Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1929, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 17.03.1929, Síða 2
82 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS harðstjórn og kúgun, og þess vieri krafist af sjer, að þeir hlýddi her- foringjanum í blindni, án tillits til sinna eigin skoðana. Jeg'efast ekki um að hershöfð- inginn hafi jafnan breytt eftir bestu samvisku. Hann gáði aðeins ekki að því, að viljugum liesti má ííða of geist og of lengi. Það jók á óánægjuna hvað Booth hjelt börnum sínum fram til metorða og meira en góðu hófi gengdi. Og sjerstaklega óttuð- ust menn það, að hann mundi ætla að gera Catherine dóttur sína að yfir/mrshöfðin gja eftir sinn dag. Plestir æðstu herforingjarnir voru einhuga um, að það inundi mjög misráðið, og þeir voru ákveðnir í að berjast gegn því með hnúurn og hnefum. En hver vildi hafa forystuna í því efni? Sá, sem það gerði, gat átt von á að vera rekinn í útlegð, eða sviftur öllum metorðum. En þegar iiorfurnar voru sem verstar reis upp foringi fyrir uppreisnarmönn- um. Það var Evangeline Booth, yfirforingi Hersins í Bandaríkjum. Evangeline Booth. Að nafnrnu liafði Booth jafn mikið yfir systur sinni að segja eins og öðrum foringjum. Hann gat rekið hana eins og hvern ann- an. En Eva hafði sjerstööu, svo að hann þorði ekki að reka hana. Herinn í Bandaríkjunuin er auð- ugastur, frainsæknastur og á'.uiia- meiri en.í nokkuru öðru landi ut- an Englands. Ef hershöfðinginn hefði ■ gert tilraun að kúga systur sína eða reka hana, mundi Herinn í Bandaríkjunum þegar í stað liafa sagt honum upp hylli og tekið til sín allar hinar miklu eignir sínar. Þetta vissi hershöfðinginn. I < Ósigur hershöfðingjans. Eva Booth er skörungur mik- ill og einhver besti trúmálaleiðtogi nú á tímum. Hún reis nú upp gegn bróður síoum og krafðist þess af honum að hann afsalaði sjer rjettinum til þess að útnefna eftirmann sinn, en ljeti „æsta ráð“ Hersins ltjósa hann. Hershöfðinginn þvertók fyrir þetta og hann reyndi að breyta stjórnarskrá Hersins þannig, að völdi væri dregin úr höndum „æðsta ráðsins.“ Þessu mótinæltu 9 helstu yfirforingjar hersins í Bretlandi. Þetta var í öndverðum maí. Hershöfðinginn tók sjer þetta svo nærri að hann veiktist hættu- lega. Nú voru upreisnarforingjarnir í vanda staddir. Þeir höfðu að vísu heimild til þess að kalla saman „æðsta ráðið“, en þeir voru hrædd ir um að það mundi ríða hershöfð- ii.gjanum að fullu. Á hinn bóginn var sú hætta, að hershöfðinginn mundi útnefna niann eftir sinn dag og skilja svo við þennan heim, og að eftirmaður hans mundi ekki taka mjúkum höndum á þeim. Þeir biðu þó- átekta fram í nóvember. Þá var liershöfðinginn atveg við dauðann og menn hjeldu að hann ætti ekki nema nokkra daga ólifaða. Þá á seinústu stundu kvöddu þeir „æðsta ráðið“ saman. Vonuðu þeir að ]>að gæti orðið til þess, að kom- ið vrði í veg fyrir að hershöfð- inginn tilnefndi eftirmann sinn, án þess ]>ó að þeir gerði lionum nokkurt mein með því.----------- Þannig isegist þessum manni frá. „Æðsta ráðið“ kom saman, en hershöfðinginn dó ekki. Og svo lenti í stríði milli hans og ráðsins, og rak jafnvel svo langt, að sú deila komst fyrir dómstól- ana. Dómarinn dró taum Booths, en ráðið hafði þó sitt fram, og kaus eftirmann hans og skal svo vera framvegis. Er hinn nýi hers- höfðingi kosinn til 7 ára. Hann hefir eigi fjármál Hersins á hendi, heldur eru þau falin sjerstöku fjármálaráði. Nýi hershöfðinginn. Um hann segir á þessa leið í breska blaðinu „Answers“ : Higgins hershöfðingi. Hann lieitir Edward John Higg- ins og hefir verið í hernum síðan 1883. Hann var áður í verslunar- fjelagi við föður sinn, eil í Read- ing heyrði hann „móður Hersins“ halda svo hjartnæma ræðu, að hann geltk í Herinn og faðir hans líka. Komust þeir brátt í trúnaðarstöð- ur og fyrir 46 árum var Higgins yngri gerður að kennara við for- ingjaskólann í Clapton. Síðan hef- ir liann víst verið í flestum trún- aðar og virðingarstöðum innan Hersins. Um leið og völdin voru dregin úr höndum Booths-ættarinnar, var nauðsynlegt að finna foringja, sem væri þaulkunnugur öllu starfi Hersins, eigi aðeins til þess að halda í horfinu, heldur til þess að efla Herinn. Það er alment álit að ekki hafi verið völ á betri manni en Higgins til þess. Páir eru svo vel kunnugir starfi Hers- ins sem hann. Hann kann utanbók- ar alla sögu Hersins. Hann þekkir alla helstu foringja í flestum löndum. Árið 1907 ferðaðist hann með gamla Booth, sem skrifari hans, til Kanada og Austurlanda, jafnvel til Japans og árið eftir ferðaðist hann um Asíu, og hann hefir einnig ferðast um Evrópu, Afríku og nýlendurnar og hann hefir verið aðstoðarmaður í utan- ríkisskrifstofu Hersins í Lundún- um. Seinna gerði Bramwell Booth

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.