Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Qupperneq 2
30á I- — stað á undanförnum vorum. Enda liafa menn enga gleöi af því til lengdar, ao flytja plöntur þaðan og heim í garða sína, því að þær hafa allar svo langar rietur og víðskriðular, að þær þola ekki flutninginn og deyja innan skamms. Ennfremur verða menn að fara þar varlega með eld að sumarlagi, því að engum trjám er eldhættara 311 harrtrjém. En þess sáust greinileg mcrki, að eldur hafði komið upp ú litlu svæði við austurenda girðingar- innar. Var okkur sag-t- að. börn úr Baldurshaga hefðu kæft eldinn í tíma, en að öðrum kosti hefði vel getað farið svo, að margar af elstu furunum hefðu Lrunnið upp. Að endingu vil jeg benda mönnum þeim, sem fara þarna fram hjá í góðu veðri, að taka eftir því, hve fallegar þessar grænu furur eru, þegar þær ber við haustfölan gróðurinn alt um kring. í Lanörjettum. Daginn fyrir Landrjettir. Frá því um hádegi höfðu bílar streymt austur yfir fjall, og för tiestra var lieitið í rjettirnar. Flestir '.ildu fara svo tímanlega, að þeir næði austur áður en dimt yrði. Við lögðum ekki á stað frá Reykja- vik fyr en klukkan 6 um kvöldið og fórum okkur að engu óðslega. Farið var að dimma þegar við komum að Olfusárbrú, en þar staðnæmdumst við til þess að fá okkur mat, því að við bjuggumst ekki við því að fá mat uftur fyr en til Reykjavíkur kæmi. Vel og rausnarlega var framborið, maturinn var ágætur og gerðum við honum góð skil. En alt tekur sinn tíma, líka það að eta, og var nú komið niðamyrkur er við komumst á stað aftur. Og svo tafði þáð okkur, að einn þurfti endilega að koma við á Evrarbakka, og að við lögðum þá lykkju á leið okkar. En síðan var ekið hiklaust austur vfir Þjórsá og Holtin og stefnt upp á Land. Þar var ekki margförult, og er hinn lagða veg þraut, var ekki eftir öðru að fara í myrkrinu heldur en hjólförum bíla. Og þau lágu í margar áttir. Þess vegna viltumst við dálítið, en kom- umst þó von bráðar á rjetta leið aftur. Og ekki vissum við fyrri til en að rið vorum komnir inn í heila boi'g af LESBÓK MORGUNBLADiirNS alls konar bílum. Þeir stóðu þar mann- lausir og ljóslausir hlið við hlið í þjettum röðurn, og minti þetta á bíla- torgið hjá Almannagjá á alþingis- hátíðinni. Þá var komið fram á nótt. Við stigum út úr bílnum. En hvar voru nú rjettirnar? Orfá skref — og við komum fram á hæðarbrún, og undir fótum okkar blöc.tu við uppljómuð tjöld, smá og stór og var þaðan að heyra glaum og gleði, hljóðfæraslátt og söng. Þarna var Rangæingabúð og skamt frá veitingatjöld. Lengra burtu, bæði til hægri og vinstri, stóðu undir hlíð- inni tjaldþorp. Það voru tjöld gangna- manna. I sumum loguðu ljós er ljóm- uðu upp tjöldin, svo að þau voru til að sjá eins og stór ljósker, sem báru öaufa birtu á næstu tjöld, sem ekkerc Ijós logaði í. Þar hafa gangnamenn annað hvort verið gengnir til hvíldar, eft.ir alt gangnaerfiðið, eða þá að þeir iiafa ekki getað staðist freistinguna, þótt þreyttir væri, að taka þátt í hinu fjöruga lífi í samkomutjöldunum. Veðrið hafði verið hvast og kalt um daginn, rakin norðanátt, en nú var kyrt. Himininn var heiður og dimmblár og yfir brekkubrúninni .