Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1926, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 07.11.1926, Page 3
LlúSBÓK MOttG-UNBLAÐSlNJá 3 1 nóv. ’26. Allir vita, að um alt Suður* og Vesturland, blanda menn. sem ekki eru nœgilega skriftlærðir, saman p, t, k og b, d, g. Þetta kemur til af því, að menn í þess- um landsblutum kunua ekki leng- ur að lieyra eða gera mun á b t b í b í og p í sJ í p a. — Hlið- stœður eru nógar í öðrum mál- um, sama veg hefir p, t, k, farið í dönsku t. d. Jeg veit ekki til, að þessi breyting sje eldri en frá öldinni sem leið, en það er alt órannsakað mál. Svo mikið er víst, að skólarnir virðast eigi liafa unnið henni neinn verulegan geíg. Þá kannast allir við norðlenska k'ið í hvalur—kvalur, sem algengt er og á Vesturlandi og í Reykja- vík. Það er víst heldur ekki mjög gamalt, en þótt það sje ekki nærri eins útbreitt og linu hljóðm (b, d, g) sunnlensku, þá fer þvi fjarri, að það virðist vera á und- anhaldi. Þé skal jeg koma að „Nesjamái* inu“ eða ,,Sunnlenskunni“ svo- kölluðu, sem er í því fólgin, að langt i og u verður að e og ö. Mikið hefir verið um haua rætt og jafnvel ritað, og í barnaskói- unum muu mörg stundin fara til þess að kenna börnunum að skrifa a. m. k. rjett lokað og opið i (e) eins og sumir kennara orða þetta. En hvað skeður? Á þessum skólatímxnn fer breytingin, svo ófögur sem öllum þykir hún, sig* urför yfir stór svæði af landinu. Til dæmis má telja að hún sje rílvjandi frá Breiðamerkursandi og alt austur á Langanesstrandir. Á Suðurnesjum hafa menn fyrst orðið hennar varir eins og nafn- ið bendir til, og algeng er hún þar enn og allvíða sennilega á Vesturlandi.En málið er því miður lítt rannsakað enn sem komið er. — Svo mikið er víst, að það er ekki þvl að heilsa, að hún láti sjej. nægja að leggja undir sig sauðsvartan almúgann, svo að hægt væri að skipa henni yst á bekk og ka'lla hana skrílmél, lieldur rekur hún upp höfuðið á hinuin ólíklegustu stöðum meðal hæst- launuðu og mikilsvirtustu embætt' ismanna landsins. Jeg gæti best ** trúað, að hennar þyrfti ekki lengi að leita á þingbekkjunum, nje heídur meðal klerka og ktoni* manna Landsins. Og barnakennara hefi jeg þekt, sem ekki tóku fram börnmmm, sem þeir áttu að kenna í þessu efni. En hvernig getur staðið á því, að jafnvel mentaðir, skynsamir menn, sem hafa lært að gera rjetp an muu á þessu í riti, skuli ekki veuja sigafþessum óvana, úr því að það hefir nú einu sinni komist inn í almenningsálitið, að það sje ósæmileg og ljót meðferð á tung- unni? Ástæðan er ofur einföld. Hún er sú, að þeir heyra eng' an mun á hljóðuuum. Þeir heyra ekki nema með nákvæmnm saman" burði, er þeir ekki geta gert sjálf' ir, að þeir segja Veðey í stað Við- evjar. Vjer, sem heyrum mnninn, fordæmum vitleysurnar, og þeir, sem ekti heyra hann, gera það líka, en fá ekki við gert. — En það er alls ekki víst, að oss, sem heyrum þetta rjettilega, farist að lá hinum, því ekki mun örgravd, að í máli voru sje nú að gerast breytingar, sem enginn íslending* ur tekur eftir og allir stefna því jafn grandalaust að. Að minsta kosti þekki jeg engan, sein ekki myndi óhikað svara, ef spurður væri að o í koma og kostur væri sama hljóð. Munurinu er ekki ýkja mikill, en margir út* lendingar liafa tekið eftir honum. Þeir segja, að o í k o m a sje tvíhljóð. ■— Upp úr Sturlunga- öldinni gerðist nákvæmlega sama fyrirbrigðið: fyrir þann tíma gerðu menn lengdarmun aðeius, en eðlismun engan á o og 6, en þá fóru hljóðin að ólíkjast og nú er munurinn öllum auðhejrrður. Og vjer liöfum aðra hliðstæðu ekki ællfjarri. í færeysku hafa öll löug sjerhljóð orðið að tvíhljóð- um. — íslendingar eru vanir að líta niður á færeysku og nýnorsku eins og afbökuð skrílmál, þótt bæði þessi mél standi nær uor* rænu og þar með íslensku en nokkur önnur mál á Norðurlönd- um, og þótt þeir þess vegna gætu fleira lært af þeim en flestum öðrum tungum. Hjer é því heima viðvöruniu: „Sá, sem þykist standa, gæti að sjer, að hann ekki falli.“ Ennþá er þessi tvíhljóðamyudun í ís- lensku á fyrsta byrjunarstigi. En vwði alt látíð rska á reiðanum, er ekki óhugsandi, heldur jafn vel sennilegt að þeir tímar geti komið, að barnakeunarar vorir þurfi eigi aðeins að venja börnin af að skrifa v e ð eða v i e ð í stað við, heldur einnig af því að skrifa v ú o ð i í stað v 0 ð i o. s. frv. Þá ferst okkur ekki lengur að lá Færeyingum. — Þá er euu eitt spor stigið frá fornmálinu, en djúpið milli bókmáls og talmáls aukið að mun. VARNIR — En livað verður þá gert til varnar tungunni, munu menn spyrja ? — Gegu tökuorðunum verður að tefla fram hagyrðiuguin, og það hefir þegar verið gert, eins og kunnugt er, nú síðast haía þeir liaft verslunarmálið til með- ferðar. En gegn hljóðbreytingun* um verður að ýta kennurum, sem sjálfir kunna rjetta grein hljóðanna. og hafa það vald i> þeim, að þeir geti kent börnutium þau rjett. Að vísu er mjer það fyllilega ljóst, að jafn vel þótt kennarar væri ágætlega liæfir, töluðu sjálfir hreint og skilmerki' lega og væru slyngir að koma börnunura í skilning um það, sem þeir vildu kenna þeim, þá er alis ekki víst að áhrif þeirra megnuðu að sigra áhrif lieimilisins, eða götunnar, eða annars umhverfis barnsius. Það er ekkert undarlegra en hitt, að vel má svo fara, að almenningur líti ekki við ágætu uýyrði, heldur taki fram yfir það útlenda orðið, sem einu sinni er ltomið í vana. Þrátt fyrir það virð- ist mjer þetta vera eini færi veg- urinn. Og liann hefir auðvitað verið farinn. — En mjög mikil* vægt atriði hefir hingað til verið vanrækt í undirbúningsmentnn kennaranna. Þeir hafa hingað til ekki fengið hina minstu leiðbein* ingu til þess að þekkja hljóð méls- ins og né valdi á þeim. Það, sem gengið hefir undir nafninu hl.jóð- fræði í kenslubókum vorum hefir naumast verið annað en reglur um menjar ævagamalla hljóð* breytinga, sem fyrir löngu eru um garð gengnar í málinu, svo sem hljóðvörp og hljóðskifti. Ura myndun hljóða hefir aldrei neitt verið kent, nje heldur um það, hvaða hljóð kwmu fyrir í »útíð*

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.