Vísir - 02.09.1975, Blaðsíða 7
Vlsir. Þriðjudagur 2. september 1975.
7
cTVIenningannál
Keisaratíminn er þeim
hugljúft yrkisefni
GAMLA BtÓ-k-K-K
„Dagur reiðinnar”
(One Kussian Summer)
Leikstjóri: Antonio Calenda
Aðalleikendur: Oliver Heed.
John McEnery, Carol André og
Kaymond I.ovelock.
Vestrænir kvikmyndahöf-
undar leita helzt ekki til Rúss-
lands nútimans nema ef vera
kynni við gerð einstaka njósna-
mynda.
Rússland keisaratimans hef-
ur aftur á móti verið kvik-
myndagerðarmönnunum hug-
ljúft yrkisefni, einkum sem bak-
grunnur ástarsagna og harm-
leikja. Sérstaklega varð þetta á-
berandi eftir sigurför kvik-
myndarinnar „Dr. Zivago”.
Tvær myndir af þessu tagi eru
nú á tjöldum kvikmyndahús-
anna i Reykjavik ,,One Russian
Summer” og „Nikulás og Alex-
andra”.
Báðar eru myndir þessar
stórmyndir, fjöldi hópsena,
glæsilegir búningar, bardagar,
hestar og landslag.
Sem i öðrum rússneskum
harmleikjum, gerist myndin
,,0ne Russian Summer” á mikl-
um um'brotatimum. Reiði þjón-
ustuliðs og leiguliða vex stöðugt
og veldi harðstjóranna er valt.
Enski leikarinn Oliver Reed
fer með hlutverk landeigandans
Palizyn. Hann ræður i þjónustu
sina krypplinginn Vadim, sem
reynizt þrá það eitt að ganga að
Palizyn dauðum. Báðar sögu-
persónurnar eru ósparar á
vafasöm meðul til að ná vilja
slnum fram.
Mitt inn I baráttu þessara
tveggja manna ratar svo ungt
og saklaust elskupar, sem
verður fórnarlamb átakanna.
Oliver Reed á góðan ieik I
þessari stórmynd. t hlutverki
illmenna er hann gjarnan I ess-
inu sinu. Auk leiks hans er
styrkur myndarinnar vel
tryggður i vel útfærðri mynda-
töku i geysifallegum héruðum i
Búlgáríu, þar sem myndatakan
fór fram. Sérkennileg og hrika-
leg náttúra landsins mótar bak-
grunn myndarinnar.
Búningar og annar ytri bún-
aður er einnig til þess fallinn að
gleðja augu sýningargesta.
KVIKMYNDIR
Umsjón: Jón
Björgvinsson
Myndin „One Russian
Summer” er með vandaðri
myndum, sem Gamla bió hefur
tekið til sýninga upp á siðkastið.
Sakleysingjar veröa fórnarlömb I baráttu mannanna tveggja. Pali-
zyn (Oliver Reed) krýpur yfir Yuri, látnum syni sinum (Kaymond
Loveriock).
Ekki hin dœmigerða lœknasaga
TÓNABÍÓ-K-K
„Sjúkrahúslif"
(The Hospital)
Leikstjóri: Arthur Hiiler
Aöalhlutverk: George C. Scott
og Dianna Rigg.
Ilandrit: Paddy Chayefsky
Sem betur fer tóku höfundar
„The Hospital” sér myndina
„M.A.S.H.” til meiri fyrir-
myndar en sigilda læknaróman-
tik i ætt við Kildare og hans
fylgifiska.
Að halda þvi fram, að mynd
þeirra slái „M.A.S.H.” út i
fyndninni er aftur á móti of-
rausn hjá framleiðendunum. I
þeirri mynd var satiran nefni-
lega kristaltær, en höfundar
„The Hospital” tvistiga við að
ákveða, hvort mynd þeirra eigi
að vera fyndin, spennandi,
hvort tveggja i senn eða þá
ádeila á taugaveiklað banda-
riskt samfélag.
Við eigum auðvelt með að
skilja sjúkrahúsbáknið, þegar
hægt er að taka lækni i misgrip-
um fyrir sjúkling og sjúkling i
misgripum fyrir lækni, rugla
sjúklingum saman og jafnvel
skera þá upp við röngum sjúk-
dómi eða gleyma þeim úti i
horni á slysavarðstofunni, þar
til þeir deyja.
Svo að orð sjálfs yfirlæknisins
séu notuð:
,, .... það kemur maður
hingað inn á sjúkrahúsið við
fullkomna heilsu og á einni viku
erum við búin að rifa úr honum
annað nýrað, skemma hitt,
svipta hann meðvitundinni og
komast fjári nærri þvi að drepa
hann.....”
Innan um þennan ófögnuð
hrærist yfirlæknirinn Dr. Her-
bertBoek. Hann er ekki skapað-
ur samkvæmt nákvæmum for-
múlum læknabókahöfundanna.
Þetta e’r ekki hinn ungi, harð-
duglegi og myndarlegi læknir,
heldur drykkfelldur skapofsa-
maður, kominn af bezta aldri,
sem sér enga aðra lausn en að
svipta sig lifi. Hann er skilinn
við frúna. Börnin tvö eru mis-
lukkuð. hann á ekkert eftir.
