Tíminn - 14.10.1966, Blaðsíða 13

Tíminn - 14.10.1966, Blaðsíða 13
Eins og saSt var frá á íþróttasíðunni í gær, sigraði Everton danska liðið AaB í síðari leik liðanna 2:1. Fyrri Ieiknum lauk með jafn tefli, 0:0 og heldur því Everton áfram í keppninni. Verður ekki annað sagt en það sé góð frammistaða hinna dönsku áhuga- manna að tapa með svo litlum mun gegn ensku bikarmeisturunum. — Myndin hér að ofan er frá síðari leik liðanna og sést Bjarne Liiballe skora eina mark AaB. (Mynd: Polfoto). Itölsku meistararnir kom- ust áfram á sjálfsmarki! - og ensku meistararnir, Liverpool, töpuðu fyrir óþekktu rúmensku liði Hsím — fimmtudag. ítalska meistaraliðið Inter Milan — sem tvívegis hefur sigrað í Evrópubikarkeppninni, lék á mið vikudaginn síðari leikinn við Tor pedo í Moskvu, og áhorfendur að leiknum voru yfir 100 þúsund. Þetta var skemmtilegur leikur sem hélt áhorfendum í stöðuSri spennu. Þrátt fyrir þunga sókn so- vézku leikmannanna tókst hinni frægu Inter-vörn að halda marki sínu lireinu. Leiknum lauk með jafntefli 0-0, og það nægði Inter, sem sigraði í fyrri leiknum með 1-0, — og eina markið í þessari 180 mínútna viðureign, var sjálfs- mark sovézka landsliðsmannsins, Voronin. Liverpool lék sama dag síðari leik sinn við rúmensku meist- arana Petroul og var leikurinn háður í Ploesti. Rúmenarnir sigr- uðu með 3-1 og eru liðin því jöfn eftir tvo leiki, þar sem Liverpool vann heima með 2-0. Þriðji leik- urinn verður í Amsterdam n.k. miðvikudag. Þetta var mjög harð- ur leikur og Liverpool lék varnar leik frá byrjun, en átti þó snögg- ar sóknarlotur. Þannig átti St. John hörkúskot í þverslá og Calla- ghan fór illa með opið tækifæri í fyrri hálfleik. Rúmenar skoruðu þá eitt mark, en Hunt — einn heimsmeistaranna ensku — jafn- aði fyrir Liverpool strax í byrjun síðari hálfleiks. En það dugði skammt — og það þótt einum rú- menska leikmanninum væri vísað af leikvelli. Rúmenar skoruðu tvö mörk, annað eftir hornspyrnu, og hitt úr aukaspyrnu, eftir að Lawr- ence markvörður hafði gripið knöttinn utan vítateigs. Árangur þessa óþekkta, rúmenska liðs, hef ur komið mjög á óvart — en sýn- ir vel, hve allar austantjaldsþjóð irnar eru orðnar sterkar á knatt spyrnusviðinu. Fyrri leikurinn milli Penarol Urugay, — suðuramerísku meist- aranna og Real Madrid, Evrópu meistaranna um heimsmeist- aratitil félagaliða, var háður i Montevideo á miðvikudag. Urug- uay menn sigruðu með 2-0 og hafa því sæmilegt forskot fyrir síðari leikinn, sem háður verður í Madrid 26. okt. Þess má geta, að Real Madrid lék með 10 mönnum síðustu 20 mínúturnar. Og þá eru hér að lokum knatt- Framhald á bls. 15 _______________________13 Kvaddi hlaupa- brautina meö heimsmeti! Michael Jazy, hinn heimsfrægi, franski hlaupari, lauk keppnisferli sínum á miðvikudag, með því að hlaupa 2000 metra á móti í París — og árangurinn var glæsilegur, nýtt heimsmet. Jazy hljóp á 4:56,2 sek. og bætti met Þjóðverjans Nor i poth um 6/10. Jazy hefur verið einn bezti hlaupari heims undan farin ár, og hefur sett fjölmörg heimsmet, þar á meðal í mílu- hlaupi. Fyrsta heimsmetið setti hann fyrir fimm árum í 2000 metra hlaupi — og tíminn þá var fimm sek. lakari, en heimsmetið, sem hann setti á miðvikudaginn. Þó að Jazy hafi sett mörg heims met, hefur hann ekki verið sigur sæll á stórmótum, varð þó Evrópu meistari í 5000 m í Budapest í sumar. Hann varð annar í 1500 m á Olympíuleikunum í Róm á eftir hinum frábæra ástralska hlaupara Herb Elliott. í Tokyo 1964 tók hann ekki þátt í 1500 m hlaupinu, þar sem hann taldi sig hafa litla sigurmöguleika gegn Peter Snell, en einbeitti sér þess í stað að 5000 m hlaupinu. En hví lík vonbrigði, á síðustu metrunum í æðisgengnum lokaspretti kom- ust þrír hlauparar fram úr Jazy og draumurinn um olympískt gull varð að engu á nokkrum sekúnd brotum. Nær óþekktur, banda- rískur hlaupari, Robert Schul, sigr