Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 2
Þriðjudagur 23. desember 1975. VISIB
Þarftu að vinna um
jólin?y
Karl Adólfsson, vinnur i netum
hjá ögurvik: — Ég verð i frii
sjálfa jóladagana og eins um ára-
mótin, annars þarf ég að vinna.
Jóhanna Þorbjörnsdóttir, hús-
móðir: — Ja, ég ernú einsog hver
önnur húsmóðir, ég vinn ekki úti,
en það verður auðvitað meira
stúss en venjulega i kringum
matinn, og annað sem tilheyrir
jólum. Ég verð með gesti á að-
fangadagskvöld, en svo fer ég
lika i boð til anharra.
Elín Guðmundsdóttir, nemi: —
Já, ég verð I frii. Ég er i Fjöl-
brautarskólanum i Breiðholti og
við fengum fri á föstudaginn var,
og til 5. janúar. Ég reyndi að fá
vinnu i friinu en fékk enga.
Robert Beard, frá Astraliu: — Ég
er hér á ferðalagi og verð þvi i frii
um jólin. Ég kom i gær og fer
kannski strax eftir áramót en
held jólin á Hjálpræðishernum.
Páll Kristjánsson, nemi,— Ég
fékk jólafri úr Verslunarskólan-
um 11. desember, en er i vinnu
hjá Anderson og Lauth i jólafri-
inu, en við vinnum ekki sjálfa
helgidagana. Flestir minir kunn-
ingjar i skólanum fengu sér vinnu
i jólafriinu.
Ólög Sigurðardóttir, nemi: — Ég
er i Menntaskólanum á Akureyri
og þar fengum við friið 18. desem-
ber. Ég ætla bara að slappa af i
friinu, kannski lesa svolitið.
LITIÐ INN Á
ELLIHEIMILI OG
SJÚKRAHÚS
Jólin hafa löngum verið talin
fjölskylduhátið, og senniiega
eru flestir þanniggerðirað vilja
eyða þeim meðal ættingja^
Hins vegar eru alltaf ein-
hverjir um hver jól sem ekki
geta dvalist heima. Fyrir þvi
eru ýmsar orsakir, en m.a. má
nefna þá sem þurfa að dveljast
á sjúkrahúsum eða öðrum
stofnunum.
Einnig eru þeir til sem ekki
eiga neitt heimili eða fjölskyldu
til að dvelja hjá um jólin, enn
aðrir eru erlendis, ýmist sjálf-
viljugir eða af nauðsyn. Og þá
má ekki gleyma sjómönnunum
sem margir hverjir þurfa að
vera á hafi úti um jól og áramót.
Visir leit inn á Landspitalann
og Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna og forvitnaðist um jóla-
hald þar, og einnig öfluðum við
okkur upplýsinga um jólahald
fyrir heimilislaust fólk sem fé-
lagssamtökin Vernd standa að.
Útskrifum alla sem
hægt er fyrir jólin.
Vigdis Magnúsdóttir forstöðu-
kona Landspitalans sagði að
Þau eru ekkert banginn á svipinn þessi, jafnvel þótt þau þurfi kannski að vera á sjúkrahúsinu um jólin,
enda eru þau i góðum höndum og búið að Hfga upp á umhverfið.
Þangað koma jólin líka
allir sem gætu, fengju að fara
heim fyrir jólin, sumir alfarnir,
aðrir þurfa að koma aftur eftir
hátiðina.
Reynt er að skapa jóla-
stemmningu fyrir hina sem ekki
komast heim. Gangar og setu-
stofur eru skreyttar og einnig
eru sett jólatré inn á hverja
stofu.
Heimsóknartimarnir eru frá
6 til 9 bæði á aðfangadag og
gamlársdag. Þá er og matseð-
illinn heilmikið breyttur, há-
tiðamatur bæði um jól og ára-
mót. Möndlugrautur er hafður á
aðfangadag og honum fylgir
auðvitað möndlugjöf á hverri
deild.
