Vísir - 02.08.1975, Page 2

Vísir - 02.08.1975, Page 2
2 Vísir. Laugardagur 2, ágúst 1975 TÍSIK SPTS'- Ætlarðu út úr bœnum um helgina? Brynhildur ólafsdóttir: Já ég ter norður að Mývatni. Yfirleitt fer ég eitthvað út úr bænum, ekki endilega á sama stað. Jakob Gunnarsson, háskólanemi: Ég verð hér i bænum og ætla mér að vinna yfir helgina. Hildur Mikaelsdóttir: Ég bý úti á landi en verð hér um helgina i Reykjavik. Ég hef ekkert sér- staklega skoðaö, hvaö borgin býður upp á. Sigurður Gislason, starfsmaöur I Héðni: Nei, ég ætla að hvila mig. Fólkið tinist burt úr bænum og lit- ið er um umferð. Þá er ósköp notalegt að rölta um bæinn. Svanborg Danielsdóttir, talsima- kona: Nei, ég kemst ekki, þar sem ég verð að vinna. Venjulega fer ég eitthvað, ef þess er kostur. Litið hef ég athugað, hvað skemmtanalif borgarinnar býður upp á. Aslaug Asgeirsdóttir, kcnnari: Ég kemst ekki vegna vinnu minn- ar. Mér lizt alls ekki illa á að vera i bænum um helgina. Það verður aö sjálfsögðu nokkuð dauft, en mér finnst ágætt að vera i róleg- heitum. Getum sparað mannamat með aukinni grasmiðlsvinnslu — og gert landið verðmœtara um leið Þaö er reisulegt heim að lita. Lengst til vinstri er grasmjölsverksmiðjan, útihúsin fyrir miðju og gamla bæjarhúsið þar nokkurn veginn á bak við, loks kirkja. Þeir Páll og ólafur hafa reist sltt húsiö hvor aust- ur af kirkjunni. Vísir heimsœkir grœnfódurverk- smiðjuna í Brautarholti — þó einu hérlendis í einkaeign „Mest af framleiðslu okkar fer út á land, beint til bændanna,” sagði Páll ólafsson i Brautarholti á Kjalar- nesi, en hann og Jón bróðir hans reka einu grænfóðurverk- smiðjuna á íslandi, sem er i einkaeign. „Það er gaman að eiga viðskipti við bændur,” sagði Páll. „Þeir eru mjög áreiðan- legir i viðskiptum og standa vel fyrir sinu.” Visir renndi sér upp að Brautarholti, þegar sólin skein núna i vikunni. Gufuna frá hey- þurrkaranum ber hátt við loft og hún blasir meðal annars við frá Reykjavik. A hlaðinu stóðu tveir vörubilar með há skjól- borð, dráttarvélar og gaffal- lyftari, og i varpanum stórt tæki og fyrirferðarmikið, sem er stærsta og fullkomnasta sláttu- vél á íslandi. Þessa vél keyptu þeir Brautarholtsbræður i fyrra og kostaði hún þá fimm milljónir króna. Þar af fékk ríkið eina i skatta og skyldur. Hún slær með tveimur ljáum, saxar heyiö og blæs þvi upp i vagn, sem siðan er hægt að sturta úr beint upp á vörubil. Geta má nærri, að þessi vél er mjög afkastamikil. Hún ermeð240ha. V-6 disilvél, sams konar og er I GM vörubilunum Páll ólafsson, Brautarholti.með grasköggla Ihöndunum. Myndir SHH og þykir einkar góð. Vélin er með drifi á öllum hjólum, og bæði hjóladrifin og annað gengur allt fyrir vökvaafli. „Það var nauðsynlegt fyrir okkur að fá þessa vél,” sagði Páll. „Það er óhjákvæmilegt að flytja grasið nokkuð langt að i sumum tilfellum, og það verður að flytja það á bilum. Það er margfaldur vinnusparnaður að geta sturtað þvi svona beint á bilana.” Brautarholtsbræður eru með stór tún sjálfir, og mikla græn- fóðurrækt að auki. Þar að auki hafa þeir litillega tekið gras af nágrönnum og kögglað fyrir þá. Daginn, sem við heimsóttum þá, var til dæmis verið að vinna hey frá bæ i Kjósinni. Heyinu er sturtað af bilunum á steypt plan fyrir framan verk- smiðjuna. Þaðan er þvi ýtt með dráttarvél inn á færibandiö, sem flytur það I þurrkarann. t Brautarholti er svokallaö há- hitakerfi, sem þurrkar heyiö við 940 gráðu hita, og er heyiö um eina minútu að fara I gegnum þurrkarann. Orkugjafi við hit- unina er svartolia, og þarf rúma 30 litra af oliu fyrir hver 100 kiló af grasmjöli. Eftir þurrkunina kemur fóðrið sem mjöl eða kögglar, eftir þvi hvers óskaö er. „Háhitakerfið er þrautreynt á þessu sviði,” sagði Páll. „Það hefur gefið beztan árangur við grasverkun með tilliti til varö- veizlu meltanleika og vitamina I fóðrinu.” Hann tók sem dæmi um notagildi grænfóðursins að á Bakka, næsta bæ við Brautar- holt, er eitt nythæsta kúabú á landinu. Þar voru siðastliöinn vetur gefin 850 kiló af kögglum á móti 250 kg af innfluttu kjarn- fóðri á hverju kú, og þannig sparað stórlega innflutt kjarn- fóður. Þeir bræður hófu rekstur grænfóðurverksmiðjunnar árið 1963. Fyrsti stað höfðu þeir lág- hitakerfi, og endurnýjuðu verk- smiðjuna árið 