Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 30.09.1928, Síða 4
308 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS .Skatan* í Þverá. Er það tunglfiskur? á vestinu. Það er ljómandi nota- legt að fá kaldar ágjafirnar yfir sig hjerna í hitabeltinu. Blautir urðum við, en báturinn lcomst af. Nú fara vesturfjöllin að skýla okkur. Það er líka farið að lygna. Nýtt tungl blikar eins og mjó sigð yfir þorpinu Magdala, þar sem María Magdalena átti heima. Ljósin í Tíberías fara að sjást. Það er brúð'kaup í bænum. Brúða- Ijós og blys eru tendruð heima hjá brúðurinni.Tveir bræður eru að' gifta sig og allur bærinn er boð- inn. Genesaretvatnið getur yglt sig þegar út kemur, en hjer inni á læginu er það saklaust á svip- inn eins og ungbarn. Það hefir verið kveðið svo að orði, að landslag og lifnaðarhættir í Palestínu væru fimta guðspjallið, og einkum hjer við Genesaret- vatnið er eins og nýju lífi sje blásið í gömlu og góðu guðspjalla- sögurnar, sem við höfum þekt frá barnæsku. Á þessari sjóferð komst jeg líka að raun um það, hve fljótt gat skift um storm og stillu þegar Jesús var þar á ferð, og eins hitt, hve fljött þessum illa gerðu bátum verður hætt, þegar stormur skell- ur á. Um kvöldið var jeg í brúðkaups- veislunni í þessum friðsæla bæ og horfði á veislugleði fiskimannanna. Þeir geta skemt sjer eins og börn. Brúðkaupin eru þjóðhátíðir, björt- ustu blettirnir á æfileið, sem ekki er sjerlega tilbreytingarík. Þess vegna talar Jesús svo oft um þess- ar veislur í dæmisögum sínum. Nú mætum við brúðgUmanum og brúð- arsveinunum þar sem þeir ganga í fylking með blys og söng og dans. Þeir halda heim til brúðar- innar. Hún á heima beint á móti liúsinu, sem jeg dvel í, og þar hófst hljóðfærasláttur snemma í raorgun. í allan dag hafa smá- telpur verið þar í heimsókn. Þær eru vinkonur brúðarinnar. Hún er ekki nema 12 ára gömul. Nú bíða þær, alveg eins og brúðarmeyjarn- ar í 25. kapítula Matteusarguð- spjalls, bíða með lampa sína eftir því, að brúðguminn komi. Magnús Jónsson þýddi. Skömmu eftir að túnfiskinn rak á Álfhólafjöru í Landeyjum, rak annað sæskrímsl enn ægilegra á Önundarstaðafjöru í Austur-Land- eyjum. Páll Jónsson verslunarmaður var þá staddur í Landeyjunum og gerði hann sjer ferð til Önundar- staða til þess að skoða þessa sjald- gæfu skepnu. Hafði henni þá verið komið heim á tún á Önundarstöð- um. Páll segir svo frá: — Jeg sá þegar að þetta var tunglfiskur, sem lýst er í bók Bjarna Sæmundssonar: Fiskarnir, og mynd er af þar. Þetta er undar- lega sköpuðskepna, sporöskjulagaður flatfiskur, haus og búkur samvaxið og engin tálknin, en í þess stað öndunar- op framan við eyr- uggana neðan og aftan við augun. Vottar aðeins fyrir trýni á röndinni og kjafturinn lítil sltora en vel tent- ur. Stórir uggar tveir, annar upp úr baki en annar nið- ur úr kviði aftan við gotraufina. — Liturinn grár og skinnið (eða hvelj- an) þykt og skrápkent sumstaðar. Sporður getur varla talist, en þó er sem laufaborði í sporðstað alla leið milli stóru ugganna og myndar gleiðan boga aftast á sporöskjubugnum. Jeg tók ekki mál af fiski þessum, en hann var á að geta 1% m. 1., % m. br. og 1 Vz m. milii ystu uggaoddanna. — Jeg ætla hann muni vega 40—50 kg. B. Sæm. segir á bls. 437 að tunglfiska hafi 4—5 sinnum orð- ið vart hjer á landi svo til hafi spurst. Einn komst upp í ósinn á Húnavatni í nóvember 1900. — Svo hefir einn rekið eftir lýsingu að dæma á Landeyjarsandi veí- urinn 1904. Undir Austur-Eyjafjöllum könn- uðust menn við að tunglfisk hefði rekið fyrir nokkrum árum og hafði sjera Jakob Lárusson í Holti þekt liann. Eftir þeirri lýsingu sem ýmsir gáfu mjer af Þverárskötunni, þykir mjer líklegra að um tungl- fisk sje að ræða en túnfisk. Hin iniklu skötubörð geta stóruggarnir sýnst í fljótu bragði. Að fiskur þessi gangi í ár er víst fátítt, en úr því hann rekur upp á sandana og hefir flækst inn í Húnavatn, getur hann alveg eins hafa farið upp í Þverá.-------- 1 „Fiskunum“ stendur þetta um tunglfiskinn: „Þegar gott er veður sjest tungl- fiskurinn oft móka á hliðinni uppi í yfirborði og má þá auðveldlega taka hann. Annars sveimar hann oft uppi við yfirborð með bakugg- ann upp úr. Hann syndir með því að beita bak og raufarugganum eins og tvíblaða skipsskrúfu, en slær þeim þó að sjálfsögðu á víxl til beggja hliða-----“. Ber þessari lýsingu talsvert vel saman við lýsingar manna á „sköt- unni“ í Þverá, sem slettir börðun- um sitt á hvao. ---------------------

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.