Tíminn - 22.10.1966, Page 11
LAUGARDAGUR 22. október 1966
TfMINN
Kirkjan
Kfrkja Ónáðasafnaðarins:
Ferminga rmessa kl. 2. Safnaftar-
prestur.
Dómkirkjan:
Messa kl. 11, séra Óskar J. Þorfáks
eon.
Langholtsprestakall:
Barnasamikoma kl. 10 séra Árelius
Nielsson guðsþjónusta kl. 11 séra
Sigurður Haukur Guðjónsson. Aih.
breytingar á messutímanum.
Fríkirkjan í Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 10, 30 guðsþjon
nsta kl. 2 séra Bragi Beneniktsson.
Laugarneskirkja:
Hessa kL 2 Barnaguðsþjónusía
kL 10. f. h. séra Garðar Svavarsson.
Hallgrímskirkja:
, Barnasaoikoma kl. 10 systir Unnar
Halldórsdóttir. Fermingarmessa ki.
' 11 séra Sigurjón Þ. Árnason. Séra
’Lárus Halldórsson þjónar fyrir alt
sri.
Neskirkja:
Fenming kL 11 séra Jón Thoraren
■ aen. Fermingarguðsþjónusta kl. 2
, séra Frank M. Halldórsson.
Búsatðaprestakall.
Bamaguðsþjónusta í Réttarholts-
skóla kl. 10,30 Ferming i Kópavogs
kirkju kl. 2, séra Ólafur Skúiason.
G rensásprestakall:
Breiðagerðissikóli, Bamasamkoma
kl. 10.30 Messa kl. 2 séra Felix
Ólafsson.
Háteigskirkja:
Messa kl. 2 séra Árngrimur Jónsson.
Kópavogskirkja:
Fermingarmessa kl. 10.30 f. h.
séra Gunnar Ámason.
Ásprestakall:
Bamaguðsþjónusta kl. 11 i Laugar
ásbíói. Messa kl. 1JÍ0 í Hrafnistu,
séra Grimur Grímsson.
Hafnarfjarðarkirkja:
Baraaguðsþjónusta kl. 10,30 séra
Garðar Þorsteinsson.
Mosfellsprestakall:
Hessa að Brautariiolti kl. 2, séra
Bjami Sigurðsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
fyrsta vetrardag kl. 6,30 e. h.
Sigurður Vigfússon predikar. Sunnu
dagsguðsþjónusta kL 10. f. h. séra
Magnús Guðmundsson frá Ólafsvik
roessar. Hebnilispresturinn.
í
Fclagslíf
Kvennadeild Skagfirðingafélagsins
i Reykjavík minnir á fyrsta fund
vetrarins f Lindarbæ, uppi, miðviku
daginn 26. akt. kl. 8.30 stundvisloga.
Fjðlmennið, nýjar félagskonur vel-
komnar. Stjómin.
Kvenfélag Óháðasafnaðarins:
Skemmtifundur á mánudagskvöldið
kl. 8,30 i Kiricjubæ. Litskriggamynd
ir söngur og sameiginleg kaffi-
drykkja. Fjölmennið og takið með
ykkur gesti.
Langholtssöfnuður: Fyrsta kynn-
ingar og spilakvöid vetrarins verður
I safnaðarheimilinu sunnudagskvöld
23. okt. kl. 20.30 Kvikmynd fyrir
börnin og fyrir þá sem ekki splla.
kaffiveitingar. Verið velkomin. Safn
aðarfélögin.
Hjónaband
f dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Garðari Þorsteinssyni
ungfrú Ósk Ásgeirsdótfir, Ausfur-
gerði 7, Kópav. og Marinó Pétur
Eggerfsson, Laxárdal, Pistilfirði, N.
Þing. Heimili þeirra er að Klepps
vegl 134.
f dag verða gefin saman i hjóna
band af sén Bjarna Sigurðssynj i
Lágafellskirkju, ungfrú Steinunn
Guðmundsdóttir, Miklubraut 61 og
Sveinbjörn Jóhannesson, Heíðarbæ
Þingvatlasvelt.
