Lesbók Morgunblaðsins - 25.08.1929, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGrUNBLAÐSINS
267
góðum söngkennara og samæfðar
af söngstjóra, er gerði hinar hæstu
listrænu kröfur.
Hið ágætasta söngfólk vort —
karlar og konur, — ætti að t.aka
iiöndum saman og bera fram til
sigurs það m,ál, sem hjer hefir
verið gert að umræðuefni og bent
í borginni Santander á norður-
strönd Spánar hefir um nokkurra
ára skeið verið haldið námskeið
fyrir erlenda stúdenta, sem leggja
stund á spönsk fræði. Forst.jóri
þessa námskeiðs er kunnur rit-
höfundur, D. Miguel Artigas, bóka
vörður við Menéndez Pelavo bóka-
safnið. Kennararnir eru og allir
þektir háskólakennarar; nægir að
nefna Gerardo Diego, sem er um
leið í tölu mestu ljóðskálda Spán-
ar, Vavarro Tomás, prófessor í
spánskri hljóðfræði í Madrid,
Vinas, prófessor í Sevilla, Lomba,
sögupróf. við háskólann í Oviedo,
o. fl., o. fl.
Kenslunni er þannig fyrir kom-
ið, að hún getur komið að haldi
jafnt byrjendum sem þeim, sem
vilja fullkomna sig í tungu eða
sögu spönsku þjóðarinnar. Fyrir
hádegi dag hvern eru tvær kenslu
stundir. Fyrst og fremst er áhersla
lögð á það að tala og skilja; öll
kensla fer fram á spönsku og í
viðræðuformi. Hvert kvöld eru
fluttir fræðandi fyrirlestrar af
sjerfróðum mönnum um siði og
háttu, sögu og tungu Spánverja,
og auk þess samtöl um þjóðfje-
lagsmál, stjómmál og listir; er
það einkum ætlað þeim sem lengra
eru komnir. Fvlgja fyrirlestrunum
skuggamyndir og kvikmyndir.
Sjeð er um, að nemendur eigi
kost á að vera viðstaddir leik-
sýningar fyrir niðursett verð,
nautaat, þjóðdansa, markaðshátíð-
jr (,,ferias“), „roomerias" og
á til úrlausnar. Málið er hafið yfir
ómerkilegt þref og kotungslegan
flokkadrátt, því að markið, sem
stefnt skal að, er vöxtur og gengi
íslenskrar tónlistar — þjóðar gagn
og liróður svo langt og víða, sem
ómar radda geta borist.
Sigfús Einarsson.
aðrar þjóðlegar skemtanir bæði í
borginni og næstu sveitum. Auk
þess eru farnar skemtiferðir einu
sinni eða tvisvar í viku um ná-
grennið, en það er auðugt af fögr-
um sögustöðum.
Það er ekki nema klukkustund-
ar ferð í. bíl frá Santander til
Santillana, þar sem ftil Blas fædd-
ist, æfintýrahetjan í hinu ódauð-
lega skáldriti eftir' Lesoge. Og
skamt þaðan er sumardvalarstað-
ur Barcaættarinnar. Þar bjuggu
foreldrar mesta leikritaskálds
Spánverja, Don Pedro Calderón
de la Barca. Er höllin nii áð mestu
leyti í rústum, en þó er ennþá til
sýnis herbergi eitt, sem sagt, er að
hinn heilagi Frans af Assisi hafi
legið í eina nótt á pílagrímsför
sinni til grafar -Takobs postula í
Compostela.
Annar frægur sögustaður er
Cangas de Onis, þar sem sátu
fyrstu konungar í Astúríum. —
Skamt þaðan er Cobadonga, hell-
irinn, þar sem Pelayo er jarðaður.
Tlann var afkomandi Hróðríks
seinasta Gotakonungs á Spáni og
var kosinn til höfðingja yfir
kristna menn, sem ekki vildu
hlýðnast serkneskum valdsdrottn-
um. Höfðn þá Serkir lagt undir
sig allan Spán að undanskildu
fjalllendinu astúríska, en þar
höfðu j'msir kirkjuhöfðingjar og
gotneskir tignarmenn leitað hælis
og búist til að veita innrásarhern-
um viðnám. Ajub var þá emír eða
.,walj“ í A-stúríum. Langaði hann
að kúga kristna menn til að taka
múhameðstrú og sendi her upp í
fjöllin í því skyni. Pelayo flýði
þá með 300 riddara inn í helli
mikinn við Cobadonga, sem ekki
mátti sækja nema eftir einstigi
einu, því þverlinýpt björg eru fyr-
ír ofan og neðan. Þar bjóst hann
til varnar, en sendi nokkurn hluta
liðs síns út um kjarrvaxnar hlíð-
ar Devadalsins, þar sem víst var
að Serkjaherinn mundi leggja
leið sína um. Foringi hans, Al-
kamah, Ijet ginnast inn í þennan
dal og var þar með umkringdur
af hinu fámenna liði kristinna
manna, sem ljet grjóthríð og örva-
jel óspart dynja á óvinunum. Þeir
hrundu hverri átlögunni á fætur
annari af hiindum sjer. Og er þeir
sáu, að Suleiman, aðstoðari liöfuðs
mannsins, var fallinn, fyltust þeir
vígmóði og gerðu allsherjar atlogu
Og fór svo, að Serkir gugnuðu og
Ijetu undan síga. eftir að hafa
mist meiri hluta liersins.
Er þá sagt að gert. hafi ógur-
legt veður, með slíku regni, að
áin Deva liafi flætt yfir bakka,
og þegar leifar Serkjahersins ætl-
uðu yfir klif nokkurt bratt við
ána, hafi það sprungið fram og
tekið með sjer alt liðið. Druknaði
]>ar hver maður. Segir einn sögu-
ritari spanskur, að farist liafi
þann dag 124 þús. Serkja, en
annar lætur sjer nægja að segja
20 þús., sem þó er stórum ýkt
tala. Arabiski fræðimaðurinn Ab-
dallah ben Abderrahman segir að
eins, að enginn arabískur maður
hafi undan komist lífs, og er það
nú talið satt vera.
Þessi ósigur Araba hefir mikla
þýðingu fyrir þá sök, að með lion
um hefst nýtt tímabil í sögu Spán-
ar, sem er frelsisbarátta kristinna
manna gegn múhameðssinnum, eða
það sem Spánverjar kalla „re-
conquista' ‘.
í Covadonga er skrautlegt bæn-
hús með Maríulíkneski, sem sagt
er að hafi gert kraftaverk eins og
María í Loardes, gefið blindum
sýn, skynlausum skyn og vitfirt-
um vit, en sennilegast er ekki
meiri hæfa í því en í gróusögun-
um frá Lourdes.
Suð-austur af Covadonga, epu-
------—
Sumarndmskeið
fyrir spönsku-stúdenta í Santandcr.
Forstjóri: Dr. Miguel Artigas rithöfundur og yfirbóka-
vörður við Biblioteca Menéndez y Pelayo i sömu borg.