Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1929, Side 4
292.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Bjarna Sæmundssonar, er birki-
trje, sem er svipað á hæð og hæstu
reynitrjen, mældist í fyrra ’að vera
6.40 metrar. Það er 25 ára gamalt.
Er það vaxið upp af fræi úr Hall-
(rmsstaðaskógi.
Þá er og í garði þessum hlynur
einn liár. sem þar hefir þróast og
dnfnað síðan árið 1907. Var hann
á þriðja meter á hæð, er hann var
gróðursettur þarnn. Ditlev Thom-
sen konsúll flutti talsvert af trjám
*
frá útlöndum á þeim árum og
meðal ]>eirra var hlýnur ]>essi.
Hann hefir á síðasta ári borið
þroskuð fræ og hefir nýgræðingur
sju-ottið upp af nokkrum fræj-
Eima. Er einn af þeim lifandi nú,
tn hinir hafa dáið.
Af hátim reynitrjám, sem Morg-
unblaðið hefir haft fregnir af,
standa þessi næst trjám Bjarna,
trje í garði danska sendiherrans,
sem er 6,35 metrar á hað. Næst
koma trje í garði Jóns Eyvinds-
sonar við Stýrimannastíg 9, og
annað i garði frú Soffíu Olaessen
v ið Skólabrú. — Við Bröttugötu
3, er reynitrje, sem er aðeins 10
ára gamalt, og er.nú 5.40 metrar.
Mun það óvenjulega hraður vöxt-
ur hjer um slóðir.
í garði Sveins Jónssonar við
Kirkjustræti 8, hafa reynitrje
og vaxið óvenjulega vel. Trje
sem þar hefir verið í 9 ár, og
var sett niður % meter á hæð,
er nú 5 metrar. Fleiri trje eru
]>ar, er haft hafa ágætan vöxt.
Trje Jóns Eyvindssonar við
Stýrimannstíg, er — eða var
þegar ]>að var mælt 6,30 metrar.
Er ]>að eitt af trjám ]>eim, sem
Thomsen flutti hingað, og fyr
er um getið.
Ffekari upplýsingum um trjá-
rækt og hæð trjáa lijer í bænum,
tekur Morgunblaðið með þökkum.
— Mig dreymdi í nótt að jeg
var dauður. Þegar jeg vaknaði,
var jeg allur í einu svitabaði.
— Þá er svo sem auðvitað, að
j>ú hefir verið á heitum stað.
— Aldrei hefir ósatt orð kom-
ið yfir mínar varir.
— Það er líklega af því, að þú
talar gegnum nefnið.
Hjer birtist mvnd af hæstu
reynitrjánum, sem til eru í Reykja-
vík. Þau eru í garði dr. Bjarna
Sæmundssonar. Standa þau nyrst
í hinum fallega trjágarði hans
vestan við húsið í Þingholtsstræti.
Á myndinni eru þeir dr. Bjarni Sæ-
mundsson og nágranni hans Þor-
s^pinn Gíslason ritstjóri.
Reynitrje þessi eru sennilega um
50 ára gömul. Trjeð sem er til
hægri á myndinni er 6,80 metrar
á hæð, en hitt er 6,45 metrar. —
Eru þau því bæði hærri en önnur
reynitrje, sem Morgunblaðið hef-
ir haft fregnir af hjer í bænum.
Saga þeirra er í stuttu máli
þessi, eftir því sem eigandinn
þefir skýrt Morgunblaðinu frá.
Franz Siemsen sýslumaður í
Ilafnarfirði fann trje |>essi sem
nokkurra ára gamlar plöntur
skamt fyrir ofan Hafnarfjörð. —
Hann flutti þau hingað til bæj-
arins. Voru þau í fyrstu gróður-
sett í garðinum við Ingólfsstræti
9. Þá bjó þar Theódór Jónassen
amtmaður. Árið 1898 flutti frú
Carolina, ekkja hans í húsið við
Þingholtsstræti. Tók hún þá trje
þessi með sjer, svo að þa\i hafa
verið í þessum garði í rúm 30 ár.
í sömu röð í garði þessum er
nynitrje, sem vaxið hefir upp af
fræi þar. Er það 22 ára að aldri,
og er nú orðið nálægt því eins hátt
og þessi sem á mvndinni sjást.
1 þessum sama garði, við hús dr.
Hæstu reynitrien í Reykjavík.
! garði dr. Bjarna Sæmnndssonar