Vísir - 23.12.1975, Síða 9

Vísir - 23.12.1975, Síða 9
VISIR Þriöjudagur 23. desember 1975. 9 Með heitu blóði Þorvaröur Helgason Nýlendusaga Helgafell 1975 Ný skáldsaga frá þessum höf- undi er strax nokkuö forvitnileg ólesin, og byggist þaö viöhorf á fyrri skáldsögu hans, Eftirleit, sem kom út 1970 og vakti vonir um rithöfund, sem ætti eftir aö vaxa og stækka. Nafn þessarar skáldsögu er dregiö af þeirri málvenju aö kalla nýlendu þann hóp, sem dvelur samtimis i borg erlendis viö nám, og þó öllu heldur þann staö, þar sem hópurinn hittist. Skáldsagan er um einn svona námshóp, eöa einkum þrjú úr hópnum, og gengur þar ýmist á ást eöa kyn- lifi, eftir þvi hver i hlut á. Þótt ytra atferli hópsins i nýlendunni kunni aö koma kunnuglega fyrir sjónir þeim, sem i nýlendu hafa verið, er skáldsagan bæöi for- vitnileg og upplýsandi fyrir hina, sem aldrei hafa i nýlendu veriö, og yfirleitt ekki komizt lengra en spá i belgi á Den röde Pimpernelle. Þótt um engan skyldleika sé að ræða, minnir skáldsaga þessi á Elskhuga Lady Chatterley um djarfmæli, og ævisögu Frank Harris hvað snertir hispurs- lausar lýsingar. Þær gerast nú æ tiðari hinar djarfmæltu bæk- ur, sem samdar eru af Islend- ingum, sumar eru gerðar til að drepa tiðina, aðrar til að segja nokkru fjölþættari sögu og vekja til umhugsunar. Nýlend- an er of fjölþætt til að falla undir skemmtilestur eingöngu, þótt moröhistorian, eins nauösynleg og hún er þessu annars alvar- lega verki, beri nokkurn keim af Christie-legum aðferöum. Þaö er oröiö nokkuö langt siöan hér hefur veriö uppdiktuö saka- málasaga, og eiginlega var eng- in slik góð fyrir nema ,,Allt i lagi i Reykjavík”, eftir Ólaf við Faxafen (Friðriksson). Sakar- efnið i Nýlendusögu er þó sýnu auöveldara viöfangs, þar sem þaö gerist I útlöndum. Auk þess gerir timamunur seinna verkið sennilegra. Þaö var svolitið erfitt aö skrifa um bréf undir steini sunnan viö Tjörnina og Indriði G. Þorsteinsson V skrifar göng undir Austurstræti svo trú- legt þætti. En lurkur i dimmum erlendum garði er hreinn barnaleikur I morösögu. Annars er Nýlendusaga ekki sakamála- saga. Þorvarður Helgason skrifar mikið um ástina i skáldsögu sinni, og viröist tefla svonefnd- um „hreinum” tilfinningum gegn aðförum, sem gleðikonur eru sagöar nota þegar mönnum bregst risiö. Hreina persónan kemst aö visu I tæri viö gleði- konur, en einhvernveginn ferst fyrir að hann hafi eitthvert gagn af þeim annaö en komast inn i tiltekið hús, þar sem hann getur kikt á ósómann hjá eljara sinum og þeirri, sem sá „hreini” elsk- ar. Þessi ástarævintýri rekja sig á mjög raunsæilegan og eðli- legan hátt, og oft þann, sem ekki hefur veriö sagöur i bókum. Hins vegar er það nokkur galli, sem ekki mun þó stinga alla i augun, að orðfæriö með þessu raunsæi er ekki alveg viö hæfi á stundum. Höfundur notar orð eins og ást og að elska, sem varla er beitt i alvarlegri frá- sögn vegna þess hve ofnotkun þeirra I ómerkilegum verkum hefur gert þau blautleg og hve þau segja i rauninni litið. Góður texti um ástir hefur gjarnan að leiðarljósi kennslubókardæmi úr Islendingasögum, sem engil- saxar fundu upp löngu siðar og nefndu „grace under pressure”. Hefði veriö gaman aö sjá slika útfærslu hjá Þorvarði á þessum atriöum, og hvernig hún hefði lyft bókinni, þótt engum úrslit- um hefði