Tíminn - 14.10.1966, Page 2

Tíminn - 14.10.1966, Page 2
FÖSTUDAGUR 14. októher 1906 a TÍMINN NÝ UÓÐABÓK CFTIR HEIÐREK Samþykkt um afgreiðslu tíma verzlana afnumin? S,I-Reykjavík, fimmtudag. Á laugardaginn opnar Iðn rðarbankinn útibú að Háa- eitisbraut 58—60, en í því húsi eru margs konar verzl- anir og þjónustufyrirtæki til húsa. Ragnar Kjartansson eirkerasmiður, hefur unn- ið eftirtektarverðar lágmynd ir-úr hraunsteypu er skreyta tvo veggi útibúsins, og sýna myndirnar ýmsa þætti iðn- aðarins. Myndin var tekin í dag, þegar smiðir og raf- virkjar voru að leggja síð- ustu hönd á húsnæðið. Mynd ir Ragnars eru felldar inn í harðviðarinnréttingu, og á veggnum sem hér sés-t, 3 eru myndir af járnsmið, vél 1 virkja, trésmið, múrara, leir I kerasmið og netagerð- I armanni. Ljósm .Tím. GE. I Gáfu sjón- prófunartæki Síðastliðinn fimmtudag afhenti form. Lionsklúbbs Selfoss, Óskar ■Tónsson, skólastjórum barna- og gagnfræðaskólanna á Selfossi am erísk sjónprófunartæki sem gjöí 'rá klúbbnum til notkunar í skól unum. Félagar klúbbsins á Selfossi söfn uðu fé til kaupa á sjónprófunar lækjunum með blómasölu, er var mjög vel tekið af almenningi. Tæk n kostuðu rúml. kr. 21.000,00. Skólastjóri barnaskólans, Leif- ir Eyjólfsson, þakkaði gjöfina fyr ír hönd skólanna. j Báðir bátarnir bilaðir 11 SJ-Patreksfirði, fimmtudag. S Hér er ljómandi gott ýeður, i logn og blíðða þessa stundina, j en framan af degi fennti í ( fjöll, og var slydda í morgun. j Tveir bátar voru byrjaðir á f; línu, en biluðu báðir fyrir ! meira en hálfum mánuði, og í; róa engir héðan núna. Afli L hjá þessum tveim bátum var ij lélegur, en nú berast þær frétt •; til okkar frá Tálknafirði, að afli á línu þaðan sé að glæð- ast og er vonandi að bátarnir ■; okkar komist á miðin sem t fyrst. Sláturgerð allt árið ; HB-Kópaskeri, fimmtudag. • Sauðfjárslátrun lýkur hér á morgun að mestu, og er búið ; að slátra hátt í 23 þúsund dilk um. Áætlað var að slátra bér (: 25 þúsund dilkum, en nokkur j - ------- - - - Á fundi borgarstjórnar, 6. októ- ber kom fram tillaga um afnám samþykktar um afgreiðslutíma verzlana í Reykjavík o.fl. og var tillögunni visað til athugunar borgarráðs og annarrar umræðu. Hefur borgarráð nú ákveðið að leita umsagnar lögreglustjóra, vanhöld hafa verið á fél, og þarf því líklega að opna slátur húsið aftur. Vanhöldin eru að- allega hjá bændum í Axarfirði, og er það ekkert nema eðlilegt þar sem féð gengur í skógin- um og erfitt um smalamennsku kemur það líka oftast sjálf- krafa þaðan, þegar liðið er á haustið. Meðalvigt á dilkum er hér um einu og hálfu kílói Iægri en í fyrra, en þá var hún 15,7 kíló. Hér er allur innan- matur, bióð, og vambir, hirt í sláturtíðinni. Er svo búið til slátur og selt til Reykjavíkur ósoðið. Tveir menn hafa fasta atvinnu við sláturgerð allan ársins hring, en auk þeirra er bætt við unglingum og kven- fólki eftir því sem þörf kref- Margt er hér um manninn í sláturtíðinni eins og endra- nær, og glatt á hjalla. borgarlæknis, Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, Kaupmanna samtakanna, KRONs og Neyt- endasamtakanna, áður en afstaða verði tekin til málsins. Það var Óskar Hallgrímsson (A) sem bar fram þessa tillögu á borg arstj órnarf undinum. 