Vísir - 02.08.1975, Qupperneq 16
16 ________________________________________________________________________________________________ Vísir. Laugardagur 2. ágúst 1975
! 3AG | 0 KVÖLD | Q □AG 1 0 KVÖLD | Q □AG |
SJÓNVARP •
Laugardagur
18.00 iþróttir
Hlé
20/00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Nú er önnur tið. Kór
Menntaskólans við Hamra-
hllð flytur tónlist frá 20. öld.
Söngstjóri borgerður
Ingólfsdóttir. Stjórn upp-
töku Andrés Indriðason.
21.00 Gömlu dansarnir.
Hljómsveit Guðjóns Matt-
hiassonar leikur fyrir dansi
I sjónvarpssal. Dansstjóri
og kynnir Kristján bor-
steinsson. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.30 Guö hjálpi okkur!
(Heavens Above) Bresk
gamanmynd frá árinu 1963.
Leikstjóri John Boulting.
Aðalhlutverk Peter Sellers,
Cecil Parker og Isabel
Jeans. býðandi Óskar Ingi-
marsson.
23.30 Dagskrárlok
Sunnudagur
18.00 Höfuðpaurinn Bandarisk
teiknimynd. býðandi Stefán
Jökulsson.
18.25 Htgðun dýranna. Banda-
rískur fræðslumyndaflokk-
ur. Gátan um bláhrafninn
býðandiog þulur Jón O. Ed-
wald. Hér greinir frá rann-
sóknum, sem dýrafræðing-
ar við háskólann í Aberdeen
hafa gert á lifnaðarháttum
bláhrafna.
18.50 Tannpina.Sovésk teikni-
mynd án orða um mann sem
þjáist ákaflega af tannpinu,
en þorir ekki til tannlækhis,
og reynir þvi sjálfur að
leysa vandann.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og augiýsingar
20.30 Skugginn. Leikbrúðu-
mynd.
21.00 Sjötta skilningarvitið
Myndaflokkur I umsjá
Jökuls Jakobssonar og
Rúnars Gunnarssonar. 5.
þáttur. Huglækningar
21.40 Samson. Leikrit eftir
örnólf Árnason. Leikstjóri
Gísli Alfreðsson. Leikendur
Agúst Guðmundsson, Helga
Jónsdóttir, Brlet Héðins-
dóttir, Rúrik Haraldsson,
Ævar R. Kvaran, Lárus
Ingólfsson, Hákon Waage,
Randver borláksson,
Sigurður Rúnar Jónsson
o.fl. Stjórn upptöku Andrés
Indriðason. Aður á dagskrá
9. október 1972.
22.50 Að kvöldi dags.
23.00 Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Onedin skipafélagið.
Brezk framhaldsmynd. 38.
þáttur: Bónorð. býðandi
Óskar Ingimarsson. Efni 37.
þáttar: Fogarty er ráðinn á
eitt af skipum Onedin-fé-
lagsins. Hann er sendur
nauðugur af stað til Luleá i
Eystrasaltsbotnum, til að
sækja brautarteina. James
fer einnig á öðru skipi.
Vegna ágreinings um verð
vörunnar, tefjast skipin
fram á haust. Lagnaðaris
tefur för þeirra, er þau loks
komast úr höfn. James
reynir aðsprengja þeim leið
með dýnamíti. Litlu munar,
að sú tilraun kosti hann lifið,
en einn skipverja bjargar
honum úr bráðri hættu, og
skipin komast heilu og
höldnu heim.
21.25 Júdas svikur engan!
Fylgzt með popphljómsveit-
inni Júdasi i einn sólar-
hring.
22.05 Sir George Cayley og
furðuflugvél hans. Brezk
mynd um uppfinninga-
mann, sem snemma á sið-
ustu öld hóf tilraunir með
smiöi flugtækja og varð að
öllum likindum fyrstur
manna til að smiða mann-
bæra svifflugu í svipaðri
mynd og nú tiðkazt.
22.55 Dagskrárlok.
Útvarp kl. 20.54 í kvöld:
SUMARFRÍ
OG ÖNNUR FRÍ
— þáttur í umsjá Sigmars B. Haukssonar
i þætti Sigmars B. Hauksson-
ar, sem hann nefnir Sumarfri og
önnur fri, þá tekur hann fyrir
ýmis afbrigði sumarfris og ann-
arra fria og útlistar ýmis sálar-
leg afbrigði, sem brjótast um i
fóiki við slík tækifæri.
Einnig kannar Sigmar blást-
urskunnáttu þjóðarinnar, en
Sigmar heldur þvi fram, að I
þessu stressaða þjóðfélagi, sem
við lifum I, þá hafi þessa göfuga
listgrein, blistur, lagzt af, og
þykir honum það miður.
Sigmar B. Hauksson fer i leið-
angur til að rannsaka, hvort Is-
lendingar eru skemmtileg þjóð,
biður hann nokkra Islendinga,
sem hann hittir á förnum vegi
að segja nokkra brandara.
bá er það ferðasaga af
Dufferin lávarði, sem dvaldist
hér á landi fyrir langa löngu.
Hann „datt I það” með mektar-
mönnum lands vors. Fóru þeir
allir út I Viðey og þar sá
Dufferin lávarður hvitar kanin-
ur með rauð nef, sem flugu um.
Að sögn Sigmars er þetta hin
skemmtilegasta ferðasaga.
Frumflutt verður tónverk eft-
ir sænskt tónskáld, sem heitir
Ralf Lundsten. betta er
elektrónisk tónlist. Heitir verkið
Heimbyggðin kvödd og fjallar
um Gunnar á Hliðarenda. Sagði
Sigmar, að ballettdansmær
þjóðarinnar númer la, þ.e.
