Vísir - 22.12.1975, Síða 20

Vísir - 22.12.1975, Síða 20
20 Mánudagur 22. desember 1975. VISIR HÚRRA. Ég hef fundið oO° Fljótur. út á götu. Ég skýri drykkinn eftirfyrsta vegfarandanum semþúhittir. o o Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 23. desembcr. Hrúturinn 21. mars—20. apríl: Þú eykur álit þitt með þvi að gera öðrum óvenjulegan greiða. Gefðu náinn gaum að þörfum samstarfsmanna þinna — þeir kunna vel að meta það. Fréttir sem berast seinni hlutann gætu reynst rangar. Nautiö 21. apríl—21. maf: Þú hefur mikil áhrif á börn og ástvini, reyndu að fá fram það besta i fari þeirra. Hæfileikar þinir fá að njóta sin i dag. Tviburarnir 22. mai—21. júni: Fjölskyldan, heimilið og vinir eru efst á baugi i dag. Reyndu að auka öryggi og þægindi heimilis- ins. Spurðu þér eldra fólk ráða. Krabbinn 21. júni—23. júlí: Leggðu snemma af stað i verslunar-eða skemmtiferð. Það er auðvelt að eignast kunningja. Gildi samræðna gæti verið dregið i efa seinni partinn. Njóttu ferð- arinnar. Ljónib 24. júlf—23. ágúst? Vertu þér úti um áþreifanleg verðmæti, eitthvað sem er ein- ungis ætlað þér. Það leynist eitt- hvað á bak við tjöldin. Vertu skýr i hugsun í kvöld. !Yley n 24. ágúst—23. sept.: Vertu eðlileg(ur) og róleg(ur), hertu þig upp og láttu skoðanir þinar i ljós. Þá kynnist þú fólki betur. Eitthvað gerist sem getur orðið þér til framdráttar seinna. Vogin 24. sept.—23. okt.: Það er vel til fallið að fara i bió eða á sýningar i dag. Skyggnstu undir yfirborðið. Forðastu fólk, sem beitir óheiðarlegum vinnu- brögðum i samkeppni. Drekinn 24. okt.—22. nóv.: Ljúktu áriðandi verkefnum og fundum fyrri hluta dags. Þú gætir hitt fólk sem hefur áhrif á viðskiptasviðinu seinni hlutann. Gangtu beint til verks. Bogmaöurinn 23. nóv.—21. des.: Það sem þú segir og gerir vekur athygliá æðri stöðum og gæti orð- ið þér til framdráttar i starfi og utan þess. Vertu til sóma á opin- berum stöðum. Kvöldið getir orð- ið bráðskemmtilegt. Stcingeitin 22. des.—20. jan.: Fjarlægir staðir og fólk verður tér umhugsunarefni. Hugleiddu hvað framtiðin ber i skauti sér og möguleika sem gefast á að starfa erlendis. Vatnsberinn 21. jan.—19. febr.: Þér verður tiðrætt um fjármál og viðskipti þessa dagana. Heimilisfólkið gæti orðið leitt á jví. Peningar og veigengni er ekki það eina sem er einhvers virði i lifinu. Sýndu þinum nán- ustu dálitið meiri ræktarsemi. Fiskarnir 20. febr.—20. niars: Taktu daginn snemma og heim- sæktu vini sem þú hefur vanrækt of lengi. Hreyfðu þig meira ef þú þarft að losna við nokkur auka- kiló. Forðastu áfenga drykki. Vist!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.