Tíminn - 16.11.1966, Page 12
12
Margrét Lárusdóttir
„Sæll er^sá, er gefur gaum bág-
stöddum, á mæðudeginum bjargar
drottinn honum.“
Þessi orð hinnar helgu bókar
komu mér í hug þá er hring var
til mín vegna andláts kærrar föð-
ursystur, Margrétar Lárusdóttur.
Um hana á ég aðeins hugljúfar
minnlnigar. Margré't var kona-
glöð í lund og fagnaði með fagn-
endum, — en hún gleymdi aldrei
þeim, er varhluta fóru af heims-
ins gæðum, og í húsi hennar fann.
ég ávallt hina smæstu bræður og
systur við borð, þiggjandi mat og
yl. Oft hef ég hugleitt betta og
komizt að þvi, að hún var ríkari
af kærieikn en margur annar, er
lífinu þjónar. Hún þráði líka sam
úð í fyllri mæli en aðrir. ÁÚt
fékk hún þetta endurgoldið í
sambúð við elskaða dóttur, Ólöfu,
sem á allan hátt hefur erft hiö
sama kærleiksríka hjartalag. Ólöf
brást móður sinni aldrei, og dvald
ist Margrét hin síðari árin á heim
ili hennar og ástrfks tengdasonai’,
þar til það var ekki á annarra
færi en lækna að stunda hana.
Dag hvern mætti hún við rúm
hennar á sjúkrahúsinu, brosandi
og færandi blómi og huggur., en
föðursystir mín var kona, er unni
fegurð o g hreinlæti. Jafnan var
gott til hennar að koma, ilmur
um allt hús, blóm í vasa, dýrmæt
listaverk, hvert sem litið var. Þau
kunni hún að meta og unni þeim
— en þau voru flest góðar gjafir
til manns hennar fyrir frábær
störf.
Á unga aldri g'ékk hún að eiga
Guðmund Guðfinnsson lækni. Sett
ust þau að um árabil í Rangár-
vallasýslu. Þau gerðu þar garðinn
frægan, hann pllum ógleymanleg-
ur læknir, hún með yndislega
heimilið, ávallt veitul og hlý. Bæði
voru þau rík af velvild til héraðs-
búa. Stórt bú ráku þau að Stór-
ólfshvoli. Var þá frænka mín oft
ein með hjúum sínum, er læknis
ins var vitjað um hið víðlenda
hérað. Þeim var hún innilega góð
og nærgætin. Vildu þau öil vera
sem lengst undir hennar verndar
væng. Já, það voru svo sannar-
lega margir, sem skriðu í skjól
tii hennar, þá er þrek þeirra brast
og þeir fundu, hve einlæg hún var
í kærleikanum. Mér reyndist hún
hin ógleymanlega vina og var
bezt, þá er mest varðaði. Heim-
sótti hún mig svo oft sem hún
gat, þá orðin sjúk, er ég 'dvaldist
um Skeið á Vífilsstaðalhæli. Voru
það ætóð fagnaðarfundir.
Ungri kenndi hún mér að fara
mildum höndum um fagra hluti
og virða snyrtimennsku í allri um
gengni. Allt þetta þakka ég henni
nú af einlægni. Lífið var henn
gjöfult um margt. Hún söng ljóm
andi vel, sat fallega gæðinga á'
rangæskum grundum. Hún gekk
aldrei fram hjá opinni und án
þess að reyna að græða hana. Á
vegi hennar urðu einnig þyrnar,
en hún reyndi að gleyma þeim,
var sátt við lífið.
Föðursystir min ólst upp í stór-
um systkinahópi á stórbrotnu
heimili foreldra sinna, Guðrúnar
Þórðardóttur og Lárusar Pálsson-
ar hómópata. Var ætíð góð vin-
átta með systkinunum, og öll
unnu þau Margréti einlæglega
Sjálf varð Margrét okkur frænd
systkinunum ógleymanlegur per-
sónuleiki. En nú eru þáttasikil.
Eftir margra ára fjarveru murr.
jarðneskar leifar hennar hverfa
I skaut hins yndislega rangæska
héraös við hlið mannsins. sem
hún uani, en hann hafði dáið um
aldur fram. í liíanda lífi áskaði
Guðmundur eftir því að mega að
síðustu hvíla að StórólfShvoli, því.
að hugur hans var jafnan bundinn
Rangárþingi, þó að leiðir lægju
víðar hin síðari starfsár hans.