A aðfangadager jólamessa og
á jóladagsmorgun hefur Hjálp-
ræðisherinn alltaf komið og
leikið fyrir sjúklingana. Þá
hefur Lúðrasveitin líka komið
og skemmt sjúklingum.
Jólasveinninn kemur i
heimsókn.
A barnadeildinni er sérstak-
legareynt að gera dagamun. A
aðfangadag klukkan fjögur
kemur starfslið deildarinnar
með sin börn, og þá er gengið
kringum jólatréð og sungið,
Jólasveinninn kemur i heim-
sókn, og öll börnin á spitalanum
fá pakka, en gestirnir konfekt-
poka.
Konfektpoka fá lika allir aðrir
sjúklingar, sem dveljast á
spitalanum yfir jólin.
Við litum inn á barnadeildina
og þar var að byrja að koma
jólabragur, myndir og skraut á
veggjum, en i dag verður sett
upp jólatréð.
Þó nokkur börn þurfa að vera
á deildinni þessi jól, sérstaklega
þau yngstu, hin stærri fengu
flest að fara heim.
Margir fara til ættingj-
anna
Jóhanna Sigmarsdóttir for-
stöðukona á Hrafnistu, Dvalar-
heimili aldraðra sjómanna,
sagði að töluvert margir vist-
menn færu til ættingja eða vina
um jólin.
Þó eru alltaf margir sem
halda jólin á Hrafnistu, fyrir þá
er töluvert breytt til. Skreytt er
á göngum og setustofum og
jólatré eru sett upp á Þorláks-
messu.
A aðfangadag klukkan fjögur
er helgistund, en klukkan fimm
er hátiðaborðhald. Borðsalurinn
er skreyttur og breytt til i hon-
um og seinna um kvöldið er svo
drukkið súkkulaði með tilheyr-
andi.
Allir vistmenn fá pakka frá
heimilinu, og svo hefur verið
töluvert um sönghópa og aðra
gesti sem koma til að skemmta
vistmönnum, og reyna að gera
þeim jólin ánægjulegri, og eru
slikargestakomurað vonum vel
þegnar.
—EB
Jólavipur var kominn á anddyri Hrafnistu. Þar hittum við Kristin
Jónsson, Guðriði Pétursdóttur og Gunnólf Einarsson en þau gerðu
ráð fyrir að dvelja annars staðar um hátiðina. Ljósm. Jim.
Jólahald fyrir heimilislausa
Félagssamtökin Vernd hafa
siðastliðin tuttugu ár haldið
jólafagnað fyrir einstæðinga og
aðra þá sem hafa enga fjöl-
skyldu að leita til, og svo verður
einnig i ár.
Sérstök nefnd undirbýr jóla-
haldið, en einstaklingar og
fyrirtæki gefa allt sem til þarf,
og eru það yfirleitt sömu fyrir-
tækin ár eftir ár.
Jólahaldið fer fram i húsi
Slysavarnafélags tslands við
Grandagarð. Húsið er opnað
klukkan þrjú á aðfangadag, og
þar er veitt kaffi seinnipartinn
fyrir þá sem vilja.
Klukkan sex er siðan hátiða-
matur og seinna um kvöldið er
jólakaffi. Einnig eru gestunum
veittar sigarettur og sælgæti og
þarna geta þeir rabbað samán
fram eftir kvöldi.
Þá er einnig höfð helgistund,
og stundum hafa komið söng-
kraftar eða aðrir og skemmta
gestunum.
Félagar úr ungteniplarafé-
laginu Hrönn hafa séoúfn að
skreyta salinn og setja þar uþp
jólatré. Einnig hafa þeir stund-
um komið og leikið músik af
seguibandi.
öll vinna við undirbúning og
einnig framreiðslan á aðfanga-
dag er unnin i sjálfboðavinnu,
og Slysavarnafélagið lánar
húsnæðið endurgjaldslaust.
Þetta jólahald hefur verið vel
sótt og hafa komið þarna um
sextiu manns þegar flest hefur
verið. —EB