Vísir - 17.07.1975, Blaðsíða 5
Vísir. Kimmtudagur 17. júli 1975.
5
iUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjótl: Guðmundur PéturSSOn
Herinn og
kommúnistar
einir eftir
í stjórninni
Allra flokka stjórn
Portúgals, sem mynduö
var eftir byltinguna, hefur
nú splundrazt gersamlega,
þar sem alþýðudemókrat-
ar hafa nú fylgt fordæmi
sósíalista og sagt sig úr
stjórninni.
Þar meö situr stjórn-
málahreyfing hersins uppi
án stuðnings tveggja
stærstu stjórnmálaf lokka
landsins, þegar steðjar að
landinu stjórnmálakreppa
og ef nahagsörðugleikar.
Klofningurinn er sprottinn upp
úr ágreiningi milli flokkanna
beggja annars vegar og her-
stjórnarinnar hins vegar, sem
hefur á prjónunum ráðagerðir um
stofnun lýðveldis, er stjórnað
verði af hernum.
En eftir sitja i stjórninni með
herforingjunum kommúnistar og
bandamenn þeirra.
Forystumenn hersins verða nú
að gera upp við sig, hvort þessi
stjórn geti setið áfram, þótt hún
njóti aðeins stuðnings litils minni-
hluta þjóðarinar, eða hvort þeir
verði að mynda nýja stjórn
hersins, sem styðjist við sérfræð-
inga.
Auk úrsagnar alþýðudemó-
krata úr stjórninni bar tvennt
annað til tiðinda i gær, sem gekk
Vasco Goncalves hershöfðingja
og forsætisráðherra i móti: —
Joao Pereira, iðnaðarmálaráð-
herra (vinstrisinni), sagði af sér
,,vegna máttleysis hersins”, eins
og hann sjálfur sagði. — Vinstri-
sinna hermenn i brynvögnum létu
berast með i mótmælagöngu
kommúnista fyrir utan þinghúsið,
en þeir kröfðust þess, að þingið
yrði leyst upp.
Hið siðarnefnda kemur eins og
staðfesting á grun alþýðudemó-
krata um, að herstjórnin hyggist
hunza lýðræðið. Demókratar
höfðu einmitt gert þá höfuðkröfu
fyrir áframhaldandi stjórnar-
samstarfi, að þingið yrði látið
starfa áfram að uppkasti að
stjórnarskrá, áður en almennar
þingkosningar yrðu látnar fara
fram.
Blaðamenn við sósíalistablaðið „Republica” héldu i gær blaðamanna-
fund, þar sem þeir sögðust hefja útgáfu nýs blaðs og eru staðráðnir i
þvi að láta ekki prentara kommúnista hefta það, að flokkur þeirra hafi
eigið málgagn.
Frá mótmælunum við þinghúsið í Lissabon I gær, þar sem brynvagnar voru meö I för.
Með vissu er vitað um
219 manns, sem látið hafa
lifið á Indlandi í vatna-
gangi, sem fylgt hefur
monsún-rigningunum.
Horfir nú til neyðará-
stands í öllum Kashmir-
dalnum vegna rigning-
anna.
Um tvær milljónir manna
hafa orðið fyrir tjóni af völdum
rigninganna i norðurhéraðinu
Uttar Pradesh. Og i Assam-hér-
aðinu hefur Brahmaputra flætt
um 60 kilómetra út yfir bakka
sina — báðum megin.
1 Rúmeniu hafa nú verið num-
in úr gildi svonefnd neyðará-
standslög, sem sett voru vegna
flóðanna i Dóná. En varúðar-
ráðstafanir eru enn viðhafðar,
þvi að hættan þykir ekki liðin
hjá enn.
Þar hefur þetta skelfingará-
stand varað i tvær vikur, en tjón
af völdum flóðanna mun vera
ofboðslegt, þótt rúmensk yfir-
völd hafi ekki látið frá sér fara
neinar áætlanir um, hvað það
muni mikið. — Hjálparsveitir
hafa unnið nætur sem nýta daga
við að bjarga þvi, sem bjarga
mátti.
