Vísir - 23.12.1975, Side 24
(
Þriöjudagur 23. desember 1975. VISIR
Umsjón: Rafn Jónsson.
)
Stjörnu-
bíó:
Mafíósar
í morðham
Stjörnubló
Stone Killer
Bandarlsk. + +
Það er ekki hægt að
segja að maður komist í
jólaskap við að sjá jóla-
mynd Stjörnubíós.
Stone Killer er sann-
kölluð blóðsúpa með blý-
kúlum. Rétt einu sinni er
okkur boðið upp á að sjá
ameríska lögreglu
vernda ameríska borgara
gegn alls konar glæpalýð
sem veður uppi og kallar
sig mafíosos.
Þessi mynd er þó aö sumu
leyti svolitiö betri en aðrar slík-
ar, þótt hún gangi út i öfgar
annaö veifiö:. Hún byrjar á þvi
aö lögreglumanni er vikið úr
starfi fyrir aö drepa 17 ára
ungling en sá hafði brotist inn i
áfengisbúð og ógnaði lögregl-
unni með byssu.
Lögreglumaöurinn (Charles
Bronson) fer til kunningja slns i
Los Angeles og gerist lögreglu-
maður þar.
Brátt hittir hann afbrotamann
sem var eftirlýstur I New York,
og hann fær það hlutverk að
koma honum þangað. A leiöinni
segir glæpamaðurinn honum frá
þvi að verið sé að undirbúa
morð og vill öölast frelsi gegn
þvi aö láta i té upplýsingar. En
löggan vill enga samninga.
Þegar þeir koma til New York
er glæpamaðurinn myrtur á
flugvellinum. Þaö verður til
þess að lögreglumaöurinn fer að
rannsaka máliö og notar til þess
þær fátæklegu upplýsingar sem
glæpamaðurinn lét honum I té.
Aður en varir kemur i ljós að
uppgjör á brátt að verða milli
mafiufjölskyldna i Bandarikj-
unum, ein fjölskyldan ætlar að
hefna moröa sem framin voru
fyrir 42 árum!
Leiötogum f jölskyldnanna
tekst ekki að flýja örlög sin, en
lögreglan nær þó glæpamönnun-
um.
Þessi mynd hefur þann stóra
galla að atburðarásin er of
hröð, klippingar of tiðar, og svo
ótölulegur fjöldi manna kemur
við sögu að það er varla fyrr en
undir lokin sem maður fær ein-
hvern botn I allt saman.
I erlendum blööum hefur
verið sagt aö Guöfaðirinn fölni i
samanburði við þessa kvik-
mynd, en ég held að þaö sé oflof.
Hins vegar má segja að hún sé
sæmilegasti reyfari.
Háskólabíó
Tregasöngur
Laugarásbíó:
HUNGRAÐI
HÁKARLINN
Laugarásbió
Ókindin
Bandarisk. + + + +
Þessi kvikmynd er
tækniundur og sem tækni-
undur fær hún fjórar
stjörnur. Auk þess er hún
ansi spennaridi og ógeðs-
leg eins og til er ætlast.
Hún er gerð eftir tiltölulega
nýrri kvikmyndagerðarformúlu
sem nýtur mikilla vinsælda i
dag i Bandarikjunum, þ.e. að
sýna fram á það sem gæti gerst
en hefur aldrei gerst.
1 þessu tilfelli er það glor-
hungraður risahákarl sem legg-
ur sér til munns nokkra baö-
strandargesti, sem komnir eru
til að njóta sólar og sumars.
Myndin hefst á þvi að ung
stúlka leggst til sunds og ekkert
spyrst til hennar fyrr en daginn
eftir.að hún finnst öll i tætlum á
ströndinni. Læknirinn i þorpinu
sem myndin gerist i, heldur þvi
fyrst fram aö hákarl hafi étið
hana, en þegar bæjarstjórinn
sem á mikilla hagsmuna að
gæta i rekstri sumarhótela,
hefur blandað sér i málið,
breytir læknirinn framburði
sinum og segir að stúlkan hafi
lent i skipsskrúfu.
Siðan er drengureinn étinn af
hákarlinum og ofsahræösla
gripur um sig, en það er ekki
fyrr en sá þriöji hefur verið ét-
inn að bæjarstjórinn gefur sig,
og leitin að hákarlinum hefst.
Þá gerist myndin mjög spenn-
andi og helst sú spenna allt til
enda.
Okindin eða Jaws eins og hún
heitirá frummálinu, er sú mynd
þar sem þessi nýja gerð hryll-
ings-tæknimynda nær hámarki,
og fróöir menn segja að mynd
eins og Earthquake sé mun lak-
ari, en hún verður sýnd i
Laugarásbiói á næsta ári.
Billie Holiday's
Háskóiabió
Lady Sings The Blues.
Bandarisk + + +
Af þeim myndum sem
fjallað er um á siðunni i
dag kemst maður næst
þvi að fara i jólaskap við
að sjá þessa mynd, en þó
er hugurinn tregabland-
inn þegar henni lýkur.
Diana Ross lifir sig inn I hlut-
verk Billie Holidays og gerir það
meistaralega vel. Hún er ekki að-
eins góð söngkona, heldur lika
góð leikkona. Allt frá þvi að koma
fram sem litil, saklaus sveita-
stúlka og til þess að verða for-
fallinn fikniefnaneytandi heldur
hún huga manns föngnum með
leik sjnum og söng.
Höfuðgalli þessarar myndar er
sá, að hún spannar of langt tima-
bil, alla ævi Hollidays, og mjög
fljótt er farið yfir sögu á stundum.
bað er ekki til neins að ætla sér
að rekja þráð myndarinnar hér,
þvi hún á allt sitt undir tónlistinni
og raunverulega verða menn að
leggja sig vel eftir textanum til að
njóta myndarinnar sem best og er
það miður að lagatextar skyldu
ekki vera þýddir.
Það kemur fram i þessari mynd
að fiknilyfjavandamálið er ekki
nýtt undir sólinni.
1 myndinni koma fram þær
hættur sem fikniefnaneyslu eru
samfara og þeim vandamálum
sem Holiday átti við að striða
vegna fikniefnaneyslunnar. Eftir
að hafa lent einu sinni i fangelsi
vegna slikrar neyslu, missti hún
leyfi sitt til skemmtanahalds i
New York. Þá hófst önnur för
hennar um landið til að vinna
hylli manna, svo hún gæti
skemmt I Carnegie Hall með söng
sinum, en ekki var efast um að
hún fengi leyfi sitt aftur eftir að
hafa sigrað hjörtu áheyrenda þar.
Hins vegar varð á sú raunin að
henni var synjað leyfisins, og
ieiddi það til aukinnar fikniefna-
neyslu, uns hún ienti aftur i
fangelsi. Þar lést hún svo 44 ára
að aldri.
Diana Ross og Richard Pryor I
hlutverkum sinum I Lady Sings
The Blues. Richard Pryor er stór-
kostlegur I hlutverki „piano-
mannsins”.
Opið 2. dag jóla
Hótíðarmatseðill