I aag verða gefln saman í hjóna
band á Pat’xksfirði ungfrú Heiga
Guðjónsdóttir flugfreyja Öldugötu
42 og Hilmar Jónsson deildarstjóri
Réttarholtsveg 61, Rvik. Helmili
þeirra verður að Sólvallagötu 4C,
Keflavik.
frú Marling gæti komið, sagði
hann stuttur í spuna. — En hún
er kannski á leið til Ameríku?
— Við getum ekki látið hana
fara strax, hrópaði Fleur upp.
Eruð þér ekki nýkomnar, ungfrú
Marling. Þér verðið að vera gest-
ur okkar. Daniel og ég mundum
hafa ánægju af ef þér vilduð búa
hjá okkur eftir að við erum gift.
David horfði hissa á hana. Hann
horfði hissa á hana. Hann var
fegin að hún var elskuleg við
Susan, en gat hún ekki skilið, að
eins og allt var í pottinn búið
var Susan síðasta manneskjan,
sem hann vildi hafa í návist sinni?
Skildi hún ekki að honum var
meinilla við að skrökva að Susan?
Hann gat ekki skilið hún væri
svo ónærgætin og hugsunarlaus að
hún skildi þetta ekki og hvers
vegna vildi hún endilega að Susan
kæmi í brúðkaup þeirra — og
ekki nóg með það, heldur byggi
hjá þeim eftir giftinguna.
Susan vissi heldur ekki hverju
hún átti að svara. Hún var ringluð
og hrædd því að hún fann að
stúlkunni geðjaðist í fyrsta lagi
ekki að sér og í öðm lagi virtist
hún óttast sig.
Fleur skildi heldur ekki, hvers
vegna hún lét svona. Hún vissi þó,
að hún var dauðhrædd við þessa
stúlku. Hún gætt tekið David frá
sér.
Nú voru fleiri gestir komnir og
David var feginn að sleppa til að
heilsa þeim. Jordan gekk um með
hressingu í glösum og smurt brauð
Samkvæmið virtist á yfirborðinu
fara hið bezta fram, en David
leið illa. Hann horfði stöðugt á
Susan, sem stóð við arininn og
sagði fátt.
Skömmu síðar sá hann, að Fleur
var farinn að tala við hana. Skyn-
semi Fleur sagði henni að vísu
að hún ætti ekki að sækjast eftir
kynningu við amerisku stúlkuna,
en einhver ónáttúra í henni neyddi
hana til að fara til Susan.
— Skemmtið þér yður, ungfrú
Marling?
— Það var fallegt af yður og
herra Frenshaw að bjóða mér
sagði Susan kurteislega.
— Og þér komið í brúðkaup
okkar? Kannski er einhver sem
þér viljið bjóða með? Eigið þér
vini hér?
— Mér þætti vænt um að fá að
bjóða föður mínum með.
— Sjálfsagt.' Ég hlakka til að
hitta hann. Fg er viss um, að
faðir yðar kemur. En kannski
eru fleiri. Einhver vinur, sem þér
eigið hér.
Susan hristi höfuðið.
— Nei, ef satt skal segja þekki
ég engan hér. Þó kannast ég við
einn mann, og svo vill til að hann
er skyldur unnusta yðar. Hann
bjargaði mér og föður mínum,
þegar skipið varð fyrir tundur-
skeyti.
— Frændi Daniels bjargaði yð-
ur og föður yðar! Það er stórkost
legt. Hver er hann?
— Richard Charleton.
— Richard Charleton? En hann
hef ég aldrei heyrt nefndan, sagði
Fleur hugsi. — Einkennilegt, ég
hélt ég þekkti flesta frændur Dani
els með nafni. Daniel! Komdu hing
að elskan. Þetta er spennandi og
þú verður að leysa úr því. Ung-
frú Marling segir að frændi þinn,
Rirhard Charlton hafi bjargað sér
og föður sínum, þegar skip þeirra
varð fyrir tundurskeyti. Hver er
hann?
— Varð skipið fyrir tundur-
skeyti Susan? hrópaði hann upp.
