Vísir


Vísir - 06.11.1975, Qupperneq 19

Vísir - 06.11.1975, Qupperneq 19
VÍSIR. Fimmtudagur 6. nóvember 1975. 19 Níu ára barnastjarna... Hin niu ára gamla Maud Acker- mann er orðin mikið eltiriæti þýskra sjónvarpsáliorfenda, cn það er ekki svo auövelt að verða barnastjarna i Þýskaiandi. Börnum er ekki leyft aö vera í launaðri vinnu, þótt börn er náð liafa þriggja ára aldri séu veitt- ar undanþágur, ef það er talið vera af listrænum ástæðum. Fyrst verða yfirvöld að dæma liandritiö, og gangi barninu ekki vcl i skóla, er það fullvist, að draumar hans eða hennar um l'rægð á skerminum eða hvita tjaldinu munu ekki rætast. For- ráðamenn barnsins verða einnig að leggja fram vottorð um andlegt og iikamlegt heilbrigði þess. Og börnin mega ekki vinna lengur i upptökusöl- unum en þrjár klukkustundir á dag. 15.000 kastalar I V-Þýskalandi munu vera um 15.000 kastalar frá miðöldum enn uppistandandi. Ekki eru þeir þó álitnir ibúðarhæfir fyrir okkur nútimamenn, og ekki má nota þá fyrir vörugeymslur, þvi að innbrotsþjófar hafa margfalt fullkomnari tækni yfir að ráða, en fjendur miðaldariddarans höfðu. beir eru þvi til litils annars nýtir en sem sýningar- gripir. Nokkrir eru falir á næst- um þvi hlægilega lágu verði. Engir kaupendur fást. þvi að fáir hafa efni á viðhalds- kostnaði sliks kastala. Þessi fallegi kastali hér á myndinni heitir Marksburg og liggur við Rinarfljót. Hann er frá byrjun 13. aldar, en hefur verið vandlega gerður upp og skilar rekstur hans hagnaði, þvi að auk þess að taka aðgangseyri hefur verið sett upp veitinga- hús, þar sem gestir geta snætt góðan málsverð i fögru um- hverfi. Heillandl heim- ur Venusar.... Tvimælalaust munu sovésku rannsóknageimförin Venus-9 og Venus-10 gera margar nýjar uppgötvanir og auka þekkingu okkar á jarðfræðilegri og jarð- efnafræðilegri gerð og loftslags- myndun jarðarinnar, Venusar o.fl. stjarna. Venus er næsta stjarna viö jörðina og likist henni meir en aðrar að stærð og efnisþéttleika. Þetta þýðir þó ekki að rannsóknir á Venusi séu einfaldar. Þvert á móti eru þær gifurlega erfiðar sökum loft- hjúpsins umhverfis stjörnuna er hlylur yfirborö hennar sjónum manna frá jörðu. Það var ekki fyrr en fyrsta Venusarfariö lenti á yfirboröi stjörnunnar sem þessari hulu var lyft og i ljós kom, hve skilyrðin á Venusi eru óvenjuleg. Venusi má likja viö yfirhitað gróðurhús, en yfirborðshitinn er um 500 gráður og loftþrýst- ingurinn 100 jarðneskar þyngdareiningar, en loftið á stjörnunni er gaskennt og meginefni þessi koltvivetni. Við þessar aðstæður starfaði Venusarfarið nálega klukku- stund á yfirborði stjörnunnar og sendi upplýsingar til jarðar. Venus er heillandi heimur. Jafngildi dags og nætur hjá okkur er nálega fjórir mánuðir á Venusi. Kemur sólin upp i vestri en sest i austri tvisvar á ári, en Venusarárið er um þrir fimmtu af jarðárinu. Árstiðir eru engar og yfirborðshiti stjörnunnar er hinn sami allan Venusardaginn. A yfirborði stjörnunnar er rökkur og sóiin sést aldrei. Ljósbrigöi i hinum þétta gashjúp viröast lyfta sjón- deildarhringnum upp og skyggni er takmarkað. Skýjaþykkniö á Venusi er mjög athyglisvert. Það er 30-40 km þykkt og lægri mörk þess 30- 35 km frá yfirborði stjörnunnar. Þetta þýöir þó ekki, að skýja- þykknið sé órofin heild. Senni- lega skiptist það i lög úr mis- munandi efni. Aöur var haldið, að skýin á Venusi væru mynduð úr vatnsdropum og iskristöllum eins og á jörðinni. Nú er ljóst, að svo er ekki, a.m.k. eru skýin i efri lögum lofthjúpsins, er sjást frá jöröu, sennilega mynduð úr samþjappaðri, fljótandi brenni- steinssýruupplausn, blandinni smaskömmtum af klórsýru og fluorsýru. Eru þetta tilgátur byggðar á athugunum. Komið hefur i ljós, að loft- gasið á Venusi hreyfist mishratt i mismunandi hæð. Við yfirborð Lendingaferja Venus 9. stjörnunnar er hraði þess litill, en vex eftir þvi sem ofar dregur, og upp viö skýjahjúpinn er hann orðinn sextugfaldur snúnings- hraði stjörnunnar um öxul sinn. Þetta hringstreymi upphefur mismunaráhrif sólarhitans og orsakar það, aö enginn hita- munur er á degi og nóttu eða milli miðbaugs- og heimskauta- svæðanna. Samkvæmt nútima- skoðunum er þetta, ásamt „gróðurhúsaloftslaginu” meginskýringin á hinu sér- kennilega hitastigi á stjörnunni. En það er flóknari gáta, hvaö hefur leitt til þess að þetta óvenjulega ástand skapaöist. Skýringin á hinni óliku þróun stjarnanna er nátengd stöðu þeirra i sólkerfinu. Samkvæmt nútimaskoðunum byggist ástand andrúmslofts stjörnunnar á útgufuninni og mismunandi efnishjúp stjarnanna eftir myndun þeirra úr gasi og stjörnuryki. Á jörðinni lauk útguf- uuunu ij'iu uiii ú.uuu — o.vjw milljónum ára. Talið er að i upphafi hafi hitastigið á yfir- borði jarðar, sem hafði næstum ekkert andrúmsloft, verið um frostmark. Við þessar aðstæður gat stjarnan haldið þvi vatni, sem gufaði úr iðrum hennar, en það leiddi til myndunar úthaf- anna. Venus er nær jörðinni en sólin og yfirborðshiti hennar er nálega 50 stigum hærri. Þar sem andrúmsloftið myndaðist smám saman og þrýstingurinn var i upphafi litill, var þetta hitastig hærra en suðumark vatns. Með öörum oröum, til þess að geta haldiö vatninu eftir, heföi Venus þurft að hafa a.m.k. hundrað sinnum þéttara andrúmsloft, sem er mjög óliklegt. Þetta hlýtur að vera aðalorsökin fyrir núverandi loftslagi á Venusi. Magn koltvivetnis er nálega hið sama á jörðinni og Venusi, en nálega ailt magn þess á jörðinni er bundið i setlögunum, en sökum hins háa hitastigs á Venusi leysist þaö upp i and- rúmsloftið og er það orsök núverandi loftþrýstings þar, sem er um 100 þyngdareiningar. Margt i þessum kenningum er þó enn byggt á hreinum til- gátum, og er aðeins hægt að leiðrétta þær með öflun nýrra upplýsinga. Fyrstu inyndir af plánetunni.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.