1972 og tóku þá upp háhitakerfi. Jafnframt fengu þeir þá aðstöðu til kögglunar, en fram að þvi höfðu þeir eingöngu framleitt gras- mjöl. Fyrsta árið var fram- leiðslan 100 tonn af grasmjöli, en jókst fljótlega i 2-300 tonn. Mesta ársframleiðsla með gömlu verksmiðjunni varð 350 tonn. í fyrra, en þá var nýja verksmiðjan komin, varð árs- framleiðslan 900 tonn. Páll taldi, að þeir fengju að meðal- tali um 4 tonn af graskögglum eða mjöli af hektaranum, en gat þess, að i Danmörku, sem er þriðja mesta framleiðsluriki heims á þessu sviði, fengjust 8-10 tonn af hektaranum. „Það er nauðsynlegt að hafa yfirdrifið hráefni,” sagöi Páll. „Það má aldrei verða stöðvun. Þannig verður jafnframt að gera ráð fyrir að þurfa að þurrka eitthvað af heyi, ef með þarf. „1963, þegar viö fórum út i þetta, var grasmjölsframleiösla ný framleiðslugrein hér á landi. Ekki var unnt að fá fyrir- greiðslu hjá lánasjóðum hér, nema út á byggingar. Þessi framleiösla naut þá engrar niðurgreiðslu fremur en nú, en hefur alltaf oröið að keppa viö innflutning á kjarnfóðri, sem er ótollað og söluskattslaust. En framleiðendur grasmjöls á Is- landi hafa oröið að borga tolla og gjöld af rekstrarvörum til framleiðslunnar. 1 Efnahags- bandalagslöndunum er talsverð niðurgreiðsla á hraðþurrkuðu fóðri, og ef við eigum að keppa á sömu mörkuðum, verður þessi framleiðslugrein að fá sömu fyrirgreiðslu á lslandi. — En hvernig fóru þeir að þvi að setja á stofn þessa verksmiðju, sem er hin einasta I einkaeign á landinu? 1963 kostaði verksmiðjan okk ur 1200 þúsund krónur með öllu og öllu. Þar af fengum við lán hjá Stofnlánadeild út á húsin, 140 þúsund. Einnig fengum við lán úr Framkvæmdasjóði árs- framleiðslan var seld fyrirfram á nokkuð góðu verði, eða kr. 4,50 kilóið. Til samanburðar má geta þess, að á siðasta ári urðum viö að selja á 19 krónur kilóið. Auð- vitað lögðum við svo fram fé sjálfir, enda höfðum við búið hér félagsbúi i 10 ár og vorum með töluverða mjólkurfram- leiðslu, og höfðum hana til 1967. Nú höfum við eingöngu svin, höfum raunar haft þau með frá 1954, erum nú með 30 gyltur og um 150 grisi.” Er þetta hagkvæmara en bú- rekstur upp á gamla mátann? „Það er erfitt að likja þvi á nokkurn hátt saman. Græn- fóðurverksmiðjan krefst miklu meira fjármagns, það þarf stöðugt aö vera að endurnýja. Það er óhjákvæmilegt að hafa verulega grænfóðurræktun til að lengja framleiðslutimann. Eftir aö gras fer að sölna, er ekki hægt að láta það fara I gegnum dýrar vélar, hráefniö verður alltaf að vera hið bezta. Þess vegna erum við með græn- fóðurræktun, á 100 hekturum lands og 40-50% af hráefni okkar er grænfóður, sem er 20% rýgresi en 80% hafrar og bygg. Með þvi er hægt að hafa hráefni frá þvi að gras tekur að þrjóta i ágústbyrjun fram i október, eða svo lengi sem það er óskemmt vegna frosta. Við höfum verið I gangi allt fram til 20. október, en það er lika það sem við höf- um komizt lengst. Eitt árið gát- um við byrjað 31. mai, en lé- legast var þegar við gátum ekki byrjað fyrr en 29. júni. 1 ár byrjuðum við 19. júni. Vélarnar eru keyrðar allan sólarhringinn, nema sunnudaga frá laugardagskvöldi til mánu- dagsmorguns. Þá er stoppað vegna þess að við erum meö lágmarksvinnukraft og reynum auk þess að reka þetta jafn likt almennri landbúnaðarfram- leiöslu og auðið er.” LESENDUR HAFA ORÐIÐ EIGUM VIÐ EKKI AÐ HJÁLPA HVÍTFLIBBUNUM SVOLÍTIÐ — þeir geta ekki einu Góðborgari skrifar: „Finnst ykkur ekki, að við eigum að taka höndum saman og gefa þessum vesalings mönn um, sem hafa ekki einu sinni svo miklar tekjur, að þeir geti borgað útsvar, eitthvað i svang- sinni borgað útsvar inn? Við gætum kannski fært þeim mjólkina heim handa blessuðum börnunum og kannski myndu þeir vilja þyggja tros i matinn frá okkur. Það versta, sem gæti samt hent okkur, þar sem við kæmum með fangið fullt af góðgæti væri að vesalingarnir væru bara farnir til Mallorka með alla fjöl- skylduna. Hvernig stendur á þessu? Og lúxusbillinn stendur ónotaður fyrir utan og húsið með dýrustu fáanlegu teppun- um er autt. A Innsiðu Visir á mánudaginn var fjallað um, hvað verði um afbrotamenn eftir að þeir koma úr islenzkum fangelsum. Það kemur I ljós, aö 63% lentu þar aftur innan 5 ára.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.