Þakkir séu Rangæingum færðar
f’TÍr umhyggju og virðingu fyrir |
legstað hans.
Eg kveð svo kæra föðursystur |
með orðum hinnar helgu bpkar:!
„Drottinn styður hann á sótt-1
arsænginni, þegar hann er sjúk-i
ur, breytir þú beð hans í ' hválu!
rúm.“ I
Já Drottinn studdi Margréti í.
margví^legum vanda á göngu líf^-
ins, og nú eftir langa sjúkdóms-i
þraut breytti hann beði hennar i
í hvílurúm. Megi líkami hinnar
stórbrotnu, kærleiksrjku konu þar
næðis njóta, en sálin hverfa að
skauti þess föður, er gaf henni að
.sjá fegurð og gleði.
Með þökk fyrir allt,
Guðrún Jakobsdóttir
Víkingavatni.
Á VÍÐAVANGI
Fhamhald af bis. 3-
um inn í landhelgina væri að
vinria tjón, sem kæmi þeim þó
að engu haldi.
Þurfum að stækka
landhelgina
Þorsteinn segir, að það sé
„vandalaust“ að hleypa togurun
um í landheigina. Það er ætíð
vandalaust að glopra úr hönd
um sér (m', sem unnizt hefur
En við mat á þessu er rétt að
benda á það, sem Þorsteinn seg
ir sjálfur síðar í greininni:
„Veiði þeirra 22 togara (ís
lenzkra) sem nú stunrta veiðar
við fsland, skipta litlu máli.
Það, sem nú skiptir mestu máli
fyrir viðhald fiskistofnsins við
íslands, eru hinar miklu veiðar
hundraða erlendra togara á
ungfiski fyrir Norður- og Norð
vesturlandj utan landhelgi.
Fiskifræðingar hafa bent á
hættuna, sem stafar af veiði
þessa fik“.
Þetta er riiergurinn málsins.
Þessi staðreynd skipar okkur að
hefjast handa um stækkun land
helginnar enn og láta það ekki
dragast. En ef við byi'jum þá
sókn með því að hieypa okk
ar Uigftriim nn inn í lanrthelg
ina. er hætt vi? aíi seint sækist,
þar sftni »ii! tiöfum með því
slegið sjálfír i<« höndiim okkar
gildustu frfflhmarröVIn.
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 16. nóvember 1966
Forsætisráðherrann hét þjóð-!
inni því fyrir nokkrum árum að
vinna ósleitilega að s»tækkun
landhelginnar og viðurkenn-
ingu annarra þjóða á slíkri:
stækkun. Einu „efndirrar“ á
því Ioforði eru enn þær að lýsa
nú yfir, að hann vilji hleypa
togurunum inn í landhelgina.!
Má hver sem vill hæla slíkum
„efndum“.
HVANNEYRI
Framhald af bls. 9.
deild skólans að vinna þar þau
verkefni, sem þeir þurfa vegna
framihaldsnáms síns í búfræði
vísindum. Um tíu manns vinna
við rann^óknir á Hvanneyri á
sumrin, en á veturna vinnur ein
stúlka að staðaldri í rannsókn |
arstofunni sjálfri. Unnið er að’i
■ tímafrekum og umfangsmiklum
úrlausnarefnum á veturna, og
þegar okkur var sagt að nú
væri verið að gera afchuganir a
grasmjöli og spur.t var hvort
það tæki langan tíma var svar
ið: þetta tekur allt langan tíma.
Og þegar sagt er að verið sé
að ákvarða magnið af kalsíum,
fosfor, magnesíum, eggjahvítu,
natríum og kallum með þessum
rannsóknum,á grasmjölinu, þá
fá menn bara svima. En með
þessum rannsóknum erl verið
að finna út hvernig afstaða
efnanna verkar innbyrðis með
tilliti til næringargildis fóðurs
ins. Og þarna hafið þið lesend
ur góðir fengið sæmilega vís-
indalega setningu til að glíma
við.
Að lokum spurðum við Magn
ús hvað hann vildi segja um
framtíðarverkefnin á Hvann-
eyri?
