Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.10.1933, Blaðsíða 6
310 LESBOK morgunbladsins petur Monsen þess, að lestur ýmsra enskra annála hafi orðið tilefni þessarar þýðingar hans af Heims- kringlu. Ennfremur bendir hann á það, að með því að bera saman annála þessa og frásögn Snorra, verði leystar ýmsar þær gátur, sem til þessa hafi reynst sagnfræðing- um torráðnar. Þar, sem því verður við komið, gerir hann slíkan sam- anburð neðanmáls, og reynist'hon- um þessi aðferð allfrjósöm, þó nið- urstöður hans muni, sem von er til, sæta misjöfnum dómum fræði- manna. Er þá komið að þýðingunni sjálfri, en mestu varðar hvernig hún hefir tekist. Jeg tel hana mjög vel af hendi leysta; hún er löngum nákvæm á lipurri og lát- lausri ensku- Vitanlega bregður þar fyrir orðum og orðatiltækjum, sem deila má um hve heppileg sje, en slíkt er hverfandi. Monsen hef- ir meira að segja tekist að blása nokkru lífi í þýðingar sínar af visum og kvæðum sögunnar, þó hann hafi enga tilraun gert til þess að halda frum-bragarhættin- um. Auka vísna- og kvæðaþýðing- ar þessar gildi þýðingarinnar, gera hana áhrifameiri og litauðgari. — Með nokkrum sanni mun mega segja um hana í heild sinni, að andi frumritsins svífi þar yfir vötnum. Útgáfunni fylgir fjöldi skýr- inga; sumar þeirra eru lánaðar frá Storm, en þýðandinn hefir bætt við geisi mörgu og merkilegu; er ekki minst vert um þær neðan- málsgreinarnar, sem bera saman frásögn Snorra og enskar heimild- ir, eins og áður var drepið á; gera þær þýðinguna miklu fróðlegri og skemtilegri fyrir enska lesendur. Að. ytra frágangi er útgáfan afar glæsileg; hiin er prentuð á ágætan pappír, með stóru letri, og endurprentuðu myndirnar úr norsku skrautútgáfunni eru fram- úrskarandi glöggar. Átta heilsíðu Ijósmyndir auka í tilbót á prýði bókarinnar og nytsemi; mun les- endum ekki síst verða starsýnt á ljósprentaða blaðsíðu iir Flateyj- i-bók. Má því með sanni segja, að ekkert hafi verið sparað til, að gera búning rits þessa hæfan merku innihaldi þess. Loks er þess að geta, sem skemtilegt er til frásagnar, að út- gáfa þessi hefir þegar vakið mikla athygli. Merkis-tímarit, bæði í Eng landi og Ameríku, hafa flutt á- gæta dóma um hana, og sama máli gegnir um stórblöðin beggja megin Atlantshafs- „London Times“ gat hennar lofsamlega og „New York Times“ valdi til þess einhvern kunnasta ritdómara sinna að skrifa um hana, og fór hann um hana mörgum aðdáunarorðum. Þó vissara sje, ef til vill, að draga eitthvað frá í þeim blaða- dómum, þá mun hitt sanni næst, að þessi þýðing þeirra Monsens og Smiths sje læsilegasta Heims- kringlu-þýðing á enska tungu og líklegust til að ná hylli nútíðarles- enda. En þakka ber þeim útlend- ingum, sem stuðla að því, með vönduðum verkum, að gera erlend um þjóðum arðbær bókmentaleg verðmæti vor Landi voru og þjóð verður altaf sæmdarauki að slíku starfi og vex vinaeign vit um lönd. (Bókavörðum og bókamönnum til fróðleiks skal hjer tilgreint hið enska heiti þýðingarinnar, nafn útgáfufjelagsins og verð: Heims- kringla or the Lives of the Norse Kings. By Snorre Sturluson. Edi- ted with notes by Erling Monsen and translated into English with the assistance of A. H. Smith. Cambridge, 1932. Útgefandi: Hef- fer, W. & Sön- Verð: 18 shillings). <9 ^ »••• Kínverskt sumarB Eftir Ólaf Ólafsson, kristniboða Sumri fagnað. Margar hinna hug- ljúfustu endurminn inga okkar Islendinga, munu bundnar við sumardaginn fyrsta, bjartasta hátíðisdag ársins. Það liefði átt vel við að halda fagn- aðarguðsþjónustur á þeim degi, í öllum kirkjum landsins, svo er gleði okkar einlæg og almenn yfir komu sumarsins. Þetta er ofur skiljanlegt: Sum- arið stutt og yndislegt og þar að auki aðalbjargræðistími ársins, en vetrar langir, dimmir og ómildir. Kínverjar búast við komu sum- arsins með nokkuð öðrum tilfinn- ingum en íslendingar. Þeir fagna sumrinu, en fögnuður þeirra er blandinn nokkrum kvíða. Þeir hlakka fyrst og fremst til hveitiuppskerunnar, enda er þá þröngt orðið í búi hjá almenningi, því víðast hvar er margt í heimili. (Til dæmis má taka: Húsráðendur öidruð hjón, þrír synir er sjeð var fyrir kvonfangi innan tvítugs ald- urs, sjö sonasynir og af þeim eru þrír giftir og eiga börn í ómegð. Stundum eru 10—20 fjölskyldur á sama heimilinu). Vetrarbjörgin hrekkur ekki æf- inlega til, en fyrstu villijurtir vors ins halda þá Jíftórunni í mörgum- Þegar svo uppskeran byrjar í maí- mánuði, er öllum loks vel borgið. Fyrst og fremst jarðeigendum og leiguliðum. — Oreigar fá atvinnu, beiningamenn og örvasar tína upp öx á eftir kornskurðarmönnunum á daginn, en stela heilum korn- bindum á næturnar. Það úir og grúir af fólki út um allar jarðir. Frá Kanton á suðurströndinni til Uankow í Mið-Kína, og frá Han- kow og norður eftir 12C0 km. löngu sljettlendi, alla leið til Pek- ing, má heita að sje einn óslitinn, geisimikill akur. Svo víðáttumikið frjólendi finst hvergi annars stað- ar á hnettinum. Með óvenjulegri nægjusemi kom ast. bændur nokkurn veginn af þegar vel árar; fæstir þeirra eru jarðeigendur, en verða að aka helming uppskerunnar í kornhöður jarðeigenda, sem eru búsettir í bæj unum eða stærstu þorpunum. Veðráttufar. 1 haustin frani eftir vetrinum get- ur verið heiður' himinn í 2—3 mán- uði. Þá tekur við hráslaga kuldi og ólundarleg austanátt með ofur- lítilli snjókomu í janúar eða fyrri hluta febrúar-mánaðar, en má þó

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.