
Vísir. Fimmtudagur 17. júli 1975.
Visir. Fimmtudagur 17. júii 1975.
9
Jæja, en hvernig veit
ég að þú sleppir
Nitu? T'
Ekki áhyggjur
Henni verður ,
^-..sleppt J
Töpuðu fyrsta
leiknum ó EM
í Grikklandi
isienzka unglingalandsliðið i körfuknatt-
leik tapaði stórt fyrir pólska unglinga-
landsliðinu i fyrsta leik sinum i Evrópu-
keppninni i Saloniki i Grikklandi i gærkvöldi.
i hálfleik var staðan 46:28 fyrir pólska
liðið, en leiknum lauk með sigri Pólverjanna,
111:57. Liðin frá austantjaldslöndunum bera
sýnilega af I þessuin riðli, en þar urðu úrslit i
hinum leikjunum sem hér segir:
Sovétrikin — Austurríki 115:36, (43:14 i
hálfleik) og Tékkóslóvakia - Skotland 100:24,
(56:19 í hálfleik). —klp—
Williams nólœgt
heimsmeti í 100
Bandarikjamaðurinn Steve Williams jafn-
aði heimsmetið i 100 metra hlaupi á móti í
Siena á italiu i gærkvöldi.
Hann var siðastur i startinu og á eftir landa
sinum — Houstón Mctear, sem á heimsmetið
i 100 jarda hlaupi, þar til hlaupið var vel
hálfnað. Þá sctti Williams á fullt og kom i
mark á 9,9 sekúndum. Mctear og Steve
Riddick, einnig frá Bandaríkjunum, komu í
mark á 10,0 sek.
Williams, sem einnig hefur jafnað
heimsmetið i 200 metra hlaupi, hljóp 100
metrana fyrir nokkrum dögum á 9,8 sekúnd-
um, en þá mældist vindhraðinn aðeins of
mikill. —klp—
Mikið ber ó milli
Kanadamenn vilja fó yfir 20
milljón dollara fyrir sjónvarpsrétt-
inn fró OL til Evrópu en þeim
eru boðnar rúmlega 5 milljónir
af Evrópustöðvunum
Eins og útlitið er i dag, virðast litlar likur á
að sjónvarpað vcröi frá Olympiuleikunum í
Kanada til Evrópu. Er ástæðan sú, að ekki
hefur náðst samkomulag um greiðslur, og
ber mikið á milli.
Fara Kanadainenn fram á 20,9 milljónir
dala i greiðslu fyrir sjónvarpsréttinn, cn
Evrópustöövarnar EBU (European Brod-
casting Union) og OIRT (European Equival-
ent, International Radio og Television
Organisation) liafa boöið 5.2 milljónir dala
fyrir sýningarréttinn.
Upphaflega bauðEBU 1,7 milljónir, sem er
sama upphæð og greidd var fyrir sjónvarps-
réttinn frá Olympiuleikunum i Munchen 1972.
En Kanadamenn vilja fá 14,5 milljónir frá
EBU og 6,4 milljónir frá ORIT.
öll nótt er sanit ekki úti, þvi að deiluaðii-
arnir þurfa ekki að hafa gcngið frá samning-
um sin á milli fyrr en i lok september.
Hópferð ó Kar-
lottenkeppnina
Eftir rúma viku fer héðan stór hópur af
frjálsiþróttafólki til Tromsö í N-Noregi, en
þar fer fram dagana 26. og 27. júli svokölluð
Kalotten-kcppni. Fer þessi keppni fram ár-
lega og eru keppendurnir frá N-Noregi, N-
S\ iþjóð og N-F'innlandi og sendir hver þjóð
tvo keppendur I grein.
í þessu sambandi gengst FRI fyrir hópferö
til Noregs og liefur gert samning við Sunnu
um lcigu á einni af þotum félagsins.
Verður farið héðan til Tromsö, sem oft er
kiilluð ferðamannaparadis N-Noregs, 25. júli
og tekur feröin 2 1/2 tima. Ferðin fram og
lil baka kostar 2(1.500 kr. fyrir utan hótel-
kostnað. Til baka verður komið þann 28. kl.
23:00.
Allar nánari upplýsingar um ferð þessa er
liægt að fá hjá ferðaskrifstofunni Sunnu.
„Körfuknattleikurinn
virðist henta mér betur"
— segir Geir Þorsteinsson, sem aðeins hefur leikið körfuknattleik í nokkra
ó landsmóti UMF9
mónuði en var samt með stigahœstu mönnum
stundaði hann handknattleik með
IR og komst snemma I meistara-
flokk eða 17 ára gamall, en þá hélt
Geir utan til Danmerkur og
Sviþjóðar og sagði skilið við alla
knattleiki.
„Mér kom mjög á óvart, að ég
skyldi verða næststigahæstur
innan um alla þessa leikreyndu
félaga mina, þar sem ég hef ekki
iðkað körfuknattieik nema i
nokkra mánuði’’, sagði Geir Þor-
steinsson, sem vakti athygli með
hittni sinni I siguriiði Njarðvikur I
nýafstöðnu iandsmóti UMFÍ á
Akranesi.