150 þús. króna háseta- hlutur á humarbátum AA-Höfn, Hornafirði. Sauðfjárslátrun lýkur hér í næstu viku, og eru dilkar hér með betra móti. Minna var slátrað hér en í fyrra, og er það vegna þess, að menn eru almennt betur heyjaðir en í fyrra, en þá fækkuðu bændur fénaði sínum nokkuð. Stórgripa slátrun var hér nokkur áður en sauðfjárslátrun hófst, og er ekki hægt að segja, að miklu hafi verið slátrað af stórgrip- um. Humarbátarnir fimm eru hættir veiðum fyrir skömmu, og var vertíðin góð hjá þeim. Hásetahlutur hjá hæstu bát- unum er í kringum 150 þúsund og má það teljast gott. Ekki munu bátarnir fara á línuveið- ar, þar sem það er ekki talið borga sig. IGÞ-Reykjavík, fimmtudag. Tímanum hefur borizt ný ljóðabók eftir Heiðrek Guðmunds- son, skáld frá Sandi. Þetta er fjórða ljóðabók Heiðreks en sú fyrsta, Arfur öreiganna, kom út árið 1947. Kvæðum í þessari nýju ljóðabók, sem ber heitið Mann- heimar, er skipt í þrjá kafla. Ljóðin í bók Heiðreks, eru á milli fjörutíu og fimmtíu að tölu. I þeim fjallar skáldið um ýmis mannleg vandamál. Bókin hefst á kvæði, sem nefnist Tíu ára, þar sem segir frá fyrstu dvöl fjarri föðurgarði, en endar á kvæði, sem nefnist Börn jarðar. Bókin er 95 blaðsíður að stærð, snyrtilega útgefin af bókaútgáf- unni Sindur h.f. á Akureyri. Prent un annaðist Prentsmiðja Björns Jónssonar, h.f. Akureyri. SAMVINNAN KEMUR ÚT Samvinnan, 9. hefti þessa ár- gangs, er komin út. Af efni blaðs- ins má nefna frásögn af ráðstefnu ritstjóra, og blaðamanna Norrænu samvinnublaðanna, greinina Að velja og hafna eftir Pál H. Jóns- son, grein um Kaupfélag Skaft- fellinga 60 ára, kvæði eftir Robert Frost, grein sem nefnist Reglur vefaranna um stofnun Kaupfé- lagsins í Rochdale og framhalds- söguna, Svörtu hestarnir, eftir Vesaas. Auk þess eru í blaðinu ýmsir fastir þættir og annað efni, en forsíðumyndin er frá Vík j Mýr- dal. Skagfirðingar. Haustmót Framsóknarmanna i Skagafirði verður haldið 29. októ- ber að Bifröst, Sauðárkróki. Nán ar auglýst síðar. Indíánasýningin til ísafjarðar Sýningu þeirri á Indiánamun- um, sem staðið hefur yfir í Bóka- safni Upplýsingaþjónustunnar að undanförnu, lýkur 19. þessa mán- aðar. Héðan fer sýningin til ísa- fjarðar, þar sem hún verður höfð í Gagnfræðaskóla ísafjarðar. Margt manna hefur séð sýninguna hér í Reykjavík, m.a. hafa margir barnaskólabekkir komið með kenn urum sínum. Aðrar ljóðabækur eftir Heiðrek eru Af heiðarbrún, (1950), og Vordraumar og vetrarkvíði (1958). 'ztdc'hcinítiif'iir ftlrir komtr mn s/iíffnnlhugun <7 hrjnstum Á fræðslufundum Krabba- meinsfélagsins eru sýndar fræðslu kvikmyndir og úthlutað þeim fræðsluritum, sem hér sjást. Skól ar fá sent ritið „Tóbak og áhrif þess“ eftir Niels Dungal, prófess or, ókeypis eftir beiðni. „Frétta- biéf um heilbrigðismál" tímarit Krabbameinsfélagsins, kemur út reglulega fjórum sinnum á ári, og kostar árgangurinn kr. 40.00. Mæðrabúðin FB—Reykjavík, fimmtudag. f dag var opnuð ný verzl un í Læknahúsinu, Mæðra- búðin. Eigendur hennar eru Hulda Jensdóttir og Ásta Jónsdóttir. í Mæðrabúðinni eiga að fást alls kyns vörar fyrir kornböm og mæður þeirra. Einnig fást þarna vörur ^ fyrir barnshafandi konur. Ásta Jónsdóttir sagði í viðtali við blaðið í dag, að m.a. sem í búðinni fæst, væru Veleda-vörur, sem verzlunin hefur einkaumboð fyrir hér á landi, og eru þær þýzkar. í þessum vörum fást t.d. olíur, púður og sápur fyrir kornbörn, og einnig margs konar snyrtivörur fyr ir mæðumar. Allar eru þess ar vörur framleiddar úr blómum og jurtum. Á mynd inni hér fyrir neðan eru Ásta (t.h.) og Herta Haag, ljósmóðir, sem afgreiðir í búðinni og veitir mæðrum upplýsingar eftir þörfum. | (Tímamynd GE). KnattspymuBýsSng í sjónvarp EJ—Reykjavík, fimmtudag. í sjónvarpinu annað kvöld, kl. 22.40, lýsir Sigurður Sigurðsson síðari hálfleik í unglingalandsleik í knattspyrnu milli Noregs og Dan merkur, sem fram fór á laugardag inn í Kaupmannahöfn. Danmörli sigraði í.Ieik þessum 4:2 en staf an í hálfleik var 2:0 fyrir Danina. Til vinstri er Óskar Jónsson, fonn. Lionsklúbbs Selfoss, í miðið Jón I. Sigurmundsson, ritari, og til hægri Leifur Eyjólfsson, er tekur á móti gjafabréfinu úr hendi Óska rs Jónssonar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.