Vísir - 12.08.1975, Blaðsíða 9
Vísir. Þriðjudagur 12. ágúst 1975
Gústof nóði
OL-lógmarkinu
Setti tvö íslandsmet í lyftingum á móti hjá KR
í gœrkvöldi og náði alþjóðalágmarkinu á OL
Gústaf Agnarsson KR
tryggði sér örugglega far-
seðilinn á olympiuleikana í
Montreal í Kanada á næsta
ári, er hann náði alþjóða
lágmarkinu fyrir leikana á
innanfélagsmóti í lyfting-
um hjá KR í gærkvöldi.
Lágmörkin fyrir lyftingarnar á
olympiuleikunum hafa enn ekki
verið sett hér heima, en aftur á
móti hafa alþjóðalágmörkin verið
gefin út. Eru þau trúlega hærri en
lágmörkin sem sett verða hér
svo öruggt má telja, að Gústaf sé
búinn að ná i farseðilinn til
Kanada.
Hann setti tvö glæsileg tslands-
met á mótinu i gærkvöldi — i
snörun og samanlögðum árangri.
Hann snaraði 162,5 kilóum.
Gamla metið var 160,5 kg — sjón-
varpsmetið fræga — og bætti þvi
Gústaf það met um 1,5 kg.
1 jafnhendingu fór hann upp
með 190 kg, sem er ekki met, en
aftur á móti setti hann met i
samanlögðu — 352,5 kiló. Gamla
metið var 345 kiló.
Gústaf hefur æft vel að undan-
förnu og teflt upp á að ná þessu
alþjóðalágmarki. Það hefur hon-
um nú tekizt á glæsilegan hátt og
óskum við honum til hamingju
með það.
-klp-
Þetta er hlaupadrottning
tslands — Lilja Guðmundsdóttir
— sem i sumar hefur sett hvert
metið á fætur öðru i lengri
hlaupagreinum kvenna. Hún
hefur verið hér heima undan-
farna daga og tók þá m.a. þátt i
meistaramótinu i frjálsum
Iþróttum og Bikarkeppni FRt,
þar sem hún var ósigrandi. Lilja
dvelur við nám I Sviþjóð og æfir
þar og keppir fyrir sænska fé-
lagið tFK Norrköping, eins og
sjá má á búningnum, sem hún
er I á þessari mynd. Þarna er
hún aö koma fyrst I mark i boð-
hiaupi i Bikarkeppninni um
helgina, en þá var hún Isveit tR.
Ljósmynd Bj. Bj.
Gústaf Agnarsson
BLAÐAMENN MEÐ EINN
MANN í LANDSLIÐIÐ!
Það er ekki á hverjum degi sem
islenzkir íþróttafréttamenn eru
vaidir I landslið tslands i iþrótt-
um — jafnvel þótt þeir séu færir I
flestan sjó og viti allt — eða svo til
allt — um iþróttir!!
Þetta gerðist þó i gær, er lands-
lið íslands á móti Skotlandi i
frjálsum iþróttum var valið.
íþróttafréttamaður Alþýðublaðs-
ins — Björn Blöndal KR — var
valinn i liðið og er annar tveggja
nýliða i þvi.
Hann mun keppa i 4x100 metra
boöhlaupi, en það sæti hefur hann
unnið sér i tveim siðustu mótum,
þar sem hann stóð sig meö mikl-
um sóma. Hann byrjaði að æfa
frjálsar iþróttir I fyrra — þá 29
ára gamall — og hefur i ár hlaup-
ið 100 metrana á 11,2 sekúndum
og 200 metrana á 22,8 sek.
Hinn nýliöinn i hópnum er
Pétur Pétursson HSS. Hinir hafa
allir áöur verið i landsliðinu, þar
af einn i fyrsta sinn fyrir um það
bil 25 árum — Þórður B. Sigurðs-
son KR — sem mun keppa i
sleggjukasti.
Keppnin viðSkota hefst á Laug-
ardalsvellinum á þriðjudaginn i
næstu viku og mun standa yfir i
tvo daga. Það ætti að geta oröið
jöfn og spennandi keppni, þar
sem Skotar eru með áþekkt lið og
okkar. Þeir eiga góða menn I
hlaupagreinunum en við aftur á
móti betri menn i stökkum og
köstum.
