Vísir - 20.08.1975, Qupperneq 1
VISIR
65. árg. — Miðvikudagur 20. ágúst 1975 — 187. tbl.
SÓLSKIN í
Borgarbúar sáu nokkuð annað
en þeir hafa átt að venjast sfðustu
daga, þegar þeir nudduðu stlr-
urnar úr augunum I morgun. Sól-
skin! Það þykir sannarlega
tiðindum sæta, ef sóiargeisli nær
að brjótast niður til okkar þetta
DAG!
sumarið, hvað þá ef maður sér
sólina.
Veðurfræðingar spá góðu veðri
i dag, norðaustan golu eða kalda
og léttskýjuðu. Hitinn verður 9 til
12 stig. Það má þvi búast við, að
það verði margt um manninn á
götunum i matar- og kaffihléum.
Þeir búa ekki við sömu bliðu á
Norður-og Austurlandi i dag. Þar
er skýjað og sums staðar þoku-
siíid. Annars staðar er léttskýjað
og norðaustan gola eða kaldi rikj-
andi.
Hitastigið á landinu klukkan
sex i morgun var 7-9 stig. Atta
stiga hiti var i Reykjavik
snemma i morgun. Spáð er kóln-
andi veðri. — EA
Kveikti
í sér á
Kleppi
Vistmaður á Kleppi
brenndist i gærkvöldi,
er hann brá eldi i föt
sin. Ekki er vitað,
hver ástæðan var fyr-
ir ikveikjunni, en
maðurinn var lagður
inn á Landspitalann
með brunasár.
— JB
Póstpokar
á flakki
Tveir póstpokar fundust á
flækingi niðri við höfn i gær-
kvöldi. I öðrum pokanum voru
bögglar en i hinum verðbréf.
Pokar þessir voru frá pósthús-
inu á Akranesi og áttu að fara
á pósthúsið í Reykjavík. Lög-
reglan kom pokunum til skila,
en ekki er fullkannað, hvernig
pokarnir komust á flæking.
— JB
Enn einn
íslenzkur
landhelgis-
brjótur
Gunnar Jónsson VE-500 var
staöinn að meintum ólögleg-
um togveiðum 1,8 sjómilur
innan fiskveiðimarkanna und-
an Ingólfshöfða. Það var þyrl-
an TF-GNA, sem stóð bátinn
að verki seint i gærkvöldi.
Mál bátsins verður tekið fyrir
i Eyjum i dag. Þetta er áttundi
íslenzki báturinn, sem staðinn
hefur verið að ólöglegum veið-
um á stuttum tima.
— JB
Hvað
skeður
ef allt
kvenfólkið
leggur
niður
vinnu
heilan dag?
— sjá bls. 7
Samdrátturinn í byggingum er feikilegur
FJÓRÐUNGI MINNA
STÍYPT í REYKJA VIK
Mikill samdráttur hef-
ur orðið i bygginga-
framkvæmdum i
Reykjavik. Samdráttur-
inn i steypu er 25 af
hundraði, að sögn
Viglundar Þorsteins-
sonar hjá Steypustöð
BM Vallá h.f.
„Þetta er eins hjá starfs-
bræðum minum,” sagði Viglund-
ur. „Miðað við fyrstu 7 mánuði er
samdrátturinn i ár 25%. borið
saman við 1974. Að visu var árið
1974 mjög gott ár.”
„Þetta ár hefur jafnazt upp úti
á landi, þar sem byggðastefnan
hefursináhrif,” sagði Viglundur.
Svavar Pálsson, forstjóri
Sementsverksmiðju rikisins,
staðfesti, að sementssala til
Reykjavikur og nágrennis hefði
minnkaö um nálægt fjórðung frá I
fyrra. Vegna Sigölduvirkjunar og
framkvæmda i Þorlákshöfn hefur
sementssalan aukizt, samanborið
við fyrstu 7 mánuði I fyrra, en
minnkað, ef þessar tvær fram-
kvæmdir eru teknar út úr
dæminu. Við þær eru notaðar
aðrar tegundir af sementi.
Mörg undanfarin ár hefur sala
Miðaö við þetta ætti salan I ár alls
að verða um 160 þúsund tonn, sem
er svipað og árið 1974, þegar
salan varð alls 158.597 tonn.
„Þetta gefur þó ekki rétta
mynd,” sagði Svavar Pálsson.
„Rétt er að draga frá það, sem
fer til Sigöldu og Þorlákshafnar.
