Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Side 2
306 j LESBÓK MORGUNBLABSINS ið langt fyrir neðan okkur, milli fjallanna. Á þessum hæð.um vinna Zíonist- arnir baki brotnu. Jarðvegurinn er ágætur, og kornið er flutt heim, ekki á úlföldum beldur á nýjum og góðum vögnum. Hjer sjást alls staðar nýbygð timburhús, og þeg- ar nálgast bæinn Tíberías fara að koma í ljós glæsileg íbúðarhús. 1 fornöld var þjettskipað bæjum umhverfis Genesaretvatnið. Bn nú er Tíberías eina borgin hjer. Zíon- istarnir hafa sest hjer að, og borg- in á því í vændum blómaskeið. Hún hefir verið til síðan á dög- um Jesú, en kemur lítið við sögu hans eða rannsóknirnar út af henni. Heródes Antipas ljet reisa borg þessa þegar Jesús var í æsku og ljet hana heita eftir Tíberíusi keisara. Þar voru reist stórhýsi, leikhús, veðreiðasvæði, konungs- höll, og alt var þetta útlent og hellenst og hatað af öllum sönn- um Gyðingum. Líklega liefir Jesús aldrei stigið fæti í þennan heiðna bæ. Konungurinn sat þar, trúlaus og gálaus og sat um líf Jesú (Lúk. 13, 31). Nú koma allir ferðamenn hing- að. Hjer standa þeir um stund og virða fyrir sjer Genesaretvatnið', sem er svo oft nefnt í sögu Jesú og frumkristninnar. Jeg þarf að komast til norður- strandarinnar. Þar er að vísu eng- in bygð, en Bedúínar og eiturnöðr- ur hafast þar við. En þar lá í forn- öld bærinn Kapernaum „eigin borg Jesú.“ Þar áttu þeir heima Pjetur og Andreas; þar kallaði ha»ö’ fyrstu lærisveinana; þar var ríki hans stofnað. Jeg er því ekki í rónni í Tíberías. Húsin eru óhrein og hitinn er kæf- andi eins og við Dauðahafið. Jeg mæni löngunaraugum yfir á norð- urbakka vatnsins. Það er dauða- kyrt og jeg fer að semja við nokkra sjómenn um flutning norð- uryfir ef leið'i komi. Þegar kom fram á daginn rann á gola, og jeg stje í bát ásamt ferðamanni frá Ameríku, sem lang- aði til að komast norðuryfir líka. Tveir sjómenn voru í bátnum og stýrðu þeir honum norður á vatnið. . Það var undarlegt að sitja nú á þessum sömu öldum, sem svo oft höfðu borið Jesú. Ameríku- maðurinn var guðhræddur skrif- stofumaður frá San Praneiseo, og sama tilfinning greip hann. í mörg ár hafði hann dregið saman skild- inga til þessarar ferðar. Nú dró -hann litla biblíu upp úr vasa sín- um og bað mig að benda sjer á stað, sem vel ætti við þessa báts- ferð. Jeg benti honum á söguna um það, þegar vindhviðan reis en Jesús lá og svaf í skutnum svo að lærisveinarnir urðu að vekja hann í ofboði og biðja hann að bjarga þeim. „En samt á þessi saga eklci við að öllu leyti“, sagði jeg. „Nei, sem betur fer,“ svaraði Ameríku- maðurinn, „jeg kæri mig ekki um að lenda í þesskonar æfintýri.“ En sagan átti betur við en okk- ur grunaði.Þegar við vorum komn- ir miðja vegu, skall á útnorðan stormur svo að báturinn lá á keipum. Báturinn var sýnilega út- búinn alveg eins og á biblíutímun- um — alt þess háttar helst hjer óbreytt. Hann var með einu segli, allstóru og föstu, svo að því verð- ur ekki haggað, og þegar bylgj- urnar skullu á lagðist báturinn og saup á, svo að annar maðurinn hafði nóg að gera að ausa. Mastrið er aðeins styrkt með einum stag svo að ómögulegt má heita að venda. Það er því ekki um neitt annað að gera en að halda í horf- inu og að reyna að komast í hije það, sem er undir norðurlandinu. Báturinn brunar áfram því að seglið er altof stórt og eftir ldukkutíma sigling förum við að komast í var. Vatnið er ekki nema 21. km. á lengd og 12 km. á breidd, og jeg hefi aldrei fyr en nú getað hugsað mjer að verulegar öldur gæti myndast á því.En vindar eru fljót- ir að skella á hjer, og bátarnir eru ekki útbúnir þannig, að þeir geti dregið saman segl eða ekið þeim til. Ef þeir lenda í slæmu vcrða þeir að láta „slag standa.“ En það vill til, að óhætt er að lcnda nálega alstaðar. Nú rennum við að norðurströnd- inni. ,Irmi!‘ ,varpaðu akkerinu!‘ Við erum í óða önn að ausa bát- inn til þess að komast sem næst bakkanum. Hann er hálfur af vatni. Auk þess köstum við nokkr- um kjölfestu-steinum útbyrðis. — Á Genesaretvatni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.