Unnur Guðjónsdóttir hefði sam-
iö ballett við þetta verk.
Siðan flytur Sigmar aðvörun
til allra útlendinga, þá, að tala
ekki illa um Islendinga — og
fleira verður I þessum dúr.
Sigmar B. Hauksson mun
hafa fleiri þætti I útvarpinu i
sumar, sem munu ganga undir
nafninu Á ágústkvöldi. HE.
Gömlu dans-
arnir duna í
sjónvarpinu
Hljómsveit Guðjóns Matthiassonar ásamt
23 danspörum halda uppi fjörinu
Gömlu dansarnir munu svella
i sjónvarpinu á laugardags-
kvöldinu. Það er Guðjón Matt-
hiasson, sá reyndi gömlu-dansa-
maður, sem sér um þennan
þátt.
Guðjón fær til liðs við sig 23
pör, sem hann hefur spilað fyrir
á dansstöðunum á undanförnum
árum.
Leigði Guðjón sal úti I bæ til
að æfa pörin siðan fékk hann
Svanhildi Sigurðadóttur, dans-
kennara, til að aðstoða sig við
að bæta stærstu dansgallana, en
sumir kunnu ekki að halda rétt
utan um dömuna, að sögn
Guðjóns.
Allar konurnar dansa á
peysufötum og sagði Guðjón, að
það hefi verið anzi mikið verk
að finna konur, sem bæði gátu
dansað og áttu þjóðbúning.
öll lögin i þættinum eru eftir
Guðjón sjálfan, svo og textinn
við eitt laganna.
Dansstjóri og kynnir er
Kristján borsteinsson, en hann
hefur stundað gömlu dansana i
mörg ár;
bað verður dansaður tangó,
valsar, polki — og eitt bóleró -
lag verður leikið.
Undirleik ásamt Guðjóni
annast Magnús Pétursson,
pianóleikari. Gripur Magnús
einnig I harmónikuna ásamt
Guðjóni. Edvin Kaaber leikur á
gitar, Njáll Sigurjónsson á
kontra-bassa og bórir Magnús-
son á trommur. Söngvari með
hljómsveitinni verður Garðar
Cortes.
Guðjón er útvarps- og sjón-
varpsáheyrendum kunnur — og
ekki hvað sizt eldri dansaunn-
endum.
SagðistGuðjón vera hætturað
sþila I eldri dansa klúbbnum
Eldingu, en honum hafi verið
sagt upp vegna þess, að hann
hafi beðið um 3ja vikna
veikindafri. begar hann hafi
ætlað að mæta til vinnu aftur,
var honum tilkynnt, að búið
væri að ráða annan mann, þar
eð stjórnin i eldri dansaklúbbn-
um áliti, að hann þyrfti að taka
sér lengra veikindafri. Sagði
Guðjón, að hann myndi ekki
hafa frétt neitt af þessu, ef hann
hefði ekki hringt nokkru áður en
hann átti að byrja.
bessir menn i Eldingu voru
allt gamlir kunningar, og þvi
finnst mér þetta mjög
ómannúðleg framkoma, sagði
Guðjón að lokum. HE
r
Utvarp kl. 17.00 mánudag:
Lög frá tíu löndum
Þeir félagarnir Baldur
Kristjánsson, pianóleikari Ey-
þór Þorláksson, gitarleikari,
Ómar Axelsson, bassagitar-
leikari og Guðmundur Stein-
grimsson, tromm uleikari,
munu flytja útvarpshlustendum
lög frá 10 löndum í útvarpinu á
mánudaginn.
Lögin verða svona sitt af
hverju tagi, dægurlög og létt
klassisk lög. Einsöngvari mun
syngja með kvartettnum. Hann
heitir Hjálmtýr Hjálmtýsson og
hefur hann sungið einsöng i
Háteigskirkju við messur.
Einnig syngur hann með kórum.
Löndin, sem lögin eru frá eru:
Norðurlöndin, England Þýzka-
land, Frakkland, Holland og
Belgia.
Sagði Baldur, að upphaflega
hafi átt að taka upp lög frá fleiri
löndum, en svo hafi upptöku-
tækið bilað, svo að ekki varð úr,
að þeir spiluðu fleiri lög:
, Fjórmenningarnir hafa áður
spilað saman i hljómsveit, t.d. i
danshljómsveit Baldurs
Kristjánssonar og hljómsveit
Jan Moravek.
SPJALLAÐ VIÐ FÓLK ÚR VERZLUNARSTÉTT
í útvarpi kl. 14.00 á mánudag
I tilefni af verzlunar-
mannahelginni ætlar
Ólafur Sigurðsson,
fréttamaður, að spjalla
viðátján aðila, sem vinna
við hin f jölbreytilegustu
verzlunarstörf. M.a. ræð-
ir hann við mann, sem
rekur litla heildsölu og
annan, sem rekur stærstu
heildverzlun í bænum.
Hann ræðir við tvær
stúlkur, önnur vinnur á
ferðaskrifstofu og hin á
farskrárdeild hjá flug-
félagi. Rætt verður við
sölumann hjá stórri fata-
verksmiðju og annan,
sem selur bílavarahluti.
Stúlka í tízkuverzlun og
önnur, sem vinnur í lyf ja-
búð, verða teknar tali —
og svona mætti lengi
telja.
Inni á milli viðtalanna
verða leikin lög, sem við-
mælendur Ólafs hafa
valið sér. HE
Hér sjáum viö inn i eina verzlun borgarinnar, sem er troðfull
af fólki, sem er aö kaupa til verzlunarmannahelgarinnar. En
Ólafur Sigurösson, fréttamaöur hjá útvarpinu, tekur verzlunar-
fólk tali i þætti sínum, sem hann kallar ,,A búðarloftinu”.
i