Guðmundi Böðv-
urssyui svuruð
Guðmundur Böðvarsson skáld
ritar í Þjóðviljann s. 1. sunnudag
grein, er hann nefnir „Fast mót
aðar skoðanir“, þar sem hann veit
ist m. a. allharkaleiga að greinar
korni, sem birtist í Tímanum 30.
fyrra mánaðar og fjallar um heim
sókn 430 íslendinga til rússnesku
borganna Odessa og Yalta. í grein
sinni lætur skáldið að því liggja,
að .frásagnarkona Tímans“ sé
blinduð af pólitísku ofstæki og
hafi stigið á rússneska gmmd með
það eitt fyrir augum, að veita
vatni á myllu íhaldsmanna og
Rússahatara hér á landi. Mali
sínu til staðfestingar bendir har.n
á málsgrein í fyrrnefndum íerða
pistli, þar sem segir, að Baldka
farar flestir hafi komið til Sov
étríkjanna með fastmótaðar skoð
anir á ástandinu þar, og er hann
ekki í vafa um hvers eðlis hmar
fast mótuðu skoðanir „frásagnar
konu Tímans" hafi verið. Ég
ætla mér ails ekki að skýra hér
frá hverjar skoðanir ég hafði mynd
að mér um Sovétríkin, það nægir
að láta þess getið að hér hefur
skáldinu orðið hrapalleega á í
messunni. ,
En hvað sem njínum skoðunum
líður, ritaði ég greinina hvorki í
því skyni að lasta sovézka skipu-
lagið né leggja blessun mína yfir
það, slfkt er vitaskuld algjör-
lega út í hött eftir svona skamma
viðdvöl. Ég skýri einungis frá
því, sem bar fyrir augu ferða-
mannsins og blaðamannsins þessa
fáu daga, og hvort sem skáldinu
líkar betur eða verr, dettur mér
ekki í hug að bera til baka einn
einasta staf þar af.
Guðmundur gefur í skyn, að
mín pólitíska starblinda hafi
stjórnað svo mjög mínum skrif
um, að þar sé varla gott orð að
finna. Hann hlýtur þá sjálfur að
vera haldinn einhvers konar star
blindu, hann einblínir algjörlega á
þær lélegu einkunnir, sem ég gef
Sovétríkjunum og horfir framhjá
öllu öðru. Ýmislegt í grein minni,
svo sem óttinn við tolleftirlit o. fl.
var ritað í því augnamiði að gera
dálítið grín að hinni görnlu og
mögnuðu Rússagrýlu, en þessi
gamansemi mín hlýtur að vera
afar léleg, a. m. k. hefur skáldið
algjörlega misskilið hana.
Ég viðurkenni að ég treysti mér
alls ekki út í kappræður við
Guðmund Böðvarsson um ástand.ð
í Sovétríkjupum. Hann er mér
miklu fróðarí maður og hefur auk
þess dvalizt þar eystra um skeið
Ef til vill hefur hann séð aðra
Mið á hlutunum en við Baltikafai.'
arnir. En ég má vera mjög stoit
,af því að svona gáfað og gofct
skáld sem Guðmundur Böðvarsson
skuli eyða í mig jafn miklu púðrí
og raun ber vitni, enda þótt ég
kysi auðvitað að það hefði verið
af öðru tilefni.
Guðrún Þ. Egilson.
— Það' hefur verið unnið að
og í gangi eru töluvert um
,faíigsmiklar jarðrEePietaritilrau'n
ir, en til þess að þær komi að
fullum notum, þyrfti jafnframt
að vinna hér að búfjárræktar
tilraunum, vegna þess að bú
féð og gróðurinn myndar eina
heild. Má kannski segja að þessi
tvö verkefni séu fullmikið slit
in í sundur í tilraunastarfsem
inni hjá okkur. Þess vegna
væri æskilpgt að fá búfjár-
ræktarmenn til að taka við
fóðrinu og rannsaka það á
gripunum.
Hér er um samskonar fyrir
komulag að -ræða og er á at-
hugunum með vélar og gróður
og við minntumst á hér á und
an. Það samspil eykur gildi
rannsóknanna og auðveldar
þær.
* Æskilegt værí að þannig yrði
einníg búið að rannsóknum á
fóðri og fé í framtíðinni.
SUÐUR-VIETNAM
Framhald af bls. 5
Vietnamar líta svo á, að Ky
þætti óhyggilegt að stilla ein-
hverjum samstarfsmanna sinna
í herforingjaklíkunni upp fyr
iri framan skotmannasveit.
Kona eins herforingjans er
stundum nefnd „drottning umb
unarinnar“.