Geir er þó ekki með öllu óvanur
knattleikjum. 1 unglingsárum
slnum iðkaði hann sundknattleik
og varð Islandsmeistari i þeirri
grein með Ægi, er þeir
rufu áratugalanga sigur-
göngu Armanns. Einnig
„Ég snerti ekki knött, meðan ég
var ytra”, sagði Geir, „og ætlaði
mér ekki að gera það heldur, þeg-
ar ég kom heim aftur. En fyrir
áeggjan kunningja mins lét ég til-
leiðast og spilaði með 3. deildar-
liði Viðis I handknattleik. Þá fékk
ég „bakteriuna” að nýju”.
Geir skoraði allt að 20 mörkum
i leik I 3. deildinni, „en mér gekk
ekki eins vel hjá Val i vetur, þótt
ég æfði af fullum krafti, „sagði
Geir, „komst varla i meistara-
flokksliðið.
Körfuknattleikurinn virðist
henta mér vel. Ég er lika i mjög
samstilltum hópi i Njarðvikurlið-
inu, — piltum, sem eru staðráðnir
i þvi að leggja sig alla fram til að
ná tslandsmeistaratitlinum til
Suðurnesjanna að nýju eftir langt
hlé.
Ég ætla samt ekki að segja
alveg skilið við handknattleikinn.
Ef timi vinnst til, er liklegt, aö ég
taki með mér þjálfun 3. deildar
liðs og keppi þar, ef það rekst ekki
á við körfuna”, sagði Geir að lok-
um. emm
A meðan...
Þú ert heppin. Möguleiki að þú
sleppir i kvöld.
r\r i ■ M
lötiNAS
<9
© Kintt Fe«lure» Syndice'e, Inc., 1974. World righu reierved
Islenzk og sœnsk
TJÖLD
2ja, 3ja, 4ra og 5 manna
Tjöld uppsett i verzluninni
Svefnpokar
Bakpokar
íþróttabúningar
Gúmmíbátar
Allar veiðivörur
Pistsendum
um lond ollt
spomm
HLEMMTORGI - SÍMI 14390
ALLTÍ
FERÐALAGIÐ
Þu mott vera þrjá
tíma á leiðinni!
Bláskógaskokkið vinsœla...Þingvellir/
Laugarvatn ...á sunnudaginn
Ilið árlega Bláskógaskokk
verður lialdið n.k. sunnudag og er
búizt við mikilli þátttöku. i hiaup-
inu — eða „skokkinu” eins og
menn vilja heldur kaila það tóku
þátt 300 manns á öllum aldri i
fyrra, og i ár er búizt við, að cnn
fleiri mæli.
Vegalengdin. sem skokkuð er
— Þingvejlir/Laugarvatn — er
u.þ.b. 15 km og eru engin tima-
takmörk önnur en þau, að kepp-
endur verða að vera komnir að
Laugarvatni kl. 17.00, eða þrem
timum eftir að hópurinn leggur af
stað frá Þingvöllum.
Keppt verður i fimm aldurs-
flokkum, og er yngsti flokkurinn
fyrir 13 ára og yngri, en sá elzti 35
ára og eldri.
Þetta „skokk” hefur jafnan
verið vinsælt, jafnt hjá þeim sem
hafa gaman af að hlaupa og þá
ekki siður hinum, sem njóta þess
innilega að sjá aðra hlaupa og
hlaupa, en geta sjálf setið á
„botninum” inni i þægilegum bil.
Brosleitir
Við unnum hina spænsku
riddara 20:0, þegar við mættum
þeim i 6. umfcrð Evrópumóts-
ins. Var þó bilið ekki stórt I fyrri
hálfleik, 47-31. En i siðari hálf-
leik dró mjög i sundur, þvi að
hann fór 48-14.
Eldri mennirnir spiluðu allan
leikinn: Hallur Simonarson,
Þórir Sigurðsson, Simon
Simonarson og undirritaður.
1 7. umferðinni i gærkvöldi
spiluðum við gegn Irlandi og
það voru brosandi Irar, sem við
skildum við um miðnættið. Þeir
unnu báða hálfleikina, þann
fyrri 26-31 og þann siðari 29-38,
sem þýddi 13-7 vinning fyrir þá.
Eitt spilið varð þeim þó ekki
ýkja ánægjulegt:
+ K62
¥ AKDG7642
♦ A
* 8
4 AD5 * 109743
V 5 ¥ 10983
4 DG98 ♦ 2
4 AD 1092 + 753
* G8
¥ -
4 K976543
4 KG64
,,Rússarnir svöruðu
okkur á mettima, þegar
við buðum þeim að
senda 4 til 5 keppendur á
50. Meistaramót íslands
i frjálsum iþróttum”,
sagði Úlfar Teitsson,
formaður frjálsiþrótta-
Ófœrt til
Ólafsvíkur
— svo ekkert varð af
leik Víkings og Selfoss
í 2. deild
Ekkert varö úr, aö leikur Vik-
ings Ólafsvik og Selfoss I 2. deild
tslandsmótsins i knattspyrnu færi
fram i gærkvöldi, eins og gert var
ráð fyrir.
