Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 23.12.1975, Blaðsíða 7
VISIR Þriðjudagur 23. desember 1975. 7 ( Umsjón: Guðmundur Pétursson 3 Slepptu gíslum í Alsír og Trípólí Austurriska farþega- »ka vélin sem flaug skæru- iðunum og gislum jeirra frá Vin til Alsir, enti i nótt i annað sinn i Alsir, en að þessu sinni kom hún frá Tripóli. Nokkrum gislanna liafði hún sleppt i Alsir i fyrri viðkomu sinni og aðra hafði hún látið lausa i Tripóli. Stóð vélin á flugvellinum i Alsir þegar siðast fréttist, og bólaði ekkert á hreyfingu á þeim sem i henni voru. Varð ekki séð hvort skæruliðarnir eða siðustu gislarnir væru um borð. 1 Tripóli höfðu skæruliðarnir beðið Saudi Arabiu eða írak að senda þeim aðra flugvél. Höfðu þeir þá áætlanir á prjónunum um að fljúga til Baghdad. Meðal gislanna sem eftir voru i höndum þeirra, voru nokkrir oliuráðherrar og þar á meðal Ahmed Zaki Yamani. — Stjórn Libýu skoraði á skæruliðana, að þyrma lifi gislanna, en þeir svöruðu um hæl, að þeir ætluðu sér hvorki að drepa einn né neinn. Bættu þeir þvi við að gislarnir væru við bestu heilsu. Skæruliðarnir slepptu nokkr- um gislum i Tripóli, eftir að Libýustjórn hafði látið að vilja þeirra og útvarpað yfirlýsing- um að forskrift skæruliðanna. ÆTLUÐU AÐ RÆNA SOVÉSKUM GYÐINGUM Hollenska lögreglan kom i veg fyrir raðagerð fjögurra skæruliða Palestinuaraba um að ræna hóp sovéskra gyð- inga á járnbrautarstöð skammt frá Amsterdam i september. Dagblaðið „L’Aurore” skýrir lrá þvi i morgun, að skæruliðarn- ir hafi verið teknir fastir 5. september, eða daginn áður en þeir ætluðu að láta til skarar skriða. Yfirvöldin héldu þessu leyndu, uns réttarhöldin voru afstaðin. „L’Aurore” segir að tveir skæruliðanna hafi verið fyrrum stúdentar við Patrice Lumumba- vinaháskólann i Moskvu og notið þjálfunar KGB, sovésku leyni- þjónustunnar. Það hafði verið ráð þeirra að handsama gyðingana, þegar lest- in frá Moskvu stansaði við Amersfoort-stöðina fyrir utan Amsterdam. Tilgangurinn var að þvinga hollensku stjórnina til þess að breyta afstöðu sinni til ísraels, og vafalaust um leið að fæla aðra sovéska gyðinga frá þvi að flytja úr landi. m Situr sem fastast... Maria Estella Peron, forseti Argentinu, sést hér ávarpa þjóð sina i sjónvarpi, eftir að uppreisnar- menn i flugher landsins höfðu gefist upp. Þeir höfðu krafistþess, að hún og stjórn hennar vikju frá. r t POLITIKUSINN Petrosjan Sovétmeist- ari í skók Tigran Petrosyan, fyrrum heimsmeistari i skák, varð i gær Sovétmeistari i skák, og er það i fjórða sinn sem hann hreppir þann titil. — Tveir aðalkeppi- nautar hans, Karpov og Spassky, tefldu ekki. Petrosyan hlaut tiu vinninga af fimmtán mögulegum. — En hálf- um vinning á eftir honum komu þeir jafnir að stigum Vaganyan, Tal, Gulko og Romanishin. Það má með sanni segja, að sumt fólk sé á kafi i jólainn- kaupunum, eins og þessi hjón i Salinas i Kaliforniu, þar sem ljósmyndarinn hélt sig standa frúna aty þvi að gleyma hóndanum i ákafanum við aö halda áfram. — i ljós kom svo, að konan var höfð fyrir rangri sök. Þetta var þá brúöa, en ekki ciginmaöurinn, sem hékk svona út úr farangurskislunni. VOPNASMYGL Fimm irskættaðir bandarikjamenn hafa verið sakaöir um smygl á 378 rifflum og 140.000 riffilskotum til Trska lýðveldishersins (iRA) á N-írlandi siðustu fimm árin. t ákærunni sem gefin var út i Philadelphiu i gær er sagt að mennirnir hafi einnig reynt að festa kaup á sprengjuvörpún, vél- byssum og eldflaugum. Öllum er gefið að sök að vera erindrekará snærum IRA, en það varðar tíu ára fangelsi f Banda- rikjunum. Þessar kærur koma i kjölfar viðtals sem Harold Wilson, for- sætisráðherra Bretlands, átti i siðustu viku við bandariska blaða menn. En þar sagðist hann álita. að85% þeirra ólöglegu vopna sem kæmust til Norður-trlands, væru fengin frá Bandarikjunum. Mennirnir fimm eru allir af irsku foreldri en fæddir og búsettir i Bandarikjunum. — WHITLAM LÍK- LEGA ÁFRAM Við þvi er búist að Gough Whit- lam, fyrrverandi forsætisráð- herra, verði endurkjörinn leiðtogi Verkamannaflokks Astraliii á fundi þingflokksins i dag. Þetta er fyrsti fundurinn eftir kosningarnar 13. desember þar sem flokkurinn beið mikinn ósig- ur. — Kosið verður á fundinum i dag bæði um stöður formanns og varaformanns. Frank Crean, varaformaður, hefur gefið kost á sér til for- mannsembættisins og Lionel Bowen, fyrrum iðnaðarmálaráð- herra. Þriðji keppinauturinn er Gordon Bryant. Hestur og knapi ölv- aðir Reiðmaður sem dottið liafði af baki hesti sinum i Hyde Park i London i nótt var sektaður i morgun fyrir ölvun á almannafæri. Úesturinn slapp hinsvegar við sekt, og var hann þó litið niinna drukk- inn. Knapinn hafði veriö i jóla- glcðskap. og sagði hann dómaranum að hann hefði tengið sér of mikið neðan i þvi til þess að aka bil. Greip liann þá til þarfasta þjónsins. Kom i Ijós áö i þessum gleð- skap hafði hestinum einnig verið borinn bjór og viski að drekka. Víða asi í jóla- ösinni...

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.