Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1932, Síða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.1932, Síða 6
298 LESBÓK M0RGUNBLAÐ8INS álitamál, hveiiær hann hefir látið gera göngin, og er þó varla nema um tvö tímabil að tala. Hið fyrra 1242—1249, meðan Þórður kakali, bróðir Steinvarar húsfreyju á Keldum, var að brjótast um og berjast til valda nyrðra, og til erfðafjár eftir föður sinn. Kom hann bæði nýnefndu árin og þar á milli, að Keldum (Sturlunga III.). Þó Hálfdán vildi ekki ganga í lið með Þórði, og bæði Þórður og Steinvör reiddust honum fyrir það, þá fór þó furðuvel á milli þeirra máganna. Og varla mun Þórði bafa komið til hugar að ræna systur sína á Keldum, nje heldur mönnum hans. Þórður sýndi líka á þessum árum fult traust til göfug- mensku og drenglyndis Hálfdáns, bæði með því að vilja leggja deilu- mál sín við sunnlenska bændur, undir úrskurð beggja hjónanna, H. og Steinv. 1242 (Sturl. III. 171. kap.). Og eigi síður 1246, þá er Þórður setti Hálfdán yfir ríki sitt nyrðra og búið á Grund í Eyja- firði, með því skilyrði, að þau hjónin sætu þar, meðan hann væri ytra (III. 208). Hitt tímabilið er 1260—1264, þegar 'ófriðurinn var milli Gissurs jarls og Andreassona (bróðursona Hálfdáns á Keldum). Þessi árin fór Gissur tvær herferðir um Rang- árvöllu, með mörg hundruð manna. Að vísu er ekki nokkur bær á Rangárvöllum (eystri) nefndur sjerstaklega, er fyrir ránum og heimsóknum varð í þessum ferðum. En sagt er í fvrra skiftið (um 1260), að Gissur „reið austr yfir ár með átta hundruð manna" (= 960), og: „Þá var víða rænt á Rangárvöllum, ok drepin tíu hundruð nauta um haustit". — Loks var þá sett þing að Þing- skálum og griðum heitið milli Gissurs og Þórðar Andreassonar á Stóruvöllum. (Sturl. TV. 324 k.). í síðari ferð Gissurar, þá er hann tók Þórð af lífi 1262, lá leið þeirra á milli Teigs í Fljótshlíð og Þrándarholts í Gnúpverjahreppi. Er því varla líklegt að allur flokk- urinn hafi farið fram hjá Keldum. En þá þykir mjer trúlegast, að Hálfdán væri búinn að gera undir- göngin, og hefði gert þau rjett fyrir fyrri herförina, eða um hana, meðan mesti fjöldi liðsins hefir setið fyrst í stað, að búum þeirra Andreassona á Landinu (Rangárv. ytri), Stóruvöllum og Skarði. Þó margir menn á þessum ára- tugum björguðu góssi sínu og lífi með því að flytja það og flýja í kirkjur, þá var ekki hægt að treysta á kirkjufriðinn, nema drenglyndir menn sæktu að — eins og Þórður kakali. Þykir mjer lík- ara, að þá er hann var á ferðum sínum, hefði Steinvör húsfreyja dregið úr, og talið með öllu óþarft að gera göngin, þó til orða hefði komið. En þar á móti eggjað til þess og verið hvatamaður, þegar von var á Gissuri. Síst hefir hún viljað sýna honum mikla rausn eða nokkurn blíðskap, föðurbana sínum og bróðurbana. Og við öllu hinu versta mátti hún búast, hefði nokkuð nýtt borið á milli. Eftir þessu tel jeg líklegast, að göngin sjeu nú um 670 ára gömul. Og má furðu gegna, að öll þessi ár skuli moldargöngin hafa staðist alla jarðskjálfta, og umferð yfir þeim. Svo og það, hve jarðvegur- inn hefir verið orðinn þykkur, á svo háum stað, þegar göngin voru gerð. 5. Að Ingjaldur á Keldum hafi látið gera göngin (1011—1012), eða nokkur ábúandi á Keldum, á undan Oddaverjum þar, getur ekki borið sig, ef skilja má orðin í Biskupasögum e. I. 293, eins og jeg vil telja líklegast. Þar er talað um Jón Loftsson frá Odda, eftir að hann hafði flutt búnað sinn að Keldum, og sæst við Þorlák biskup lvelga: „Jón ljet nokkru síðar en þessir atburðir gjörðust, smíða kirkju og klaustrhús firir norðan læk at Keldum“. Ef bærinn á Keldum hefði þá verið fyrir norðan lækinn, væri ekki svona að orði komist. Yil jeg því ráða af þessu orðalagi, að þá (um 1193. Sbr. Sögu Oddastaðar, bls. 18—19) hafi bærinn enn stað- ið fyrir sunnan lækinn á Keldum. En sennilegt tel jeg, að íbúðin hafi verið flutt skömmu eftir aldamótin 1200, í klausturhúsið (skálann?) og önnur ný hús, á sahia stað sem bærinn stendur enn í dag. Þar er hærra og fegurra, en á sljettunni fyrir sunnan lækinn, Framtúninu, þar sém talið er víst, að bærinn liafi staðið í fyrstu. Til sanninda- merkis um það, sást enn fyrir bæjarrústum þar og tröðum eða heimreið þangað, alt fram undir síðustu aldamót. Nú er orðið því nær sljett yfir þetta alt af sand- áburði, og hulið gróðri. 6. Búast má við því, að þetta gamla og merka bæjarstæði, verði alveg gleymt og týnt eftir nokkra áratugi. Yæri þó mjög merkilegt, ef enn mætti finna leifar og skipulag þess bæjar, sem Jón Loftsson — mesti bændahöfðingi Tslands — bjó í á Keldum. Hefir þar vafalaust verið grjót í veggjum, og ólíkt meiri líkur til að finna húsaskipun og óhreyfðar undirstöður, en t. d. á Bergþórshvoli, þar sem mj'rarkekk ir einir hafa verið í veggjum, og allra alda umrót bætist þar ofan á. 7. Þjóðin er nú orðin svo sinnu- laus um fornsögu sína, að hún lætur margar merkilegar minningar og forn mannvirki gleymast, og glat- ast ár frá ári af sandfoki og um- róti sjávar og vatna. Nú vilja ekki svo margir styrkja Fornleifafjelagið (með aðeins 3 kr. árstillagi) að það geti látið ókaup- dýran mann, fara um merkustu fornleifabygðir landsins, til að at- buga það er gamlir menn muna, og mæla og lýsa því er enn sjest ofan jarðar, af merkustu fornminjum. Þetta gat fjelagið þó og gerði, á dögum Br. J. fomfræðings. Því síður virðist þjóðin nú vilja láta grafa til rannsókna á sögustöðum. Fyrir áhuga nægilega margra manna, var þetta þó kleift á dög- um Sigurðar Vigfiíssonar fomfræð ings. Er þeim nú og öðrum ágætis- mönnum, illa þökkuð starfsemi og aðstoð við allan þann sögulega fróðleik, sem geymdur er í Árbók- umFornleifafjelagsins alt frá 1880. Þá var leitað, og margt merkilegt fundið. En nú ræður tilviljun ein hvað finnast kann, af því sem hulið er. V. G.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.