— Sé það gert kemur út salan
fyrstu sjö mánaða árs verið
ámóta og sala fimm siðustu
mánaða ársins, það er að um
helmingur hefur selzt fyrstu 7
mánuðina. Fram til júliloka I ár
nam sala Sementsverk-
smiðjunnar 80.449 tonnum en
78.783 tonnum á sama tima fyrra.
68.729 tonn i ár, fyrstu 7
mánuðina, samanborið við 78.364
tonn i fyrra, sem er minnkun um
13%.”
Skiptingin milli Reykjavikur og
annarra hluta lands kemur fram
af tölum um skiptingu sölunnar
milli sekkjaðs og ósekkjaðs
sements. Ósekkjað, laust, fer
sement til Reykjavikur, Selfoss
og Ytri Njarðvikur en sekkjað
annað. Aðfrátöldu þvi, sem fertil
Sigöldu og Þorlákshafnar, hefur
salaná sekkjuðu minnkað um 2%,
en um 22% af lausu.Kemur talan
22%heim við það, sem Viglundur
Þorsteinsson segir um minnkun
steypu I Reykjavik. ’HH.
Tveir piltar hœtt
komnir
á sundunum
íkomnir
barst"
sem hjálpuðu þeim við að halda
sér á floti.
— Við spörkuðum af okkur
stigvélunum og héldum svo á
rólegu sundi áleiðis til lands,
segir Árni Sverrisson.
Piltarnir telja sig hafa verið
minnsta kosti 15 minútur i sjón-
um. Brátt settist kuldinn og
þreytan að piltunum. Þeir hróp-
uðu á hjálp og urðu fljótlega
varir við mannaferðir i fjör-
unni, sem var enn eina 500
metra frá þeim.
Haft var samband við Guð-
mund Hafsteinsson á Bergi,
sem hélt þegar til móts við pilt-
ana ásamt föður sinum á mótor-
bát, sem þeir eiga. Lögreglan
var lika komin á staðinn með
sinn gúmmibát skömmu siðar.
— Þeir fluttu okkur á slysa-
varðstofuna til athugunar, en
viö náöum okkur fljótlega og
fengum þvi að fara heim, sagði
Grétar.
— Ég efast nú um að ég fari I
öllu fleiri sjóferðir á þessum
kajak. Ætli ég reyni bara ekki
að selja hann, sagði Grétar að
lokum. — JB
Lögreglunni tókst aö ná upp báti þeirra félaga, Arna Sverrissonar (til vinstri) og Grétars Ólasonar, I
gærkvöldi. Hér eru piltarnir aö huga aö bátnum I morgun. Ljósm. BJ.Bj.
— Ég fékk krampa af
kulda og var aðfram-
kominn er hjálpin
barst, segir Árni
Sverrisson, 18 ára pilt-
ur af Seltjarnarnesi,
sem i gær var hætt
kominn er bát hans og
félaga hans hvolfdi á
sundunum.
— Við hefðum ekki getað
haldið þetta öllu lengur út, segir
Grétar Ólason, félagi hans og
eigandi kajaksins, sem þeir
voru á.
— Við lögðum af stað um
klukkan háfniu og sigldum út I
Akurey og ætluðum siðan að
halda aftur til lands. Ég sat
frammi i og i einu áratakinu
brotnaði árin. Þá féll ég út i hlið
kajaksins, sem við það hvolfdi,
segir Grétar Ólason.
Þeir félagar féllu i sjóinn.
Þeir voru i björgunarbeltum,
Undirmenn í verkfalli 28. ágúst
„Einar buxur ráða ekki úrslitunum"
„Breytingin á tolla-
reglugerðinni var ekki
svo mikil, að það ráði úr-
slitum við atkvæða-
greiðslu. Þetta er svo lít-
ið. Áður gátu menn
kannski keypt sér einar
buxur og nú tvennar."
Þetta sagði Sigfús Bjarnason,
Sjómannafélagi Reykjavikur, i
morgun. Undirmenn á kaup-
skipum hafa boðað verkfall.
„Ætli það verði ekki frá 28.
ágúst,” sagði Sigfús. „Við reyn-
um að gefa góðan tima.”
„Þetta stendur allt fast,”
sagði hann um samningana, „en
verði einhver sinnaskipti hjá
viðsemjendum okkar, verður
unnt að semja. Timinn er næg-
ur, 8 dagar. Við erum ekkert
hrifnir af verkfalli á þessum
tima, en þetta er framhaldið, ef
ekkert gengur.” Það hefur ekk-
ert fengizt i viðbót, siðan undir-
menn felldu samkomulag
samúinganefndanna með einu
atkvæði. —HH