Vísir - 23.12.1975, Side 32
Getrauna-
úrslitum
frestað
ÞriÓjudagur 23. desember 1975.
JÓLA
VÍSIR
Fjölmargir áskrifendur
Visis úti á landsbyggöinni
hafa hringt og kvartað yfir aö
þeir myndu ekki ná aö koma
lausnum jólagetraunarinnar
til blaðsins fyrir tilsettan
tima. Þaö hcfur þvi veriö
ákveöiö að fresta þvi aö
draga, þartil mánudaginn 29.
desember næstkomandi. Þá
ættu allir aö hafa haft tima til
að skila af sér. —ÓT.
Kona slasaðist
í órekstri
Kona slasaöist i árekstri, sem
varö við Höföabakka rétt viö
Vesturlandsveg i gærkvöldi.
Areksturinn varð á áttunda
timanum. ökumaður missti
stjórn á bil sinum vegna hálku og
rakst um leið á annan.
Konan var ökumaður i öðrum
bilnum og slas; ðist hún. Aðra
sakaði ekki. Konan mun hafa
skorist á höfði.
— EA
32 árekstrar
Mikiö var um árekstra i
Heykjavik I gær. Fram til kl.
20 i gærkvöldi höföu 32
árekstrar verið bókaöir hjá
lögreglunni. 1 flestum tilfell-
um voru þeir smávægilegir og
lítil meiðsl á fólki.
Slæm skilyrði voru til
aksturs i gærdag, mikil hálka
samfara mikilli umferð.
-VS.
Margir í sömu
árekstrunum og
jafnvel mann-
lausir bílar
Talsvert var um árekstra i
Kópavogi i gær. t flestum tilvik-
um lentu fleiri en tveir bilar sam-
an, og i tvcimur tilvikum var um
mannlausa bila aö ræöa.
Einn árekstur varð á Auð-
brekku, rétt við Nýbýlaveginn.
Þar runnu þrir bilar stjómlaust
og lentu saman, enda mjög mikil
hálka.
Þá varð annar við apótekið i
Kópavogi. Þar fór einn á tvo
mannlausa bila, sem höfðu staðið
kyrrir. Tveir árekstrar urðu i við-
bót. I báöum tilfellunum var um
tvo blla að ræða, en i annað skipt-
ið var ekið á mannlausan, kyrr-
stæðan bil.
Engin slys urðu á mönnum, en
bilarnir skemmdust talsvert.
Hálkan var mjög mikil, og eins og
sjá má af þessu, var oft erfitt að
hafa stjórn á bilunum.
— EA
Systurnar
vilja selja
Landakot
„Það er rétt, systurnar
vilja selja Landakot. Málið
er í athugun hjá rikis-
stjórninni og hefur verið
rætt þar, en engar
ákvarðanir hafa verið
teknar og þess er ekki að
vænta fyrir áramót,"
sagði Matthías Bjarnason,
heilbrigðisráðherra, i
viðtali við Vísi í morgun.
Þessi sala á Landakoti kom
fyrst til umræðu i haust og þá
voru þeir Ellert B. Schram og
Oddur Ólafsson skipaðir af hálfu
fjármála- og heilbrigðisráðuneyt-
anna til að ræða við eigendur og
athuga hugsanleg kaup rikisins.
Greinagerð þeirra er nú til at-
hugunar hjá rikisstjórn. Astæða
þess að systurnar vilja selja
Landakot er sögð sú, að þær eru
nú orðnar fáar og reksturinn
þeim þvi erfiður.
-EB.
Hregiö var i blaöburöar-
happdrætti Vísis, mánudaginn
22. desember. Þeir heppnu sem
hlutu vinning voru Helga
Hallgrimsdóttir, sem hlaut
Alfa-útvarp i þriðja vinning.
Númer 2, feröasegulband,
fékk Jón Gunnlaugsson, og
númer 1, tvö labbrabb-tæki fóru
til Hveragerðis, til Þórðar
Jóhannssonar.
Allir verölaunagripirnir eru
frá Radióverslun Þorsteins og
Vilbergs, á horni Laugavegar
og Barónsstigs.
A myndinni er Einar
Vilhjálmsson (fyrirmiðju) sem
afhenti verðlaunin. Hann heldur
á labbrabb-tækjum Þórðar, sem
komst ekki i bæinn nógu
snemma til að vera við af-
hendinguna. Helga og Jón eru
með honum með sina
verðlaunagripi.
^Jólaferðir strœtisvagna í
iKópavog og Hafnarfjörð
Kópavogur:
Ekið verður á Þorláksmessu allan daginn á 12. min. fresti. Siðasta ferð
frá Hlemmi kl.00:24,frá skiptistöð til Reykjavikur 00:17. Á aðfangadag
verða ferðir á 12 min. fresti. Siðasta ferð frá Hlemmi kl. 17:00,frá
skiptistöð til Reykjavikur kl. 16:53.
