Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Qupperneq 2
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Lóndrangar. 306 fiskisælustu miðum íslands — Jök- uldjápið. Náttúrufegurð framan undan Snæfellsjölki er í senn sjerkenni- leg, hrikafengin, og þó aðlaðandi. Þessi mikla hraunauðn, sem þen- ur sig frá fjallsrótum til sjávar er fáskrúðug að gróðri, en fjöl- þætt af sjerkennilegum myndum, sem vatn og vindar hafa verið að móta í mörg hundruð ár. Þess- ar bergmyndir, er eigi munu hundnar tíma eða rúmi svo að vitað sje, draga undarlega fljótt hugan til athugunar; hvort held- ur er kerling við hellismunna í hrauninu, eða bergrisi við sjáv- arströnd, sem er eins og land- vættur, og stendur af sjer flest reiðarslög Ránar. Fjallasýn er all- fögur og víðáttumikil á þessu svæði, en þó nýtur jökullinn sín ekki hjer. En hann er fjalla hæst- ur og fegurstur á nesinu. Næsti bær utar Malarrifi er Einarslón eða Lón, eins og venju- lega er nefnt nú- Lón liefir um langan aldur verið helsta býlið framan undir Jökli, að undan- teknu Malarrifi. En þar bjó um miðja 19. öldina hinn mikli dugn- aðar og þjóðnytja maður, Pjetur Jónsson, sem án efa má telja með fremstu mönnum í íslenskri bænda stjett, í þann tíma. í Lóni hafa oft búið dugnaðar og atorkumenn. Þar var kirkja alt fram um 1880. Var oft fjölment við kirkju í Einarslóni, þegar út- ræði í Dritvík stóð í blóma. Þeir, sem koma í Lón, munu að ugglausu veita athygli hinum mikla steingarði, er girðir túnið alt ofan vert. Oarður þessi er hiaðinn á árunum 1782—87, af síra Asgrími Vigfússyni presti í Lóni (síðar að Laugarbrekku)- — Þegar lokið var við garð þennan var hann 766 faðmar á lengd. — Árið 1788 veitir „Hið danska land- bústjórnarfjelag" Ásgrími presti aðra silfurmedalíu sína að verð- launum, fyrir að hafa hlaðið steingarð þennan, hýst staðinn, bygt tvo kálgarða, og rutt nýja vör fyrir fiskibáta. Lending sú, er síra Ásgrímur ruddi heitir Lón- dalur, og er hann beint niður af tveim stórum hólum í túninu. er Hjallhólar nefnast. Síra Ás- grímur var dugnaðar- og elju- maður, en var af sumum talinn blandinn nokkuð og lítt samvinnu þýður. Þegar túninu í Lóni sleppir, verður fyrst fyrir oss að utan- verðu hryggbunga rauð að lit, sem nefnist Langhryggur. Síðan taka við hraunbrysti nokkurn spöl, og loks blasir við Djúpalónssandur með rammgjörðum hamraveggjum á tvo vegu- Þessi leið niður á sandinn verður ekki farin nema gangandi. Hjer er einstigi ill- trætt, er nefnist Draugakleif. — Þegar niður er farið verður Djúpa- lónshóll á hægri hönd, en Söng- klettur á vinstri. Söngklettur er stærstur kletta á sandinum, og þar á huldufólk að hafa kirkju sína. Þegar niður á sandinn kem- ur, blasir við nýr heimur, þar sem úthafssviðrandinn rýfur þögnina í ár og eindaga. Syðst á sandinum stendur kerl- ing ein sjer, há og hrikaleg, með fiskkippu á bakinu og arnhvasst nef. Bergrisi þessi heitir kerlingin á Djúpalónssandi.*) Upp af Djúpalónssandi sunnar- lega er troðningur nokkur, sem nefnist Nautastigur. Liggur hann upp í klettabyrgi mikið, og eru þar aflraunasteinarnir, sem oft er talað um, ef minst er á Dritvík. *) 1 Árbók F. í. 1932 sjest kerling þessi á 16. mynd. Myndin er sögð frá Dritvík, en er frá Djúpalónssandi. Klettabyrgi þetta er fallegt og sjerkennilegt. Þá er gengið er inn í byrgið verður á vinstri hönd hátt ofar manni gatklettur mikill, og ef klifrað er upp í gatið verður fyrir neðan hinum megin hyldýpi, er nefnist Svörtulón, en beint á móti blasir við þverhnýptur hamra veggur, að nafni Norðurklettar. Þessi staður hefir ekki að ófyr- irsynju verið valinn fyrir steina- tökin, þar sem kaldir hamyavegg- irnir, haf og himinn vekja ó- skifta athygli. — Steinar þessir eru fjórir: Fullsterkur (155 kg.), hálfsterkur (140 kg.), hálfdrætt- ingur (49 kg.) og amlóði (23 kg.), en hann er nú brotinn. Þetta eru alt brimbarðir blágrýtishnullung- ar, böllóttir og illir átöku. Sá þótti ekki skiprúmsgengur í Dritvík, sem ekki kom hálfdrætting á stall. Bergstallurinn, sem hefja skal steinana uppá nær nú meðalmanni liðlega í hnje, en hefir með vissu verið mjaðmarhár, að þvi er kunn- ungir telja. Oft voru vermenn úr Dritvík stundum saman í landlegum yfir á Djiáplónssandi að fást við stein- tökin. En frækilegast þótti að kljást við hnullunga þessa í blaut- um skinnklæðum, eftir langan sjó- barning. Verður ekki í efa cLregið að kapp hafi verið um slíka hluti, þar sem ungir menn og vel að sjer voru fjölmargir satíian. Þess má geta að almennur mis- skilningur hefir verið um það, að steinatökin væri í Dritvík- En svo er ekki, eins og sjá má af því,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.