Vísir - 23.12.1975, Side 8

Vísir - 23.12.1975, Side 8
B VÍSIR Þriöjudagur 23. desember 1975. VISIR Umsjón: Guðmundur Pétursson. ) (Jtgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson Fréttastjóri erl. frétta: Guömundur Pétursson y Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 44.tSimar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Simi 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14. simi 86611. 7 linur Askriftargjald 800 kr. á mánuöi innaniands. i lausasöju 40 kr. eintakiö. Biaöaprent hf. ,,Því skín á hamingju undir daganna angri" Þegar klukkur landsins hringja inn jólahátiðina höfum við enn einu sinni verið minnt óþyrmilega á það reginafl náttúrunnar, sem enginn mannlegur máttur fær ráðið við. Við höldum nú aftur jól i skugga þeirra hamfara náttúruaflanna, sem óneit- anlega hafa sett mark sitt á islenskt þjóðlif i gegn- um tiðina. Hér á norðurhjara veraldarinnar eru jólin eins konar vin i eyðimörk skammdegismyrkursins. Þau eru hátið ljóssins i tvennum skilningi. Hvort tveggja er, að þau varpa birtu á mannlifið dimmustu daga ársins, og þau eru haldin þá dag tekur að lengja á ný. En ef til vill eru jólin þó öðru fremur hátið friðar og nýrra vona. Ýmsir hafa á seinni árum talið, að jólin hafi misst eiginlegt gildi sitt i kaupvertið og gjafaprjáli. Vist er, að i hringiðu nútimalifsins verða jólin aldrei það sama og áður var. Á öld hraðans og raftækninnar eru kertin og spilin aðeins þægileg þjóðsaga frá horfinni tið, þó að i raun réttri sé hún ekki svo göm- ul. Jólasiðirnir breytast með breyttum þjóðlifshátt- um. Það er ekkert til að gráta yfir, heldur eðlileg þróun. Inntak og gildi jólanna getur verið það sama eftir sem áður. Framhjá hinu er þó ekki unnt að horfa, að jólin eru eiginlega andstæða hraðans og gauragangsins, sem öðru fremur einkennir mannlifið nú um stundir. Jólin hafa öðru fremur verið talin friðarins hátið. Eðlilega finnst mönnum þó sem friðarboðskapurinn hafi mátt sin litils, þegar þjóðirnar standa enn sem fyrr gráar fyrir járnum og við verðum að viður- kenna þá köldu staðreynd, að i okkar heimshluta er friðurinn tryggður með spjótsoddum. En eigi að siður má spyrja, hvort við værum ekki enn verr á vegi staddir, ef friðarboðskapur jólanna hefði aldrei náð eyrum manna. Slikum spurningum um gildi jólanna svarar hver fyrir sig. En það er ástæðulaust að hafa áhyggjur af þvi þó að jólin breytist með breyttum timum. Þáð liggur i eðli hlutanna að svo sé. Hátið friðar og ljóss getur aldrei verið annað en hátið gleðinnar og vonarinnar. Jólin eru þannig hátið vonarinnar um ,,hið ljúfa vor, þegar alls stað- ar sást til vega,”' hið ljúfa vor, sem „fylgir oss eftir á lestaferð ævilangri” eins og borgarskáldið Tómas Guðmundsson segir i Eftirmála að Stjörnum vorsinc. Mannlifið byggist á þverstæðum. Á milli tregans og gleðinnar er órjúfanlegt samband. Þannig verða jólin mörgum stund trega en ekki gleði. Ógnarleg slys siðustu mánaða hafa kostað mörg mannslif og þau minna okkur á, að jólahátiðina ber misjafnlega að garði. En eftir sem áður eiga jólin að geta boðað vonina um hið ljúfa vor. Jólin opna oftast nær augu manna fyrir þessum andstæðum, sem þó verða aldrei skildar að, gleðinni og