Lesbók Morgunblaðsins - 24.10.1926, Blaðsíða 8
8
LESBÓK MOBOUNBLAÐSLNS
við bvo búið.. Menn hafa álitið,
að uppreisn Jóns Arasonar fregn
Kristjáni III. væri óðs manns
æði, en það er auðsjeð, að J, 1
fylgist svo vel jneð ollum horfum
í Evrópu, að hann sjer, að hjer
er tækifæri, sem sjaldan byðst,
til að reisa rönd við lögleysum
Kristjáns III. I’að eru hyggindi
og vit, en ekki framhleypni, sem
ræður mestu hjá honuiu. Hann
viss,i betur hvað hann fór en þeir
flestir, sem hafa skrifað um hann
— af litlu viti.
Höf. segir, að fjör og líf fær-
ist í frásögn manna, er þeir koma
að Jóni Arasyni. Jafuvel Björn
á Skarðsá hefur sig til flugs, er
hann segir frá honum. Allir urðu
skáld, er þeir ortu um Jónas Hall"
grímsson, ]>ótt ella væru leirskála,
segir höf., og eius er um sögir
menn, er segja frá Jóni Arasyni.
,.Hinn síðasti ísleudingur“ som
Jón Sigurðsson kallaði hann, er
svo glæsilegur og þjóðlegur í allri
framkomu og baráttu sinni, að
íslendingar verða búnir að týivi
])jóðerni sínu, þegar hann fyrnist.
Hyggindamaður var hann meiri
en menn hafa gert sjer í hug'
arlund.
I»á er þessu stórvirki, allt ið
•■1000 bls. (2871 bls.), lokið. Allir,
sem rita um 16. og 17. öld á ís-
landi, vei-ða að gauga í srniðju
lijá höf., hafa enda gert það
óspart áður en þetta mikla rit kom
út. Murray, höf. liinnar miklu
Oxford orðabókar, sagði mjer, að
hann liefði spurt Guðbrand Vig*
fússon um t. d. livað gamalt orðið
k a p a 11 væri í íslensku, hefði
Guðbrandur þá, viðstöðulaust
sagt livar, á hverri síðu, orðið
kom fyrir, bæði í óprentuðum
handritum og prentuðum bókum.
Höf. hefir ekki þetta óþrjótanli
minni Guðbrands, sem P. A.
Muneli hafði og sem dr. Hannes
Þorsteinsson, skjalavörður, hefir,
en honum er manna best lagið aö
kryfja menn og skjöl til mergjar,
varpa óvæntri birtu inn í hugskot
manna, lýsa inn í ýms skúmask)f,
ýmsa afkima, sem öðrum dettur
ekki í hug að leita.
Það er sómi fyrir háskóla ís-
laud, sómi i'yiúr þjóðina, að eig.i
slíkan mann og slíka bók. Saga
íslands er enu ekki skrifuð, og
vonandi er, að hann fylli það
skarð. Söguþjóðiii þarf að eiga
sögu sína öðruvísi en í smábút'
nm og ágripum.
Jón Stefánsson.
24. okt. ’Ú6
Heilabrot.
Verðlaunaþraut.
Hve mörg orð er hægt að sebra
saman úr þessum sex stöfum?
Málið virðist ofur auðvelt og muni
engin fyíirstaða vera, að tína öll
þau orð, gem hægt er að setja
saman úr þessum sex stöfum. Þó
mun svo reynast, að mönnum
gangi það misjafnlega. En sá,
sem finnur flest íslensk orð, sem
hægt er að setja saman úr þessum
stöfuni, og skilar listanum vfir
]>au á skrifstofu Morgunblaðsins
fyrir miðvikudagsmorgun, fær 1 )
krónur í verðlaun. Ef fleiri pu
einu skila jafn mörgum orðum
verður dregið um verðlaunin
Þess skal getið, að orðin mega
vera hvort heldur ér með tveim
eða fleiri stöfum: „at“, „als“,
„salt“, kemur til greina, en ckki
„salta“, því þar kemur „a“ fyrir
tvisvar. Telja má alskonar orð*
myndanir, sem koma fyrir í mæltu
máli, í öllum íollum, öllum beyg-
ingum og ölltim liáttum, en eigi
má telja orð með á eða o.
Hiegðarleikur er á nokkrum.
mínútum að finna um 30 orð, en
úr því fara þau að verða vand'
fundin, * þó fjöhnörg sjeu i)á
ófundin.
Þeir, sem skrifa ráðuingar,
skrifi orðafjöldann neðau við
listann og greinilegt nafn og
heim.il isfaug.
Ilvorki erlend orð nje skakkar
orðmyndir eru teknar til greina,
en tel ja má orð jafnt úr fornmáli,
sem nútíðarmáli. Sje um latmæli
eða. amböguleg orð að ræða, sker
orðabók Sigfúsar úr, hvort telja
megi þau með. Orð, sem þar eru
koma til greina.
Morgunkoma.
Sólin roðar tinda, sundin blika fögur,
særinn kveður draumblandin vögguljóð.
Blærinn ylhýr þylur við bylgjurnar sögur,
er borist Jiafa niður í tímans sjóð.
Dagurinn er risinn úr rekkju eftir blundinn,
rósakrónur blika, og alt er dauðahljótt,
i
aldrei gat jeg haldið svo fagran endurfuudinn
við fyrsta sólargeislann, eftir dimma nótt.
Með biðjandi augum, sem barn jeg krýp þjer, dagur,
])ú brosir á móti og veist mína þrá:
Jeg vildi. að sjerhver íuorgunn væri svoua fagur,
sem vinum mínum auðuast að la að sjá.
Sólskin er í dölum, sundin blika fögur,
særinn kveður þróttmikil vökuljóð.
Nú koma dagsins raunir, nú renna nýjar sögjir
í rökkurlitað djúpið í tímans sjóð.
Kristján Guðlaugssoii-
fs;l feldtí fpr&n tsm ft>Ja li.f.