I
BLÖÐ í Bandaríkjunum
birta í alvöru fregnir um fyr
irheitnar umbætur á|landyfirráð
um, og embættismenn i Wash
ington virðast leggja á þetta
nokkurn trúnað. Eg hef oft
furðað mig á, hvernig á þessu
stæði, þar sem við loforðin er
aldrei staðið, og ræðurnar, sem
nú eru fluttar. eru að heita má
nákvæmlega samhljóða ræðum
sem einhver annar stjórnarleið
togi.. flut.ti fyrir fjómm árum
■ eða svo. Ashimenn segja Banda
ríkjamiinnum oft það, sem.eyru
þeirra girnast helzt, að heyra, :
og er það gert í aitrtngiöriiurn
tilgangi. Vietnamar virðast sér
lega gjarnir á þetta og koma
bar sennilega til langvarandi
kynni þeirra af Bandarítkja-
mönnum. í apríl í vor sagði Ky
forsætisráðherra við hóp blaða
manna eitt sinn, er hann var ó-
venjulega einlægur: „Trúið
aldrei neinu, sem Vietnami seg
ir ykkur, og er ég þar ekki
undan skilinn".
órinn talaði sveitamálýzku við
bændurna í stað þess að tal»
borgarmál, sem opinberir stanfif
menn nota.
„Þú ert þá elcki majór,“ sagðj
einn bændanna undrandi.
„Jú. það er ég,“ svaraði maj-
órinn.
„Nei, })ú ert það ekki“, sagði
bóndi. „Þý talar eins og bóndi
og bóndi getur ekki orðið maj-
ór“.
NÚVERANDI þjóðfélagshætt
ir eru andsnúnir fátæklingun-
um og koma í veg fyrir tilfærsl
ur. Ættir mandarínanna standa
gegn öllum breytingum, enda
er ríkjandi skipan þeim í hag.
Bandarífcjamenn hafa til dæm-
is varið milljónum dollara til
barnaskólabygginga í Vietnam
en ekki hefur tekizt að koma
fram neinum grundvallarbreyt
ingum á skólakerfi Vietnam
en heita má. að það tryggi, að
nálega engir aðrir en synir
hinna efnaðri öðlist Þá fram-
haldsmenntun, sem þarf til
frama í þjóðfélaginu, hvort
heldur er í.hernum, opinberri
þjónustu eða öðrum störfum.
Að senda bóndason í barna-
skóla og gera honum síðan ná-
lega ókleift að öðlast fram-
haldsmenntun eykur fremur
á óánæg.iuna, en dregur ekki úr
henni. Ýmislegt bendir til, að
margir ungir Vietnamar af
bændaættum gangi í Vietcong
vegna þess, að kommúnistar
geta helzt veitt þeim vonir um
að losna úr neðsta þrepi bíóð-
félagsstigans, þar sem þeir
hófu göngu sína. Kommúnistar
hafa, vegna eðlis byltingarinn-
ar neyðzt til að velja sér for-
ustulið meðal þeirra. sem aldir
eru upp í sveitum.
Vinur minn einn kom einu
sinni til smáþorps í Suður-Viet
nam í fylgd með majór, einum
af þeim fáu yfiripönnum í hern
nm. sem eru af almúgaættum,
eil hafe hatírí t>' m»farl5a Ma.i
SJÓNVARP
Framhald af bls. 8
Gitte Henning, sem var hér
á landi í sumar og er viðtalið
tekið undir Festarfjalli við
Grindavík. Hljómsveitin Hljórn
ar og Logar leika fyrir okkur
nokkur lög, og vert er að geta
þess, að þátfcurinn með Logum
er fyrsta upptakan er gerð
var í upptökusal sjónvarpsins.
Síðasti . dagskrárliður er
ítalska kvikmyndin Umberco D.
Hún er frá 1953 og mun vera
mjög góð, enda er leikstjórí
hinn nafntogaði Vittorio de
Sica. f aðalhlutverkum eni
likararnir Cario Battistó og
Maria Pia Cassilio. Dagskrár-
lok eru kl. 23.15. Kynnir dag
skráríiða er Sigríður Ragna
Sigurðardófctir.
TÓNLEIKAR
Framhald af bls. 8
ósvikin ballett-músík, sem ein
sér missir sitt krydd, þegar
augað verður afskipt. Góður
samleikur og örugg stjórn,
gerði samt sitt til að halda at
hyglinni vakandi. —
í Klassisku SL-fóníunni eftir
Prokofieff dró stjóniandi Bohd
an Wodiczko, vel fram „húmor
inn með skýrt afmörkuðu
hraðavaii skipuiegum iínum,
en þó liíandi ílutningi. Bæði
Kedra og Wodiezko var ve!
fagnað af áheyrenrtum. (
lilililir y\ l .irrciiót.tir.
/
I