Það varð þögn. Hann fann að
Fleur starði á hann og hún sagði
annarlegri röddu.
— Þið eruð svei mér orðnir góð
ir vinir. Þú ert farinn að kaila
hana Susan! Og þið hittust rétt
áðan. En ungfrú Marling var vin-
kona bróður þíns, það er rétt . . .
— Ungfrú Marling sagði ég
mætti kalla hana Susan, sagði Dav
id örvæntingarfullur.
— Það er þetta dularfulla með
Riehard Charleton, sem við þurf-
um að upplýsa, flýtti Fleur sér
að segja. — Hver er hann, elsk-
an? Hvaða frændi þinn er það?
David hristi höfuðið. — Ég
kannast ekki við hann.
— Vissi ég ekki, sagði Fleur
sigri hrósandi. — Ég vissi þú ættir
engan frænda með þessu nafni.
— Það getur verið hann sé ekki
náskyldur yður, sagði Susan vand-
ræðalega, — en hann ságðist vera
skyldur yður í móðurætt.
— Hann hlýtur að vera mjög
fjarskyldur ættingi, fyrst Daniel
kannast ekki við hann sagði Fleur
hlæjandi. — En ég skal segja yð-
ur ungfrú Marling, að eftir að
Daniel varð svona frægur, þá
þykjast allir þekkja þekkja hann
eða vera skyldir honum.
Susan gramdist þessi athuga-
semd.
— Ég er sannfærð um að slíkt
hvarflaði ekki að herra Charleton.
Fleur yppti brosandi öxlum. —
Nú, já, en Daniel virðist nú ekki
þekkja til hans.
Susan fann hún roðnaði og hún
uppgötvaði líka, að henni féll eng-
an vegin við Fleur.
— Kannski er hann skyldur ein
hverjum öðrum Daniel Frenshaw
þótt ég hafi ekki heyrt getið um
annan, sagði Fleur.
— Nei, það var Frenshaw yfir-
liðsforingi, sagði Susan ákveðin.
— Richard Charleton, sagði Dav
id og botnaði hvorki upp né inð-
ur í neinu. — Ég verð að viður-
kenna ég kem honum ekki fyrir
mig. Hver ætli hann sé?
Fleur brosti. — Hann hlýtur að
vera það ef hann bjargaði lífi ykK-
ar. En svo einkennilegt sem það
er þá eru sumir menn miklar hetj
ur út á við, en aldeilis óforbetr-
anlegir lygarar.
— Vitleysa, Fleur, sagði David
í úðilega. — Við höfum ekkert leyfi
til að halda þvi fram að þessi mað
ur hafi sagt ósatt.
— En elskan, fyrst þú hefur
aldrei heyrt um hann, endurtók
Fleur.
Þögnin á eftir var mjög óþægi-
leg og loks sagðist Susan verða að
fara.
— Fara? tautaði Fleur. Getið
þér ekki verið lengur. Við förum
út að skemmta okkur á eftir, ekki
satt, elskan. Kannski geturðu boð-
ið einhverjum vini þínum sem
herra handa ungfrú Marling. Sagð
irðu ekki við færum á „Quentin"
í kvöld?
— Því miður verð ég að fara.
Faðir minn bíður eftir mér á hót
elinu sagði Susan.
— Ó, mikið eruð þér hugulsöm
dóttir, sagði Fleur hæðnislega og
sneri sér síðan að David.
— Vilt þú ekki reyna að fá
hana til að slást í för með okkur. i
— Ég býst ekki við það hafi
neitt upp á sig, fyrst ungfrúin
þarf að fara.
Hann var reiður út í Fleur og
hafði ekki áður vitað að hann gæti
orðið svona gramur út í hana.
— Já, ég þarf að fara. Hún taut-
aði kurteislega. — Það var ánægju
legt að hitta yður. Svo leit hún
biðjandi á hann.
— Ég vona þér gleymið ekki.
— Kæra vina, sagði Fleur og
brosti illgirnislega. — Hvað eruð
þið að bræða með ykkur núna?
Unnusti yðar hefur lofað að
hjálpa mér að upplýsa, hvernig
dauða Davíds bar að höndum,
sagði Susan rólega.