Þrátt fyrir þessi vandamál
öll, er myndin „The Hospital”
fremur tilþrifasnauð bæði að
efni og úrvinnslu. Leikur i auka-
hlutverkum er jafnframt ákaf-
lega gagnsær á stundum.
Ljósu punktar myndarinnar
eru einkum spunnir i kringum
aðalleikarann George C. Scott,
Óskarsverðlaunaleikarann,
sem neitaði að veita verðlaun-
unr sinum móttöku.
Þessi alkunni leikari hefur
seiðmögnuð tök á að klóíesta
áhorfendur sina. Slikt sannaði
hann áþreifanlegast, er hann
túlkaði hershöfðingjann
„Patton” I samnefndri Óskars-
verðlaunamynd.
Hér er Scott ákaflega sann-
færandi i hlutverki hins lifs-
þreytta yfirlæknis. Það er leitt,
að höfundar myndarinnar
skyldu ekki hafa notfært sér þá
staðreynd beturmeð þvi að taka
hin raunverulegu vandamál
þessa þjakaða manns betur
fyrir.
George C. Scott hefur verið kall-
aður „Great Scott” af þeim,
sem kunna að meta tilþrifamik-
inn leik. Hér er Scott I hlutverki
Dr. Ilerberts Bock I myndinni
„The Hospital”.
Ofsaspennandi?
— orlof órsins
HÁSKÓLABÍÓ +
„Hver?”
(Who?)
Leikstjóri: Jack Gold
Aðalleikendur: Elliott Gould,
Trevor Howard, Joseph Bova.
Ef „ofsaspennandi” er i þvi
fólgið að lita á klukku sina á
kortersfresti og skipta um stell-
ingar i bióstólnum á fimm
minútna fresti til að sofna ekki,
þá er rétt með farið i auglýsing-
unni, að myndin „Who?” sé
ofsaspennandi
Ég legg samt aðra merkingu i
orðið og að minu mati er mynd-
in „Who?” bæði langdregin og
leiðinleg.
Kvikmyndatakan er með þvi
flatneskjulegasta, sem sést á
stóra skerminum og mikill hluti
filmunnar annað hvort yfir-
lýstur eða undirlýstur. Það er
eins og höfundarnir hafi farið af
stað með góðu hugarfari en
siðan gefizt upp á öllu saman, og
reynt að koma myndinni frá á
sem skemmstum tima.
Engum tima var eytt I að taka
gjörsamlega misheppnuð atriði
upp á nýtt. Það er skemmtilega
vitlaust að sjá til dæmis gamlan
Opelbil til dæmis beyglaðan og
óbeyglaðan i örstuttu atriði.
Greinilegt er, að eitthvað af
klúðurslegum eltingaleiknum,
sení á eftir fer, hefur verið kvik-
myndað á undan.
Efnið er ákaflega visinda-
skáldsögulegt, en góð tæknileg
vinnubrögð hafa orðið ótrúlegri
söguþráð en þessum til bjargar.
Hér er bara engin slik vinnu-
brögð að finna.
Myndin „Who?” segir frá hin-
um fræga visindamanni Dr.
Lúkas Martino, sem slasazt hef-
ur i bilslysi á ráðstefnuferðalagi
i Austur-Þýzkalandi. Þegar
hann kemur aftur yfir landa-
mærin er hann meira og minna
endursmiðaður i málm. Læknar
fyrir austan töldu, að liffæri
hans væru það sködduð, að lifi
hans yrði ekki bjargað öðru visi
en með endursmiði.
Rogers (Elliott Gould) er
starfsmaður alrikislögregiunn-
ar bandarisku, sem sendur er til
að kanna málmmanninn og
ganga úr skugga um, hvort
hann sé ekki eitt af brögðum
hinna illræmdu austantjalds-
manna.
Yfirleitt hefur það verið leyni-
þjónustan en ekki alrikislög-
reglan sem fengið hefur slik
verkefni i njósnamyndum, en
höfundar þessarar myndar
kærðu sig kollótta um það.
Nú hefjast ákaflega lang-
dregnar og leiðinlegar yfir-
heyrslur, sem standa allt til
loka myndarinnar án þess að
nokkur niðurstaða fáist.
Leikurinn er i samræmi við
aðra þætti myndarinnar. Helzt
eru það þó aðalleikararnir Elli-
ott Gould (M.A.S.H., The Long
Goodbye, The Touch) og Trevor
Howard (Ryan’s Daughter, The
Offence) sem blakta, en fá þó
engu bjargað. Mynd þessi er og
verður mislukkuð, hvernig svo
sem leikur þeirra heppnast.
KVIKMYNDA-
HÚSIN í DAG:
Trevor Howard og Joseph Bova, sem leikur járnmanninn, hlæja að
járnhöfðinu, I hléi frá myndatökunni.
-K-K-K-K Laugarásbió:
-K-K-fc Gamla bló:
-K-K Tónabló:
-K Háskólabió:
-K-K-K Hafnarfjarðarbió:
K-k-K Bæjarbió:
Dagur Sjakalans.
Dagur reiðinnar
Sjúkrahúsllf
Hver?
Moto-Cross
Morðgátan