Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1933, Síða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.1933, Síða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 205 Sir Robert Ho-Tung, formaður fulltrúasendinefndar Kínverja á viðskiftamálaráðstefn- unni í London. Myndin er tekin af honum þegar hann kom þang- að, og er dóttir hans með honum. Ho-Tung var fyrsti fulltrúinn sein kom til ráðstefnunnar. verjarnir snerust til varnar þótt við ofurefli væri að etja. Meðan skothríðin var sem áköfust komst sveit Kósakkanna eftir launstíg í fiöllunúm að baki Kínverjum, kom þeim í opna skjöldu og hóf skot- hríð á þá aftan frá. En- þetta, að ráðast að baki mönnum með vopn- um, er af Kínverium talið eitt- hvert hið svívirðilegasta athæfi og niðingsbragð, sem hugsast get- ur. Urðu ræningjarnir því alveg forviða, og fellust þeim hendur af undrun. Þetta notuðu Kósakkar sjer, gerðu áhlaup og umkringdu þá á augabragði. B.æningjarnir gáfust upp orða- laust. Voru þeir ýmist höggnir niður sem hráviði eða teknir hönd- u m og fjötraðir saman tveir Og tveir. Þeir, sem fangaðir urðn mófmæltu harðlega — ekki með- ferðinni á sjer, að þeir-skyldi læst- ir í fjötra, nei, þeir mótmæltu há- stöfiun þeim ódrengskap, sem eng- inn ræningi mundi nokknru sinni leyfa sjer, að vega að manni að baki. Eitt frímerki fyrir 53.160 krónur. í London var nýlcga selt á upp- boði hiö fræga 1-pcnny frimerki frá Mauritius. Ungur frimcrkjakaupmaö- ur kcypti |)aö fyrir 2400 stcrlingspund. Þaö er kunnugt um þcnnan mann. að hann kaupir frimerki fyrir Georg Bretakonung. Eins penny frímerkið frá Maur- itius, er liið dýrasta frímerki í heimi, og 20 miljónir frímerkja- safnara eiga ekki heitari ósk en þá að eignast l>að. 'Það þótti því viðburður, er frí- merki þetta var sett á uppboð í London. Jeg hefi vart lifað skemti- legri stund heldur en á því upp- boði. Þangað voru komnir frí- merkjakaupmenn og frímerkja- safnendur frá 17 ]>jóðum. Upp- boðið fór fram í liinum fornfræga uppboðssal Plumridge-frímerkja- firma á Chancery Lane. Prímerkið var eign H. P. Man- >!S, stærsta hollenska tóbaksfirm- ans, og liafði Manus á sínum tíma keypt það í París fyrir 11.000 gullpund. — Svo dó hann, en sonur hans setti allar eigur hans á uppboð, þar á meðal þetta fræga og dýrmæta frímerki frj Manriíius. Hinn aldraði uppboðshaldari gekk upp á pall; var hann kjól- klæddur og ávarpaði aðkomu- nirnn með ræðn áður en upnboðið hófst. Hann gat þess, að ekki væri t>l ? heiminum, svo að menn vissi, fleiri en fimm frímerki af bessari tegund. Eitt þeirra ætti Georg Bretakonuneur, annað væri í hinu svonefnda Tamplingsafni ? British Museum, hið þriðja væri í eigu lilptaf jelags í Ameríku. hið fiórða væri vart teljandi því að bað væri skemt, en þetta væri fimta frimerkið og líklega best af þeim öllum. Svo hófsf uppboðið. t salnum var dauðaþögn, svo að heyra hefði mátt. flugu anda. Aðstoðarmaður nppboðshaldara helt frímerk- inu hátt á loft og var það límt á fallegt spjald. Til hliðar við bað á spialdinu var stór 1 jósmynd at' því. og vottorð hins konung- iega breska frímerkjasafnarafje- lags um það að frimerlcið væri egta og eins ljósmyndin, og að um þetta frímerki liefði verið rit- aðar hundrað bækur, og sjerstak- ar ritgerðir í þúsundir frímerkja- verðskráa. Uppboðshaldari bað menn þá að gera boð í frímerkið. Hinn kunni danski frímerkjasafnari, C. Nissen. mælti lágt: — Sjö hundruð sterlingspund. Rjett hjá honum sat ungur Eng- lendingur — hann getur ekki verið nema 35 ára gamall — og hann kallaði þegar hárri röddu: — Atta hundruð sterlingspund. Svo hækkuðu þeir tilboðin þang- að til komin voru 2000 sterlings- pund. Þá varð hlje á. og alhr tóðu á öndinni. Svo fóru keppi- nautarnir að hækka sig, en nú voru það 50 punda yfirboð. Að lokum spyr uppboðslialdari hvort enginn bjóði betnr. Hann trúir ekki sínum eigin eyrum. A þetta fágæta frímerki að fara fyrir svo lágt verð? En þegar komin voru 2-100 sterlingspund. slær hann þó hæstbjóðanda frímerkið. Þá var rins og öllum ljetti og mrnn kept- usf um að óska hinum unga kaup- anda til hamingju með þessi reif- arakaup. Hann er brosandi út undir eyru af ánægju. Þetta var enginn annar en Thomas Allen, >em kaupir frímerki fyrir safn Bretakonungs.------- Það er heimskreppunni að kenna að ekki liefir fengist meira fyrir frímerkið, þennan litla litaða snepil, spm límdur er á óhreint umslag, og svo ósjelegur, að ef umslagið með honum lægi ein- hvers staðar á götu, þí myndi engum manni detta í huer að gera sjer það ómak að beygja sig til þess að taka það upp. Þá er boðið upp 2 penny frí- merki frá Mauritius, en menn eru rkki sólgnir í það, enda er það ekki jafn sjaldgæft og hefir lítið gildi nema sami sje eigandi að báðum. Thomas Allan keypti það því líka og gaf fvrir ]>að 1750 stcrlingspund. Svo dró hann upp úr vasa sínum ávísanahefti og hripaði niður ávísun á 4150 ster- lingspund, rjetti hana upphoðs- haldara, en stakk frímerkjunum í litla tösku, sem var bundin með festi um úlflið hans. M. L.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.