Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Qupperneq 4
308 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS og flatfiskur („Platfisk“). — Skreið öll var urn langan aldur kviðflött. Þá var ekki ráhert eins og nú, heldur var fiskurinn látinn hanga á sporðunum í fiskgörðun- um, þar til hann var all-mikið siginn. Síðan var hann tekinn og honum hlaðið í fiskbyrgin, þannig að hausar voru látnir vera milli laga, til þess að vindurinn fengi betur blásið um skreiðarhlaðann. Þetta var kallað að skrýfa fiskinn Flatfiskurinn var breiddur á reit- ana, og síðar hlaðið í byrgin, er hann var nægilega þur. Mikils þótti um vert að flatfiskurinn hefði þykkan hnakka og krept þunnildi. Bátar þeir, sem reru íir Dritvík voru flestir stórir sexæringar og • áttæringar. Vertíð í Dritvík byrj- aði um miðjan einmánuð og stóð fram í maí, eftir því, sem á stóð um afla. Bátar hvaðanæfa úr Breiðafirði og víðar að stunduðu veiðar þarna úr Víkinni. Vermenn þyrptust í Dritvík úr ýmsum hjer- uðum í vertíðarbyrjun, því þar þótti með afbrigðum fiskisælt á stundum. Sá þótti ekki takandi í skip- rúm, sem ekki lagði með sjer 4 fjórðunga viðbits. Þess er getið um Guðmund Þor- láksson í Ögri, afburða formann, að hann hafi ekki talið þann skip- rúmsgengan, sem ekki lagði með sjer 6 fjórðunga. Hafði Guðmund- ur haft það fyrir vana, að gá í sltrínur skipsmanna sinna, áður er lagt væri af stað, til þess að vita hvort viðbitið væri sem skyldi. Með viðbiti er átt við kæfu, tólg og smjör. Guðmundur Þorláksson var um skeið hákarla- foimaður hjá Jóni Kolbeinssen kaupmanni í Stykkishólmi. Einhverju sinni er þess getið, að Guðmundur var á leið suður í Dritvík til róðra, og hrepti versta veður. Leitaði hann afdreps undir Hellissand, og má vera ilt fyrst svo er komið. Vildu nii menn fá Guðmund til þess að hleypa upp á sandinn. En hann mælti: „Jeg vil enginn hvalreki verða“, og setti því næst fyrir Öndverðarnes, og náði heill í Dritvík. — Þótti flestum því rösklega af sjer vikið A vorin komu menn skreiða- ferðir undir Jökul alla vegu innan vir Dölum, sunnan úr Borgarfirði og víðar að. Enda var skreið und- an Jökli annáluð fyrir gæði. Oft sendu litgerðarmenn stór skip (teinæringa) út í Dritvík, til þess að sækja afla sinn. Var þá kvenfólk stundum með í ferðum. Þeir, sem búa á Vestureyjum á Breiðafirði eru oftast nefndir Vest ureyingar. Þeir reru oftast í Drit- vík og heldu heim í vertíðarlok. En fóru síðan norður yfir Breiða- fjörð, og reru að Látrum við Látra bjarg til sláttar. Mundi mörgum nú finnast það löng ferð og djarft sótt, á ekki stærri bátum Oft’ mun hafa verið óvistlegt og hrollsamt í verbúðunum hjá þeim „Drissum" (svo voru Dritvíkingar jafnan nefndir), þar, sem oftast var aðeins tjaldað yfir búðartóft- irnar. í landlegum var kátína og ljett- lyndi í öndvegi í Dritvík. Þá skemtu menn sjer við rímnakveð- skap, sögusagnir, glímur og fleiri leika. Þess er getið, að um eitt skeið hafi sá leikur verið iðkaður mikið, sem nefndur er „að fara ríðandi til páfans“. Leikur þessi er fólginn í því að tveir menn bera sívalan staur og á honum situr maður klofvega, en sá fjórði hefir skinnbrók í hendi, og slær í fæt- urna á þeim, sem á staurnum sit- ui', og reynir að fá hann til að falla til jarðar. Ef maðurinn getur tollað á staurnum, þá vegalengd, sem tiltekin var, þegar leikurinn bvrjaði, er sagt að hann hafi kom- ist ríðandi til páfans. Mállýska sú, sem töluð er á ut- anverðu Snæfellsnesi, er eflaust að nokkru leyti sprottin af þeim grös- um, að þar dvöldu menn hvaðan æfa af landinu nokkurn hluta árs. Á þessu svæði hafa jafnan ver- ið menn, sem kúldrast hafa með allmikið af innluktum alþýðufróð- leik, skemtilegum og víðtækum. Má eflaust telja það skaða að fróðleikur þessi skyldi að mestu fara forgörðum, og að mörgu leyti vegna þess, að þetta afskekta svæði hafði ekki þá aðstöðu, sem skyldi. ^ Þeir, sem koma í Dritvík og þekkja þar til að einhverju leyti, munu eflaust verða þess varir, að hugurinn leitar fljótlega um öxl, og fýsir að standa á gægjum við þann tíma, er 6 tugir báta hjeldu út leiðina í Dritvík. En efra blöstu við hlaðin byrgi, með auð þeirra manna, sem sóttu barn- inginn á seltu, og dreymdi eigi um að vjelaöld væri í nánd. Fyrir kvenfólkið. II. Hirðing andlitsins. Enda þótt andlitshörundið sje sífelt undir áhrifum lofts og veðra, er það fíngerðast og tilfinninga- næmast af hörundi líkamans. — Þetta finnum við og þess vegna notum við í andlitið alls konar smyrsl og púður. — En við meg- uiíi ekki gleyma því, að ekki er nóg að vernda andlitshúðina, hún þarf ekki síður hreinsunar við. En vegna þess að okkur svíður í andlitið af sápu, auk þess sem sápan þurkar húðina um of, þá höfum við vanið okkur á að nota smyrsl til andlifshreinsunar eða þvotta. Smyrsl, sem til þess eru not- uð, eru svo saklaus fyrir húð- ina, að allir geta þolað þau í and- litið. En efnasamsetning þeirra gerir það að verkum, að andlits- húðin getur ekki diukkið þau í sig. Þess vegna má ekki hafa slík smyrsl í andlitinu yfir nóttina, því að þau stífla svitaholurnar. Sje strokið litlu af hreinsunarsmyrsli yfir andlitið leysir það upp öll óhreinindi, en húðiu heldur mýkt sinni. Eru smyrslin strokin af með andlitsvatni eða volgu vatni, og er látið í vatnið ofurlítið af bor- ax. Þetta er örugt fyrir alla og vil jeg vara konur við, að van- rækia þess háttar andlitsbreinsun nokkurt kvöld, því að andlitshör- undið á, hreint og strokið, að hvílast yfir nóttina. Það er minna um vert að vanda þvottinn á morgnana. En væti maður bómull- arhnoðra í andlitsvatni og strjúki honum yfir andlitið. þá gegnir oft furðu, hve milil óhreinindi menn finna að hafa sest á húðina yfir nóttina. Vera.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.