Akstur hefst kl. 14 á jóladag og ekið á 20. min. fresti til kl. 00:20.
A annan i jólum hefst akstur kl. 10.00og ekið á 20 min. fresti til kl. 00:20.
Hafnarfjörður:
A Þorláksmessu verða ferðir eins og venjulega. Siðasta ferð á
aðfangadag verður kl. 17 frá Reykjavik, og frá Hafnarfirði kl. 17:30.
Ekið verður á 30 min. fresti fram til kl. 13:00 eftir það á 20 min. fresti.
Ferðir hefjast á jóladag kl. 14:00 og verður ekið til kl. 00:30. Ekið
verður á 20min. fresti til kl. 20:00, en eftir þaðá 30min. fresti.
Hefur ekki fyrr
fallið úr hillum
Fjölskyldan á Ærlækjarseli — henni hefur ekki orðiö svefnsamt
siöan jaröskjálftarnir byrjuöu. F.v. Grimur örn, Grimur Jónsson,
Bernharð, Erla og Arnþór. Ljósm. VIsis: BG.
Vísir í heimsókn á aðal-
skjálftasvœðinu í Kelduhverfi:
Sofa lítið fyrir
iarðskjálftunum
„Ástandið má ekki versna
mikið. Þá veröum viö aö fara
eitthvaö burtu, a.m.k. til að
sofa”, var samróma álit fjöl-
skyldunnar á Ærlækjarseli á
Austursandi i Axafiröi, þegar
Visir heimsótti bæinn I gærdag.
Jarðskjálftakippirnir i Keldu-
hverfi hafa veriö einna sterk-
astir á Austursandi, sem er
austan Jökulsár á Fjöllum.
Þegar Visir kom á Ærlækjar-
sel i gær, var búið að taka alla
glermuni saman. Blóm höfðu
vafist ofan af stöng, og bækur og
munir I hillum kastastúr þeim, i
verstu kippunum.
„Þetta er allt i lagi á daginn,
en verst þegar maður er að
fara að sofa og reyna að komast
i ró”, sagði húsfreyjan, Erla
Bemharðsdóttir. Hún sagðist
litið hafa getað sofið undan-
farnar nætur, og vaknað við
hvern skjálfta.
Grimur Jónsson bóndi sagðist
hafa gréint nokkrar litlar
sprungur I pússningunni utan á
húsinu, sem ekki hefðu verið
þar áður.
Synirnir á bænum þeir Grim
ur Grimsson og Arnþór, sögðu
að utan frá að sjá sæjust húsin
ganga i bylgjum þegar stærstu
kippirnir kæmu. „Bilarnir
hoppa eins og á holóttum vegi”,
sögðu þeir.
Til öryggis eru allar ciyr ,
þar á meðal útidyi: hafðar opnar
á næturnar á bæjunum á
Austursandi. Ef hús skyldu
skekkjastaf völdum skjálfta er
alltaf hætta á að hurðir festist i
umbúnaði sinum.
Yngsti sonurinn á heimilinu,
Bemharð, hefur tekið skjálftun-
um fremur rólega. „En siðustu
nótt veinaði hann mikið upp úr
svefninum,” sagði Erla.
Igær voru engar talstöðvar
komnarábæinaá Austur-
sandi. -ÓH.
„Skjálftarnir hafa veriö harö-
ir margir h\]erjir,en áöur hafa
hlutir ekki dottiö úr hillum”,
sagöi Lilja Guölaugsdóttir á
Framnesi I Kelduhverfi, þegar
blaöamenn Visis litu viö hjá
henni stuttu eftir stóra skjálft-
ann sem varö þar um klukkan
10.30 i gærmorgun. Sá skjálfti
mæidist 4,3 stig á Richters-
kvarða.
1 stofunni hjá Lilju höfðu
hljómplötur og glermunir fallið
niður á gólf.
Lilja sagði að önnur dóttir
hennar, sem er 6 ára, væri mjög
hrædd vegna skjálftanna. Hin,
sem er 3 ára, áttar sig ekki eins
vel á hvað um er að vera.
Tengdaforeldrar Lilju, sem
búa einnig á Framnesi, eru um
áttrætt. En þau hafa aldrei áður
fundið slika jarðskjálfta i
Kelduhverfi, þótt þau hafi búið
þar alla sina tið.
— ÓH
Lilja i stofunni i Framnesi þar
sem hlutir féllu úr hillum i
versta jarðskjálftakippnum kl.
10.30 i gærmorgun. Ljósm.
VIsis: BG.