ráðiö. Ég er anzi hræddur um aö Ný- lendusaga sé ekki skrifuö með það fyrir augum aö þjóna sjónarmiðum hinna nýju kven- réttindakvenna, og mundi ég I þeirra sporum mótmæla þeirri stöðu, sem konan fær I skáld- sögunni. Einkum horfi ég meö nokkurri ánægju fram til þess að Helga Kress lesi skáldsög- una, en sem kunnugt er hefur hún verið anzi natin viö að finna kynferðisverur I kvenpersónum skáldsagna, þar sem allt á að vera náttúrulaust samkvæmt hinum nýja sið, og er það kannski. Einstakar setningar og stutt- ar málsgreinar i skáldsögum, sem lesanda getur hæglega sést yfir við hraðan lestur, gefa oft meira til kynna um þátt útlegg- ingar en hið lengra mál. Náms- fólkið i Nýlendusögu er aö sjálf- sögðu allt að læra, en það er jafnframt fólk með heitu blóði bæöi I ástum og pólitik. 1 dagbók þess myrta, sem þýdd er og les- in fyrir lögreglufulltrúa stendur m.a.: „Það er talað illa um ákveð- inn hóp, vel um annan og þjóð- félaginu bölvað. Þjóðfélagið, það eru þessir asnar þarna úti sem halda fyrirtækinu gang- andi, sem vinna og borga skatt- ana og standa undir skólakerf- inu sem þessi lýður er i aðal- tengslum við.” Lýðurinn, sem vitnað er til i fyrrgreindum orðum, er: „..laglegar, velklæddar stúlkur sem eru að fikta við uppreisn með þvi að umgangast list- föndrarana og dópistana sem koma á þetta kaffihús. Þær lita ekki við mér af þvi ég er i borgaralegum fötum og vinn sýnilega fyrir mér. Hinir karl- mennirnir eða stóru drengirnir eru allir I bláum vinnubuxum og peysum, yfirleitt skeggjaöir.” Þorvarður lætur þess ekki getið, að með þvi að ganga I borgaralegum fötum eru þeir hinir sömu að gefa þvi byr undir vænginn að þeir hafi selt sig. Kannski hafa allir með bindi selt sig i augum hinna blá- klæddu? Þótt Nýlendusaga sé byggð á veru islenzks námsfólks i er- lendri borg, ber aö sjálfsögðu fyrst og fremst að lita á hana sem skáldsögu. Hún er að visu fyrsta sagan um þetta efni, og þvi gætir nokkurrar þarfar til aö Þorvarður Helgason. tengja hana sem atferlislýsingu við hinn islenzka hóp. Þaö sem hlýtur þó að vera undanskilið, sem almennt dæmi um slikan hóp, er morðið sjálft og aðdrag- andi þess. Með Nýlendusögu er Þorvarö- ur Helgason orðinn höfundur, sem taka verður tillit til. Hann er að visu enn ekki fullráöinn, sem varla er von, enda er bók þessi tveggja átta, annars vegar skemmtisaga, og hins vegar alvarlegar bókmenntir, og verður ekki af henni séö hvora leiðina höfundur ætlar að velja. Má einnig vera að hann kjósi aö halda sig á þessum tviátta mið- um enn um sinn. Hvaö sem verður, þá er Þorvarður eftir- tektarverður höfundur, sem kann þá tækni að halda lesandanum viö efniö, sem er auðvitað upphaf þess handverks aö skrifa bækur. Hitt verður svo gæfa og gerð að skera úr um i framtiöinni. Indriði G. Þorsteinsson Eftir þvi sem nær dregur jól- um þéttist bókahriöin og stafl- inn á borði umsegjandans stækkar og breyttar aðstæöur kalla á breytt viðbrögð. Hér á eftir mun þvi fylgja umsögn um fjórar bækur — og fyrsta bókin eru Gotlenzk ljóð eftir Gustaf Larsson I þýðingu Þórodds Guð- mundssonar, 32 siöur, útgef- anda er ekki formlega getið en bókin er prentuð i Hólum og lit- ur bókin vel út nema hvað káp- an er nokkuð stilaverkefnisleg. Gustaf Larsson er maður á ni- ræðisaldri og er þess getið i for- mála eftir þýðanda