Þeir sem keppa fyrir island i
þessari landskeppni við Skota
eru: Sigurður Sigurðsson A, Vil-
mundur Vilhjálmsson KR, Bjarni
Stefánsson KR, Jón Diðriksson
USB, Július Hjörleifsson IR,
Ágúst Asgeirsson tR, Sigfús Jóns-
son IR, Gunnar Páll Jóakimsson
IR, Jón H. Sigurðsson HSÞ,
Stefán Hallgrimsson KR, Val-
björn Þorláksson KR, Jón Sævar
Þórðarson 1R, Sigurður Sig-
mundsson FH, Björn Blöndal KR,
Sigurður Jónsson HSK, Elias
Sveinsson IR, Karl West Fredrik-
sen UBK, Friðrik Þór Óskarsson
Landskeppni við
Skotland á
Laugardalsvellinum
í nœstu viku
— tveir nýliðar í
íslenzka liðinu, en sá
elzti var þar fyrst
fyrir 25 árum...
IR, Pétur Pétursson HSS, Hreinn
Halldórsson HSS, Guðni Hall-
dórsson HSÞ, Óskar Jakobsson
1R, Snorri Jóelsson IR, Þórður B.
Sigurðsson KR og Erlendur
Valdimarsson SR. Liðsstjóri
verður Magnús Jakobsson.
—klp—
Políi vill fara á eftir þeim niður opið..
,,-------------1 Nei, Polli. Ekki stökkva?
'Við getum betur hjálpað þeim frá-
strönd-
Bayern og
Dinamo í
„Supercup"
Evrópumeistararnir I knatt-
spyrnu-Bayern Múnchen — og
Dinamo Kiev-bikarmeistarar
Evrópu — hafa komizt að sam-
komulagi um Ieikdaga i keppni,
sem hlotiö hefur nafnið „Super-
cup”.
Þessi keppni var ákveðin eftir
að UEFA-Knattspyrnusamband
Evrópu — hafði hafnað i þriðja
sinn hugmynd að leik á milli
Evrópu og Suður-Ameriku-
meistaranna.
Fyrri leikur Dinamo og Bayern
á að fara fram I Míinchen 9. sept-
ember n.k. en sá siðari I Kiev
þann 6. október.
Bikarinn á
fulla ferð!
Fyrsti leikurinn i 8 liða úrslitum
bikarkeppninnar i knattspyrnu
vcrður leikinn á Melavellinum I
kvöld. Eru það Vikingur og Kefla-
vik, sem þar mætast og hefst leik-
urinn kl. 20,00.
Annað kvöld verða þrir leikir i 8
liða úrslitunum. 1 Hafnarfirði mæt-
ast kl. 19,00 FH-Akranes og á Akur-
eyri Þór-KR kl. 19,30. Þriðji og siö-
asti leikurinn I þessari umferð
verður svo á Melavellinum, en þar
mætast Valur og Vestmannaeyjar.
Connors bœtir
enn við titlum
og dollurum!
Jimmy Connors frá Bandarikj-
unum, sem talinn er vera bezti
tennisleikari heims um þessar
mundir, bætti enn einum sigri við
safnið sitt er hann sigraði Ken
Roscwall frá AsUaliu i úrslita-
leiknum i Volvo-keppninni i New
Hampshire uin helgina.
Hann bætti cinnig við góðri fúlgu
af dollurum i safnið sitt — þó var
þar nóg fyrir, enda hann tekjuhæsti
tcnnislcikarinn iheiminum á þessu
ári.
Rosewall átti aldrei möguleika
gcgn honuni og tapáði 6:2 — 6:2 og
6:2....
Eitt orð fór
„forgörðum"!
Ummæli eins af forráðamönnum
frjálsiþróttasambandsins i viðtali
við Alþýöublaðið á dögunum, þar
sem aö hann sagöi, að islendingar
væru orðnir vanþroska, þegar
liann var spurður um ástæðuna
fyrir þvi að fólk væri hætt aö sækja
frjálsiþróttamót, hafa vakið mikla
undrun meðal iþróttaunnenda viða
um land.
Hafa margir undrazt þessi um-
mæli hans, sem hafa haft samband
við blaðið — jafnvel eftir að hann
hafði dregið i land i næsta blaði, og
sagzt hafa sagt, að islendingar
væru orðnir iþróttalega van-
þroska...??
Þykir okkur rétt að þessi ,,lag-
færing” komi fram, þar sem við
tóku þessi ummæli hans upp i sið-
ustu viku — en erum samt litlu nær
en margir aörir með þessari einu
útskýringu hans á áhugaleysi
islendinga fyrir frjálsum iþróttt-