Vonzkuveður var fyrir vestan i
gær og ekki hægt að lenda þar, en
Selfyssingarnir voru búnir að
panta flugvél til að fara með sig á
staðinn.
Aður en til þess kom, að þeir
færu af stað, höfðu Ólafsviking-
arnir samband við þá og sögðu
þeim, að vonlaust væri að lenda,
og var þvi ákveðið að fresta leikn-
um um sinn. —klp—
deildar KR, sem sér um
mótið að þessu sinni,
,,Fengum við jákvætt
svar frá þeim eftir þrjá
daga, og óskuðu þeir
eftir að fá dagskrá
mótsins senda út.
Fáum við að sjá hann á Laugar-
dalsvellinum? — Rússinn sprett-
harði Borsov.
Þaöer gottaö fá sér hressingu þegar maður skokkar á milli Þingvalla og Laugarvatns eins og fyrirhug-
að er að gera á sunnudaginn kemur....
Irar sigruðu Island
Við óskuðum eftir ákveðnum
„topp mönnum” t.d. spretthlaup-
aranum Borsov, spjótkastaran-
um Janis Lusis og Faianu Melnik
1 kringlukasti kvenna. Hvort við
verðum svo heppnir að fá þetta
fræga fólk er ekki gott að segja
um á þessu stigi málsins, en við
vonum hiðbezta eða þá, að aðrir
frægir iþróttamenn eða konur
komi, sem fólk hefur áhuga á að
sjá. Nú bíðum við bara spenntir
eftir svari frá Rússunum”.
Hvernig fer í Bergen í kvöld?
Siðari landsleikur tsiands og Noregs I undankeppni olympiuleikanna I knattspyrnu fer fram i Bergen i
Noregi I kvöld. tslenzka liðið kom þangaö á þriöjudag og er tilbúiö til að mæta Norðmönnunum. Það
verður sjálfsagt erfitt við þá að eiga á heimavelli, en trúlega gefa okkar strákar sig ekki fyrr en i fulla
hnefana eins og i siðustu fimm leikjum, en enginn þeirra hefur tapazt. Þessi mynd er tekin þegar is-
lenzka liðið gengur inn á Laugardalsvöllinn fyrir 10 dögum, en þá náðu Norðmenn jafntefli með aöstoð
dómara frá Sviþjóð, eins og frægt er orðið. Ljósmynd: Bj.Bj.
I lokaða herberginu voru
sagnir þannig:
S v N A
Þórir Hallur
3T 3G Dobl P
p 4L 4H pass hring
Hallur spilaði út laufi, sem
Þórir fékk á niuna. Þórir spilaði
tigli til baka. Sagnhafi tók siðan
fjóra slagi á tromp og spilaði
spaða að gosa blinds, sem Þórir
drap með drottningu. Siðan spil-
aði Þórir út laufaásnum og
vörnin beið svo eftir spaðaslög-
um sinum.
I opna herberginu spilaði
Simon 4 hjörtu lika, eftir að
vestur hafði opnað á 2 laufum.
Simon fékk út tigul og tók fjór-
um sinnum tromp, en spilaði þvi
næst laufi að kóngnum i blind-
um. Eftir að hafa fengið á laufa-
ásinn, spilaði vestur laufa-
drottningu, en Simon fleygði
spaðatvisti i hana, sem var góð
fjárfesting. Næst varð nefnilega
vestur að gefa honum slag i
staðinn.
Eftir 7 umferðir er staðan
þannig i mótinu: 1. Italia 109 st„
2. Israel 100 st„ 3. Pólland 96 st„
4. Danmörk 94 st„ 5. Frakkland
92 st„ 6. Noregur 87 st„ 7. tsland
86 st„ 8. England 83 st„ 9. Hol-
land 78 st...og aðcir koma svo
þar á eftir, en alls eru 23 þátt-
tökuþjóðir með sveitir hér.
I dag spilum við gegn Júgó-
slaviu og Hollandi.
Stefán.
Vísir með
tvo menn
á staðnum!
Tveir menn frá Visi veröa á
landsleiknum á milli tslands og
Noregs i Bergen I kvöld —
Kjartan L. Pálsson iþrótta-
fréttaritari og Bjarnleifur
Bjarnleifsson Ijósmyndari.
Þeir liéldu utan með Air
Viking flugvélinni i morgun, en
hún flytur um 150 tslendinga,
sem ætla að horfa á leikinn og
hvetja islenzka landsliðið til
dáða.
i blaðinu á morgun verður
frásögn og myndir frá leiknum i
Bergen svo og viðtöl viö leik-
menn og áhorfendur.
Hvaða Rússar
koma á 50.
meistaramótið?
r
FRI bað um að hingað yrðu send m.a. þau Janis Lusis,
Faiana Melnik og spretthlauparinn Borsov
— beðið eftir svari hverjir koma
EVROPUMÓm
Í BRIDGE
%