Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1934, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1934, Blaðsíða 4
LISBÓK MOBGUNBLABflíNfl M akkerum með 5/4“ streng og gefið út 50 faðma á hvorri. Helt hann að það væri alveg örugt vegna lengdarinnar á strengjunum! Litla kvikindið. 'Einu sinni var kerling nokkur allferleg að versla í búð. tíað .Vgúst hana um það, að fá að koma með henni út að moldar- kofa hennar og taka þar mynd af henni. En er hún sá myndavjel- ina sundur dregna, varð hún reið, helti yfir Agúst óbóta- skömmum og sagði, að hannskyldi ekki draga dár að sjer. Kerling þessi heitir Birgitta. Xokkru seinna var hún að gera að sel niðri í fjöru og var nú sýnu ferlegri en áður, alblóðug upp að öxlum, úfin og illa til fara. Kom þá P. Hansen rann- sóknamaður þangað og hafði með- ferðis nrlitla kvikmyndavjel. Mið- aði hann nú vjelinni á kerlu, eu hún sá að bæði var þetta verk- færi svo lítið og svo lítið gat á því, að ekki þurfti að óttast það. Brosti hún þá út undir cyru og skrumskældi sig alla vega og hamaðist svo við að gera seiiriu til. en leit þó við og við hlæjandi til myndavjelarinnar. Gat hún alls ekki ..setið fyrir“ betur en hún gerði. Arið eftir fekk kerling, ásamt fleirum að koma um borð í Græn- landsfarið ,.Disko“. Þar var þeim sýnd kvikmynd og var einn kafl- inn mvndin af henni. Þektikerling myndina af -íjer og þótti ærið fer- leg. Þá bölvaði hún mikið þessu litla kvikindi sem hann P. Hansen hefði verið með. Birgitta. „Frá landi víkinganna“. Frásögn Balbo flugkappa um flug- heimsókninatil íslands ífyrrasumar. Fyrir nokkru kom út ferða- saga Balbo flugkappa, um Vestur- heimsflug haus í fyrrasumar. Bókin er um 24 arkir í stórubroti. og heitir „Centuria alata“, eða „Hundraðssveitin fljiigandi“. Þar er skýrt ítarlega frá undir- búningi liins mikla hópflugs, og síðan rakin flugferðin eftir helstu áföngum. Er þar vitaskuld lögð mest á- hersla á að lýsa flugferðinni sjálfri. en minna hirt um land og þjóðlýsingar, enda eðhlegt, að hinn mikli flugforingi hafi í ferð- inni orðið að hafa hugann að ír.iklu leyti við umsvifamikla far- arstjórn og alt sem að ferðinni laut. Kaflinn um ísland heitir „La terra dei Vichinghi“, land vík- inganna. Er hann 23 bls. í bók- inni; en í næsta kafla er lýst fluginu hingað og móttökunum bjer. Svo mikla eftirtekt vakti flug Balbos hingað, og svo eftirminni- leg er mörgum sú heimsókn að lesendum Lesbókarinnar mun forvitni á að fá nokkura hugmynd um hvað flugkappinn segir af komu sinni hingað, og hvað af umsögn hans verður ráð- ið um álit hans og manna hans á landi og þjóð. Eins og menn muna var veður fremur sveljandalegt er flugsveil Balbo kom hingað þann 3. júlí, vindur á ritsrmnan, þó ekki hvass. en skýjað loft og skvgni hvergi nærri gott. I ferðafrásögn sinni lætur Bal- bo ekki vel af fluginu hingað, kvartar um það. hve þokan hafi verið mikil, og slæmt skygni, eins og hann sagði blaðamönnum, er liann kom hingað. F'eginn var bann er hann sá Vestmannaeyjar og það eina skemtilega er hann segir frá flug- Balbo. inu hingað, er það, þegar „snjór- inn‘, er hann þóttist sjá á kletta- sillum Eyja, alt í einu hóf sig til flugs, og varð að fuglageri Þrátt fyrir óhagstætt veður var flughraði flugsveitarinnar mestur frá Londonderry og hingað, að því er Balbo segir, því sveitin flaug að meðaltali 243 km. á klst., alls 1528 km. á 6 klst. og 18 mín. í Vatnagörðum. 1 ferðalýsing sinni skýrir Balbo frá því, hvernig hann varð að þræða sig áfram meðfram strönd- inni fyrir Reykjanesskaga, til þess að finna Reykjavík. Um aðkomuna og viðtökuna í Vatnagörðum segir Balbo; Þegar við setjumst á sjóinn byrja nýjir erfiðleikar. Við náum ekki til legufæranna út á vík- inni, vegna vindstöðunnar. Þá setjum við vjelina aftur í gang, en hún lætur ekki að stjórn, þá breiðum við út yfirhafnir okkar á öðrum vængnum og notum þær fyrir segl. Með þessum kynlega útbúnaði, er breytti flugbátnum í seglskip, komumst við loks að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.