Búizt er við þvi, að vatnsborð
Dónár verði i hámarki á laugar-
dag.
lögreglu
birgðir sjálfvirkra skotvopna,
skotfæra og sprengiefnis. Um leið
fundust nafnalistar yfir þá. sem
IRA vill feiga, og var þar að
finna nöfn margra dómara og
háttsettra embættismanna.
GIFURLEGT TJON I
RÚMENÍU VEGNA
FLÓÐA
Monsúnrigningar á N-lndlandi og
Brahmaputra flœðir yfir bakkana
Hœttulegasti maður Evrópu
til moldar borinn í gœr
Fyrrverandi SS-menn og
nýnazistar voru meðal
þeirra 500 syrgjenda, sem
hópuðust í kirkjugarðinn í
Vínarborg til þess að votta
Otto Skorzeny offursta
hinztu virðingu, en hann
lézt í Madrid 5. júlí.
Skorzeny var eitt sinn nefndur
„hættulegasti maður Evrópu”
vegna afreka sinna i siðari
heimsstyrjöldinni. Frægastur var
hann fyrir aö bjarga Benito
Mossolini úr fjallafangelsi.
Hann lézt af völdum krabba-
meins i útlegð á Spáni, 67 ára að
aldri. — Aska hans var jarðsett i
fjölskyldugrafreit ættar hans i
Vinarborg.
Meðal þeirra, sem viðstaddir
voru minningarathöfnina i gær,
mátti sjá marga fyrrverandi fé-
laga hans úr stormsveitum
nazista, ýmsa skólafélaga, sem
enn báru örin i andliti sér frá
skylmingareinvigum stúdentsár-
anna o.fl. -— Þarna var einnig
flugofurstinn, Hans Rudel, sá
flugmaður nazista, sem flest
hlaut heiðursmerkin i striðinu, en
hann kvaddi hinn látna með þess-
um orðum: ,,Þú gerðir meira en
skyldu þina — þú skapaðir sög-
una.”
Aðrir, sem létu þarna orð falla i
minningu þess látna, lofuðu
hreysti hans sem hermanns og
fóru beizkum orðum um „ofsókn-
irnar” gegn striðshetjunni fyrr-
verandi, sem leiddu til þess að
hann varð að dvelja i útlegð á
Spáni.
Skorzeny, „oberststurmbann -
fuhrer” i SS, var sýknaður af á-
kærum i striðsglæparéttarhöld-
um eftir strið. Hann flúði land
1948, þegar sérleg réttarhöld yfir
nazistum skyldu hefjast. Hann
leitaði hælis á Spáni, þar sem
hann dvaldi til dauðadags.
Kœrðir fyrir morð-
tilraunir á
Þrír menn, þar á meðal
einn af athafnasömustu
hryðjuverkamönnum írska
lýðveldishersins, voru
kærðir í gær fyrir tilraun
til að myrða þrjá brezka
lögreglumenn.
Mennirnir voru hand-
teknir eftir áhlaup lögregl-
unnar á eitt vopnabúr IRA,
sem fannst í Liverpool.
Einn þessara manna, hryðju-
verkamaðurinn, Sean Kinsella,
slapp úr fangelsinu i Portlaoise i
trska lýðveldinu ásamt 18 öðrum,
þegar þeir sprengdu sér leið út i
ágúst i fyrra.
Kinsella (28ára) afplánaði þar
lifstiðardóm fyrir morðið á irska
þingmanninum, Billy Fox.
Brendan Dowd Kinsella og
Stephen Nordone náðust með
honum i vopnabúrinu i Liverpool.
t átökunum við það tækifæri
særðust þrir lögregluþjónar og
liggur einn þeirra enn á sjúkra-
húsi. — En lögreglan fann miklar