treganum. Eða eins og borgarskáldið segir i kvæði sinu: „Þvi skin á hamingju undir daganna angri og undir fögnuði daganna glitrar á trega,” Visir óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla. \ Þar þarf ökuskír- teini til að mega aka sleða í Finnlandi eru hreindýrin mikilvægt nauðsynjadýr þar sem þau annast mikla flutninga, gefa af sér mat, hita, skrautgripi, félagsskap og aðsókn ferðamanna. Andi jólanna aftrar ekki finn- um frá þvi að éta allt ætilegt af hreindýrunum og nota siðan leifarnar til^skreytinga. Fjöldi svokallaðra minja- gripa, þar á meðal hnappar bollar og skeiðar, eru gerðir úr hreindýrabeinumog skinnin eru notuð I teppi, ábreiður og brdður. Jafnvel ljósaskiltin á Rovaniev-flugvelli eru gerð úr hreindýrabeinum. Hreindýrakjöt er líklegast vinsælasta góðgætið í Finnlandi enda er þaö einkum borið fyrir gesti. Það er steikt hvort sem um er að ræða tungu eða ófædd- an hjartarkálf. Hreindýr eru langstærsti hlut- inn i kjötframleiðslu Finna og sem náttúruauðlind eru þau sett næst á eftir timbri og graniti. En samkvæmt alþjóðaskýrslu um villta dýrastofna, er hrein- dýrið i Finnlandi ekki talið vera i neinni hættu. Hreindýrastofninn i Finnlandi telur nú 225.000 dýr, að áliti hreindýrastofnunarinnar þar, og af þeim er um G0.000 felld á ári hverju, sagði talsmaður stofnunarinnar. ,,Við verðum að drepa þau, annars syltu þau i hel. Það er ekki til nægileg fæða fyrir þau öll„ að ekki sé nú talað um ef hart er i ári” sagði talsmaður finnsku ferðaskrifstofunnar. ,,Við komumst ekki af án hreindýranna. Timburiðnaður okkar er ekki nægilega stór til þess,” bætti hann við. Hreindýrabændur smala bústofni sinum heim i septem- ber og fram i nóvember. Ferða- menn fylgjast gjarnan með og geta um leið virt fyrir sér norð- urljósin, sem eru sérlega skær á þessari breiddargráðu. Um 6.000 hreindýrabændur hafa slegið sér saman, og dýrin eru flokkuð, bólusett og síðan skorin á háls. útskýrði tals- maður hreindýrastofnunarinn- ar. ,,Það eru mjög mannúðlegar aðfarir” sagði hann. „Ekki fyrir hreindýrið” sagði talsmaður sjóðs til verndar villidýrum i Washington, en hann var spurður álits á aðferð þessari. Hreindýr eru einnig notuö sem dráttardýr, þótt þau fari tiltölulega hægt miðað við þyngd sina. A sleðunum sitja lappar, iklæddir skrautlegum þjóðbúningum. En til þess að fá að aka sleða, þarf sérstakt ökuskirteini. Troðningarnir sem ekið er eftir eru misjáfnir, en engu að siðurhamasthreindýrin eins og hver einasti vetrardagur sé að- fangadagskvöld, og dimmt er I Lapplandi einn sjöunda hluta ársins eða 52 daga. Rikisstjórnin hefur gert til- raunir til að vernda hreindýrin gegn umferðarslysum, og hafa i þvi skyni um 300 dýr fengið kraga með endurskinsmerki um hálsinn. Þannig kragar hafa þó reynst fremur illa, þvi dýrin hafa oft flækt þá i greinum og runnum og rifið þá af, sagði talsmaður hreindýrastofnunarinnar. Umferðarráðið er þvi að leita að nýjum og betri aöferðum. í undirbúningi er umfangs- mikili áróðursherferð gegn snjóplógum, sem hrætt geta kálffullar hreinkýr með hávaða og valdið fósturláti. Sem náttúruauðlind eru hreindýrin í Finnlandi sett nœst á eftir timbri og graníti

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.