Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1929, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 13.10.1929, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 323 Suðurhlið náttúrugripasafnsins, eins og það er nú. — 1 safninu eru nú flest-allir fuglar og fiskar, er fundist hafa hjer á landi og við land, þar á meðal nokkurir fiskar, sem enn eru óþektir annarstaðar. Af ýmis- kcnar óæðri sjávardýrum íslensk- um er all-margt, en af skor- dýrum er tiltölulega minna, enda hefir lítil rækt verið við þau lögð. TalsvCrt höfum við fengið af dýr- um frá útlöndum, og sumt af þe'im fágætt, en flest eru þau af smærra taginu, enda ekki húsrúm fyrir stór dýr. Steina- og bergtegunda-safnið er ennfremur orðið all-auðugt og mest megnis fengið gefins úr ýms- um áttum. Grasafræðisdéild safnsins er nú orðin mjög öflug. Fyrst og fremst hafa ýmsir gefið safninu plöntur, en fyrsta verulega grasasafnið er liingað fekst var safn Ólafs Da- víðssonar. Á síðari árum hefir ríkissjóður keypt tvö stór grasa- söfn: Stefáns Stefánssonar og He'lga Jónssonar og eru baíði þessi söfn á náttúrugripasafninu, enda þótt þau sjeu eigi eign náttúru- fræðisfjelagsins, heldur ríkisins. — Fjárhagur náttúrufræðisfjelagsins er enn sem fyr þröngur. Ríkis- sjóðsstyrkurinn til fjelagsins er 2400 krónur á ári. En í fjelags- gjöldum koma að jafnaði inn um 2Q0 þr, Eru þetta allar tekjurnar sun fjelagið hefir til þess að standa straum af umsjón og við- lialdi safnsins og kaupum náttúru- griþa. Fyrir yfirumsjón me'ð safn- inu eru greiddar 600 kr. á ári, en Magnús Björnsson fær 1400 kr. fyrir að vera aðstoðarmaður við safnið. Það sem afgangs er, fer venjulega til kaupa á ílátum og til varðveislu náttúrugripa, því að lítið er keypt, bæði vegna fjeleysis og svo vegna þess, að menn eiga fult í fangi með að fá húsnæði handa fleiri gripum. Svo mikið hefir safnið aukist síð- an það kom í hús Dandsbókasafn- ins, að eigi mun ofmælt að þrefalt húsrúm sje hæfilegt fyrir það safn sem nú er til. Enn í dag er náttúrugripasafnið eign náttúrufræðisfjelagsins. Hef-, ir það komið til orða hvað eftir annað, að afhenda ríkinu safnið. En jeg fyrir mitt leyti lit svo á, að eðlilegast va*ri að safnið ve'rði þá fyrst afhent, ríkinu til eigniar þegar því er sjeð fyrir hentugu húsnæði. Ætti það ekki að dragast lengi úr þessu að sjá safninu fyrir því húsrúmi, sem það í raun og veru þarf. En þá kemur ýmislegt annað til greina, en að gólfflötur verði nóg- ur fyrir muni þá, sem til e'ru. — Fyrst og fremst þarf vitanlega að sjá um það, að safnið geti fengið eðlilega framþróun, þar sem því verður komið fyrir, ann- að hvort með því, að bygt verði hús, er uð stærð verði umfram núverandi þarfir þess, eða að hús- byggingunni verði þannig hagað, að auka megi við hana síðar meir. Með tilliti til þess, hve vjer ls- lcndingar verðum að leggja mikla rækt við fiskiveiðarnar og hve mikið við eigum undir þeim, þá tel jeg nauðsynlegt, að í sam- bandi við náttúrugripasafnið verði bygt sjóbúr (Akvarium), þar sem væri hægt að athuga sjódýr í lif- anda lífi. í sambandi við nátt- úrugripasafn verður ennfremur að vera vinnustofa fyrir vísindamenn, og mjög væri æskilegt, að þar væri salur til þess gerður að halda þar fvrirlestra um náttúrufræðise'fni fyrir almenning og náttúrufræðis- nemendur. Fyrirkomulag hússins verður að miða við það, að smám saman reki að því, að komið verði á fót kenslu í náttúrusögu víð háskólann og að kensla og rannsóknir geti þar farið fram jiafnhliða hvað öðru. Náttúrugripa- safn landsins þarf að vera miðstöð fyrir nauðsynlegar rannsóknir á náttúru landsins, útbúið með þeim tækjum, sem til þurfa, til þess gð rannsóknunum geti miðað vel áfram. — Hjer hefir þá í stuttu xnálj yer’

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.