Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1932, Blaðsíða 3
LBSBÓK MOItOTTNBLÁBSlNS 4* 30S Flugkonur. Eina manneskjan, seui tvívegis hefiv f'arið í flugvjel yfir Atlantshaf frá Bundaríkjum til Englands, er Amelia Earhart. Flestir aðrir hafa fengið nóg af því að fljúga einu sinni yfir hafið. í fyrra skiftið, 1928, var Ainelia Ear- hart farþegi hjá Wilmer Stultz, en í maímánuði í sumar flaug hún einsöm- ul yfir hafið. Það hafa ekki nema þrír aðrir gert, að fljúga einir síns liðs vfir Atlantshaf, Lindbergh, Hinkl- er og Mollison. Frú Ainelia setti jafn- framt nýtt met á flugi milli álfanna og hún hefir líka sett met í því að tljúga í einum áfanga milli San Franeiseo og New York. Enska flugkonan Amy Johnson, nú frú Mollison, er fræg fyrir flug sín. Frægasta flug hennar er það er hún flaug 1930 frá Englandi til Astralíu. Eitt af stórblöðunum kostaði það flug og hún fekk 10.000 sterlingspund fvrir ]>að. Hún varð taugaveikluð á því flugi, og er það máske ekki undarlegt. Og þegar maður hennar, Mollison, flaug yfir Atlantshaf í sumar, og hún frjetti að læknar segði að taugar hans væri ekki í lagi, harðbannaði hún honum að fljúga heim aftur, eins og hann hafði ætlað sjer. I Olvmpsleikum kvenna í Gautaborg 1920, tók þátt stúlka, sem hjet Sophie Elliatt-Lynn. Hún varð fyrst enskra kvenna til að eignast flugvjel og stýra henni sjálf. Seinna giftist hún og varð lafði Heath. Hún átti einu sinni met í háflugi fyrir konur (19.000 fet) og met í háflugi með farþega (17.200 fet). Svo í'Iaug hún ein síns liðs frn Kapstaðnum til Englands. Seinna fór hún til Ameríku og leysti þar fyrst kvenna próf sem stjórnandi farþega- flugvjelar. En hún hafði þess lítil not, því skömmu seinna hrapaði hún í flugvjel sinni og meiddist hættulega. Síðan hefir hún ekki flogið. Lafði Bailey er einnig kunn ensk fhigkona. Hún lærði hjá lafði Heath. X'orið 1928 flaug hún frá London til Kapstaðar. Frá Khartum fvlgdi henni þc karlmaður, Bentley liðsforingi, sem hafði flogið með lafði Heath vfir l.ættulegasta svæðið í Afríku. Hann bauðst til þess, þegar yfirvöldin í Khartum bönnuðu lafði -Bailey að fljúga þar vfir, af því þau töldu víst, að hún mundi drepa sig. En frá Nunule til Tabora flaug hún þó ein. Þar var hún svo óheppin að skemma flugvjel sína í lendingu og varð að bíða þar í 10 daga eftir flugvjel, sem maður hennar sendi henni frá Pre- Amy Johnson Mollison. toria. Síðan helt hún áfrani fluginu til Kapstaðar. Um haustið flaug hún heim aftur, en þá flaug hún meðfram vest- urströnd Afríku og kom heim til London í janúar 1929. Nú er hún hætt langferðum en heldur þó áfram að fljúga heima í Englandi. Ein af flugkonum Breta heitir Miss S]>ooner. Hún hefir hvað eftir annað tekið þátt í kappflugi. Árið 1928 varð hún þriðja í röðinni í kappfluginu um King’s Cup og hin fimta í röð- inni 1929. Sama ár varð hún líka hin fimta í röðinni í Evrópu hringfluginu. I ár ætlaði hún enn að taka þátt i þessu flugi á ítalskri flugvjel. A reynsluflugi varð hún fjórða í röð- inni, en svo bilaði flugvjelin og hún varð að hætta. Á rið 1931 var það kona sem vann King’s Cup. Það var Miss Winifred Brown. T ár varð hún 21. í röðinni í þessu kappflugi, en Miss Spooner sú fimtánda. Merkilega flugferð fór Mrs. Vietor Bruee veturinn 1930-—1931. Það var kallað hnattflug, enda ])ótt hún færi skipum vfir úthöfin. Hún lagði á slað frá Heston í Englandi 25. sept. 1930, flaug yfir Evrópu til Jask — Karaehi — Kalkutta — Rangoon — Bangkok — Sanghai — Söul (f Korea) — Tokio. Frá Yókohama fór hún með gufuskipi til San Francisco, flaug svo |>aðan til Vancouver ■— Los Angeles, yfir Mexiko til New York og kom þangað 5. febr. 1931. Þaðan fór hún nieð gufuskipi til Frakklands og flaug svo þaðan til Crovdon og kom þangað 25. febrúar. A 47 flugdögum hafði hún flogið 19.000 enskar mílur. f sum- ar ætlaði hún ásamt tveimur karl- Am.elva Earhart-Pntnam. Myndin er tekin er henni var fatjn- uð í ráðhúsinu í New York, heimkominni eftir Atlantshafsflucjið. Borgarstjórinn margumtalaði, Jimmy Walker, er að rjetta henni gidlmedálíu til minja um hið fræga flugafrek.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.