að ljóð hans á gotlensku hafi fyrst komið út 1961, skáldið þá tæplega sjötugt, liklegt er að birst hafi fyrr kvæði á sænsku þó það sé ekki tekið fram sérstaklega, en i bókinni eru bæði kvæði þýdd úr gotlensku og sænsku. Kvæðin úr gotlensku túlka lifsviðhorf trú- . aðs fullorðins manns sem þykir mjög vænt um náttúru heima- haga sinna og viröist einnig sáttur við aldurinn — haust- æfinnar — sbr. eftirfarandi niðurlag: Hjartað þolir og þreyr, þangað til óró vor deyr. Hjarta vort hlýtur að bresta hvers og eins, ljúfan min bezta. Af sænsku kvæðunum þykir mér fallegt kvæði sem heitir Ljósið: Hið bjarta ljós frá sólarupp komunni flæddi yfir skógarmúrinn I austri, fossaði inn á bæjarhlaðið, glitraði i hrimfrostinu og hverfðist við skynjun mina i sigursöng. Ég kann engin skil á Gustaf Larsson urhfram það sem i kverinu stendur og hef ekki að- stöðu til að bera saman þýðingu og frumtexta, en svo virðist sem þýöingin sé vel af hendi leyst. Af bókum Jó Helgasonhefur sent frá sér smásagnasafn: Steinar I brauö- inu. Skuggsjá, 128 siður. 1 bók- inni eru sjö sögur frá ýmsum sviðum þjóðlifsins, úr borg, sveit og bæ og eru allar sögurn- ar vel læsilegar, að minum smekk ber þó ein af, Kirkjugriö, i henni er áhrifamáttur frásagn- arinnar hvað mestur og tjáning beisk og skörp. Málfar höfund- ar er skemmtilega rikt og ber þess merki að hann er úr sveit og sveitin sem sögusvið honum sýnilega kær. Þorvaröur Helgason skrifar “ V Tveir ungir menn hafa tekið höndum saman og gefið út fjöl- ritaða bók mynda og ljóða: Geimtugg, ljóð eftir Jóhann Helgason, myndir eftir Pjetur Stefánsson, eigin útgáfa, 61 siöa. Titilinn má hugsanlega túlka á fleiri vegu en einn en viö lestur bókarinnar kemur manni helst i hug að margir textar hennar séu viðeigandi andleg tugga i geimum, helst undir morgun þegar langvarandi vima hefur vaidið þvi, að skop- skyn manna er mjög næmt og ó- gagnrýnið sbr.: Lifið er eins og appelsinu? marmelaði lekandi af vörubilspalli sleiktu’ða Fiestir textar bókarinnar virðast eiga rót sina i ofan- nefndu hugarástandi og það er þvi eðlilegt að mæla með henni til sliks brúks — og eru áreiðan- lega til óþarfari bækur. Myndir Pjeturs Stefánssonar virðast mér falla vel að efninu, sérstak- lega hafði ég gaman af mynd- inni með kvæðinu Ég, en það hljóðar svona: Ég vissi ekki neitt hvað um var að vera né hvað timanum leið bara beið eins og skreið. Annað fjölritað litið kver ber titilinn Kom eftir Arna Ibsen, Ljóð 1971—1973, myndir eftir Eirik Smith, eigin útgáfa, 47 siöur. Ljóðin i bókinni eru af ýmsu tagi, lengri frásagnir i ljóðformi, skoðanatjáning og lýsingar, margt efni gamal- kunnugt og tök ekki öll ferskleg. Mér virðist höfundur mætti leggja meiri rækt við skáld- skapinn og stefna að þvi að verða skirri og persónulegri. Eitt af bestu kvæðunum i bók- inni er Einn morgun: i morgunstillunni stend ég einn á götunni er nývöknuð sólin hjalar við"þögnina þá heyri ég óm af tali tveggja manna sem koma úr hliðargötu og ganga i átt frá mér ég greini ekki orðin en ómurinn lifir lengi i kyrrðinni meðan mennirnir fjarlægjast. Pelsar - hlý og falleg jólagjöf Fáeinir pelsar eftir. Nú er hver siðastur. Góöir greiðsluskilmálar. Opið í dag kl. l-10e.h. Pelsasalan Njálsgötu 14. Simi 20160.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.