Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1933, Page 5
LÍ58BÓK MORGUNBIiAÐSINS ráðgátum tilverunnar. — Þegar hún kyntist ritum H. P. Blavat- sky og litlu síðar henni sjálfri, þóttist hún hafa fundið þann lykil. Sá viðburður gerbreytti lífi hennar og gerðist hún lærisveinn H. P. Blavatsky í dularvísind- um. Starf hennar meðal guðspeki- nemenda er mörgum kunnugt. Þegar Olcott ofursti fjell frá ár- ið 1907, var hún kjörin forseti Guðspekifjelagsins til sjö ára og hefir verið endurkosin þris- var sinnum síðan. Henni tókst að framsetja hina torskildu heimspeki guðspekilegra fræða þannig, að lýðum varð ljóst, og lagði hún áherslu á, að mtnn sýndu trú sína í verkum. Þegar hún tók við forustu, voru deild- ir f jelagsins í -11 löndum, en und ir hennar stjóm hafa 36 lönd bætst við. Hún ferðaðist um all- an heim í embættiserindum, og þegar farið var að nota flugvjel- ar, ferðaðist hún með þeim, því það átti við skap hennar, þó kom- in væri yfir áttrætt, að fara hraðar yfir en komist varð með skipi eða eimlest. — Árið 1893 flutti hún búferlum til Indlands og tók f ljótt ástfóstri við landið og þjóðina. Svo segja lærðir Hindúar, að hún hafi kom ið á stórfeldum breytingum í trúarlífi þjóðarinnar, einkum Ilindúatrú. Hún kom austur öll- um ókunnug og kunni ekki sans- krít, en varð brátt svo lærð í trú- fræði Hindúa, að hún gekk fram af lærðum ,,pandítum“. Þó var miklu merkilegri en þekking hennar elskan, sem hún bar til þjóðarinnar, og gremjan og sár- saukinn yfir niðurlægingar- ástandi þjóðarinnar. Eldri menn þar austur frá segja, að sjer líði ekki úr minni, þegar þeir sátu grátandi undir ræðum hennar, því hún málaði upp fyrir þeim myndir með orðum sínum af því, sem Indland gæti orðið í fram- tíðinni. — í hópi ágætra manna, sem hún safnaði að sjer, vann hún að endurreisn þjóðarinnar og naut í því starfi örlætis margra indverskra prinsa og stórmenna. Eitt af stórvirkjum hennar á Indlandi var stofnun Benares-há- skóla. Síðar var hún gerð að heið- ursdoktor við þann háskóla. Mörg eru þau málefni, sem hún hefir veitt fylgi sitt um dag- ana, og er kvenfreisismálið eitt þeirra. Því hefir hún veitt öflug- an stuðning bæði á Englandi og á Indlandi. Eitt áhugamál henn- ar var skátahreyfingin. — Iíún stofnaði Skátafjelag Indlands. Indversku skátarnir bera vefjar- hött og syngja indverska þjóð- söngva, en hlýða að öðru leyti skátalögunum. Þegar Baden- Powell kom til Indlands, gengu indversku skátarnir inn í alheims fjelagið, en dr. Annie Besant varð yfirmaður þeirra í heiðurs- skyni. „Synir og dætur Indlands“ heitir eitt fjelag, sem hún stofn- aði — annað „Gullkeðjufjelag- ið“, það var barnafjelag — þriðja „The Stalwarts“, en fje- Jagar hjetu því að gifta ekki dætur sínar undir 16 ára aldri. Ennþá eitt starf hóf hún, þeg- ar hún tók til fósturs þá Krishna- murti og bróður hans. Eins og kunnugt er, boðaði hún, að mik- ill heimsfræðari mundi nota Krishnamurti sem sambandslið hjer á jörðinni og starfa með hans tilstyrk að því að fræða mannkynið. Starfsferill Krishna murtis hefir vakið mikla athygli um allan heim á síðustu árum og þó hann hafi aðrar skoðanir á ýmsu en þær, sem dr. Annie Be- sant aðhyltist, þá viðurkenna þó allir, hve glögga skynjun hún hefir haft á sálarlífi drengsins, þegar hún sá hvað með honum bjó, því hann er nú einhver á- hrifamesti prjedikari, sem uppi er. — Dr. A. Besant verður að lík- indum frægust á Indlandi fyrir afskifti sín af stjórnmálum. Því lýsti hún yfir hvað eftir annað, að hún hefði farið út í stjóm- málabaráttuna til þess að bjarga ungmennum Indlands. Æsku- menn landsins brunnu af áhuga fyrir því að reisa við menningu þjóðarinnar — en stjórnin skildi ekkert, bætti ekki úr neinu, en herti aðeins á stjórnartaumun- um. Unglingarnir viltust út í öfga kenda andstöðu og stjómleysi. 301 Árið 1913 hóf hún stjórnmála- baráttu sína, — árið eftir byrj- aði heimsstyrjöldin, en hún helt áfram baráttunni, vegna þess hvernig aðferð Bretar höfðu, þegar þeir buðu Indverjum þátt- töku í stríðinu. Stjórnmálasaga dr. Annie Be- sant á Indlandi er ennþá órituð — er það mikil saga og merki- leg, og líkleg til að hafa áhrif langt fram í tímann. Árið 1917 var hún gerð að íor- seta þjóðfundarins (National Congress) og hafði þá lýðhylli mikla, en seinna urðu áhrif Gandhis yfirsterkari, þegarhann hóf óhlýðnisstefnu sína við lög landsins, vegna rangindanna, sem stjórnin framdi. Dr. Annie Besant hjelt því fram og lýsti því yfir, að slíkt leiddi til stjórn- leysis. Hún var því ekki andvíg, að einstaklingar óhlýðnuðust vegna sannfæringar sinnar og tækju á sig afleiðingar þess — en að hópur manna hlýddi blint foringja í slíku tiltæki væri mis- skilningur á sálarfræði hópsins. Þrátt fyrir þessar skiftu skoðan- ir virti hún Gandhi vegna heilag- leika lífs hans. Þó hún teldist ekki lengur leið- togi í stjórnmálum Indlands, hjelt hún þó áfram að vinna að endurbættri löggjöf í landinu. — Eftir Montagu-Chelmsford- stjórnarbóLina, hóf hún umfangs mikið starf, sem nefnt var þjóð- þingið (National Convention) og hafði í því aðstoð margra merkra manna. Tilgangur þess var að undirbúa frumvarp til stjórnarskrár fyrir Indland, sem Indverjar mættu við una. Var því starfi lokið og frumvarpið lagt fyrir parlamentið enska ár- ið 1925. Það var aðeins lesið upp í parlamentinu, en síðan var því stungið undir stól. Það er þó stórmerkilegt skjal og að viturra manna dómi einasta stjórnar- formið, sem hæfa mundi ind- versku þjóðinni, eins og ástatt er um menningu hennar og stað- hætti. Það er varla unt að ganga framhjá dularlífi dr. A. Besant, hversu fljótt sem er yfir sögu farið, því þótt sú hlið komi minna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.