Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1933, Page 3

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1933, Page 3
LESBÓK fttORGUNBLAÐSINS 203 bætist að þeir hafa valdhafana í Þýskalandi að baki sjer. Aftur á móti á Dollfuss vinsældum að fajjna bæði í ítalíu, Frakklandi, Englandi og víðar. Á alþjóðafund- inum í London var honum óvenju- lega vel tekið af svo að segja öllum nema Þjóðverjum. Ræðu sína á Lundúnafundinum endaði hann með þessum orðum: „Ðer fromste kan nicht in Frieden leben, wenn es den bösen Nach- barn nicht gefállt". (Hinn frið- samasti inaður getur ekki lifað í friði, ef grimmum nágranna þókii- ast það ekki.) Var þessu tekið með dynjandi lófaklappi. Daginu eftir skrifaði „Times“: ,,Ef al- þjóðaráðstafanir (út af þýsk- austurrísku deilunni) koma til mála, þá getur farið svo, að það komi þýsku þjóðinni á óvart að sjá hve reiðubúinn almenningur í öðrum löndum verður til þess að styðja smáþjóð, sem berst á móti því að verða kúguð.“ Höfn, i júní 1933, P. Kínverskir ræningjar. þessu var hann „Presseattaché“ í þýsku sendisveitinni í Vínarborg. Nazistastjórnin þýska svaraði með því að láta taka Wasserbaeck, ,,Presseattaché“ Austurríkis í Ber- lín, fastan. Hann var svo rekinn úr landi. Austurríska stjórnin segir, að ekki sje hægt að bera þessa tvo viðburði saman. Hún segist frá upphafi hafa neitað að viður- kenna Habichts sem starfsmann við þýsku sendisveitina eða veita honum friðlielgi í Austurríki. — Habichts hafi hvað eftir annað skift sjer af austurrískum innan- landsmálum, unnið á móti austur- risku stjórninni og átt þátt í of- beldisverkunum í Austurríki. Aft- ur á móti hafi þýska stjórnin við- urkent Wasserbaeck sem sendi- sveitarstai'fsmann og hann liafi því átt að njóta friðhelgi í Þýske landi. Þar að auki hafi hann aldrei skift sjer af þýskum innan- landsmálum. Skömmu seinna var sprengikúl- um kastað á hjálparlögreglu í Krems, 32 særðust. Hjer um bil samtímis var gerð tilraun til að sprengia stíflugarð nálægt Salz- burg. Þrjár miljónir teningsmetra af vatni hefðu flætt yfir nágrenn- ið. ef tilraunin hefði hepnast. — Sumir af ofbeldismönnunum. nokkrir Nazistar, hafa verið tekn- ir fastir. Þessi og fleiri ofbeldis- verk leiddu til þess. að austur- riska st.iórnin hefir le.vst upp Naz- istaherinn og bannað alla pólitíska starfsemi af Nazista hálfu. — Austurríski ráðherrann Fev. hefir lýst yfir þvi. að stjórnin ætli sjer að binda enda á „bolsjevikka-að- ferðir“ i Austurríki og bæla nið- ur starfsemi ,morðingja og brennu- yarga' þar í landi. Austurríska stjórnin er þannig alt annað en blíðorð í garð Nazista. Rlað Hitlers. ..Völk. Beobacht- er“, svarar með því að segia. að „baráttan í Austurríki haldi áfram þangað til svikararnir Doll- fuss og Vaugoin verði reknir úr Iandi.“ En hverjir verða að lokum ofan á í Austurríki, Nazistar eða Dollfuss? Fylgi Nazista í Austur- ríki hefir án efa aukist mikið á síðastliðnum mánuðum. Þar við Auk sinna óskráðu laga um drengskap og heiður, hefir hver stjett í Kína sínar óskráðu siða- reglur, og vei hverjum þeim, sem dirfist að brjóta í bág við þær. Jafnvel kínverskir ræningjar hafa sinar ófrávíkjanlegu siðareglur. Meðan jeg var í Kína nú fyrir skemstu, þótti mjer það merkilegt. er mjer varð hugsað til stórborg- anna \ Evrópu, hve lítið var um sluldi og innbrotsþjófnaði í hinum stóru borgum í Kína, svo sem Shanghai og Charþin. Kínverskir ræningjar álíta það sem sje virðingu sinni ósamboðið að fremja í laumi vasaþjófnað, eða gera innbrot og stela þar sem það er auðvelt. Nei! Um aldaraðir hafa kin- verskir ræningjar liaft þann hugs- unarhátt, að reka atvinnu sína heiðarlega og opinberlega. Og aðal regla þeirra er sú, að ræna ríkum kaupmönnum, eða ætting.jum þeirra, og heimta svo lausnar- gjald fyrir þá. En vegna þessa kaupa kaupmenn sjer og sinum oft frið, með því að greiða ræn- ingjum vissan skatt. Reglan er sú, hvort sem um lausnargjald eða skatt er að ræða, að ræningjarnir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.