aði — sekúndu á undan Jazy. — hsím. FH-fagnaður Laugardaginn 15. október, á afmælisdegi FH, er ákveðið að halda fagnað í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. Hófið byrjar með kaffiboði kl. 8,30 og verða þar yngri og eldri félagar og velunnarar heiðraðir. Einnig, verður söngur og skemmtiþætt ir og starfsemi félagsins kynnt. Að síðustu verður stiginn dans til kl. 2. Allir félagar og velunnarar eru velkomnir og er sérstak- lega óskað, að eldri félagar komi. Aðgöngumiðar fást hjá Birgi Björnssyni og hjá Ingvari Vikt orssyni. Þátttaka ísl. knattspyrnumanna í OL-ieikunum Á meðan frændur okkar á hinum Norðurlöndunum, sér staklega Danir, deila um það hvort rétt sé að taka þátt í knattspyrnukeppni Olympíu leikanna, og hafa raunar ákveð ið að gera það ekki hcfur KSÍ sent þátttökutilkynningu fyrir íslenzka knattspyrnumenn. Ekki skal dregið í efa, að sú þátttaka á fyllsta rétt á sér, því eins og Björgvin Schram formaður KSÍ saSði í viðtali við Tímann, „eru Olympíu- leikarnir einhver heppileg- asta keppni, sem við getum tekið þátt í, þar sem þeir eru vettvangur áhugamanna.“ í viðtalinu gat Björgvin einn ig um það, að KSÍ myndi reyna að vanda undirbúning fyrir keppnina eins vel. og kostur væri á. Sú yfirlýsing formanns- ins er athyglisverð, því að á undanförnum árum hefur það ekki skeð í eitt einasta skipti að íslenzkt landslið hafi farið sæmilega undirbúið, hvað þá vel út í landsleik. í mesta lagi hafa verið haldnar ein til tvær sýndaræfingar fyrir leikina og guð og gæfan látin ráða um framhaldið. Helzta forsendan fyrir því, að ekki hafa verið haldnar reglulegar landsliðs- æfingar, er sú, að liðsmennirn ir séu of dreifðir, og vissu- lega er mikið til í því. í þessu sambandi má benda á, hve handknattleiksmenn eiga hægara um vik með landsliðsæf ingar, þar sem leikmennirnir eru eingöngu úr Reykjavík og Hafnarfirði, en i knattspyrn- unni geta þeir verið frá Akur eyri Akranesi, Keflavík og Reykjavík. En þarf dreifbýlið að vera alger hindrun? Nei, alls ekki. Ef nokkur vilji væri fyrir hendi væri hægt að halda landsliðsæf- ingar knattspyrnumanna reglu lega í allan vetur — einu sinni til tvisvar í viku — með þátt- töku knattspyrnumanna frá Reykjavík, Keflavík og Akra- nesi, en óhjákvæmilega yrði PUNKTAR að sleppa Akureyringum í þessuim útreikningi. Aftur á móti gætu þeir knattspyrnu- menn Akureyri, sem líkleg- astir þættu til að skipa lands- lið, fengið „prógram“ frá landsliðsþjálfaranum, sem þeir gætu æft sig eftir fyrir norð- an. Knattspyrnumönnum í Keflavík og á Akranesi væri vorkunnarlaust að skreppa til Reykjavíkur til æfinga. í þessu sambandi má til gamans skjóta því inn í, að einn af liðsmönnum Akraness bú- settur í Reykjavík, mætti á nær öllum æfingum Akraness-liðs- ins í sumar. Lagði hann það á sig að aka fyrir Hvalfjörðinn þrisvar í viku. Því gætu ekki fleiri gert það? ' Og þá er ég kominn að þungamiðju málsins. Það er þýðingarlaust að halda áfram á þeirri braut, sem farin hef- ur verið síðustu ár, þ.e.a.s. að senda æfingarlaust landslið í keppni. Með sama áframhaldi verður hugtakið „landslið" okk ar, aðeins til leiðinda og ama, þvi að hvað er gaman að sjá 11 cinstaklinga, sem vantar alia samæfingu, gera vonlitlar til- raunir til að ná saman á móti æfðum erlendum knattspyrnu mönnum? Sagan endurtekur sig ár eftir ár með nokkrum und antekningum. Og nú erum við að fara út í Olympíuleika. Ef ekki verður gerð nein almenni leg tilraun til að undirbúa landslið okkar fyrir keppnina eigum við ekkert erindi í hana, og getum þess vegna setzt í sama bát og Danir, bó að for- senda þeirra fyrir því að taka ekki þátt í keppninni sé af öðrum toSa spunnin. Samæfingar landsliðsins á vetri komanda gætu orðið mjög gagnlegar. Kappkosta yrði að koma landsliðsmönnum í góða úthaldsþjálfun, æfa knatt- Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.