— Hefur hann það? Það — það
var merkilegt! sagði Fleur og bætti
við — En þér komið í brúðkaup-
ið, er það ekki áreiðanlegt.
Susan hafði ekki ætlað sér það.
En hún fann ósjálfrátt að þessi
stúlka vildi alls ekki að hún kætni.
Og hún hefði ekkert á móti þvi
að vera þar viðstödd þó ekki væri
til annars en komast að því, hvers
vegna Fleur Connington virtist
vera svo mjög í nöp við hana
David fylgdi henni til dyra. Þau
kvöddust og hún gaf honum upp
nafnið á hótelinu sem þau feðg-
inin dvöldust á og hann lofaði
hringja og láta hana vita. 3g
skyndilega rann upp fyrir henni,
|að Richard Charleton hafði haft
rétt fyrir sér. Henni líkaði ekki
við Daniel Frenshaw, þótt henni
fyndist það leiðinlegt, vegna sky,d
leika hans við David.
Hann er eins og David í út-
liti, hugsaði hún, en að öðru 'eyti
eru þeir ekki líkir. Ég gæti aldr-
ei treyst honum á sama hátt og
Davids
Hún var svo niðursokkin i hugs-
anir sínar, að hún veitti Riehard
Charleton ekki athygli fyrr en
hún rakst á hann.
— Halló, sagði hann glaðiega.
— Hvað á það að þýða að æða
svona á ókunnuga menn.
— Afsakið. stamaði hún. — Ó,
eruð það þér.
— í eigin persónu Einkenni-
legt við skulum hittast úti fyrir
heimili hinnar hraustu hetju. Ég
býst við þér séuð að koma frá
honum og ég er á leiðinni til hans.
— Svo að það er þá rétt að
þér þekkið hann sagði hún all
hugar fegin.
— Já, það er öruggt. Efuðust
þér um það?
— Nei — en hvorki hann né
ungfrú Connington virtust kann
ast við yður.
ÚTVARPIÐ
Nýtt haustverð
300 kr. daggjald
KR,: 2,50 á ekinn km.
LEIK
Rauðarársfíg 31
sími 22-0-22
Laugardagur 22. oktöber
Fyrstl vetrardaqur
7.00 Morgunútvaro 12 l»n Há.
degisútvarp
13.00 Óska-
lög sjúklinga _
Sigríður Sigurðardottir kwimr
lögin. 14.00 Háskólanariðin L'lfiP.
Útvarp frá Háskólabmi 15 20
Einn á ferð Gfsli .1 Ast.þr,iss:.n
flytur þátt I tali og tónuin t>
00 Þetta vj) ég nevra ’ ingi'i/ur
Daviðsson grasfræðingur /e.ur
sér hljómplötur 17.00 F'pfir.
17.05 Létt lög 17.30 'Jr mvi-.ia
bók náttúmnnar Ingimar ''''■c-.'-s
son náttúrufræðingur svaiar
spurningunni A nvorni uærrst
trén’ 17.50 Söngvar > létnmi lon.
18.00 Tilkynningar 19 0>1 Prelttr
19.20 Tilkvnningar :93'i Veirar
vaka a Hugleiðing -rið m'ssira.
skiptin Séra Þorstemn B
Gíslason prófastur ■ Stemnesi
flytur b Einsöneur 'liafur onr-
steinn Jónsson syneur stenzK <na
Við píanóið Óiafur Viemr Al-
bertsson c Um huldurélk Flvtj
endur Krlstián Bersi 'ilafsv.n,
Brynjf Benediktsdói'tr ot- Har-
aldur Ólafsson 21 iio ><’rétc,i oa'
veðurfregnir M 30 fsienzmir
gamanleikur- ,,f<vað-ið‘' eft-r Þá!
J. Árdal Leikgvórt ipnas lf>iH»
son. 22.10 DanssWemmnrn Ot varD?
Ins I vetrarbyrjun. 02 00 l.ag
skrárlok íKlukkan færð tit ts
lenzks meðalttma, — seinkaó um
sina stund).