Lesbók Morgunblaðsins - 05.08.1928, Síða 4
244
LESBÓK MORÖTJNBLAÐSINS
sinn á þessu móti, og mótið sett.
Mótstjórinn mælti nokkur orð'.
Las reglur og dagskrá mótsins, og
bauð alla velkomna, einkum hina
tvö dönsku skáta er voru gestir á
þessu móti. — Var nú snæddur
morgunverður :ha£ragrautur,mjólk
og brauð. Til hádegis vai- tíminn
notaður til að hyggja betur að
tjöldunum. — Þá var dagverður á
gras-„borð“ borinn: lax og ávaxta
grautur. — Seinni hluta dagsins
var varið til leika í skóginum og
flötunum. Kl. 7 var kveldverður
og kl. 3 fáninn dreginn niður,
með söng og fánakveðju. — A
hverju kveldi var kyntur varðeld-
ur að skátasið. Settust þá allir
kringum eldinn og sungu, sögðu
sögur, kváðust á, sýndu leika og
Leira. — Þá var og gefið út smá
írjettablað fyrir mótið, og lesið
við eldana. Áður en gengið var til
avílu iásu allir saman „Faðir vor‘ ‘.
Á þriðjudaginn var veðrið ekki
síðra en á mánudaginn: þurt og
hlýtt. „Að geðjast öllum er guði
um megn — þegar einn vill sól-
skin vill annar regn“. Svo var
þarna. Okkur skátum þótti vænt
um þurkinn og hlýjuna, en bænd-
urnir óskuðu regns vegna gras-
sprettunnar.
Fyrri hluta þessa dags var varið
líkt og deginum áður, en eftir há-
degið' gengu allir á Laugardals-
fjall — þaðan er útsýni ágætt, og
var því fjallaferðin hin fróðleg-
asta. — Varðeldur var auðvitað
um kvöldið eins og öll önnur
kvöld. Þetta kvöld skrifuðu allir
skátarnir heim til foreldra sinna
til að segja þeiin frá útivist sinni.
Á miðvikudaginn svifu þungbú-
in ský yfir dalnum, en um dag-
málabilið ljetti þó til og var besta
veður allan daginn.
Þennan dag var ákveðið að
halda kyrru fyrir 1 skóginum, því
næstu 2 dögum skyldi einungis
varið til ferðalaga.
Nú var fimtudagurinn kominn.
— Skátarnir skiftust í flokka til
ferðalaga. — Flestir voru í flokki
þeim, er fara skyldi á hestum til
Geysis og Gullfoss. Einn skátinn
fór með G hesta til Þingvalla, því
þangað komu 5 skátar um mörg-
uninn frá Reykjavík. Riðu þeir
síðan inn á afrjettir, að Skjald-
breið, Hlöðuvöllum og Hellisskarð
ok komu niður í austurhluta Laug-
ardalsins. Vöru þeir 2 daga í þess-
ari skemtilegu ferð, en dvöldu
síðan í dalnum það sem eftir var
mótsins.- — Fimm skátar gengu
skemstu leið úr dalnum að Hlöðu-
Að ofan: Fánaltveðja. Að neðan:
Skátabúðir í Laugardal.
felli. Fóru þeir upp á fjallið um
kvöldið, og voru á tindi þess um
miðnætti. — Utsýnið var stórkost-
legt og h-rífandi. — Það sem eftir
var nætur sváfu þeir í kofanum
sem er við rætur fjallsins. Ðaginn
eftir gengu þeir svo á Skjaldbreið,
þaðan um Klukkuskarð og til
skátabúðanna. Nágrannabændun-
um þótti þetta hin frækilegasta
för, því ekki sögðust þeir vita til
að gengið hefði verið Hlöðufell
liina. síðari áratugi..
Skátarnir, sem riðu til Geysis
og Gullfoss voru ánægðir mjög
yfir ferðinni. Enginn þeirra hafði
áður komið austur þar, nema sá,
sem stjórnaði förinni. — Á föstu-
dagskvöld voru allir komnir aftur
heilu og höldnu heim. — Veðrið
var sæmilegt þessa 2 daga.
Við vöknuðum eins og vant var
kl. 7 á laugardagsmorgun. Var þá
besta veður, sem hjelst allan dag-
inn. Þetta var síðasti dagur móts-
ins, og fanst okkur vikan hafa
liðið alt of fljótt. — Því, þótt gott
væri að koma heirn, var sárt að
skilja svo fljótt við fjelagana,
skóginn og alt, sem orðið var
kunnugt og kært.
Það var ekkert farið frá þenn-
an dag, en ýmsar æfingar og
leikar haldnir í nágrenninu.
Við höfðum látið það boð út
ganga meðal bændafólksins í ná-
grenninu að við æsktum þess að
það kæmi til okkar þetta kvöld,
til þess að við gætum kynst því
betur og það okkur og fjelags-
skapnum.
Þessu var vel tekið, því um 70
manns, víðsvegar úr nágrenninu
lcomu og voru hjá okkur frá kl.
8 og fram undir miðnætti. — Við
byrjuðum á að sýna gestunum
tjaldbúðirnar og útbúnað okkar.
Síðan fórum við í handknattleik
a flötunum, og tóku þátt í honum
nokkrir sveitapiltar. Þá sýndum
við þeim ýmsar íþróttir okkar,
svo sem: samtöl með fiöggum,
„Hjálp í viðlögum“ og íleira. —
Að því loknu kyntum við varðeld.
Settust allir kringum bálið.— Þar
var skemtilegur hópur samankom-
inn: kvenfólk, krakkar og karl-
menn úr sveitinni og' kátir kaup-
staðardrengir. Mótstjórinn skýrði
með nokkrum orðum frá skáta-
hreyfingunni og tilgangi hennar.
— Þá sýndu skátarnir smá gaman-
leik, sungu, spiluðu og 2 skátar
kváðust á. — Gestirnir tóku oft
undir sönginn og fylgdust vel með.
Þegar liðið var á kvöldið drukku
allir kaffi og borðuðu pönnukökur
með, sem skátarnir höfðu bakað
þá um daginn. Eftir kaffið var
enn sungið og rabbað saman. Tveir
bændur úr hjeraðinu töluðu. Páll
bóndi á Hjálmstöðum, vottaði
gleði sína yfir komu skátanna í
skóginn, og sagði meðal annars,
ao hann vænti þess að mót þetta
yrði traustur hlekkur í keðju
þeirri er tengja ætti saman sveita-
og kaupstaðarbúa.
Böðvar bóndi að Laugavatni,
kvað það með því fegursta er
hann hefði sjeð er hann leit upp í
skógarhlíðina og sá ísl. fánann
blakta yfir tjöldunum og kaup-
staðardrengjunum, sem flúið höfðu
i faðm birkiskógarins, í sumarleyfi