„skein hinn skarði máni“ yfir tjöldin og sljetta völluna þar um kring. I Rangæingabúð var stiginn dans alla liðlanga nóttina. Þar var þó svo þröngt inni, að menn gátu sig varla hreyft. Þar var ein iðandi kös um alt tjaldið. Hvaða dans var stiginn? Það veit jeg ekki og það vita líklega ekki einu sinni þeir, sem dönsuðu. En fólkið skemti sjer. Hvað það' gat skemt sjer vel! Og þegar því þótti svækjan inni vera um of, týndist það út úr tjaldinu, tvent og tvent, hann með liöndina um mitti hennar og hún með handlegginn um háls hans, brosandi, hvíslandi: „Spinn þú, ástin mín ein, lífs míns örlagagulk ‘. I veitingatjöldunum var líka mann- þröng mikil. Þar var sungið og spjall- að. Sumir voru dálítið við skál. „Það er hart ef maður hefir ekki „landa“ hjer á Landinu! Viltu smakka, lagsmaður? Nei, ekki hjer inni, komdu út fyrir“. Hve margir voru með „landann' ‘ veit jeg ekki, nje heldur hitt hvort hann var seldur þar. En margii' munu hafa kynst við hann, fóru þó vel með það, og engar róstur varð maður var við nje drykkjulæti. Tveir lögreglu- þjónar úr Reykjavík voru þarna í ein- kennisbúningum. Þeim virtist alveg of- aukið. Ef þeir hefði verið klæddir eins og hver annar, hefði þeir getað bland- að sjer í hópinn og tekið þátt í skemtun fólksins, en það var eins og þögul andúð mengaði loftið hvar sem þeir fóru. Ekki vegna mannanna sjálfra, heldur vegna einkennisbún- inganna. Aldraður maður sagði við mig: — Það er hrein og bein forsmán að sá siður skuli upp tekinn, að senda iiigreglu frá Reykjavík til höfuðs mönnum í rjettunum. Það er til þcss að drepa niður hinn þjóðlega blæ, sem var á rjettalífinu áður. Þar gerðu karlarnir upp reikninga sína. Alt, sem þeir höfðu safnað í sarpinn af fjand- skap út at' beit, uppáslægjum, hesta- stuldi, að sigað hafði verið á skepnur þeirra, og út af óteljandi mörgu öðru, braust þá út. Fyrst voru það skamm- ir, svo gjarna barsmíðar og áflog. En það efidaði með því að þeir sátu sáttir saman á einhverri þúfu, drukku vinar- skál af sömu brennivínsflöskunni, kyst ust og föðmuðust, klökkir af gæðum og gleði út af því að þessu var nú Jokið og þeir voru sáttir við alt og alla — - að gremjan og f jandskapurinn hafði íengið framrás og þorrið gjörsamlega. Og aldrei hefi jeg hevrt þess getið að nein málaferli hafi risið út af því, sem gerðist í rjettunum, og hefi jeg þó spurt marga gamla sýslumenn um það. Hvers vegna mega menn nú ekki lengur jafna sakir sínar á þennen ein- falda hátt? Eru stefnufarir og mála- ferli máske betri ? En það er óhjá- kvæmileg afleiðing þess, að einkennis- búin lögregla úr fjarlægu hjeraði er nú farin að sletta sjer fram í þjóð- lífið í sveitunum". Það líður að morgni. Með fyrstu dagskímu fara gangnamenn á fætur til þess að sækja fjársafnið og reka það inn í rjettirnar. Og þá sjest, að flestir þeirra, sem voru á staðnum um nóttina, höfðu ekki komið til þess að afnið og sundurdráttinn í rjettun- um. Svefnþrungið fólk byrjaði að staulast upp brekkuna, upp á brúnina, þar sem bílafjöldinn beið. Og bílarnir fóru að tínast á stað-----— Á.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.